Morgunblaðið - 10.08.2016, Page 27
Hún hefur starfað við fjölmiðla
frá því fljótlega eftir tvítugt og
komið við á langflestum fjölmiðlum
landsins, þar má nefna Helgar-
póstinn og Pressuna sálugu, Al-
þýðublaðið, tímaritin, Heimsmynd,
Mannlíf og Morgunblaðið. Lengst
af starfaði hún þó sem fréttamaður
á Ríkisútvarpinu og síðar á Stöð 2.
Hún var einnig í nokkur ár rit-
stjóri Smugunnar, vefrits um
stjórnmál og mannlíf. Í dag er hún
fréttastjóri á Fréttatímanum.
Þóra Kristín var um skeið vara-
formaður og síðar formaður Blaða-
mannafélags Íslands. Hún fékk
verðlaunin blaðamaður ársins árið
2009, fyrir sjónvarpsfréttir á vefn-
um árið 2008 í aðdraganda og kjöl-
far bankahrunsins.
Á fyrri hluta tíunda áratugarins
sendi Þóra Kristín frá sér þrjár
bækur. Þær eru Guðbergur
Bergsson, metsölubók, viðtalsbók
við Guðberg Bergsson rithöfund,
1992, Herbrúðir, 1994, og Götu-
strákur á spariskóm 1996.
Áhugamál
„Ég hef áhuga á því að lesa
bækur og skrifa, sjá góðar bíó-
myndir og hlusta á tónlist. Þá nýt
ég þess að ferðast heima og er-
lendis. Ég elska fallega hluti og
föt og líka ketti, og þessi katta-
áhugi er að ágerast með aldrinum.
Kannski enda ég sem kattakerling.
Ég hef alltaf verið með aldurs-
komplexa, fundist ég of ung eða
gömul. En maður getur ekki
hlaupið aldurinn af sér til lengdar
því fólk er jú alltaf að eldast í
kringum mann. Núna er ég bara
nokkuð sátt enda retró eins og
tekk.
Ég geri mér örugglega einhvern
dagamun í tilefni afmælisins en ég
held enga veislu. Ég hef ekki hald-
ið afmælisveislu síðan ég var tíu
ára og þori varla að rjúfa hefðina.
Kannski býð ég bara mömmu
minni út að borða. Hún á þennan
dag náttúrlega líka.“
Fjölskylda
Dóttir Þóru Kristínar og Ragn-
ars Hallmannssonar, f. 18.6. 1966,
d. 20.6. 1983, er Ragnheiður Júlía
Ragnarsdóttir, f. 15.2. 1984. Hún á
soninn Kolbein Gest, f. 13.7. 2009,
með Guðgeiri Kristmundssyni.
Ragnheiður Júlía er í sambúð með
Kjartani Þór Kjartanssyni.
Þóra Kristín er í sambúð með
Björgu Evu Erlendsdóttur, f.
18.12. 1960, flokkaritara vinstri
sósíalista hjá Norðurlandaráði og
framkvæmdastjóra Vinstri
grænna. Foreldrar hennar: Er-
lendur Jóhannsson, f. 10.10. 1913,
d. 12.2. 2001, bóndi á Hamarsheiði
í Gnúpverjahreppi, Árn. og k.h.
Margrét Øxnevad, f. í Stafangri í
Noregi 22.5. 1936, bús. í Reykja-
vík. Björg Eva á börnin Loga
Pálsson, f. 1996. Eddu Pálsdóttir,
f. 1989 og Iðunni Pálsdóttur, f.
1998.
Systkini Þóru Kristínar: Jó-
hannes, f. 6.2. 1965, Ester Bíbí, f.
30.12. 1975, og Aldís Jóna, f. 19.9.
1982.
Foreldrar Þóru Kristínar eru
Ásgeir Árnason kennari, f. 10.3.
1940, og k.h. Sigríður Jóhannes-
dóttir, kennari og fv. alþingis-
maður, f. 10.6. 1943, bús. í
Keflavík.
Úr frændgarði Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
saumakona, f. á Litlalandi í Ölfusi, Árn.
Ásmundur Jónsson
sjómaður í Reykjavík, f. á
Stóruborg í Grímsnesi, Árn.
Aldís Jóna Ásmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jóhannes Guðnason
eldavélasmiður í Reykjavík
Sigríður Jóhannesdóttir
kennari og fv. alþingismaður, bús. í Keflavík
Albertína Jóhannesdóttir
húsfreyja, f. í Vatnadal í
Súgandaf.
