Morgunblaðið - 10.08.2016, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.08.2016, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Þann 7. október sl. ritaði ég grein í Morg- unblaðið með fyr- irsögninni „Hringtorg á Fitjum í Reykja- nesbæ er klúður“. Þar sagði ég að þetta hringtorg eitt og sér væri ekki eins brýnt og lokun Hafnarvegar á þeim stað þar sem hann er nú og und- irgöng frá Ásbrú, þar eru göng frá 1109 og yfir á Steinás. Allt þetta, hringtorg, göng og nýlögð tenging, 150 metrar við Hafnarveg, væri ein heild sem átti að bjóða út saman í einn pakka. Nei, hringtorg var svo bráðnauðsynlegt að það varð að koma eitt og sér og þá voru aðkom- ur að Reykjanesbæ orðnar sex tals- ins. Færsla Hafnarvegar og und- irgöng undir Reykjanesbraut máttu bíða. Meðan á framkvæmdum stóð á Fitjum, fór umferð um mislæg gatnamót þar fyrir innan og gekk bara vel, þetta var 2015, lokun inn- keyrslu við Stekk til 2016 hefði kom- ið vel út. Þá mátti nota tímann til að hanna þetta allt og fá fjármagn, og þá hefði þetta allt verið komið í notkun í júní 2016. Einhverjir bera ábyrgð á þessum þrýstingi og klaufalegu vinnubrögðum. Bæj- arverkfræðingur reyndi að snúa út úr grein minni og lét í það skína að ég vildi hafa undirgöng uppi við hringtorg, sem er ekki rétt, öll greinin hans í staðarblaði í bænum er stolt og þaulhugsuð, sagði hann. Ég segi hins vegar að þetta sé vanhugsað mál frá byrjun. Þetta fyr- irkomulag með Hafnarveg þar sem hann er nú hefur nú þegar tekið líf ungs manns í blóma lífsins, frá konu og börnum. Ég er hissa á hvað fólkið frá Ásbrú hefur sloppið vel í vetur á leið í stærsta þjónustukjarna á Suð- urnesjum, hinum megin við braut að flugstöðinni, og enn stækkar kjarn- inn þegar hin heimsþekkta keðja, Dunkin Donuts, verður opnuð. Í þessum kjarna eru verslanirnar 10- 11 og Subway opnar allan sólahring- inn, ég kem oft þar við og er alltaf mikil umferð þar í gegn. Á mörgum stöðum þarna eru erlendir ferða- menn að versla í Bónus og Krónunni og þar er bókstaflega sópað úr hill- um, biðröð er oft við dælur Orkunn- ar ehf. og talað er um að staðurinn Dirty Burger and Ribs og fleiri staðir muni einnig opna þarna. Í Hafnarfirði komu undirgöng fljót- lega svo fólk í hlíðum Hvaleyr- arholts kæmist í Bónus, apótek og aðra þjónustu á Vellina. Þar er gert ráð fyrir tvöföldun og undirgöng hönnuð eftir því. Flest málefni í Reykjanesbæ virðast vera í skötu- líki, Sparisjóðurinn hvarf tómur og bæjarfélagið endaði gjaldþrota. Steingrímur J., þáverandi fjár- málaráðherra, reddaði þeim fyrir horn sem komu að Sparisjóðnum og lét Landsbankann kaupa dreggjarn- ar, þar átti ríkið að koma að, þetta átti að ganga. Ásbrú er rekin eins og borgríki í Reykjanesbæ með bæj- arstjóra og sér stjórn. Það fyr- irkomulag er úrelt og mikið af eign- um komnar í notkun eða seldar. Best væri að Reykjanesbær og bæj- arstjóri þar tækju við því og kláruðu það og fengju það fjármagn sem rík- ið leggur þar í og einnig meira fjár- magn úr ríkissjóði til að rétta bæinn við og öðlast fyrri reisn. Það bíður nýrrar ríkisstjórnar að koma þar að