Morgunblaðið - 26.08.2016, Side 4

Morgunblaðið - 26.08.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS Verð 1.690.000 kr. án vsk. 1.363.000 kr. Til á lager Sportman® 450 H.O. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Að minnsta kosti 43% getur munað á verði skólamáltíða í grunnskólum. Þetta kemur í ljós eftir lauslega könnun Morgunblaðsins á gjald- skrám ýmissa stærri sveitarfélaga. Af þeim sveitarfélögum sem litið var til er Akranesbær með ódýrustu skólamáltíðirnar, eða kr. 335 á hverja máltíð. Heldur dýrari eru þær á Ísa- firði, eða kr. 480 hver máltíð, og nem- ur munurinn rúmum 43 prósentum. Þó má nefna að Ísafjarðarbær veitir 10% afslátt af verðinu séu keyptar máltíðir fyrir heila önn. Í gjaldskrá grunnskóla Reykjavík- urborgar er hver máltíð sögð kosta kr. 355 og er innheimt svokallað jafn- aðargjald, kr. 7.100, alla mánuði nema júlí og ágúst. Sum setja menntamál í forgang Svandís Ingimundardóttir, skóla- málafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir það misjafnt eftir sveitarfélögum hvort hádegismatur grunnskólabarna sé niðurgreiddur og þá einnig hversu mikið. „Fjárhagsstaða sveitarfélaga er mjög misjöfn. Þá setja sum mennta- mál í algjöran forgang og ákveða að þau ætli að gera vel við barna- fjölskyldur og greiða niður máltíð- irnar, jafnvel að fullu,“ segir Svandís. Í núgildandi grunnskólalögum, sem tóku gildi árið 2008 að loknu löngu ferli, var bætt við gjaldtöku- heimild vegna skólamáltíða sam- kvæmt sérstakri gjaldskrá sem sveit- arfélög gefi út. Í athugasemdum við frumvarpið var þá nefnt sem almennt viðmið að nemendur greiði hráefnis- kostnað vegna máltíðanna. Ólíkar forsendur sveitarfélaga Svandís segir það ekki hafa komið til tals að setja viðmið af hálfu sam- bandsins hvað þetta varðar. „Alls ekki. Þetta verður að vera ákvörðun hvers sveitarfélags, þar sem svo ofboðslega ólíkar forsendur geta legið fyrir. Þú ert kannski í litlu sveitarfélagi með tiltölulega fáa nem- endur en þarft engu að síður að koma upp mötuneyti, á meðan stóru sveit- arfélögin geta gert virkilega hag- kvæm magninnkaup. Það væri ein- faldlega ekki sanngjarnt.“ Allt að 43% verðmunur á máltíðum  Máltíð fyrir grunnskólabörn kostar 480 kr. á Ísafirði, 335 kr. á Akranesi  Almennt viðmið í frum- varpi að nemendur greiði hráefniskostnað  Ósanngjarnt að setja önnur viðmið, segir skólamálafulltrúi Verð grunnskólamáltíða Ak ran es Árb org Re yk jav ík Ak ure yri Kó pa vo gu r Flj óts da lsh éra ð Ísa fjö rðu r Re yk jan es bæ r 500 kr. 400 kr. 300 kr. 335 kr. 341 kr. 355 kr. 383 kr. 427 kr. 439 kr. 450 kr. 480 kr. 200 kr. 100 kr. 0 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Nýr kjarasamningur við grunn- skólakennara, sem samkomulag náð- ist um á þriðjudag og bíður nú stað- festingar félagsmanna, felur í sér minni kennsluskyldu umsjónarkenn- ara, eða einni færri kennslustund á hverjum degi. Kennsla í grunnskól- um minnkar ekki að sama skapi og því gæti breytingin haft í för með sér aukna þörf fyrir kennara í grunn- skólum landsins. „Það mun ábyggilega gera það, sérstaklega í þessum stærstu skól- um,“ segir Svandís Ingimundardótt- ir, skólamálafulltrúi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, en að jafnaði starfar helmingur kennara við hvern skóla sem umsjónarkennarar. „Þetta er dýr samningur fyrir sveitarfélögin, það fer ekkert á milli mála,“ segir hún og bætir við að með þessu gæti þurft fleiri stöðugildi eða þá breytt skipulag skólastarfs. Umsjónarkennarar hafa um nokk- urt skeið barist fyrir minni kennslu- skyldu. Fengu þeir það ekki í gegn í síðustu kjarasamningum, heldur var þeim boðið að vera tveimur reitum ofar á launatöflunni, samanborið við aðra kennara. Töluverð óánægja hefur að sögn Svandísar ríkt vegna þessa bils og í nýja kjarasamningn- um færast aðrir kennarar því upp um einn reit, en umsjónarkennarar fá þá á móti þetta úrræði. Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs og formaður samninga- nefndar sambandsins, segir að það hafi þó verið torsótt við þessar við- ræður, líkt og við þær síðustu. „Þetta þvældist mikið fyrir okkur hérna megin þegar við vorum að semja um þetta. Auðvitað hefur þetta togast á hjá okkur, sem eðlilegt er, því við sjáum fram á kennara- skort. En störf umsjónarkennara hafa breyst mikið og álagið aukist gríðarlega. Ég vona því að við séum að gera starfið betra og meira aðlað- andi með þessari aðgerð.“ Sveiflan sögð ekki svo mikil Þá segir hún að sums staðar megi búast við aukinni þörf fyrir kennara. „Það fer auðvitað eftir því hvernig mönnunin er, hvernig það verður út- fært. Einhvers staðar þarf að ráða fleiri kennara en annars staðar gæti verið hægt að útdeila verkefnum öðruvísi. Það mun koma í ljós.“ Af um 4.500 grunnskólakenn- urum eru í kring- um 2.200 umsjón- arkennarar. Hver þeirra getur kennt 26 tíma á viku og því ljóst að með breyting- unni mun skorta sem nemur tæp- um 85 stöðugild- um. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir sveifluna ekki svo mikla sé litið til almennrar starfsmannaveltu. „Fleiri en þessir áttatíu kennarar hætta vegna aldurs á hverju ári og þá koma alltaf nýir kennarar til starfa. Það er svo mikil hreyfing á starfsfólki að það er ekki sjálfgefið að þetta valdi vandræðum. Við vitum ekki hvað þetta þýðir fyrirfram.“ „Þarf ekki að vera vandamál“ Aðspurður segir Ólafur að fleiri hætti nú á hverju ári vegna aldurs en sem nemur útskrifuðum kennara- nemum frá Háskóla Íslands og Há- skólanum á Akureyri. „Til skamms tíma þarf þessi breyting ekki að vera neitt vandamál og þetta breytir í raun engu til langs tíma, því ef fram heldur sem horfir og menn gera ekkert, þá verður kennaraskortur af öðrum ástæðum og hann verður verulegur.“ Minni kennsluskylda kallar á fleiri kennara  Nýr samningur skilur eftir sig 85 stöðugilda tómarúm Svandís Ingimundardóttir Inga Rún Ólafsdóttir Ólafur Loftsson Morgunblaðið/Eggert Skóli Þurft gæti fleiri stöðugildi eða breytt skipulag skólastarfs að sögn fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ekki er hægt að fresta lengur aukinni fjárfestingu í háskólastig- inu á Íslandi, að sögn Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands. Á ársfundi skólans í gær sagði hann fimm ára fjármála- áætlun ríkisstjórnarinnar gífurleg vonbrigði því háskólarnir væru skildir eftir þegar kæmi að upp- byggingu innviða. Stjórnendur HÍ kynntu nýja fimm ára stefnu til ársins 2021 á ársfundinum og sagði Jón Atli að markmið skólans væri að sækja fram í rannsóknum og kennslu auk þess að auka gæði og styrkja innviði hans. Rektor varaði hins vegar við undirfjármögnun há- skólastigsins sem ekki væri deilt um að væri staðreynd. Hann benti á að meðalframlag á hvern há- skólanema í ríkjum OECD væri t.a.m. um þriðjungi hærra en á Ís- landi og framlög á Norðurlöndum að meðaltali tvöföld á við það sem gerðist hér. Rekstrarhalli í fyrsta sinn „Háskóli Íslands er afar vel rek- in stofnun og hefur með ráðdeild tekist að halda rekstrinum í jafn- vægi um árabil. Þrátt fyrir mikið aðhald er í ár í fyrsta sinn gert ráð fyrir 300 m.kr. rekstrarhalla,“ sagði Jón Atli. Ef ekki ætti að stefna uppbyggingarstarfi Háskóla Íslands í voða væri komið að því að stjórnvöld létu verkin tala. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Ársfundur Jón Atli Benediktsson skýrir stöðu og stefnu Háskóla Íslands. Aukinni fjárfestingu ekki frestað lengur  Rektor HÍ segir háskólana skilda eftir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.