Morgunblaðið - 26.08.2016, Síða 15

Morgunblaðið - 26.08.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innmatur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Stjórnmálaflokkarnir munu á næst- unni velja frambjóðendur fyrir komandi alþingiskosningar. Morgunblaðið mun birta fréttir af þeim sem gefa kost á sér. Prófkjör 2016 Bryndís Har- aldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, gef- ur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðis- manna í Suðvestur- kjördæmi. Fram kemur í tilkynningu að Bryndís hafi verið í eigin atvinnu- rekstri. Hún hafi tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins allt frá því hún gekk til liðs við flokkinn árið 2002 og m.a. stýrt atvinnuveganefnd flokksins. Framboð í 4. sæti Guðlaugur Þór Þórðarson al- þingismaður óskar eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Í tilkynningu segist Guð- laugur m.a. leggja áherslu á það á næsta kjörtímabili að þeim ár- angri sem náðst hafi í ríkisfjár- málum verði fylgt fast eftir. Þá sé brýnt að innleiða lausnir fyrir ungt fólk á húsnæðismarkaði og hlúa betur að eldri borgurum og öryrkjum. Framboð í 2. sæti Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, lögfræðinemi og framkvæmda- stjóri, gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Suðvestur- kjördæmi. Í tilkynningu segist Tinna Dögg m.a. telja sig vera málsvara þeirrar kynslóðar sem sé að koma sér upp þaki yfir höfuðið, mennta sig, byggja upp starfs- frama og stofna fjölskyldu en það geti oft og tíðum verið ansi strembið. Framboð í 5. sæti Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, stjórnmálafræð- ingur, meist- aranemi og varaformaður Ungra jafn- aðarmanna, gef- ur kost á sér í 4.-6. sæti í for- vali Samfylkingarinnar í Reykja- vík. Í tilkynningu frá Þórarni segist hann brenna fyrir mannréttinda- málum og femínisma. „Sem ungur frambjóðandi þekki ég af eigin raun vandamál minnar kynslóðar sem fyrst kynslóða í marga ára- tugi horfir upp á að hafa það verra en kynslóðin á undan þeim,“ segir þar. Framboð í 4.-6. sæti Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Horfur með kartöfluuppskeru hafa sjaldan verið betri enda sumarið ver- ið einstaklega hagstætt um mestallt landið. „Miðað við hvað sumarið er mikið betra en í fyrra verður nóg af ís- lenskum kartöflum á markaði fram á næstu uppskeru sumarið 2017,“ seg- ir Bergvin Jóhannsson, bóndi á Ás- hóli í Grýtubakkahreppi í Eyjafirði og formaður Landssambands kart- öflubænda. Að sögn Bergvins eru bændur í Eyjafirði að byrja að taka upp kart- öflur og setja í hús. Er það 10 dögum fyrr en venjulega. Er ekki seinna vænna að hefja uppskerustörfin því kartöflurnar eru að ná heppilegri stærð. „Menn eru hættir að reyna að ná 20-25 faldri uppskeru eins tíðkaðist í gamla daga. Ástæðan er sú að neyt- endur vilja ekki stórar matarkart- öflur,“ segir Bergvin. Hann segir að þegar kartöflurnar séu komnar í hæfilega stærð þurfi að stoppa vöxt- inn. Þá eru kartöflurnar teknar upp, kartöflugrösin slegin eða borið á efni sem virkar eins og frostnótt. Óskar Kristinsson, kartöflubóndi í Dísukoti í Þykkvabæ, tekur undir með Bergvini. Þetta sé með betri sumrum sem komið hafi í háa herr- ans tíð. „Það er gott að fá eitt og eitt ár sem við þurfum ekki að væla,“ segir Óskar. Bændur í Þykkvabænum hafa verið að taka upp kartöflur í nokkrar vikur til að mæta þörf markaðarins fyrir nýjar kartöflur en Óskar reikn- ar með að aðaluppskerutíminn hefj- ist upp úr næstu helgi. Engin áföll í sumar Hann segir að í sumar hafi bændur ekki orðið fyrir neinum áföllum eins og oft vill verða. Stundum hafa komið næturfrost með þeim afleiðingum að grösin hafa fallið. Eins hefur það gerst að