Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 16
Hagnaður Landsvirkjunar nam 34,8 milljónum dollara, eða 4,2 milljörðum króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn var 63,9 milljónir doll- ara á sama tímabili í fyrra. Rekstr- artekjur fyrirtækisins námu 207 milljónum dollara, eða 25,2 milljörð- um króna, á fyrri hluta ársins. Er það lækkun um 8,8 milljónir dollara, eða 4,1%, frá sama tíma í fyrra. Í tilkynningu Landsvirkjunar til Kauphallar segir að tekjulækkunina megi rekja til lækkandi álverðs, en verðlagning hluta raforku sem fyrir- tækið selur er tengd álverði. Segir að verð á áli muni áfram hafa áhrif á af- komu fyrirtækisins en við endur- samninga leggi félagið áherslu á að draga úr vægi þeirrar tengingar. Rekstarhagnaður Landsvirkjunar (EBITDA) nam 155 milljónum doll- ara á tímabilinu, eða 18,9 milljörðum króna, og reyndist EBITDA 75% af tekjum. Það hlutfall var 78,5% á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 3,1% á tímabilinu, samanborið við 6,4% í fyrra. Nokkur árangur náðist í lækkun skulda á fyrstu sex mánuðum ársins. Samtals lækkuðu nettó skuldir, það er vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé, um 39,4 milljónir doll- ara frá áramótum, eða 4,2 milljarða króna. Í lok júní námu nettó skuldir 1.946 milljónum dollara, sem jafn- gilda 237,4 milljörðum króna. Handbært fé var við lok tímabilsins 113 milljónir dollara, eða tæpir 14 milljarðar króna Heildareignir Landsvirkjunar í lok júní voru 4.233 milljónir dollara. Það jafngildir rúmlega 515 milljörðum króna. Eigið fé fyrirtækisins var á sama tíma 1.938 milljónir dollara, sem samsvarar um það bil 236 milljörðum króna. Arðsvon með lægri skuldum Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, segir í tilkynningu með árshlutauppgjörinu að afkoma fyrir- tækisins hafi verið góð, ekki síst mið- að við krefjandi ytra umhverfi. Skuld- ir lækki á sama tíma og bygging nýrra virkjana standi yfir. Fram kemur í tilkynningunni að Landsvirkjun muni áfram leggja höfðuáherslu á að greiða niður skuld- ir. Sú stefna hafi skilað því að nettó- skuldir fyrirtækisins séu nú 6,3 sinn- um EBITDA. Fram kemur jafnframt að markmiðið sé að hlutfall þetta fari undir 5. Segir í tilkynningu Lands- virkjunar að takist það verði meira svigrúm til að greiða eigendum arð og endurfjármagna skuldir til langs tíma á hagstæðum kjörum. jonth@mbl.is Minni hagnaður hjá Landsvirkjun Morgunblaðið/Ómar Búrfellsvirkjun Arðsemi Landsvirkjunar minnkar um meira en helming. 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 26. ágúst 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 116.39 116.95 116.67 Sterlingspund 153.65 154.39 154.02 Kanadadalur 90.06 90.58 90.32 Dönsk króna 17.648 17.752 17.7 Norsk króna 14.182 14.266 14.224 Sænsk króna 13.842 13.924 13.883 Svissn. franki 120.56 121.24 120.9 Japanskt jen 1.1582 1.165 1.1616 SDR 163.39 164.37 163.88 Evra 131.38 132.12 131.75 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.1309 Hrávöruverð Gull 1324.5 ($/únsa) Ál 1656.5 ($/tonn) LME Hráolía 49.57 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hagnaður Sím- ans á öðrum fjórð- ungi ársins var 716 milljónir saman- borið við 532 millj- ónir á sama tíma- bili í fyrra. Þetta kemur fram í til- kynningu til Kaup- hallar. Tekjur á fjórð- ungunum voru 7.475 milljónir en voru 7.482 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1.954 milljónir á öðrum ársfjórðungi en var 2.062 milljónir á sama tíma í fyrra. Fjármagnsgjöld lækkuðu milli ára úr 474 milljónum á öðrum fjórðungi í fyrra niður í 163 milljónir í ár. Munar þar mest um hagnað vegna sölu á dóttur- félögunum Staka og Talentu. Eiginfjárhlutfall Símans var 52,4% í lok júni og nam eigið fé 32,5 milljörðum króna. Söluhagnaður bætir af- komu Símans milli ára Orri Hauksson, forstjóri Símans. STUTT Hagnaður Sjóvár nam 286 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, en hann var 756 milljónir króna á sama fjórð- ungi í fyrra. Fjárfestingartekjur Sjóvár lækkuðu á milli ára, úr 963 milljónum króna á öðrum fjórðungi í