Morgunblaðið - 10.08.2016, Page 24

Morgunblaðið - 10.08.2016, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 ✝ Ólafía Sigur-borg Gests- dóttir fæddist í Stykkishólmi 29. júlí 1941. Hún lést á Landspítalanum, Fossvogi 2. ágúst 2016. Foreldrar henn- ar voru þau Gestur Bjarnason, f. 22.5. 1904, d. 15.2. 1970, og Hólmfríður Hildimundardóttir, f. 15.11. 1911, d. 8.1. 2003. Systkini Ólaf- íu voru níu en eftirlifandi af þeim eru Jónas, Hulda, Brynja, Ævar og Hrafnhildur. Látin eru Kristinn, Ingibjörg, Hildimund- ur og Júlíana. Ólafía giftist 5. júní 1965 Þórði Ársæli Þórðarsyni, f. 1.1. 1935, d. 29.5. 2015. Foreldrar hans voru Þórður Þórðarson, f. 15.12. 1896, d. 3.2. 1959, og Þóra Kristjánsdóttir, f. 27.2. 1900, d. 30.9. 1972. Systur Þórðar eru ardóttir og d) Sigurður Bjarki, f. 6.5. 1997. 3) Sædís Björk, f. 6.11. 1968, fyrrverandi eigin- maður hennar er Jón Heiðars- son, f. 11.11. 1961. Þeirra synir eru: a) Ólafur Þór, f. 10.3. 1992. b) Atli Snær, f. 12.10. 1996, d. 25.9. 1998, og c) Snæþór Bjarki, f. 14.2. 2000. Ólafía fæddist og ólst upp í Stykkishólmi og bjó þar alla sína tíð þar til hún fluttist í Borgarnes í byrjun árs 2015 vegna veikinda Þórðar og bjó hún sér fallegt heimili þar. Ólafía vann við ýmis verslunar- og þjónustustörf í Stykkishólmi; svo sem í Sigurðarbúð, gamla hótelinu, Bensó og sýsluskrif- stofunni en mestan starfsaldur sinn vann hún á St. Franciskus- sjúkrahúsinu í Stykkishólmi við aðhlynningu og umönnun og lét hún af störfum þar 67 ára að aldri. Hún starfaði í Kven- félaginu í Stykkishólmi og Mál- freyjufélaginu Emblum, sem síðar breyttist svo í Emblur, og sinnti hún ýmsum embætt- isverkum í þeim félögum. Útför Ólafíu fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 10. ágúst 2016, klukkan 14. Jarðsett verð- ur í Borgarneskirkjugarði. þær Guðríður, Anna og Vigdís. Börn Ólafíu og Þórðar eru: 1) Guð- rún Elfa Hauks- dóttir, f. 1.8. 1960. Faðir hennar er Pétur Haukur Helgason. Maður hennar er Svanur Steinarsson, f. 22.1. 1960. Dætur þeirra eru: a) Þóra Sif, f. 3.5. 1983, unnusti Daði Georgsson, og eru dætur þeirra Emilía Katrín og Svandís Elfa. Áður átti Daði Anítu. b) Sara Dögg, f. 14.6. 1988, unnusti hennar er Guðni Frímannsson, dóttir þeirra er Ólafía Ella. c) Hera Hlín, f. 27.5. 1995, unnusti hennar er Haraldur Andri Stef- ánsson. 2) Þórður, f. 22.12. 1964. Börn hans eru: a) Þórður Arnar, f. 4.6. 1991, b) Þórdís Karen, f. 16.4. 1994, c) Aron Már, f. 11.8. 1994, unnusta hans er Ásta Arn- Elsku mamma, nú er komið að kveðjustund hjá okkur. Ekki óraði mig fyrir því að það gæti gerst svona fljótt, við áttum eft- ir að gera svo margt. Við vorum búnar að tala um að þú kæmir með mér í bústað- inn minn, þú treystir þér ekki, ætlaðir að gera það þegar þú værir orðin góð af kvefinu. Það er ótal margt sem við gerðum síðasta ár, eftir að pabbi dó. Þér fannst gaman þegar við skruppum til Reykja- víkur og hittum stelpurnar mín- ar, kíktum kannski smá í búðir eða fórum á kaffihús. Stundum fórum við líka bara á