Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 21

Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 ✝ Helga Þórðar-dóttir fæddist í Reykjavík 2. sept- ember 1926. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Mörk 28. júlí 2016. Foreldrar Helgu voru Þórður Jóns- son, bókhaldari frá Stokkseyri, f. 16. apríl 1886, d. 28. september 1959, og Málfríður Halldórsdóttir, húsfreyja, f. 8. ágúst 1883, d. 7. nóvember 1933. Systkini Helgu eru Sigurður, f. 19. ágúst 1912, d. 3. janúar 1979, Kristín, f. 28. nóvember 1913, d. 18. mars 2003, Ragnar, f. 10. ágúst 1915, d. 10. apríl 1972 og Guðrún, f. 29. ágúst 1922. Helga giftist 24. júlí 1948, Kristjáni Eysteini Gunnlaugs- syni, tannlækni í Reykjavík, f. 13. maí 1925, d. 25. apríl 1971. Foreldrar hans voru Anna Guðrún Kristjánsdóttir, hús- freyja í Reykjavík, f. 17. júlí 1900, d. 9. apríl 1983, og Gunn- Gunnlaugur, f. 28. apríl 1957, d. 30. apríl 2000, var kvæntur Sigríði Kristjánsdóttur, f. 11. júní 1956. 4) Þórður, f. 1959, kvæntur Tinu Inger Olsen Kristjánsson, f. 4. september 1963. Synir þeirra eru: a) Frank Emil, f. 1991 og b) Matthias Bjørn, f. 1998. Helga ólst upp í Reykjavík og var mörg sumur sem barn í sveit að Bræðratungu við Stokkseyri. Hún stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík og Húsmæðraskóla Reykjavík- ur. Helga starfaði sem tal- símakona hjá Landssímanum, áður en hún giftist Kristjáni. Þau fluttust að Sóleyjargötu 5 þar sem Kristján átti og rak tannlæknastofu. Eftir það helg- aði hún starfskrafta sína heim- ili og börnum. Eftir andlát Kristjáns árið 1971 starfaði hún í Laugavegsapóteki til starfsloka. Helga fluttist eftir andlát Kristjáns í Álfheima 30 og síðan Bólstaðarhlíð 45. Hún dvaldist á hjúkrunarheimilinu Mörk frá árinu 2011 til dánar- dags. Helga verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, 10. ágúst 2016, klukkan 15. laugur Einarsson, læknir í Reykjavík, f. 5. ágúst 1892, d. 5. apríl 1944. Börn Helgu og Kristjáns eru: 1) Anna, f. 19. ágúst 1950, gift Jóni Hersteini Jón- assyni, f. 25. maí 1949. Dætur þeirra eru: a) Sesselja, f. 1969, sambýlis- maður hennar er Valdimar Friðrik Þorsteinsson og eiga þau tvo syni. b) Helga, f. 1978, gift Braga Þór Guð- mundssyni og eiga þau fjóra syni. c) Anna Guðrún, f. 1986. 2) Unnur Dóra, f. 19. desember 1951, gift Árna Birni Björns- syni, f. 7. mars 1951. Börn þeirra eru: a) Helga Björg, f. 1974, gift Henrik Jørgensen og eiga þau þrjá syni. b) Markús Björn, f. 1976, kvæntur Sabinu Rasmusen og eiga þau einn son. Markús á tvö börn úr fyrra hjónabandi. c) Kristján Björn, f. 1988, í sambúð með Camillu Gravgaard. 3) Ég kynntist Helgu, tengda- móður minni, í ársbyrjun 1974 er við Dóra fórum að draga okkur saman. Hún tók mér opnum örmum og það viðmót breyttist aldrei meðan hún lifði. Það hafði orðið stór breyting á fjölskyldunni þrem- ur árum áður er fjölskyldufað- irinn, Kristján, féll frá í blóma lífsins aðeins 45 ára. Frá því að vera heimavinnandi hús- móðir í stóru einbýlishúsi við Sóleyjargötu var hún nú kom- in út á vinnumarkaðinn og flutt í blokkaríbúð í Álfheim- unum með þrjú börn; Dóru, Gunnlaug (Gulla) og Þórð (Didda) en elsta dóttirin, Anna, hafði stofnað fjölskyldu og flust að heiman. Helga tók breytingunum með æðruleysi og hélt fjölskyldunni saman. Helga hafði unun af ferða- lögum, hvort sem það var inn- an- eða utanlands, og hún náði að ferðast til margra landa og hafði yndi af. Sumarbústaður fjölskyldunnar í Hagavíkur- landi við Þingvallavatn var samt miðpunkturinn yfir sum- artímann. Á meðan Kristján var á lífi hafði fjölskyldan oft- ast eytt sumarfríunum í sum- arbústaðnum og var það þeirra annað heimili á sumrin. Við Dóra fluttumst ásamt börnum okkar til Kaupmanna- hafnar árið 1984. Diddi flutti einnig