Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Side 40
„Þetta truflaði afmælið aðeins þegar blöðrurnar stigu
skyndilega til himins en það var reyndur verktaki sem
batt blöðrurnar niður í upphafi,“ segir Sveinn Ásgeir
Baldursson sem hélt upp á 60 ára afmæli sitt á
fimmtudaginn á heimili sínu í Grafarvogi. Blöðrurnar
enduðu för sína alla leið úti við Gróttu og töldu sjón-
arvottar þar að fallhlífarmaður hefði mögulega lent í
sjónum og var lögregla, björgunarsveitir, sjúkralið og
slökkvilið kallað út auk þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Ein blaðran var á stærð við svartan ruslapoka og
svo voru nokkrar minni blöðrur með til skrauts en
Blaðran á Gróttu kom
alla leið úr Grafarvogi
stóra blaðran var merkt afmælisaldrinum; 60 ára.
„Ég hélt að ég væri bara að fara að grilla með börn-
um og barnabörnum en var komið á óvart með óvæntri
veislu í miðri viku og þessari líka rosalega flottu
blöðru. Allir í afmælinu táruðust þegar blaðran hvarf
svo svona skyndilega og ég þurfti að fara í beikon-
grímubúning til að fá athygli afmælisgestanna aftur.
En það var leiðinlegt að þetta skyldi enda svona þótt
allt hafi farið vel. Ég ætla hins vegar að halda upp á
70 ára afmælið mitt innandyra,“ segir Sveinn Ásgeir í
léttum dúr.
Stór helíumblaðra úr sextíu ára afmæli Sveins Ásgeirs
Baldurssonar ræsti út björgunarsveitir.
SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2016
„Það er eitt mál, sem jeg álít, að
blöðin hjer ættu að birta nokkur
aðvörunarorð um, þ.e. fyrir-
hyggjulaust flan ungs íslensks
fólks til útlanda.“
Þetta sagði Sveinn Björnsson,
sendiherra og síðar forseti Ís-
lands, í samtali við Morg-
unblaðið 23. júlí 1926. Tilefni
viðtalsins var að Sveinn var að
flytjast búferlum til Kaup-
mannahafnar með Gullfossi.
„Árin sem jeg var í Höfn, varð
ég var við talsverð vandræði
sem hlutust af þessu, og eftir því,
sem jeg hefi frjett síðan, hafa nú
síðustu missirin ekki verið minni
brögð að þeim,“ hélt Sveinn
áfram. „Ungt fólk sækir til Hafn-
ar – einkum á haustin. Margt á
fyrir fargjaldinu, og máske vel
það, er það fer af stað, en enga
vísa atvinnu eða nokkurn sama
stað, er þangað kemur. Hugs-
unarlaust leggur það út í heim-
inn, með þá fávísu von í brjósti,
að það muni fá einhverja atvinnu
er þangað kemur, eða einhver
ráð muni rakna upp. Eins og
geta má nærri er það ekki hægð-
arleikur fyrir fólk, sem er öllum
og öllu ókunnugt, að fá sjer líf-
vænlega atvinnu, í skjótu bili, þar
sem tugir þúsunda af lands-
mönnum ganga atvinnulausir.“
Undir lok viðtalsins sagði
Sveinn Björnsson: „Ef nokkur
maður er vantrúaður á, að hjer
sje um alvörumál að ræða, er
það sprottið af ókunnugleik.“
GAMLA FRÉTTIN
Fyrirhyggjulaust flan ungs
íslensks fólks til útlanda
Sveinn Björnsson sendiherra.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kirsten Dunst
leikkona
Claire Danes
leikkona
Annie Mist Þórisdóttir
Crossfit hetjaSkeifunni 8 | Sími 588 0640 |
Hægt að fá í mismunandi
stærðum og viðartegundum.
Viður/Corian Toppur GM 7700
Hnota 220x92 stækkun 1 x 100 cm.
Plank GM3200
Gegnheil eik
L270 D100 H74
stækkanlegt um 2x50cm
Hægt að fá í fleiri
stærðum og viðartegundum.
Hægt að fá í mismunandi
stærðum og viðartegundum.
Glæsileg borðstof
uborð frá
naver collection
í Danmörku
Þar sem hefðir og h
andverk fara saman
Oval GM 9900
L200 D100 H74
Stækkanlegt, hver stækkun 50cm