kaffihús í Borgarnesi eða á ísrúnt, það fannst okkur gaman. Við gátum líka setið tímunum saman og gert handavinnu, þar kom ég aldrei að tómum kof- unum hjá þér og leitaði ég oft til þín. Það lék allt í höndunum á þér. Það var ómetanlegt fyrir okkur þegar þið pabbi fluttust í Borgarnes, þó pabbi væri þá orðinn mikið veikur. Þú stóðst þig svo vel í veik- indum hans, þó það væri miklu erfiðara en þú sagðir okkur. Nú eru þið aftur saman, þú og pabbi, það er huggun mín í þessari miklu sorg. Þú varst líka yndisleg amma, náðir að laða að þér öll ömmu- börnin þín, þau syrgja þig nú. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar pabba, við feng- um alltaf hlýjar móttökur hjá ykkur. Þið voruð bæði miklir fagurkerar, áttuð einstaklega fallegt heimili. Elsku mamma, takk fyrir allt og allt, þín er sárt saknað. Þín dóttir, Elfa. Elsku mamma. Ekki áttum við von á því þeg- ar þú veiktist 11. júlí að þú fær- ir svona fljótt frá okkur, en lífið er hverfult og fáum við engu ráðið um það. En væntanlega hefur þú þjáðst meira undanfar- ið en okkur óraði fyrir, svo veik varst þú orðin þegar meinið uppgötvaðist, en ekki kvartaðir þú mikið. Erfitt hefur verið fyrir þig að horfa á pabba svona veikan og þurfa að kveðja hann og varst þú smám saman að jafna þig á því, og ætlaðir til Kanarí í vetur eins og í fyrra með hópi af Snæ- fellingum en af því verður ekki. Hafðir þú gaman af ferðalögum hvort sem þau voru innan lands eða utan með fjölskyldu eða vinum, og fórum við fjölskyldan og þið pabbi í tvær ferðir utan í sumarhús og nokkrar hér inn- anlands og höfðum gaman af. Þó ekki værum við alltaf sammála um eitt og annað, þá barstu hag minn og minna alltaf fyrir brjósti og varst alltaf boð- in og búin að aðstoða ef þú gast, hvort sem það var að passa strákana, gardínusaumur eða hvað annað sem þurfti að gera, og varst þú einstök amma sem vildir allt gera fyrir barnabörn- in þín. Þegar Snæþór var vænt- anlegur í heiminn bað Óli, átta ára gamall, þig að koma og vera hjá sér og ekki stóð á því, fríi reddað og þú mætt. Ákvaðst þú þá að bóna parketið hjá mér þar sem það væri nú lítið mál, en var það meira en til stóð og tók mun lengri tíma, en allt hafðist þetta nú. Á þeim tæpu tveimur árum sem að Atli Snær var hjá okkur voruð þið pabbi alltaf boðin og búin til að hjálpa og vera hjá okkur og ófáar ferðir sem að þið komuð til okkar, og var það okkur alveg ómetanlegt, og mikil var raun ykkar þegar að hann lést, en nú eruð þið öll sameinuð aftur og þið væntan- lega haldið áfram að dekra við hann þar. Við eigum fullt af yndislegum minningum; hlátursköstin þín sem að enduðu alltaf með tár- um, og oft þurfti nú lítið til að starta þeim. Allar hannyrðirnar sem að þú gerðir, peysur og vettlingar á barnabörnin, Bu- cilla-föndrið, bútasaumsteppin og hvað sem þú tókst þér fyrir hendur var listar vel gert. Fyrir einu og hálfu ári flutt- ist þú í Borgarnes þar sem pabbi fékk inni í hvíldarinnlögn á Brákarhlíð, keyptir þú þér íbúð í blokk fyrir eldri borgara þar sem að þú bjóst þér fallegt heimili því mikill fagurkeri Ólafía Sigurborg Gestsdóttir ✝ Ester Snæ-björnsdóttir fæddist í Reykjavík 7. september 1923. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð 31. júlí 2016. Foreldrar: Elín Sigríður Péturs- dóttir Blöndal, f. 1895, d. 1969, og Snæbjörn Guð- mundsson, f. 6. des. 1901, d. 1936. Systkini: Pétur Blöndal, f. 1925, d. 1995, m. Fríða K. Gísladóttir, Ingibjörg, f. 1927, d. 2011, m. Hjörleifur Jónsson, látinn, Dagbjört Sóley, f. 1932, m. Gísli Guðmundsson, látinn, Snæbjörn, f. 1936 , d. 1995, m. Guðrún Björgvinsdóttir, Edda Emilsdóttir, f. 1940, m. Tómas Börkur Sigurðsson. Eiginmaður: Sigurbjörn Árnason, f. 1920, d. 1998. Börn þeirra: 1) Snæbjörn, f. 2. apríl 1947, d. 27. mars 2000, 2) Haf- þór skipstjóri, f. 31. júlí 1949, m. Erla Björg Magnúsdóttir, f. 1943. Börn þeirra a) Bjarki Már, f. 1977, m. Bylgja Hrönn Ingvadóttir, f. 1980. Börn þeirra: Emelía Dís, f. 2002, og Íris Alma, f. 2008, b) Ester Birna, f. 1984. Börn hennar: Svala Björt Alexandersdóttir, f. Dís Austmann Jóhannsdóttir, f. 1964. Börn þeirra: a) Viktor Blöndal, f. 1988, m. Ásdís Guðný Pétursdóttir, f. 1993, og b) Selma Blöndal, f. 1992, barnsfaðir Viktor Fitim Shala, f. 1990. Börn þeirra: Emelíana Blöndal Shala, f. 2012, og Aþena Blöndal Shala, f. 2014. Dóttir Páls, Linda Rós, f. 1977, m. Dagur Gunnarsson, f. 1975. Börn þeirra: Kristófer, f. 2003, Tómas, f. 2008, og Benedikt, f. 2013. 8) Aðalheiður (Allý). f. 2. júní 1956. Dóttir hennar a) Helma Ýr Helgadóttir, f. 1975, m. Ólafur Erling Ólafsson, f. 1974. Börn þeirra: Helgi Krist- berg, f. 2009, og Guðmundur Logi, f. 2010. 9) Finnbogi, f. 22. sept. 1957, d. 27. okt. 2001. 10) Sigurbjörn Blöndal, f. 3. nóv. 1958. Börn hans a) Ólafur Ari, f. 1981, m. Hallfríður Anna Björgvinsdóttir, f. 1983. Börn þeirra Sigurbjörn Hörður, f. 2000, og Björgvin Ágúst Ara- son, f. 2003, b) Sandra Dögg, f. 1993. Ester fæddist í Reykjavík og ólst upp á Hvammstanga. Árið 1932 flyst hún suður með for- eldrum sínum. Hún giftist Sig- urbirni Árnasyni og áttu þau saman 10 börn. Þau skildu 1959. Næstu 20 árin bjó hún ein með 10 börn í Gnoðarvogi 24. Ester vann við verkamanna- og verslunarstörf. Síðast starfaði hún í mötuneyti Borgarspít- alans og í Þjóðleikhúsinu. Útför Esterar fer fram frá Seljakirkju í dag, 10. ágúst 2016, kl. 13. 2005, Lilja Mist Al- exandersdóttir, f. 2007, og Elma Dögg Sigurð- ardóttir, f. 2013. 3) Sigurður Rósant kennari, f. 21. júní 1950, m. Hafdís Ingimundardóttir, f. 1958. Börn þeirra: Aron Ingi, f. 1992, og Bergdís, f. 1995. Sonur Sig- urðar, Óskar Veturliði, f. 1974. Börn hans: Guðjón, f. 2008, og Edda, f. 2015. Dóttir Sigurðar, Hulda Björk, f. 1979. Börn hennar: Krista Björt, f. 2005, Daníel Rökkvi, f. 2008, og Eva Karín, f. 2010. 4) Sigmar Ágúst. f. 12. sept. 1951, d. 24. mars 1972. 5) Ingibjörg Elín, f. 11. sept. 1952, m. Sigurður Eyþórs- son, f. 1948. 