málum og það er brýnt. Vonandi verður Framsóknarflokkurinn ekki í þeirri stjórn, þá gerist ekki neitt nema verndun tollmúra, 50% fyrir hænsnabú og svínabú sem eru verk- smiðjur með innflutt vinnuafl. Þetta mun bitna á fólkinu í landinu, sér- staklega barnafólki og láglaunafólki. Framsóknarflokkurinn er á villigöt- um og þarf að fá langa hvíld frá rík- isstjórn. En Vegagerðin segir að und- irgöng komi undir Reykjanesbraut frá Ásbrú í sumar, sem ber að fagna, en endilega færið Hafnarveg á hringtorgið, þar er 150 metra bút- ur og efni gott þar í heiðinni. Varð- andi það að klára tvöföldun Reykja- nesbrautar sem tengir höfuðborgina við Keflavíkurflugvöll, flugvöll allra landsmanna, þá eru 4-5 ár í það, hönnun er ekki hafin og fjármagn ekki til. Trúlega verður hringtorg við Fitjar og Grænás dragbítur sem þarf að víkja fyrir mislægum gatna- mótum þá. Einnig er hringtorg við Hamarkotslæk í Hafnafirði sprung- ið á mestu álagstímum, þar þarf mislæg gatnamót. Umferð frá Reykjavík til Keflavíkurflugvallar þarf að ganga vel á sem skemmstum tíma og án tafar. Klúður á klúður ofan við fram- kvæmdir við Reykjanesbraut á Fitjum Eftir Virgil Scheving Einarsson »Umferð frá Reykja- vík til Keflavík- urflugvallar þarf að ganga vel á sem skemmstum tíma og án tafar. Virgill Scheving Einarsson Höfundur er landeigandi á Vatnsleysuströnd. Margir urðu hissa þegar skýrt var frá virkjanaáformum í Þverárdal ofan Þing- vallavatns, þ.e. að svæðið væri komið í nýtingarflokk eftir út- tekt fagnefndar um virkjanakosti á svæð- inu. Þegar virkja átti á Bitrusvæðinu fyrir nokkrum árum (þar fannst síðan ekki næg orka) bentu margir á að frárennsli frá slíkri virkjun gæti borist niður í Þverárdal og þaðan fram í Ölfusvatnsá (urriða- og upp- vaxtará urriðaseiða) og áfram fram í Þingvallavatn. Væntanlega hafa þessir þættir einnig fengið skoðun og umræðu varðandi Þverárdalsvirkjun þar sem frárennsli frá slíkri virkjun á vænt- anlega greiðari leið fram í nefnda á og Þingvallavatn. Mikil umræða hefur farið fram varðandi virkjun í Þjórsá vegna laxaseiða, en hljótt virðist fara um þann þátt varðandi urr- iðaseiði við Þingvalla- vatn og nágrenni. Ölfusvatnsá er alda- gamalt urriðasvæði sem hefur verið byggt upp eftir urriðaþurrð sl. áratugi með ærnum tilkostnaði og vinnu bænda við vatnið, Lands- virkjun og fl. Ég hélt að búið væri að fá næga þekkingu/reynslu af breytingum vegna framrennslis úr og í vatnið, t.d. við þekkt hrygningarsvæði þar sem bjarti og stórvaxni urriðastofn- inn á/átti griðarstað til hrygninga/ uppvaxtar. Óvissa er í dag með þennan stofn sem svamlaði um Þingvallavatn forðum og kröftugir fiskar tóku stundum á færi veiðimanna með miklum látum og það jafnvel svo að veiðimenn áttu erfitt með svefn eftir snarpa viðureign við þessa ofurfiska, t.d. þaulreyndir skoskir lax- veiðimenn sem töldu að um geddur væri að ræða. Þeir sem til þekktu á svæðinu vissu að um var að ræða stórvaxna og silfurbjarta urriða úr bládýpi vatnsins, kröftuga og sprettharða á stærð við stærstu laxa (jafnvel stærri) úr þekktum laxveiðiám. Ekki var óalgengt að