Morgunblaðið - 10.08.2016, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.08.2016, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Frekari upplýsingar á vefverslun okkar www.donna.is Hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Er næsta hjartastuðtæki langt frá þér? Verð frá kr. 199.600 10. ágúst 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.24 119.8 119.52 Sterlingspund 154.8 155.56 155.18 Kanadadalur 90.58 91.12 90.85 Dönsk króna 17.769 17.873 17.821 Norsk króna 14.116 14.2 14.158 Sænsk króna 13.939 14.021 13.98 Svissn. franki 121.24 121.92 121.58 Japanskt jen 1.166 1.1728 1.1694 SDR 165.83 166.81 166.32 Evra 132.16 132.9 132.53 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.7835 Hrávöruverð Gull 1332.9 ($/únsa) Ál 1645.0 ($/tonn) LME Hráolía 44.34 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Farþegar WOW air voru 105% fleiri í nýliðnum júlí en júlí í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Alls fluttu vélar félags- ins 212.611 far- þega til og frá landinu í síðasta mánuði. Þá jókst sætanýting félagsins í mánuðinum en hún var 92%, sam- anborið við 89% í júlí í fyrra, þrátt fyrir 102% aukningu á sætaframboði. Framboðnum sætiskílómetrum fjölg- aði um 139% í júlí frá sama mánuði í fyrra. Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 761 þúsund farþega, en það er 109% fjölgun farþega á sama tímabili frá árinu áður. Alls eru ellefu Airbus-vélar í rekstri á áætlunarleiðum félagsins. Rúmlega tvöfalt fleiri farþegar hjá WOW air Skúli Mogensen STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Starfsmenn Fréttablaðsins ræddu möguleikann á því að leggja niður störf síðastliðinn föstudag og koma í veg fyr- ir að blaðið kæmi út á laugardag. Hug- mynd þar um var viðruð í hópi lykil- starfsmanna vegna megnrar óánægju með þá ákvörðun Kristínar Þorsteins- dóttur, aðalritstjóra 365 miðla, að segja Pjetri Sigurðssyni, yfirmanni ljós- myndadeildar 365, upp störfum. Starfsfólki fyrirtækisins var tilkynnt um brottreksturinn undir lok liðinnar viku. Samþykktu harðorða ályktun Umræddir starfsmenn tóku ákvörð- un um að halda útgáfustarfinu áfram en þess í stað var boðað til fundar á mánudagskvöld. Á fundinum var sam- þykkt ályktun sem send var á Ingi- björgu Pálmadóttur, stjórnarformann 365, Sævar Frey Þráinsson, forstjóra félagsins, og Kristínu Þorsteinsdóttur. Þar er uppsögn Pjeturs harðlega gagnrýnd og hún sögð óverðskulduð. Í bréfinu eru einnig hörmuð „óásættan- leg vinnubrögð aðalritstjóra og yfir- stjórnar fyrirtækisins í aðdraganda uppsagnar Pjeturs og kynningu á henni til starfsmanna hans.“ Í bréfinu er því beint til yfirstjórnar félagsins að fyrirbyggja uppákomur af þessu tagi sem grafi undan faglegum grunni og trúverðugleika fréttastofunnar, eins og það er orðað í yfirlýsingunni. Kvartað undan einelti Forsaga málsins er sú að fyrr á þessu ári kvartaði Pjetur undan meintu einelti aðalritstjóra í sinn garð. Fór athugun á málinu fram og komu fjármálastjóri félagsins, Elmar Hall- gríms Hallgrímsson, og þáverandi mannauðsstjóri þess, Unnur María Birgisdóttir, að því. Áður en botn komst í málið tók forstjóri félagsins hins vegar málið í sínar hendur og í kjölfarið lét mannauðsstjórinn, Unnur María Birgisdóttir, af störfum hjá fé- laginu. Í kjölfarið fór Pjetur í leyfi frá störfum. Endi var bundinn á ráðning- arsamband hans við 365 í lok síðustu viku, eins og fyrr greinir. Í gær var tilkynnt