6) Árni, f. 22. nóv. 1953, d. 10. mars 1983. Börn Árna a) Ester K. Vigil, f. 1974, m. Erick Vigil, f. 1980. Börn þeirra Ethan Alexander Vigil, f. 2009, og Chloe Isabella Vigil, f. 2012. Synir Esterar: Davíð Már Hafsteinsson, f. 1990, Kristofer Jonathan Bow, f. 2000. b) Theódóra Björg, f. 1982. Dóttir Theódóru: Katrín Jenný Ingólfsdóttir, f. 2008. 7) Páll I. Blöndal tölvunarfræð- ingur, f. 15. apríl 1955, m. Elfa Nú þegar Ólympíuleikarnir í Ríó standa sem hæst, þar sem at- hyglin beinist að afreksfólki íþróttanna, verður mér hugsað til móður minnar, afrekskonu lífs- baráttunnar. Hún eignaðist 10 börn á ellefu árum. Tveim árum eftir að yngsta barnið fæddist tók hún þá ákvörðun að hún skyldi sjá um þetta ein. Aldrei kom til greina að ættleiða eitthvert okk- ar þrátt fyrir fjöldann. Hún tók einfaldlega þá ákvörðun að gera þetta ein og villtist aldrei af þeirri braut. Ég gleymi því aldr- ei, þá oft sem ég hitti mæður vina minna í hverfinu, svo og kennara í Vogaskóla, hve oft þau spurðu mig um hvernig mamma færi nú að þessu öllu, með okkur 10 í 77 fm íbúð í Gnoðarvogi 24. Hvernig á því stóð að við systkinin vorum upp til hópa afburða nemendur. Hvar og hvernig gátum við lært heima öll í einni kös? Í hvert skipti sem ég var spurður að þessu var ég að springa úr stolti. Móðir mín var alla tíð afrekskona lífs míns. Hún starfaði oftast á a.m.k. 2-3 vinnustöðum í einu til að hafa ofan í okkur og á. Aldrei, já ég segi aldrei, heyrði ég hana kvarta. Mamma fann leiðir til að annast fjölskylduna með mikilli vinnu, hagsýni og reglusemi. Á sjöunda áratugnum réð hún sig svo sem ráðskonu að Guðrúnar- stöðum í Vatnsdal og tók hún með sér öll börnin nema tvo elstu synina. Bóndinn þar var háaldr- aður og ekki heill heilsu. Sá elsti af okkur, sem þá var aðeins 12 ára, stjórnaði allri vélavinnu og fékk okkur hin yngri til að taka fullan þátt í því að reka búið. Við vorum þarna a.m.k. tvo vetur. Þá gengu yngri börnin í skóla að bænum Ási og þau eldri sóttu nám á Blönduósi. Eftir vistina í Vatnsdalnum fluttist hún með börnin aftur í Gnoðarvoginn, sem hafði þá verið í útleigu. Mamma var hæfileikarík og skörp kona. Oft var sagt við mig að mamma hafi verið undrabarn á sviði tón- listar. Hún spilaði á mörg hljóð- færi, m.a. gítar, píanó og harm- onikku. Að spila á hljóðfæri var fyrir henni svona eins og að reima skóna sína. Hún skildi aldrei alveg af hverju fólki fannst þetta svona merkilegt enda var hún alltaf hógværðin ein. Hún var mikið beðin um að kenna fólki á hljóðfæri á þessum tíma og sinnti hún því af mikilli alúð. En líf mömmu var sko enginn dans á rósum. Með árunum urðu mörg barnanna alvarlega veik og þurfti hún að sjá á eftir fjórum sona sinna yfir móðuna miklu. Þeir voru allir á besta aldri: Sig- mar 21 árs, Árni 29 ára, Snæ- björn 52 ára og Finnbogi 44 ára. Á dánardegi mömmu var kvik- myndin Englar alheimsins sýnd í sjónvarpinu. Þá kom upp í huga mér setning sem góð kona sagði eitt sinn við mig. „Englar alheimsins var svona eins og mjög stytt og einfölduð útgáfa af því sem hún móðir þín þurfti að ganga í gegnum.