grösin hafa skemmst í miklu roki og þá hefur hægt á sprettunni. Ekkert slíkt hefur hent í sumar. „Ef við náum kartöflunum heil- brigðum upp úr görðunum í haust reikna ég með að uppskeran dugi fram á næsta sumar,“ segir Óskar. Sumarið afar hagstætt kartöflurækt  Kartöflubændur búast við því að nóg verði af íslenskum kartöflum á markaði fram á næstu uppskeru sumarið 2017 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þykkvibær Útlit er fyrir góða kart- öfluuppskeru eftir gott sumar. Staðfesting á verndaráætlun fyrir minjasvæðið á Laugarnestanga var undirrituð í gær af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Kristínu Huld Sigurð- ardóttur, forstöðumanni Minjastofn- unar. Tilgangur verndaráætlunar fyrir minjasvæðið er að tryggja verndun fornleifanna á sem bestan hátt og veita leiðsögn um samspil verndunar og nýt- ingar, skipulags og reksturs. Flestar tengjast minjarnar búsetu í Laugarnesbænum auk hjáleiga og kirkju en einnig er að finna minjar tengdar tíð embættismannabústaðar og holdsveikraspítala á staðnum auk stríðsminja. Tvennar minjar, bæjarhóll Laugarnesbæjarins og kirkjugarður, eru friðlýstar og er Laugarnes einn af sjö stöðum í Reykjavík þar sem friðlýstar fornleifar er að finna. Á minjasvæðinu á Laugarnestanga eru friðlýstar fornleifar auk aldurs- friðaðra fornleifa og gilda strangari reglur um þær fyrrnefndu. Út frá ystu mörkum friðlýstra fornleifa er 100 m friðhelgað svæði, en 15 m út frá ystu mörkum aldursfriðaðra fornleifa. Allar framkvæmdir innan friðhelgaðs svæðis eru óheimilar án leyfis Minjastofnunar Íslands. Minjastofnun ber ábyrgð á minjunum og skal ríkið bera kostnað af við- haldi friðlýstra fornleifa. Landeigandi skal hins vegar bera kostnað af við- haldi umhverfis minjanna, hvort sem er friðaðra eða friðlýstra, sem og við- haldi aldursfriðaðra minja, segir í fréttatilkynningu. Verndaráætlun fyrir Laugarnestanga staðfest Sautján ára piltur féll nokkra metra niður af handriði í Fjölbrautaskóla Suðurlands, FSu, á miðvikudag en hann hafði setið á svölum á annarri hæð. Fallið niður á gólfið er að minnsta kosti þrír metrar og er talið að pilturinn hafi handleggsbrotnað. Þórarinn Ingólfsson, aðstoðar- skólameistari FSu, segir við mbl.is að sem betur fer hafi slysið ekki ver- ið alvarlegt. Skólayfirvöld hafi frétt af því eftir að pilturinn var farinn á sjúkrahús þar sem gert var að sár- um hans, en vinur hans hafði ekið honum þangað. Pilturinn er ekki skráður nemandi í skólanum. Að sögn sjónarvotts hafði pilt- urinn verið að gera leikfimisæfingar á handriðinu þegar hann missti jafn- vægið og féll. Féll af hand- riði í Fjöl- brautaskóla Suðurlands Opinn fundur í Grafarvogi Félag Sjálfstæðismanna í Grafarvogi boðar til opins fundar í aðdraganda kosninga til Alþingis. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 27. ágúst kl. 11:00 í félagsheimilinu að Hverafold 3, 2. hæð. Gestir fundarins verða þeir fjórir Grafarvogsbúar sem bjóða sig fram í prófkjöri flokksins. Þau eru Guðlaugur Þór Þórðarson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Ingibjörð Óðinsdóttir og Jón Ragnar Ríkharðsson. Gert er ráð fyrir að hver frambjóðandi hafi 3 mínúta framsögu og svo verði fyrirspurnir og umræður að þeim loknum Fundarstjóri er Elísabet Gísladóttir. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Heitt á könunni. Frumvarp ekki afgreitt Ranglega var sagt í frétt í Morg- unblaðinu í gær að frumvarp um þjóðaröryggisráð hefði verið sam- þykkt á Alþingi sl. miðvikudag. Frumvarpið bíður enn lokaatkvæða- greiðslu. Atkvæðagreiðsla um frum- varpið, sem sagt var frá í fréttinni, fór fram eftir aðra umræðu um frumvarpið. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.