Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 33

Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þetta er eins og að kasta sér fyrir björg og þú finnur það eftir ekki mjög margar mínútur hvort þetta heldur eða ekki – það er engin misk- unn í þessu,“ segir Elfar Logi Hann- esson, leikari, um einleikinn sem list- form en það er í hávegum haft á leiklistarhátíðinni Act alone sem haldin er í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 11.-13. ágúst. Sextán atriði eru í boði á hátíðinni í ár og eru þau ýmist í leiklist, dansi, tónlist, ritlist, gjörningum eða myndlist. Ókeypis er inn á hátíðina en það hefur verið frá því hún var fyrst sett á laggirnar árið 2004. „Það er mikil- vægt að allir fái tækifæri til að fara ókeypis í leikhús og það geta þeir gert á Suðureyri,“ segir Elfar Logi en fólk hafi í gegnum árin verið áhugasamt um að kynna sér þetta sérstaka leikhúsform. Metfjöldi sótti hátíðina í fyrra þegar um 2.800 gestir komu og árið þar á undan voru gest- irnir um 2.300 talsins. Margt smátt verður eitt stórt „Þetta form er ótrúlega fjölbreytt og æðislegt að fá svona þverskurðinn af þessu öllu á einni helgi því það er í raun og veru fjölbreytt og mun áhugaverðara en margir halda,“ seg- ir Elfar Logi en hann er upphafs- maður hátíðarinnar. Einleikjaformið fangaði hann fyrir margt löngu þegar hann hóf að setja upp einleiki fyrir vestan. Það er svo margt smátt sem gerir eitt stórt í tilfelli hátíðarinnar því hún hefur bæði vaxið og þróast eftir því sem árin færast yfir. „Hún byrjaði afskaplega lítil og nett – það voru þrjár sýningar og einn fyrirlestur um einleikjaformið,“ segir hann en til- raunin hafi heppnast svo vel að ekki hafi verið aftur snúið. „Það var engin leið að hætta“ – eins og Valgeir söng hér um árið,“ segir Elfar Logi léttur í bragði. Áherslan hefur alltaf verið lögð á að tjalda ekki til einnar nætur heldur bjóða upp á vandaða dagskrá fyrir fólk á öllum aldri og börnin líka. Sígandi lukka hátíðarinnar Fjöldi gesta eykst með hverju árinu en eftir að hátíðin fluttist yfir á Suðureyri árið 2012 þá halda henni engin bönd. „Þegar við fórum þarna yfir þá bara gerðist eitthvað – ein- hver galdur sem maður getur ekki útskýrt. Hátíðin stækkaði og frá því við komum hefur verið fullt á hverja einustu sýningu og fólk stendur og liggur þegar stólarnir eru búnir,“ segir hann glaður með gang mála. Yfir hundrað manns hafa troðið upp á hátíðinni og aldrei neinn sagt nei við því að koma þar fram. „Það er stór þáttur í því að hátíðin hefur ver- ið einstök.“ Góðir bakhjarlar leggja einnig sitt á vogarskálarnar svo hátíðin sé möguleg á hverju ári. Fischerman- ferðaþjónustufyr- irtækið er einn helsti bakhjarl hátíðarinnar og er staðsettur á Suð- ureyri og rekur þar gistiheimili, veitingastað og fleira. Þá hlýtur hátíðin einnig styrki frá Upp- byggingarsjóði Vestfjarða og Ísafjarðarbæjar og fleiri fyrirtækjum. Aðspurður hvernig bæjarbúar taki hátíðinni segir hann viðbrögðin engu lík. „Súgfirðingar eru afskaplega gestrisið fólk og hefur tekið hátíðinni opnum örmum og íbúar bæði mæta vel og lána allt sem til þarf ef eitthvað vantar – það er aldrei vandamál.