fyrra, í 578 milljónir í síðastliðnum ársfjórðungi. Eigin iðgjöld námu 3,5 milljörðum króna á ársfjórðungnum og jukust um 5% á milli ára. Eigin tjón námu hins vegar 2,7 milljörðum króna, sem er 7% aukning miðað við sama fjórðung í fyrra. Rekstrarkostnaður nam 922 milljónum sem er 6% aukn- ing á milli ára. Í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallar kemur fram að ávöxtun skráðra verðbréfa hafi verið slök en jákvæð gengisbreyting óskráðra hlutabréfa hafi numið 242 milljónum króna og jákvæð gengisbreyting fasteignafélaga og sjóða hafi numið 285 milljónum króna. Hagnaður Sjóvár á fyrri helmingi ársins nam 709 milljónum króna, en hann var 1.380 milljónir fyrrihluta síðasta árs. Samsett hlutfall var 104% fyrstu sex mánuði ársins og breytist lítið á milli ára. Ávöxtun eig- in fjár var 9%. Eigið fé var 16,2 milljarðar króna í lok júní og hefur lækkað um tæpar 100 milljónir frá áramótum. Eigin- fjárhlutfall var 37,3%. Hermann Björnsson forstjóri seg- ir í afkomutilkynningunni að ólíklegt sé að Sjóvá nái samsettu hlutfalli undir 100% fyrir 2016 eins og að var stefnt í upphafi árs. „Skýringa er fyrst og fremst að leita í því að ár- angur þeirra aðgerða sem gripið hef- ur verið til skilar sér á lengri tíma ásamt því að tjónatíðnin er enn há.“ Morgunblaðið/Golli Þróun Hermann segir þróun markaða muni ráða miklu um útkomu ársins. Slök ávöxtun skráðra eigna  Sjóvá skilar 286 milljóna hagnaði á öðrum fjórðungi MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Brauð dagsins alla föstudaga Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð. Hagnaður Vátryggingafélags Ís- lands, VÍS, var 92,7 milljónir króna á öðrum fjórðungi ársins, í saman- burði við 685,7 milljónir á sama tíma- bili í fyrra. Samdrátturinn skýrist að miklu leyti af því að gangvirðisbreyt- ingar fjáreigna lækkuðu verulega á milli ára. Þær námu 140,6 milljónum króna á síðasta ársfjórðungi en voru 820 milljónir á sama tímabili í fyrra. Ef ekki væri fyrir jákvæða tekju- skattsfærslu á tímabilinu hefði fjórð- ungurinn verið rekinn með tapi, en tekjuskattsfærslan nam 251 milljón króna. Af þeirri fjárhæð eru 222 milljónir skýrðar í reikningum sem bakfærð niðurfærsla skatteignar vegna lúkningar á slitum á þrotabúi. Aukning á tjónum Eign iðgjöld á öðrum ársfjórðungi námu 4,3 milljörðum króna saman- borið við 4,0 milljarða á sama fjórð- ungi í fyrra. Tjón tímabilsins námu 4,0 millj- örðum króna samanborið við 3,3 milljarða á sama ársfjórðungi í fyrra. Hlutur endurtryggjenda í tjónum jókst einnig en hann var 409 millj- ónir króna á tímabilinu en var 40 milljónir á sama tíma í fyrra. Á fyrstu sex mánuðum ársins nam hagnaður VÍS 238 milljónum króna en hann var 1.419 milljónir á fyrri hluta síðasta árs. Arðsemi eigin fjár á fyrri árshelmingi var 2,9%. Eignir VÍS í lok tímabilsins námi 48,5 milljörðum króna. Eigið fé var 15,3 milljarðar króna í lok júní og hefur dregist saman um 2,2 milljarða frá áramótum, en félagið greiddi lið- lega 2 milljarða króna til hluthafa í arð fyrr á árinu. Eiginfjárhlutfall var 31,6%. Samsetta hlutfall VÍS var 104,8% í lok fyrri árshelmings sem er áþekkt því sem það var á sama tíma í fyrra, þegar það var 104,5%. Afkoman undir væntingum Sigrún Ragna Ólafsdóttir, for- stjóri VÍS, segir í afkomutilkynningu til Kauphallar að afkoman sé undir væntingum bæði hvað varðar vá- tryggingastarfsemi og fjárfestinga- starfsemi. „Afkoma af vátryggingastarfsemi litast enn af því að tap er af bæði frjálsum og lögboðnum ökutækja- tryggingum. Vöxtur iðgjalda var þó ágætur á fyrri helmingi ársins og hækkuðu innlend bókfærð iðgjöld um 11,6% frá sama tímabili í fyrra,“ segir Sigrún. Í tilkynningunni segir að stjórn- endur VÍS geri ráð fyrir að ágætur vöxtur verði í innlendum iðgjöldum á árinu og að samsett hlutfall verði lægra en það var á síðasta ári. jonth@mbl.is Mikill samdráttur fjárfestingatekna  Tap á rekstri VÍS fyrir skatta á öðrum fjórðungi Morgunblaðið/Styrmir Kári Tap Sigrún segir afkomu VÍS litast af tapi á ökutækjatryggingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.