Morgunblaðið - 10.08.2016, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þetta er eins og að kasta sér fyrir
björg og þú finnur það eftir ekki
mjög margar mínútur hvort þetta
heldur eða ekki – það er engin misk-
unn í þessu,“ segir Elfar Logi Hann-
esson, leikari, um einleikinn sem list-
form en það er í hávegum haft á
leiklistarhátíðinni Act alone sem
haldin er í sjávarþorpinu Suðureyri
dagana 11.-13. ágúst. Sextán atriði
eru í boði á hátíðinni í ár og eru þau
ýmist í leiklist, dansi, tónlist, ritlist,
gjörningum eða myndlist.
Ókeypis er inn á hátíðina en það
hefur verið frá því hún var fyrst sett
á laggirnar árið 2004. „Það er mikil-
vægt að allir fái tækifæri til að fara
ókeypis í leikhús og það geta þeir
gert á Suðureyri,“ segir Elfar Logi
en fólk hafi í gegnum árin verið
áhugasamt um að kynna sér þetta
sérstaka leikhúsform. Metfjöldi sótti
hátíðina í fyrra þegar um 2.800 gestir
komu og árið þar á undan voru gest-
irnir um 2.300 talsins.
Margt smátt verður eitt stórt
„Þetta form er ótrúlega fjölbreytt
og æðislegt að fá svona þverskurðinn
af þessu öllu á einni helgi því það er í
raun og veru fjölbreytt og mun
áhugaverðara en margir halda,“ seg-
ir Elfar Logi en hann er upphafs-
maður hátíðarinnar. Einleikjaformið
fangaði hann fyrir margt löngu þegar
hann hóf að setja upp einleiki fyrir
vestan.
Það er svo margt smátt sem gerir
eitt stórt í tilfelli hátíðarinnar því hún
hefur bæði vaxið og þróast eftir því
sem árin færast yfir. „Hún byrjaði
afskaplega lítil og nett – það voru
þrjár sýningar og einn fyrirlestur um
einleikjaformið,“ segir hann en til-
raunin hafi heppnast svo vel að ekki
hafi verið aftur snúið. „Það var engin
leið að hætta“ – eins og Valgeir söng
hér um árið,“ segir Elfar Logi léttur í
bragði.
Áherslan hefur alltaf verið lögð á
að tjalda ekki til einnar nætur heldur
bjóða upp á vandaða dagskrá fyrir
fólk á öllum aldri og börnin líka.
Sígandi lukka hátíðarinnar
Fjöldi gesta eykst með hverju
árinu en eftir að hátíðin fluttist yfir á
Suðureyri árið 2012 þá halda henni
engin bönd. „Þegar við fórum þarna
yfir þá bara gerðist eitthvað – ein-
hver galdur sem maður getur ekki
útskýrt. Hátíðin stækkaði og frá því
við komum hefur verið fullt á hverja
einustu sýningu og fólk stendur og
liggur þegar stólarnir eru búnir,“
segir hann glaður með gang mála.
Yfir hundrað manns hafa troðið upp
á hátíðinni og aldrei neinn sagt nei
við því að koma þar fram. „Það er
stór þáttur í því að hátíðin hefur ver-
ið einstök.“
Góðir bakhjarlar leggja einnig sitt
á vogarskálarnar svo hátíðin sé
möguleg á hverju ári. Fischerman-
ferðaþjónustufyr-
irtækið er einn
helsti bakhjarl
hátíðarinnar og er
staðsettur á Suð-
ureyri og rekur
þar gistiheimili,
veitingastað og
fleira. Þá hlýtur
hátíðin einnig
styrki frá Upp-
byggingarsjóði
Vestfjarða og Ísafjarðarbæjar og
fleiri fyrirtækjum.
Aðspurður hvernig bæjarbúar taki
hátíðinni segir hann viðbrögðin engu
lík. „Súgfirðingar eru afskaplega
gestrisið fólk og hefur tekið hátíðinni
opnum örmum og íbúar bæði mæta
vel og lána allt sem til þarf ef eitthvað
vantar – það er aldrei vandamál.“
Eitthvað fyrir alla aldurshópa
Elfar Logi segir það hafa komið
sér á óvart hve margir mæta ár hvert
til að fylgjast með einleikjum á hátíð-
inni. „Eins og einn gagnrýnandinn
sagði eitt sinn: Alltaf fundist einleikir
vera afskaplega leiðinlegir. Þannig
að já, þetta kom mjög á óvart,“ segir
hann hlæjandi en dagskráin í ár er
ekki síður líkleg til að draga að marg-
an manninn á Suðureyri.