sama ár til Kaupmanna- hafnar og stofnaði fjölskyldu þar úti. Helga kom því oft til Dan- merkur og dvaldist hjá fjöl- skyldunum hér úti um lengri eða skemmri tíma og þegar dönsku fjölskyldurnar heim- sóttu Ísland var oftast gist hjá tengdamömmu í Álfheimum. Þannig voru samskiptin alltaf náin og hún gat fylgst með öll- um barnabörnunum vaxa úr grasi. Fátt var henni eins kært og fjölskyldan og velferð henn- ar. Sérstaklega áttu barna- börnin og barnabarnabörnin hug hennar. Fyrir sex árum greindist tengdamamma með Alzheim- ers og í kjölfarið fluttist hún á hjúkrunarheimilið Mörkina. Þar leið henni vel og var ánægð, enda var starfsfólkið einstakt og á það miklar þakk- ir skildar. Á meðan hún var ekki að fullu horfin inn í þok- una þreyttist hún aldrei á að segja hversu gott hún hefði það og hversu vel væri hugsað um sig. Þó að við hjónin höfum reynt að koma tvisvar til þrisvar á ári til Íslands und- anfarin ár þá má það sín lítils. Innan fjölskyldunnar hefur það verið Anna sem hefur bor- ið allan þungann af veikindum móður sinnar og staðið sig frá- bærlega. Það verður seint þakkað. Ég kveð kæra tengdamóður með þakklæti og söknuði. Blessuð sé minning hennar. Árni. Nú er komið að ferðalokum hjá ömmu Helgu eftir langt og oft strangt ferðalag. Ég var svo lánsöm að fá að slást í fylgd með henni snemma, en ég fæddist þegar hún var 42 ára og var fyrsta ömmubarnið hennar. Hún varð svo ekkja aðeins 44 ára og varð þá ein með fjögur börn á aldr- inum 12-20 ára auk mín, ömmu- barnsins sem þá bjó á heim- ilinu, en hún sigldi í gegnum þá erfiðleika með reisn. Þegar ég var lítil heimsótti ég ömmu oft í vinnuna í Laugavegsapóteki. Mér fannst spennandi að fá að koma bak- sviðs í þessu ævintýralega stóra húsi og fékk líka alltaf apótekaralakkrís. Ég kíkti oft til ömmu í vinnuna þegar ég hafði aldur til að fara sjálf, maður fór ekki niður í bæ án þess að kíkja við hjá ömmu. Á menntaskólaárunum fór ég gjarnan ásamt vinkonu til ömmu í útileikfimistímum. Við amma hittumst stundum í há- deginu á háskólaárum mínum og svo heima í Álfheimum eftir að hún hætti að vinna. Hún bjó til heimsins bestu skonsur og rækjusalat. Þegar við vorum í Bjarka- nesi, þegar ég var krakki, dró amma upp spennandi góðgæti á kvöldin í litríkum álpappír og sagðist hafa fengið þetta hjá ljóninu í Melnum. Ef skorti um- ræðuefni var alltaf gaman að fá ömmu til að rifja upp gamla tíma þegar hún var í sveit á sumrin á Stokkseyri þar sem foreldrar hennar höfðu búið og hvernig lífið breyttist eftir að mamma hennar dó þegar amma var 7 ára. Lífið á Laugaveg- inum, Njálsgötunni, í Hellu- sundi og svo á Grettisgötu 17 þar sem hún bjó uppi á lofti í einu herbergi með pabba sínum og Dúddu, eldri systur sinni, og þær sáu um heimilið og pabba sinn. Hvernig lífið var þegar hún var símamær hjá Landsíma- num og þegar hún kynntist afa á háskólaballi og þau dönsuðu saman, þá hófst nýr kafli í lífi hennar. Amma var óþreytandi að rifja upp og alltaf jafn gam- an að heyra hana segja frá. Amma var nákvæm og vand- virk. Handavinnan sem hún gerði var svo fallega unnin. Þegar ég var barn og unglingur og fékk hlutverk eins og að leggja á borð eða önnur eldhús- störf kenndi hún mér ýmislegt sem átti ekki að gera bara ein- hvern veginn heldur af alúð og vandvirkni, eins og hún hafði lært í Húsmæðraskólanum. Þegar ég bjó í íbúðinni henn- ar í Álfheimum eitt haustið og fram yfir jól, á meðan hún dvaldi í Danmörku hjá Dóu og Didda, brýndi hún fyrir mér að þegar kæmi að því að þrífa sameignina þyrfti að gera það vandlega og t.d. að setja tusku utan um pönnukökuspaða til að þurrka vel af á milli póstkassa- hæða, alveg inn að vegg, ekki bara fremst. Til að trufla ekki nágrannana benti hún mér á að hún stopp- aði alltaf veggklukkuna rúm- lega 