“ Eitthvað fyrir alla aldurshópa Elfar Logi segir það hafa komið sér á óvart hve margir mæta ár hvert til að fylgjast með einleikjum á hátíð- inni. „Eins og einn gagnrýnandinn sagði eitt sinn: Alltaf fundist einleikir vera afskaplega leiðinlegir. Þannig að já, þetta kom mjög á óvart,“ segir hann hlæjandi en dagskráin í ár er ekki síður líkleg til að draga að marg- an manninn á Suðureyri. Upphafstónn hátíðarinnar er þó ávallt sleginn með sama hætti eða með fiskismakki í boði Íslandssögu á Suðureyri. „Við hefjum alltaf hátíð- ina á því að seðja magann áður en andinn er mettaður,“ segir Elfar Logi en fyrsti einleikurinn fer fram strax að fiskiveislunni lokinni í kirkj- unni. Er það leiksýning á ensku byggð á Richard III eftir Shake- speare í flutningi Emily Carding. Því næst er myndlistarsýningin Duldýr- in eftir Arngrím Sigurðsson og fleiri atriði fram eftir kvöldi. Þá kemur Gerður Kristný skáld og les upp úr bók sinni Drápu á föstu- dagskvöldið en því næst stígur Sesar A & Dj Kocoon á svið með rapp- tónleika en hann er oft nefndur „afi íslensks hipp hopps“. Á laugardeginum er svo boðið upp á fjölskylduskemmtun kl. 14 í Þurrk- veri þar sem Gunnar Helgason stígur á svið og fer í gegnum bækur sínar á óvenjulegan hátt. Hinn árlegi mark- aður hátíðarinnar fer svo fram í fé- lagsheimilisportinu seinna sama dag undir heitinu „Ein stakur mark- aður“. Barnaleiksýningin Kúrudagur fer svo fram í eftirmiðdaginn en því næst er farið yfir Einleikjasögu Íslands en Elfar Logi hefur unnið að ritun sög- unnar síðasta áratuginn og nálgast nú lokasprettinn. Vestfirski lista- maðurinn Gunnar Þórðarson tekur svo nokkur af lögum sínum sem allir þekkja kl. 21.30 í FSÚ. Dagskránni lýkur með uppistandi Dóra Maack sem er einn Pörupilta, þar sem hann les pólitísk ástarljóð hins unga upprétta manns og opnar hjarta sitt, eins og fram kemur í lýs- ingu sýningarinnar. Einstök og einleikin hátíð  Leiklistarhátíðin Act alone fer fram á Suðureyri dagana 11.-13. ágúst Ljósmynd/Ágúst G. Atlason Mannhaf Fullt hefur verið út úr dyrum á hverri sýningu leiklistarhátíð- arinnar Act alone þar sem ýmis form einleikja eru sett á svið. Aleinn Einleikjaformið er mörgum framandi en þar stendur hver sýning og fellur með leikaranum, tónlistarmanninum eða dansaranum á sviðinu. Elfar Logi Hannesson Óskarsverð- launahafinn Brie Larson kemur til með að leikstýra sinni fyrstu kvik- mynd í október næstkomandi. Myndin ber heit- ið Unicorn Store og mun leik- konan einnig framleiða myndina ásamt því að leika aðalhlutverkið. Þetta kemur fram í frétt BBC. Myndin fjallar um konu að nafni Kit sem flytur aftur heim til for- eldra sinna og fær síðan dularfullt boð. Myndin er byggð á handriti eftir Samantha McIntyre. Leikstýrir sinni fyrstu kvikmynd Brie Larson Vísindaskáldsögurnar Wild Cards eft- ir George R. R. Martin, höfund Game of Thrones, verða gerðar að sjón- varpsseríu en búið er að kaupa sjón- varpsréttinn að bókunum. Velgengni sjónvarpsþáttanna Game of Thrones var ástæða þess að ráðist var í að gera þætti eftir fleiri bókum Martin. Wild Cards-bækurnar eru 22 talsins og segja frá ímynduðum heimi þar sem framandi vírus dreifir sér um jörðina eftir seinni heimsstyrjöldina. Stór hluti mannfólksins þurrkast út en lítill hluti stendur eftir afmyndaður á meðan 1% mannfólks öðlast ofurkrafta en þá getur það notað annað hvort til góðs eða ills. „Framleiðslan hefst strax en við vonumst til að þetta verði fyrsta serían af mörgum,“ sagði Martin. Þetta kemur fram í frétt BBC. Sjónvarpsþættir gerðir eftir bókum úr smiðju höfundar Game of Thrones Höfundur George R.R. Martin selur réttinn að bókaseríu í kjölfar Game of Thrones. NERVE 5:50, 8, 10:10 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 3D ÍSL.TAL 4 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 4, 6, 8 BAD MOMS 8, 10:10 JASON BOURNE 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.