Upphafstónn hátíðarinnar er þó
ávallt sleginn með sama hætti eða
með fiskismakki í boði Íslandssögu á
Suðureyri. „Við hefjum alltaf hátíð-
ina á því að seðja magann áður en
andinn er mettaður,“ segir Elfar
Logi en fyrsti einleikurinn fer fram
strax að fiskiveislunni lokinni í kirkj-
unni. Er það leiksýning á ensku
byggð á Richard III eftir Shake-
speare í flutningi Emily Carding. Því
næst er myndlistarsýningin Duldýr-
in eftir Arngrím Sigurðsson og fleiri
atriði fram eftir kvöldi.
Þá kemur Gerður Kristný skáld og
les upp úr bók sinni Drápu á föstu-
dagskvöldið en því næst stígur Sesar
A & Dj Kocoon á svið með rapp-
tónleika en hann er oft nefndur „afi
íslensks hipp hopps“.
Á laugardeginum er svo boðið upp
á fjölskylduskemmtun kl. 14 í Þurrk-
veri þar sem Gunnar Helgason stígur
á svið og fer í gegnum bækur sínar á
óvenjulegan hátt. Hinn árlegi mark-
aður hátíðarinnar fer svo fram í fé-
lagsheimilisportinu seinna sama dag
undir heitinu „Ein stakur mark-
aður“.
Barnaleiksýningin Kúrudagur fer
svo fram í eftirmiðdaginn en því næst
er farið yfir Einleikjasögu Íslands en
Elfar Logi hefur unnið að ritun sög-
unnar síðasta áratuginn og nálgast
nú lokasprettinn. Vestfirski lista-
maðurinn Gunnar Þórðarson tekur
svo nokkur af lögum sínum sem allir
þekkja kl. 21.30 í FSÚ.
Dagskránni lýkur með uppistandi
Dóra Maack sem er einn Pörupilta,
þar sem hann les pólitísk ástarljóð
hins unga upprétta manns og opnar
hjarta sitt, eins og fram kemur í lýs-
ingu sýningarinnar.
Einstök og einleikin hátíð
Leiklistarhátíðin Act alone fer fram
á Suðureyri dagana 11.-13. ágúst
Ljósmynd/Ágúst G. Atlason
Mannhaf Fullt hefur verið út úr dyrum á hverri sýningu leiklistarhátíð-
arinnar Act alone þar sem ýmis form einleikja eru sett á svið.
Aleinn Einleikjaformið er mörgum framandi en þar stendur hver sýning og
fellur með leikaranum, tónlistarmanninum eða dansaranum á sviðinu.
Elfar Logi
Hannesson
Óskarsverð-
launahafinn Brie
Larson kemur til
með að leikstýra
sinni fyrstu kvik-
mynd í október
næstkomandi.
Myndin ber heit-
ið Unicorn Store
og mun leik-
konan einnig framleiða myndina
ásamt því að leika aðalhlutverkið.
Þetta kemur fram í frétt BBC.
Myndin fjallar um konu að nafni
Kit sem flytur aftur heim til for-
eldra sinna og fær síðan dularfullt
boð. Myndin er byggð á handriti
eftir Samantha McIntyre.
Leikstýrir sinni
fyrstu kvikmynd
Brie Larson
Vísindaskáldsögurnar Wild Cards eft-
ir George R. R. Martin, höfund Game
of Thrones, verða gerðar að sjón-
varpsseríu en búið er að kaupa sjón-
varpsréttinn að bókunum. Velgengni
sjónvarpsþáttanna Game of Thrones
var ástæða þess að ráðist var í að gera
þætti eftir fleiri bókum Martin.
Wild Cards-bækurnar eru 22 talsins
og segja frá ímynduðum heimi þar
sem framandi vírus dreifir sér um
jörðina eftir seinni heimsstyrjöldina.
Stór hluti mannfólksins þurrkast út en
lítill hluti stendur eftir afmyndaður á meðan 1% mannfólks öðlast ofurkrafta
en þá getur það notað annað hvort til góðs eða ills.
„Framleiðslan hefst strax en við vonumst til að þetta verði fyrsta serían af
mörgum,“ sagði Martin. Þetta kemur fram í frétt BBC.
Sjónvarpsþættir gerðir eftir bókum úr
smiðju höfundar Game of Thrones
Höfundur George R.R. Martin selur réttinn
að bókaseríu í kjölfar Game of Thrones.
NERVE 5:50, 8, 10:10
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 3D ÍSL.TAL 4
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 4, 6, 8
BAD MOMS 8, 10:10
JASON BOURNE 10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar