Morgunblaðið - 10.08.2016, Page 17

Morgunblaðið - 10.08.2016, Page 17
Forsetar Recep Tayyip Erdogan (t.v.) og Vladimír Pútín ræða hér saman. AFP Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklands- forseti hittust í gær á fundi, en það er í fyrsta skipti sem forsetarnir hitt- ast síðan Rússar slitu hernaðarsam- bandi við Tyrkland eftir að tyrknesk herþota grandaði rússneskri her- þotu í nóvember sl. „Heimsókn þín, þrátt fyrir mjög erfitt ástand í stjórnmálum innan- lands, gefur til kynna vilja okkar til að hefja samtal að nýju og endur- vekja samband Rússlands og Tyrk- lands,“ sagði Pútín á fundi þeirra í Sankti Pétursborg í Rússlandi. Er þetta jafnframt fyrsta erlenda heimsókn Erdogans forseta síðan valdaránstilraunin var gerð í Tyrk- landi um miðjan júlí sl. Erdogan sagði tyrknesku þjóðina hafa glaðst mjög þegar Pútín lýsti yfir stuðningi sínum í kjölfar upp- reisnarinnar og vonast hann nú til að styrkja sambandið við Rússa. Vilja styrkja mjög samband ríkjanna  Erdogan og Pútín hittust í Rússlandi FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Öryggisskór í vinnuna! Ertu með réttan skófatnað fyrir vinnuna þína? Dynjandi býður upp á úrval af öryggisskóm. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Ungur karl- maður var í gær handtekinn við Buckinghamhöll í Lundúnum eftir að hafa klifrað yfir öryggisgirð- ingu sem þar er. Fréttaveita AFP greinir frá því að maðurinn, sem er 22 ára gamall, hafi ekki verið vopnaður þegar hann var yfirbugaður á hallarlóðinni, en hann er aftur á móti sagður hafa verið talsvert ölvaður. Elísabet Englandsdrottning og fjölskylda hennar hafa aðsetur í Buckinghamhöll. Þau voru þó ekki heima þegar atvikið átti sér stað. Svipuð uppákoma gerðist seinast í maí sl., en þá var karlmaður, sem dæmdur hafði verið fyrir morð, handtekinn á lóð hallarinnar. Sá lét ófriðsamlega og spurði ítrekað eftir drottningunni á meðan öryggis- sveitir yfirbuguðu hann. Maðurinn var í kjölfarið sendur aftur í fangelsi þar sem hann braut skilorð með uppátæki sínu. BRETLAND Reyndi að komast að Buckinghamhöll Hillary Clinton, forsetaefni demókrata, hefur verið kærð vegna dauða tveggja bandarískra rík- isborgara sem týndu lífi í árás á ræðismannsskrif- stofu Bandaríkj- anna í Benghazi í Líbýu árið 2012. Eru það foreldrar hinna látnu sem lögðu fram kæruna. Clinton er þar sökuð um gáleysi í meðferð leyni- legra upplýsinga sem að lokum leiddi til dauða mannanna. Í kærunni kemur fram að notkun Clintons á sínu persónulega net- fangi, á meðan hún gegndi embætti utanríkisráðherra, í stað þess að nota opinbert netfang hafi leitt til árásarinnar því óvinveittir gátu komist í þær upplýsingar sem nauð- synlegar voru til að komast að stað- setningu starfsmannanna. BANDARÍKIN Hillary Clinton kærð fyrir afglöp í starfi Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Sameinuðu þjóðirnar segja þörf á að veita íbúum Aleppo, sem fram á síðustu ár var fjölmennasta borg Sýrlands, skjóta mannúðaraðstoð. Mjög er nú óttast um líf og heilsu þeirra í ljósi harðnandi stríðsátaka í og við Aleppo með tilheyrandi skorti á matvælum og hreinu drykkjarvatni. Nú þegar uppreisnarhópar hafa rofið umsátur hersveita Bashars al-Assads Sýrlandsforseta hef- ur birgðaleið opnast að nýju inn í borgina. Hana