Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Tónlist hefur einkennt lífArnheiðar og Jónu fráþví þær voru litlar stelp-ur, en með ólíkum hætti.
„Ég byrjaði í barna- og unglinga-
kór Dómkirkjunnar þegar ég var
8 ára og síðan þá hef ég bara ver-
ið að syngja,“ segir Jóna. Arnheið-
ur byrjaði ung að læra á píanó í
Tónlistarskóla Reykjavíkur og
leiddist frekar óvænt út í söng-
nám. „Ég var 14 ára þegar ég
byrjaði í Gradualekór Langholts-
kirkju hjá Jóni Stefánssyni og þá
fannst mér ég þurfa að byrja að
læra söng þar sem svo margar
stelpur í kórnum voru í söngnámi.
Ég skildi reyndar ekki hvernig
söngtímar færu fram en mér
fannst ég þurfa að prufa svo ég
skráði mig í hálft söngnám með
píanónáminu. Svo fór ég að elska
sönginn meira og meira.“ Eftir að
Arnheiður fór að syngja einsöng
með kórnum segir hún að metn-
aðurinn fyrir söngnáminu hafi
aukist. „Eftir menntaskóla tók ég
eitt ár bara í söng og þá vissi ég
að mig langaði að einbeita mér að
honum.“
Mamma Arnheiðar kynnti
hana fyrir kórastarfinu í Lang-
holtskirkju, en hún hefur sjálf
sungið með einum af kórum kirkj-
unnar. „Það er mikið sungið í fjöl-
skyldunni minni, mamma lærði
söng og þegar móðurfjölskyldan
hittist er gítarinn nánast alltaf
tekinn upp og við syngjum saman.
Svo er mikil tónlist í allri fjöl-
skyldunni, pabbi er trompetleik-
ari.“ Arnheiður hefur því alltaf
fundið fyrir hvatningu að stefna
sem lengst í tónlistinni. „Það er
opinn möguleiki í fjölskyldunni að
hægt sé að gera tónlistina að at-
vinnutækifæri, það er alls ekkert
sjálfsagt í öllum fjölskyldum. Hug-
arfarið er þannig að maður á að
læra það sem maður vill og sjá
svo til hvað gerist. Maður á alltaf
að elta drauminn sinn og sjá
hvernig það fer.“
Kúl að fara til Vínar
Jóna og Arnheiður kynntust
því í kórastarfinu í Langholts-
kirkju, en ekki fyrr en þær voru
orðnar 18 og 20 ára, fyrir sex ár-
um, og farnar að syngja með Gra-
duale Nobili kórnum, sem er eins
konar framhaldskór af Graduale-
kór Langholtskirkju, barna- og
unglingakórnum. „Ég söng svo
stutt með Gradualekórnum. Ég
kynntist nokkrum stelpum í Söng-
skólanum sem hvöttu mig til að
koma í kórinn,“ segir Jóna, sem er
mjög þakklát fyrir það í dag. Þær
vissu ekki þá að leiðir þeirra
myndu liggja talsvert mikið saman
næstu árin. Arnheiður lauk söng-
námi undir leiðsögn Hlínar Pét-
ursdóttir í Tónlistarskóla Reykja-
víkur árið 2011. „Hlín stakk upp á
því að ég færi til Vínar og mér
fannst það ótrúlega kúl og skráði
mig í inntökupróf í Tónlistarhá-
skólanum í Vín og fór án þess að
tala við neinn. Ég þekkti ekki
neinn í skólanum og hafði aldrei
komið til Vínar.“ En allt gekk að
Elta söng-
drauminn til
Vínarborgar
Vinkonurnar Arnheiður Eiríksdóttir og Jóna G. Kol-
brúnardóttir stunda nám við tónlistarháskólann í
Vínarborg. Þær kynntust í gegnum kórastarf í Lang-
holtskirkju og hafa upplifað heilmargt saman, allt frá
tónleikaferðalagi með Björk Guðmundsdóttur til óp-
erusýninga í skólanum í Vín. Þær eru nú staddar í
sumarfríi á Íslandi og ætla að halda ljóðatónleika í
Þjóðmenningarhúsinu á morgun, fimmtudag, ásamt
píanóleikaranum Ingileif Bryndísi Þórsdóttur.
Vinkonur Jóna og Arnheiður gera ýmislegt annað en að syngja saman, til
dæmis að fara á fjöll. Hér eru þær í austurrísku Ölpunum í Tirol.
Tónleikar Jóna er að hefja sitt þriðja ár í Tónlistarháskólanum í Vín.
Söngur Arnheiður á tónleikum í Vín.
Söng- og leikkonurnar María
Skúladóttir og Jónína Björt Gunn-
arsdóttir efna til söngleikjakvölds
í Hannesarholti annað kvöld. Flutt
verða lög úr söngleikjum sem hafa
verið settir upp á Broadway á síð-
ustu árum, en María og Jónína
Björt eru báðar nýútskrifaðar úr
söngleikjadeild New York Film
Academy og mætti því jafnvel
kalla þetta útskriftartónleika.
Ásamt Jónínu Björt og Maríu
verða Andri Geir Torfason með
bakraddir, Ásbjörg Jónsdóttir á pí-
anói og Þór Adam Rúnarsson á
trommum. Dagskráin hefst klukk-
an 20 í Hannesarholti, Grund-
arstíg 10. Hægt er að nálgast
miða á midi.is.
Tónleikar María og Jónína Björt efna
til söngleikjaveislu annað kvöld.
Frá Broadway í
Hannesarholt
Stuð á söngleikjakvöldi
Bókasafn
Garðabæjar
býður upp á
áhugavert rölt
um Flatahverfið
annað kvöld,
fimmtudag, þar
sem saga hverf-
isins verður rifj-
uð upp. Leið-
sögn er í
höndum Ólafs G. Einarssonar, fyrr-
verandi sveitarstjóra Garðahrepps og
fyrrverandi alþingismanns. Gangan
er ókeypis og opin öllum. Lagt verður
af stað frá bókasafni Garðabæjar,
Garðatorgi 7, klukkan 17. Göngunni
lýkur einnig þar og boðið verður upp
á kaffisopa á bókasafninu að göng-
unni lokinni.
Söguganga um Flatahverfi
Rölt um Flatir
Dagana 12.-14. ágúst munu þær
Shakta Kaur Khalsa og Allison Morg-
an, jógakennarar, bjóða upp á jóga-
námskeið sem er hugsað sem hug-
myndabanki og uppspretta fróðleiks
fyrir foreldra, aðstandendur og fag-
fólk sem vinnur með börnum. Khalsa
og Morgan vilja meina að börn með
sérþarfir hafi sérstakan ásetning í
sínu lífi og á námskeiðinu munu þær
kenna hvernig hægt er að tengja við
hjarta og huga þessara einstöku
barna í gegnum sköpun, innsæi og
hjálpleg ráð sem verða gefin, svo sem
tengt öndun, hreyfingu og hug-
leiðslu. Námskeiðið fer fram í Jóga-
setrinu og geta áhugasamir haft
samband við Arnbjörgu á joga-
hjartad@gmail.com eða í síma 862-
3700. Nánari upplýsingar má einnig
finna á www.childrensyoga.com og
www.jogahjartad.com.
Sérnámskeið í barnajóga í Jógasetrinu
Öndun, hreyfing og hugleiðsla
Námskeið Allison Morgan og Shakta Kaur Khalsa, jógakennarar.