þessir fiskar tættu í sundur net bænda og drægju þung netin úr stað frá upphaflegri lögn, slíkt var aflið. Gegnum árin hef ég hvatt veiði- og ferðamenn til að ganga vel um Þing- vallasvæðið sem víðar, t.d. þegar gróður er viðkvæmur á vorin sem oftar og taka jafnframt tillit til dvalargesta á svæðinu. Það sama á við um bátaumferð, sýna fyllstu aðgát og passa upp á ör- yggisbúnað og fleira, t.d. að elds- neyti fari ekki í vatnið sem og að fá leyfi/upplýsingar hjá ábúendum/ landeigendum við vatnið varðandi slíka umferð. Jökulkalt vatnið getur verið fljótt að breytast úr spegilsléttri lygnu yf- ir í hættulegar og krappar öldur. Þótt lygnt sé við ströndina þá geta djúpar öldur verið úti á vatninu sem augað nemur ekki við fjöruborð. Jafnframt þarf að gæta að hugs- anlegri mengun/sýkingu ef veiði- menn og fleiri eru að koma með til notkunar á vatnasvæðinu veiðafæri, beitur og annan búnað án sótt- hreinsunar sem notaður hefur verið í sjó og vötnum erlendis. Huga þarf jafnframt að þeirri gífurlegu umferð sem orðin er um svæðið þ.e. hundruð þúsunda bif- reiða og ferðamanna á ári hverju, t.d. varðandi útblástur frá stórum bifreiðum, átroðningi og fl. Betur hefur til tekist á Þingvöllum en víða á fjölförnum ferða- mannastöðum varðandi bifreiða- stæði, stígagerð og fl. og allt hand- bragð verktakans og fl., hleðslur, hellulagning sem annað til fyrir- myndar. Vegabætur eru nauðsynlegar í þjóðgarðinum (hrein slysahætta eins og ástandið er í dag) sem og frekari úrbætur á vissum álagsstöðum. Stækkun á þjónustumiðstöðinni á Hakinu mun væntanlega bæta ýmsa aðstöðu á svæðinu. Frekari byggingarframkvæmdir sem hæfa og henta svæðinu bíða væntanlega betri tíma og ekki úr vegi að huga samsíða að aðstöðu varðandi vissa atburði tengda Al- þingi. Vinna þarf úr framangreindum þáttum með góðu samspili og þekk- ingu gagnvart heildarsvæðinu áður en það verður hugsanlega of seint. Njótum þessa margbrotna svæðis í sátt og með tilliti til umhverfis, bú- setu og fleiri þátta. Hugleiðingar um umhverfi og aðstæður við Þingvallavatn Eftir Ómar G. Jónsson Ómar G. Jónsson » Vinna þarf úr fram- angreindum þáttum með góðu samspili og þekkingu gagnvart heildarsvæðinu áður en það verður hugsanlega of seint. Höfundur er formaður áhugahóps um verndun og uppbyggingu á svæðinu umhverfis Þingvallavatn og að koma þar upp sögusetri. Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Hæ, hæ þið þarna úti. Það er alltaf verið að fárast yfir listamannalaun- um. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki bækur, allra handa bæk- ur, þær stytta manni tímann. Sumir hafa mikinn tíma aðrir minni en lesa samt. Ég græt yfir bókum, ég hlæ yfir bókum, ég fæ fiðring af bókum og allt þar á milli, ég tími alltaf að kaupa mér bækur og nota bóka- markaðina þegar þeir koma. Ég vil ekki verða tölvusjúklingur eða keppast um að eiga nýjasta sím- ann. Bækur auðga ímyndunaraflið og bæta orðaforða, eins og kross- gátur. Takk, takk. Ingibjörg. Smáborgarar Bókasöfn „Bækur auðga ímynd- unaraflið og bæta orðaforða.“ Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.