Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 1
Framsóknarmenn í
Suðvesturkjördæmi
samþykktu á kjör-
dæmisþingi í gær-
kvöldi tillögu um að
efnt yrði til flokks-
þings í aðdraganda
þingkosninga í haust.
Tvö kjördæmisþing höfðu áður
ályktað að flokksþing skyldi haldið,
þ.e. í Norðvesturkjördæmi og Suð-
urkjördæmi. Slík tillaga var hins
vegar felld á kjördæmisþingi í
Norðausturkjördæmi.
Á fundinum í gær var ennfremur
ákveðið að stilla upp á lista. »2
Samþykktu að halda
flokksþing í haust
F Ö S T U D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 1 6
Stofnað 1913 199. tölublað 104. árgangur
HEILSA VERÐUR AÐFYLGJA HJART-
ANU Í LISTINNI ANDLEG OG LÍKAMLEG
HEILSA Í BRENNIDEPLI Í 28
SÍÐNA SÉRBLAÐI UM HEILSU PORTRETT HEILLAR KARL 12
„Það skapaðist
í raun hálfgert
neyðarástand
sem við þurftum
að bregðast við,“
segir Guðný
Dóra Gestsdóttir,
forstöðumaður
safnsins á
Gljúfrasteini, en
safnið hefur ver-
ið lokað almenn-
ingi frá því í janúar vegna mikilla
rakavandamála í gólfi og veggjum.
Upphaflega stóð til að safnið yrði
lokað í um tvo mánuði vegna við-
halds en nú er stefnt að því að opna
það í janúar á næsta ári. Allur safn-
kostur hefur verið fluttur út. »10
Gljúfrasteinn verður
lokaður út árið
Lokað Safnið er
í Mosfellsdal.
Kjarasamningur
» Kennsluskyldan minnkar um
eina kennslustund.
» Kennsla í grunnskólum
minnkar ekki að sama skapi.
» Því gæti þurft fleiri kennara.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Nýr kjarasamningur grunnskóla-
kennara, sem bíður staðfestingar fé-
lagsmanna, felur í sér minni
kennsluskyldu umsjónarkennara,
eða einni færri kennslustund á
hverjum degi. Af um 4.500 grunn-
skólakennurum eru í kringum 2.200
umsjónarkennarar. Hver þeirra get-
ur kennt 26 tíma á viku og því er ljóst
að með breytingunni mun skorta
sem nemur tæpum 85 stöðugildum.
Svandís Ingimundardóttir, skóla-
málafulltrúi Sambands íslenskra
sveitarfélaga, segir breytinguna
ábyggilega munu auka þörf fyrir
kennara í grunnskólum landsins.
„Þetta er dýr samningur fyrir
sveitarfélögin, það fer ekkert á milli
mála,“ segir hún og bætir við að
þurft gæti fleiri stöðugildi eða þá
breytt skipulag skólastarfs.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir sveifluna
ekki mikla sé litið til starfsmanna-
veltu. „Það er svo mikil hreyfing á
starfsfólki að það er ekki sjálfgefið
að þetta valdi vandræðum. Við vitum
ekki hvað þetta þýðir fyrirfram.“
Tómarúm eftir samninginn
Kennsluskylda umsjónarkennara minnkar í nýjum kjarasamningi Skerðingin
nemur tæpum 85 stöðugildum Samningurinn sagður sveitarfélögunum dýr
MMinni kennsluskylda kallar ... »4
AFP
Heimilislaus Hundruð manna misstu heimili sitt eftir jarðskjálftann mikla
og hafa þurft að sofa í bifreiðum eða á tjaldsvæðum sem þessu.
Jóhannes Tómasson
Bogi Þór Arason
„Þegar maður skoðar fréttir finnur
maður að fólk er bara í losti yfir
þessu, en allt er smátt og smátt að
komast í eðlilegt horf,“ segir Sólrún
Bragadóttir söngkona, sem býr í um
50 kílómetra fjarlægð frá upptökum
jarðskjálftans mikla sem reið yfir
fjallaþorp á Mið-Ítalíu aðfaranótt
miðvikudags og kostaði minnst 250
manns lífið.
„Það fer rosaleg bylgja af tilfinn-
ingum í gegnum okkur sem búum í
svipuðu þorpi, því þetta hefði alveg
eins getað gerst hér,“ segir Sólrún.
Hún segir að margar fjölskyldur
hafi verið í fríi í fjallaþorpunum
Amatrice og Accumoli. Mörg börn
fórust sem voru í heimsókn hjá
ömmum sínum og öfum.
Óttast að tala látinna hækki
Þúsundir björgunarmanna grófu í
húsarústum í fjallabæjum Mið-Ítalíu
í gær í von um að finna þar fólk á lífi
eftir jarðskjálftann. Óttast var að
tala látinna myndi hækka þar sem
margra er enn saknað og líkurnar á
því að fleiri finnist á lífi minnka með
hverri klukkustundinni sem líður.
Hundruð manna, sem misstu
heimili sitt, hafa sofið í bílum eða
tjöldum eftir skjálftann sem mældist
um 6,0 stig. Rúmlega 240 manns
voru fluttir á sjúkrahús vegna
meiðsla og nokkrir þeirra eru í lífs-
hættu.
Hafin verður rannsókn á því hvort
einhver beri ábyrgð á manntjóninu,
að sögn ítalsks saksóknara. »2, 17
Mörg börn voru meðal hinna látnu á Ítalíu
Talið er að minnst 250 manns hafi farist í skjálftanum
Ágústmánuður mun fara í sögu-
bækurnar sem einn hlýjasti ágúst
síðan mælingar hófust.
Samkvæmt upplýsingum Trausta
Jónssonar veðurfræðings er hitinn
það sem af er mánuðinum ofan
meðallags síðustu tíu ára á 105
veðurstöðvum af 115 á landinu sem
meðaltöl eiga.
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 24
dagana í ágúst er 12,2 stig, 1,6 stig-
um ofan meðallags áranna 1961-
1990 og 0,5 stigum ofan meðallags
síðustu tíu ára. Mánuðurinn er sá 5.
hlýjasti á þessari öld og í 10. til 11.
sæti á lista sem nær aftur til ársins
1872.
Úrkoman hefur mælst 28 milli-
metrar og eru það um 2/3 hlutar
meðalúrkomu. Sólskinsstundir eru
147 og er það í meðallagi síðustu tíu
ára, en 23 stundir umfram meðal-
lag áranna 1961 til 1990.
Á Akureyri er meðalhitinn 11,7
stig það sem af er mánuði, það er
1,5 stigum ofan meðallags 1961-
1990, en 0,6 stigum ofan meðallags
síðustu tíu ára. Þar er úrkoman 27
mm og er það í rétt rúmu meðal-
lagi. sisi@mbl.is
Ágúst er
í hópi hlýj-
ustu mánaða
Morgunblaðið/Ómar
Hitinn það sem af er ágúst er ofan meðallags síðustu tíu ára á 105 veðurstöðvum af 115 á landinu
Horfur með
kartöfluuppskeru
hafa sjaldan verið
betri enda sum-
arið verið ein-
staklega hag-
stætt um mestallt
landið.
„Miðað við
hvað sumarið er
mikið betra en í fyrra verður nóg af
íslenskum kartöflum á markaði
fram að næstu uppskeru sumarið
2017,“ segir Bergvin Jóhannsson,
formaður Landssambands kart-
öflubænda. »15
Horfur á góðri kart-
öfluuppskeru í haust