Guðni Þorleifsson
bóndi í Súgandafirði
Anna Pálína Árnadóttir
söngkona
Hólmfríður Árnadóttir
talmeinafræðingur
Frosti Friðriksson
leikmynda-
hönnuður í Rvík
Þorgerður Ása
Aðalsteinsdóttir
söngkona
Arnbjörn Jóhannesson
kennari í MR og ritariÆttfræðifélagsins
Þorleifur Guðnason
jarlinn af Norðureyri
Gróa Sigurlilja
Guðnadóttir
kjólameistari
Einar Guðnason
skipstjóri á Suðureyri
Guðni Einarsson
skipstjóri og
útgerðarmaður á
Suðureyri
Pálína Björgólfsdóttir
saumakona, f. í Nýjabæ á Eyrarbakka
Kláus Hannesson
vélgæslumaður í
Hafnarfirði, f. á Álftanesi
Ester Kláusdóttir
kaupmaður í Hafnarfirði
Árni Gíslason
verksmiðjustjóri í Hafnarfirði
Ásgeir Árnason
kennari, bús. í Keflavík
Kristín Ágústína
Kristjánsdóttir
húsfreyja, f. á Fremri-Hvestu
í Ketildölum,V-Barð.
Gísli Guðni Ásgeirsson
sjómaður í Hafnarfirði, f.
á Álftamýri í Arnarfirði
Guðni
Jóhannesson
orkumálastjóri
Gunnhildur Guðnadóttir
yfirlæknir á Sahlgrenska
sjúkrahúsinu í Gautaborg
Sverrir Páll Guðnason
leikari í Svíþjóð
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016
Jón Benediktsson myndhöggv-ari fæddist á Ísafirði 10. ágúst1916. Foreldrar hans voru
Benedikt Guðmundsson, hús-
gagnasmíðameistari í Reykjavík, f.
22.4. 1892 á Litlu-Þverá í Fremri-
Torfustaðahreppi, V-Hún., d. 1.11.
1971, og k.h. Guðrún Sigríður Jóns-
dóttir húsfreyja, f. 30.3. 1885 á Mið-
Hvoli í Mýrdal, V-Skaft., d. 4.2.
1978.
Jón lærði húsgagnasmíði hjá
Björgvin Hermannssyni og rak hús-
gagnaverslun og verkstæði að Lauf-
ásvegi 18a í Reykjavík um tíma
ásamt bróður sínum, Guðmundi
Benediktssyni. Húsgagnasmíði
þeirra bræðra, sem byggðist að
mestu á þeirra eigin hönnun, þótti
nýstárleg á þeim tíma.
Jón starfaði um árabil sem form-
listamaður Þjóðleikhússins og minn-
ast margir leikmuna hans úr leik-
ritum Þjóðleikhússins. Fyrir
framlag sitt að leikhúsmálum hlaut
hann menningarverðlaun Þjóðleik-
hússins.
Jón fékk ungur áhuga á myndlist
og lærði teikningu hjá Finni Jóns-
syni og Marteini Guðmundssyni og
höggmyndalist hjá Ásmundi Sveins-
syni. Hann hélt nokkrar einkasýn-
ingar, þá fyrstu árið 1957, og einnig
tók hann þátt í fjölda samsýninga,
bæði hérlendis og erlendis. Verk
Jóns þróuðust á sjötta áratugnum
frá hálffígúratífum formum í óhlut-
læga list. Þá gerði hann marg-
víslegar tilraunir með form og efni.
Jón vann verk sín í tré, stein, ýmsa
málma og jafnvel einstök verk í
plastefni.
Jón var heiðursfélagi í Félagi ís-
lenskra myndlistarmanna.
Hinn 21.11. 1942 kvæntist Jón Jó-
hönnu Hannesdóttur húsfreyju og
starfsmanni Blóðbankans, f. 22.10.
1915 á Hellissandi, d. 26.5. 2001.
Foreldrar hennar: Hannes Bene-
diktsson sjómaður og k.h., Steinunn
Jóhannesdóttir húsfreyja. Börn
Jóns og Jóhönnu: Ólafur lögfræð-
ingur, Benedikt verkfræðingur,
Gunnar Steinn líffræðingur og
Margrét myndlistarmaður.
Jón Benediktsson lést 29.5. 2003.