“ Elsku mamma mín, nú er þessu lokið. Hvíl í friði, þinn son- ur, Páll (Palli). Tengdamóðir mín, Ester Snæ- björnsdóttir, er fallin frá 92 ára að aldri. Ég mun ætíð minnast Esterar með þakklæti og virðingu. Þakk- læti fyrir öll þau ár sem ég hef átt þess kost að þekkja hana. Hún var sterkur persónuleiki sem bjó yfir miklum mannkostum. Alltaf tók Ester vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn til hennar og oftast var boðið upp á vöfflur með kaffinu. Ester var afar hrifin af barnabörnunum sínum og eiga Viktor og Selma góðar minningar frá þeim tíma þegar við bjuggum hlið við hlið á Laugarnesveginum og síðar á Rauðalæknum. Eitt var alveg öruggt að „amma Est- er“ átti alltaf ís fyrir ömmubörn- in sín. Við eigum margar fallegar minningar með Ester bæði hér á landi og á Spáni og þá sérstak- lega á Benidorm. En þangað fór hún nokkrum sinnum bæði með Helgu Blöndal, frænku sinni, og með okkur fjölskyldunni. Einnig átti hún góðar stundir með for- eldrum mínum á sama stað. Þá var nú oft glatt á hjalla. Ég kveð þig í dag, elsku tengdamóðir mín. Minning þín er ljós í lífi mínu. Þín tengdadóttir, Elfa Dís Austmann. Jæja, amma mín. Tíminn okk- ar saman hérna á jörðunni er bú- inn að vera eftirminnilegur. Ég mun seint gleyma góðu stundun- um þegar ég rölti yfir í næsta stigagang til þín og spilaði við þig veiðimann. Ótrúlegt hvað þú nenntir að leyfa mér að vinna í hvert skipti. Þú varst alltaf svo hlý og góð. Ég man enn eftir ömmulyktinni af sófanum heima hjá þér á Laugarnesveginum. Man enn eftir saltstöngunum og fresca-gosinu sem þú hafðir tilbúið ef þú skyldir fá gesti. Oft- ast var það ég sem kláraði salt- stangirnar og gosið. Man enn eft- ir því þegar ég samdi mitt fyrsta lag sem var varla lag, heldur nokkrar handahófskenndar nót- ur á píanóið og bað þig um að skrifa niður nóturnar að því. Ég hugsa oft til þín. Þín ást, um- hyggja og innilega bros sé ég allt- af fyrir mér þegar ég hugsa um heimsóknirnar. 92 ár eru langur tími. Á þess- um árum upplifði Ester ýmislegt. Bæði gott og svo annað ekki svo gott. Þrátt fyrir alla erfiðleikana var ekki langt í húmorinn. Í raun nokkrum dögum áður en hún lést hlógum við yfir því hvað fólkið í sjónvarpinu væri sítuðandi. Fólk þarf nú að tuða, sagði amma. Síð- ustu árin hennar voru eflaust skrýtin. Aldurinn var farinn að segja til sín. Heyrnin nánast alveg farin og minnið fór versnandi. Hún þekkti okkur sjaldnast þegar við komum í heimsókn en þegar ég kallaði í eyra hennar nafn mitt, þá lifnaði yfir henni. Þó hún þekkti mig ekki í sjón mundi hún alltaf eftir mér. Alltaf virtist hún þó þekkja Elfu Dís, móður mína, strax og hún gekk inn um dyrnar. Þær voru góðar vinkonur. Ein sterkasta og besta mann- eskja sem ég hef kynnst er farin frá okkur. Hún skilur eftir sig góðar og dýrmætar minningar. Ég kveð þig nú að sinni, amma mín. Vonandi hefur þú það gott. Viktor Blöndal Pálsson. Ester Snæbirna Snæbjörnsdóttir Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Hugrún Jónsdóttir Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.