Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016
Enn veit enginn hverjum varlofað styttingu kjörtímabils.
Kjósendur stjórnarflokkanna taka
loforðið ekki til
sín. Ekki Píratar,
sem heimtuðu
vorkosningar.
Ekki systurflokk-
arnir, Samfylking
og Björt fortíð,
enda liggur þeim
ekki á að gufa
upp. Gátan er því
enn óleyst.
En sitthvað hefur þó gerst, einsog véfrétt Viðskiptablaðsins
vekur athygli á:
Nokkrir stjórnmálamenn hafastigið til hliðar í aðdraganda
alþingiskosninga, en Magnús Orri
Schram, sem ekki hlaut kosningu
sem formaður Samfylkingarinnar,
ætlar ekki að gefa kost á sér í
flokksvalinu.
Í yfirlýsingu segir hann aðOddný Harðardóttir, nýkjörinn
formaður flokksins, „eigi að hafa
fullt umboð til að vinna samkvæmt
þeim áherslum sem hún lagði í
sinni kosningabaráttu“.
Þetta er afar áhugaverð rök-semdafærsla hjá Magnúsi því
hann hlýtur samkvæmt henni að
telja að vigt hans í flokknum sé
slík að seta hans á þingi myndi
draga svo mjög athyglina frá nýj-
um formanni að það yrði henni til
trafala í starfi. Það má vera rétt
hjá Magnúsi en það segir hugs-
anlega meira um stöðu Samfylk-
ingarinnar en stöðu hans innan
flokksins.“
En spyrja má hvort MagnúsOrri geti ekki lofað því að
hætta að ganga Laugaveginn til að
draga úr vanmetakennd annarra
sem eiga leið um strætið?
Magnús Orri
Schram
Nærgætinn
ofurskuggi
STAKSTEINAR
www.fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til lögg.fasteignasala
Brynjólfur Þorkellsson
Sölufulltrúi
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa
Veður víða um heim 9.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 alskýjað
Bolungarvík 8 heiðskírt
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 9 rigning
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 léttskýjað
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 18 alskýjað
Helsinki 16 alskýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Brussel 8 skýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 13 alskýjað
London 20 skýjað
París 21 skýjað
Amsterdam 16 skýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 21 skýjað
Vín 17 rigning
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 29 léttskýjað
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 30 heiðskírt
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 18 rigning
Montreal 23 léttskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 28 skýjað
Orlando 30 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:06 22:01
ÍSAFJÖRÐUR 4:55 22:22
SIGLUFJÖRÐUR 4:37 22:06
DJÚPIVOGUR 4:31 21:35
Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar lítur
viðbrögð borgaryfirvalda við áliti um-
boðsmanns um samstarfssamning
Bílastæðasjóðs og samtakanna Mið-
borgin okkar mjög alvarlegum aug-
um. „Ef ekki er farið eftir áliti hans
getur embættið aldrei orðið sú vörn
borgarbúa gegn óvönduðum stjórn-
valdsaðgerðum sem því er ætlað að
vera og stofnun embættisins því
sýndargjörningur og sýndarlýðræði,“
segir í ályktun íbúasamtakanna.
Þar segir að umboðsmaður borgar-
búa hafi í nýlegu áliti gert alvarlegar
athugasemdir við gildandi samstarfs-
samning Bílastæðasjóðs og samtak-
anna Miðborgin okkar. Samningurinn
feli í sér verulega háar árlegar
greiðslur úr bílastæðasjóðnum til
umræddra samtaka.
Samtökin höfðu rétt fyrir sér
„Íbúasamtök Miðborgar Reykja-
víkur lýsa yfir afdráttarlausum stuðn-
ingi við umboðsmanninn í þessu máli.
Jafnframt furða íbúasamtökin sig á
afstöðu forsætisnefndar Reykjavík-
urborgar 16. júní sl. til álits umboðs-
mannsins. Forsætisnefndin ákvað að
gera athugasemd við niðurstöðu um-
boðsmannsins í stað þess að sjá til að
við álitinu yrði brugðist strax og
greiðslurnar stöðvaðar.
Vegna máls þessa er rétt að minna
á að íbúasamtökin áttu á sínum tíma
frumkvæði að því að vekja athygli á
þessu máli og hafa á undanförnum ár-
um ítrekað beint máli sínu bæði til
borgarstjóra og borgarráðs og kvart-
að yfir umræddum greiðslum. At-
hugasemdir íbúasamtakanna breyttu
því miður engu og héldu greiðslur úr
sjóðnum áfram.
Leituðu samtökin því til nýstofnaðs
embættis umboðsmanns borgarbúa
strax árið 2013 og aftur 2015. Um-
boðsmaður hefur nú tvisvar staðfest
að íbúasamtökin höfðu rétt fyrir sér,“
segir í ályktuninni.
Furða sig
á afstöðu
borgarinnar
Íbúasamtök
styðja umboðs-
mann borgarbúa