um að Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, hefði sagt upp störfum. Hún hafði gegnt starfinu frá því í ágúst í fyrra. Hún hefur ekki viljað gefa upp hvort uppsögnin tengist brottrekstri yfirmanns ljósmyndadeildar fyrirtæk- isins. Heimildir Morgunblaðsins herma að hún hafi haft vitneskju um, og stutt, yfirlýsinguna sem send var á yfirstjórn fyrirtækisins í gær. Í pósti sem Ingibjörg S. Pálmadóttir, stjórn- arformaður 365, sendi starfsfólki fé- lagsins í gær, kom fram að Fanney Birna hefði sagt upp störfum í lok júní síðastliðins og að ástæður uppsagnar- innar væru af persónulegum toga. Þá sagði hún að uppsögn Pjeturs hefði komið til vegna faglegs ágreinings milli hans og Kristínar Þorsteinsdótt- ur. Í póstinum lagði hún áherslu á að starfsfólk fyrirtækisins stæði saman og þá sagði hún: „Þá vil ég að lokum taka fram að 365 er fjölskyldufyrir- tæki. Von mín er að við stöndum sam- an sem ein fjölskylda.“ Átök innan 365 í kjölfar brottrekstrar starfsmanns Morgunblaðið/Ómar Óánægja Mikils titrings hefur gætt hjá 365 í kjölfar þess að starfsmaður kvartaði undan einelti aðalritstjóra. Stjórnendaskipti 365 » Fjölmargir yfirmenn hafa komið og farið á síðustu árum hjá fyrirtækinu. » Mikael Torfason og Ólafur Stephensen hurfu frá borði 2014. » Sigurjón M. Egilsson og Jón Gnarr hættu á þessu ári. » Tveir fjármálastjórar félags- ins hafa hætt á síðustu miss- erum. » Mannauðsstjóri 365 lét af störfum fyrr á þessu ári.  Aðstoðarritstjóri segir upp störfum  Litlu munaði að útgáfudagur félli niður Í lok júní sl. átti Íbúðalánasjóður 825 íbúðir. Í mánuðinum voru 95 íbúðir seldar en á sama tíma bættust 20 íbúðir við í eign sjóðsins. Það eru íbúðir sem sjóðurinn hefur eignast í kjölfar uppboðsferlis eða leyst til sín í skuldaskilasamningum. Þá hefur sjóðurinn samþykkt kauptilboð í 109 eignir og vinna kaupendur að fjár- mögnun kaupanna. Þetta kemur fram í nýútkominni mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Fram kemur í skýrslunni að 95% núverandi fullnustueigna sjóðsins, eða 781 eign, hafi verið ráðstafað í leigu, sölumeðferð eða í vinnslu. Þá segir að á fyrri árshelmingi hafi 667 íbúðir sem voru í eigu sjóðsins verið seldar. Er það nokkru fleiri íbúðir en á sama tímabili í fyrra þegar 545 íbúðir voru seldar. Í skýrslunni er gerð grein fyrir lánastarfsemi sjóðsins. Ný veitt lán sjóðsins í júní sl. námu 804 milljón- um króna. Þar af voru 267 milljónir vegna almennra lána. Í maí voru ný almenn lán að fjárhæð 290 milljónir króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 10,3 milljónir. Hvað vanskil lánþega við sjóðinn varðar þá dragast þau saman í júní. Í lok júní var fjárhæð vanskila ein- staklinga 2,1 milljarður vegna lána sem samtals nema 20,5 milljörðum. Alls voru 1.023 heimili í vanskilum við sjóðinn í lok fyrri árshelmings. Þá hafa vanskil lögaðila við sjóðinn einnig dregist saman. Námu þau alls 555 milljónum í lok júní vegna lána sem samtals nema 9,3 milljörðum. Heildarfjárhæð vanskila við sjóð- inn námu 2,6 milljörðum í lok júní, saman borið við 4,9 milljarða í maí. Vanskil ná samtals til 4,8% lána- safnsins. Sambærilegt hlutfall sama mánaðar í fyrra var 8,6%. jonth@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Íbúðalánasjóður Rúmlega 800 íbúðir eru nú í eigu sjóðsins. Íbúðalánasjóður ráðstafar eignum  Sjóðurinn með 95% íbúðaeignar í leigu eða sölumeðferð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.