9 á kvöldin og stillti hana aftur að morgni til að enginn þyrfti að heyra klukkusláttinn eftir háttatíma. Þegar ég var unglingur og enn svart-hvítt sjónvarp heima, fór ég oft til ömmu að horfa á uppáhaldsþættina mína ásamt vinkonu minni og við vorum þar oft báðar að horfa á í lit og gjarnan tókum við upp tónlist úr sjónvarpinu með því að setja segulbandstækið hans Gulla að sjónvarpinu og taka upp. Amma hafði gaman af þessu stússi okkar. Amma hefði orðið níræð eftir nokkrar vikur en ég trúi því að hún hafi verið fegin hvíldinni og nú er hún komin til afa og Gulla, það hafa verið fagnaðar- fundir. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Guð geymi þig, elsku amma. Sesselja Jónsdóttir. Helga móðursystir mín er látin rúmum fjórum vikum fyrir 90 ára afmæli sitt. Þegar horft er til baka og hugsað til þess hvernig lífið fór um hana höndum fæ ég tár í augun. Hún var yngst fimm systkina og missti móður sína rétt orðin sjö ára. Lífið hélt áfram og Helga kynntist ástinni þegar hún hitti Kristján Gunnlaugsson sem varð eiginmaður hennar. Þau eignuðust fjögur börn og lífið brosti við þeim. En engu er lofað hvað verða vill. Kristján veiktist skyndi- lega og lést 45 ára gamall. Helga þurfti nú að verða fyr- irvinna heimilisins og hóf brátt vinnu í Laugavegsapóteki þar sem hún vann þar til hún fór á eftirlaun. Eldri sonur hennar, Gunn- laugur, dó 43 ára eftir erfiða baráttu við krabbamein. Tvö börn hennar búa í Kaup- mannahöfn og þurftu og þurfa enn að berjast við erfiða sjúk- dóma. Helga fór því oft til Dan- merkur til að hitta börnin sín, barnabörn og enn seinna barnabarnabörn. Einnig komu börnin og barnabörnin til Ís- lands til að hitta fjölskyldur sínar hér og vini. Það gladdi Helgu mikið. Allir afkomendur voru það sem skipti máli í líf- inu. Fjölskyldan var henni allt. Það varð hlutskipti Önnu, dóttur Helgu, að vera ein fjög- urra systkina í nánum tengslum við mömmu sína og styðja hana og styrkja. Það hefði ekki verið hægt að gera betur og var Anna þar studd af eiginmanni sínum og dætrum. Helga fór heldur ekki í gegn- um lífið án erfiðra sjúkdóma. Hún fór keik í gegnum það eins og allt annað sem lífið lagði á hana. Hennar kynslóð var bara þannig. Ég fæddist þegar Helga var 20 ára gömul og hef ég alla tíð átt umhyggju hennar og vin- áttu. Ég, foreldrar mínir og systir vorum mikið í sumarbú- staðnum Bjarkarnesi með þeim og á ég þaðan ljúfar minningar. Einnig var ég oft heilu dagana hjá fjölskyldu hennar að Sól- eyjargötu 5. Það var ævintýri að geta farið með dætrum Helgu í Hallargarðinn og vaðið í gosbrunninum. Þegar tímar liðu höguðu ör- lögin því að við bjuggum í sömu götu og fórum því stundum í kaffi hvor til annarrar og að versla um helgar. Hjúkrunarheimilið Mörk hef- ur síðustu árin verið heimili Helgu og undi hún sér vel þar og naut frábærrar umönnunar, bæði af hendi starfsfólks og Önnu dóttur sinnar. Ég kveð Helgu með þakklæti og treysti því að nú sé hún meðal genginna ástvina. Margrét Björnsdóttir. Helga, móðursystir mín, er farin í sína hinstu ferð á þeim tíma sumars þegar margir eru á faraldsfæti. Hugur minn fer á flug, minningarnar sem tengj- ast henni eru góðar og ná svo langt aftur sem ég man. Ég minnist jólaboðanna í gamla virðulega húsinu á Sóleyjargöt- unni. Einu sinni var villigæs á borðum, nokkuð sem ég hafði aldrei bragðað. Í stofunni var uppstoppaður lómur og einnig minkur. Helga og Kristján Gunn- laugsson áttu sumarbústaðinn Bjarkanes í Grafningi. Þangað var mér, foreldrum mínum og bræðrum stundum boðið um verslunarmannahelgar. Um dagana þar á ég einhverjar björtustu og fegurstu minning- ar bernsku minnar. Iðulega vorum við ferjuð í sumarbú- staðinn á hraðbáti sem Krist- ján stýrði af mikilli kunnátt- usemi. Náttúrufegurðin umhverfis bústaðinn einstök, hreint kynngimagnað um- hverfi. Eldgígurinn Grámelur, Nesjahraunið með strýtum sín- um og skútum, birkikjarrið og vatnið bjarta, Þingvallavatn, þar sem krían flögraði með ströndinni og himbriminn kall- aði úti á vatninu. Útsýnið vítt og einstaklega fagurt, Sandfell til suðurs en til norðurs Botns- súlur, Skjaldbreiður og Hrafnabjörg. Þarna gat orðið vel heitt á sumrin og síðdeg- isskúrirnar miklar dembur. Þetta er ævintýraveröld og þar lékum við okkur frændurnir; ég, Gummi bróðir, Gulli og Diddi. Gaman var að fá að fara með Kristjáni að vitja um net- in. Ævinlega voru í þeim nokkrar bleikjur sem borðaðar voru með kartöflum, tómötum og smjöri. Helga sá um mat- seldina og annað húshald og lét sig ekki muna um að bæta heilli fjölskyldu við stóra eigin fjöl- skyldu. Helga og Kristján sótt- ust mjög eftir því að dvelja í þessum sælureit með börnum sínum sem oftast. Þótt ég væri aðeins barn þegar ég eignaðist á þennan hátt hlutdeild í þessum stað hafði hann mikil áhrif á mig og mótaði náttúruskynjun mína og áhuga á náttúrunni, sem enst hefur mér til þessa dags. Ég á Helgu og Kristjáni því mikið að þakka. Lífið lék ekki alltaf við Helgu frænku. Það var henni mikið áfall þegar Kristján lést 1971, aðeins 45 ára. Hún stóð eftir með börnin, Gulli og Diddi þá enn í grunnskóla, en með elju og dugnaði skilaði hún þeim til manns með sóma. Vinnusemi og seigla var henni í blóð borin. Árið 2000 mátti hún svo sjá eftir Gunnlaugi syni sín- um í blóma lífsins, aðeins 43 ára gömlum. Ég kveð Helgu, frænku mína, með þakklæti og virð- ingu. Hún kemur út á verönd- ina í Bjarkanesi á sólbjörtum sumarmorgni, teygar að sér ferskt morgunloftið og horfir austur yfir lognkyrrt og tært Þingvallavatn. Þannig lifir ást- kær frænka mín í ljúfum minn- ingum. Björn Guðmundsson. Helga Þórðardóttir HINSTA KVEÐJA Með hlýjum minningum kveðjum við ömmu Helgu. Hún mun alltaf eiga stað í hjarta okkar. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Guð geymi þig, elsku amma Helga. Sesselja, Helga og Anna Guðrún Jónsdætur. Okkar yndislega móðir, tengdamóðir, sambýliskona, amma og langamma, AGNES SÆMUNDSDÓTTIR frá Grindavík, til heimilis að Stapavöllum 8, Reykjanesbæ, lést í faðmi fjölskyldunnar fimmtudaginn 4. ágúst. Útför hennar verður gerð frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 12. ágúst klukkan 13. . Bjarnlaug D. Vilbergsdóttir, Ómar Björnsson, Jóhannes G. Vilbergsson, Margrét Kristjánsdóttir, Guðrún María Vilbergsdóttir, Kristinn Sørensen, Björn Þórðarson, barnabörn, langömmubörn og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VIGGÓ ARNAR JÓNSSON frá Möðrudal, Álfheimum 9, Reykjavík, lést á Skjóli 8. ágúst. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 12. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu minnast hans er bent á björgunarsveitirnar. . Herdís Eiríksdóttir, Hildur Ásta Viggósdóttir, Sigurgeir Sigmundsson, Vigdís Hrönn Viggósdóttir, Smári Brynjarsson og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR HAUKSDÓTTIR, Lindargötu 57, Reykjavík, áður Kirkjuvegi 17, Selfossi, lést á Landspítalanum laugardaginn 6. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 15. ágúst klukkan 13. . Ólöf Lilja Sigurðardóttir Davíð Björnsson Jóhannes Eggertsson Herdís Halla Ingimundard. Baldvin Eggertsson Kjartan H. Eggertsson Guðrún Þóra Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG G. JÓNSDÓTTIR, Baugatanga 1, lést á dvalarheimilinu Grund, sunnudaginn 7. ágúst. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. ágúst klukkan 15. . Sigurður P. Kristjánsson, Áslaug Sigurðardóttir, Pétur H. Stefánsson, Sigrún Sigurðardóttir, Magnús I. Torfason, Jón Sigurðsson, Jónína Þ. Thorarensen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.