Merkir Íslendingar
Jón Benediktsson
95 ára
Margrét Valdimarsdóttir
90 ára
Sigurður Steindórsson
85 ára
Guðrún Jóna Árnadóttir
Haukur Guðmundsson
80 ára
Esther Britta Vagnsdóttir
Hjördís Þorgeirsdóttir
Marteinn Árnason
75 ára
Ásgeir Hólm
Bjarni Ólafsson
Kristín Guðmundsdóttir
Steinunn Jónasdóttir
70 ára
Aðalsteinn Valdimarsson
Ásgeir Ragnar Kaaber
Björn Sigurðsson
Branddís E. Benediktsd.
Eygló Kristjánsdóttir
Geir Sigurðsson
Páll Sigurðsson
Pálmar Guðmundsson
Sævar Árnason
Unnur Magnea Sigurðard.
Vilborg Árný Einarsdóttir
60 ára
Bára Andersdóttir
Guðlaug Gísladóttir
Helga Lára Árnadóttir
Inga Fanney Egilsdóttir
Jósef Valgarð Þorvaldss.
Leifur Agnarsson
Margrét Gísladóttir
Ólöf H. Aðalsteinsdóttir
Ragnheiður E. Jónsdóttir
Sigurður Bogi Stefánsson
Svavar Halldórsson
50 ára
Einar Victor Karlsson
Einar Viðar Gunnlaugsson
Erlingur Sigurðsson
Gyða Guðrún Halldórsd.
Hafsteinn Már Einarsson
Hjördís Gústavsdóttir
Hulda Guðrún Geirsdóttir
Sonja Hermannsdóttir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
40 ára
Ari Þorgeir Steinarsson
Axel Már Hermannsson
Bergur Már Emilsson
Bogdan Józef Hyz
Dariusz Rutkowski
Erna Kristín Ernudóttir
Ewa Sieminska
Guðný Erla Guðnadóttir
Hlynur Lind Leifsson
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Karl Daði Lúðvíksson
Magdalena M. Einarsd.
Magnús Þór Sverrisson
Nilton Jimenez
Nuno Jorge Monteiro Dias
Ólafur Guðmundsson
Sigurður Dalm. Áslaugars.
Sigurrós Jóhannsdóttir
Valdís Halldórsdóttir
Viggó Einar Viðarsson
Vildís Bjarnadóttir
30 ára
Alexander G. Roberts
Anna Kristín Ólafsdóttir
Árni Björnsson
Einar Jón Vilhjálmsson
Gísli Magnússon
Guðmundur Gunnlaugss.
Hávarður Örn Matthíass.
Hrafnhildur G. Björnsdóttir
Jóhann Sævar Eggertsson
Martin Lund Størup
Ricardo Joao F. Vilarinho
Til hamingju með daginn
40 ára Erna er Reykvík-
ingur, er með MA í mann-
auðsstjórnun og vinnur
hjá VÍS.
Maki: Björn Bragi Braga-
son, f. 1978, matreiðslum.
hjá Símanum.
Börn: Ágúst Már, f. 2009,
Hilmar Björn, f. 2011, og
Elías Orri, f. 2015.
Foreldrar: Torfi Axelsson,
f. 1957, matreiðslum. hjá
Icelandair, og Erna Grétar
Garðarsdóttir, f. 1957,
vinnur hjá Rvíkurborg.
Erna Kristín
Ernudóttir
40 ára Maggi Þór er
fæddur og uppalinn í
Kópavogi og býr þar.
Maki: Malini Elavaz-
hagan, f. 1982, gisti-
hússtjóri hjá Víkingi.
Börn: Alexandra, f. 2001,
Alex Máni og Aron Breki,
f. 2003, og Elvis Þór
Ashokatane, f. 2015.
Foreldrar: Sverrir Björg-
úlfur Þorsteinsson, f.
1951, vinnur hjá Vífilfelli,
og Guðleif Unnur
Magnúsdóttir, f. 1953.
Magnús Þór
Sverrisson
40 ára Nilton er frá Perú
en býr á Akureyri og vinn-
ur í frystihúsinu hjá
Samherja.
Maki: Kristjana Sigur-
jónsdóttir, f. 1991, nemi í
VMA.
Börn: Junior, f. 1995,
Ernesto Pétur, f. 1999, Al-
exander Nilton, f. 2001,
og Garðar, f. 2006.
Foreldrar: Ernesto Jime-
nez og Nila Emilia, bæði
látin. Þau voru búsett í
Perú.
Nilton
Jimenez
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is