nýta uppreisnarsveitir til að flytja vopn, vistir og vígamenn inn í borgina. Stjórnarherinn hefur einnig brugðist við með mikilli liðssöfnun og stefn- ir því allt í stórorrustu um Aleppo á næstunni. Innan um þessar fylkingar er mikill fjöldi óbreyttra borgara. Frá árinu 2012 hefur Aleppo verið skipt upp í tvo helminga og ráða uppreisnar- menn ríkjum í austurhlutanum og stjórnarher- menn í vesturhlutanum. Sameinuðu þjóðirnar telja allt að tvær milljónir almennra borgara fasta í Aleppo, þar af segja þær um 275.000 manns vera í austurhlutanum. Aðrar stofnanir áætla heildar- fjölda nokkuð lægri, eða um 1,5 milljón manns. Tryggja verður aðgengi að vatni án tafar Fréttaveita AFP segir nær alla íbúa Aleppo hafa verið án rennandi vatns í minnst fjóra daga og eykur slíkt ástand mjög líkurnar á smitsjúk- dómum meðal fólks. Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna (UNICEF) segir börn og fjölskyldur þeirra nú standa frammi fyrir „hörmulegu ástandi“ en á sama tíma og skortur er á vatni og rafmagni geng- ur mikil hitabylgja yfir svæðið. Hanaa Singer, fulltrúi UNICEF í Sýrlandi, seg- ir það brýnt að tryggja án tafar aðgengi fólks að drykkjarvatni. „Líf barna er í mikilli hættu,“ hefur AFP eftir henni. Íbúar án vatns í fjóra daga  Líf barna er í mikilli hættu, segir fulltrúi UNICEF í Sýrlandi  Vatn, matvæli og rafmagn af skornum skammti í Aleppo  Veita þarf íbúum mannúðaraðstoð AFP Rústir Bryndreki uppreisnarmanna ekur fram hjá því sem eitt sinn voru íbúðir fólks í Aleppo. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Sjö manns hafa verið handteknir af lögreglunni á Spáni vegna tengsla sinna við umfangsmikinn og fjöl- þjóðlegan barnaklámshring. Eru meðlimir hópsins sagðir hafa mis- þyrmt kynferðislega minnst 80 börnum á yfir 15 ára tímabili. Fréttaveita AFP greinir frá því að meðlimir barnaklámshringsins hafi sett minnst eina milljón ljósmynda og myndbanda í dreifingu á netinu, en efni þetta sýnir kynferðislegt of- beldi í garð barna og ungmenna. Þá lét hópurinn einnig útbúa yfir 1.000 DVD-mynddiska með sams konar efni, að því er kemur fram í tilkynn- ingu frá lögreglunni á Spáni. Klófestu einnig höfuðpaurinn Flestir hinna handteknu eru með ríkisfang í Frakklandi og Marokkó. Lögreglan telur sig einnig hafa haft hendur í hári höfuðpaursins og er sá grunaður um minnst átta kynferð- isbrot gegn 13 ára börnum. Rannsókn lög- reglunnar hófst fyrst í fyrra þeg- ar grunur lék á að barnaklám væri framleitt í íbúð við hjálparmið- stöð fyrir ung- menni í borginni Tortosa í norð- austurhluta Katalóníu. Það leiddi til handtöku þriggja ein- staklinga, þ.e. tveggja Frakka og eins frá Marokkó, í maí árið 2015. Um tveimur mánuðum síðar handtók lögreglan fjóra einstaklinga til viðbótar í nokkrum héruðum Spánar, allt frá Katalóníu til Val- ensíu, og í Baskalandi. „Stór hluti barnaklámsins var framleiddur af sjálfum glæpa- hringnum,“ segir lögreglan, en fórn- arlömbin voru að stórum hluta ut- angarðsbörn frá Spáni og Marokkó. Þá segir lögreglan hópinn einnig hafa ætlað að skipuleggja ferðir fyr- ir barnaníðinga til Marokkó. Barnaklámshringur upprættur  Sjö hafa verið handteknir á Spáni vegna tengsla sinna við hringinn Spánn Fólkið er nú í haldi lögreglu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.