Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Heildverslun með lín fyrir: Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is 83 ÁRA Rúmföt, handklæði, sængur, koddar og annað lín fyrir ferðaþjónustuna - hótelið - gistiheimilið - bændagistinguna - heimagistinguna - veitingasalinn - heilsulindina - þvottahúsið - sérverslunina Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Æðsti stjórnsýsludómstóll Frakk- lands tók í gær fyrir beiðni um að ógilda umdeilt bann sem sett hefur verið í um þrjátíu bæjum við því að klæðast sundfatnaðinum búrk- íní. Frönsk mannréttindasamtök höfðu áfrýjað úrskurði undirréttar í Nice sem staðfesti bann við búrk- íní í bænum Villeneuve-Loubet, skammt vestan við borgina. Hann var á meðal fyrstu bæjanna sem bönnuðu sundfatnaðinn. Úrskurður stjórnsýsludómstólsins hefur fordæmisgildi fyrir hina bæina og er hans að vænta í dag, að sögn franskra fjölmiðla. Undirrétturinn í Nice komst að þeirri niðurstöðu á mánudag að bannið við búrkíní væri „nauðsyn- leg og viðeigandi“ ráðstöfun til að tryggja allsherjarreglu eftir mann- skæð hryðjuverk sem íslamistar hafa framið í Frakklandi, m.a. í Nice 14. júlí þegar 85 manns létu lífið. Búrkíní-fatnaðurinn væri einnig „líklegur til að misbjóða trúarsannfæringu eða vantrúar- sannfæringu annarra sem nota ströndina“. Aðrir á baðströndinni gætu litið á sundfatnaðinn sem „ögrun“ og hann gæti því aukið „spennuna í samfélaginu“. Má vera í blautbúningi? Orðalag bannsins þykir óljóst og fólk á baðströndunum veit ekki hvort það nái aðeins til búrkíní, eða hvort bannað sé að hylja höfuðið eða vera í hvers konar klæðnaði sem hylur líkamann. Fréttaveitan AFP segir að konum hafi verið gert að greiða sekt fyrir að klæðast öðrum fatnaði, sem hyl- ur líkamann, á baðströndum og hefur eftir franskri konu að hún hafi verið sektuð á strönd í Cannes fyrir að klæðast leggingsbuxum, blússu og höfuðklút. Ekki hefur komið fram hvort bannað sé að vera í blautbúningi sem líkist mjög búrkíní. Á ríkið að skipta sér af klæðaburði? Mannréttindasamtök, stjórn- málamenn í Sósíalistaflokknum, franskir femínistar og fleiri hafa gagnrýnt bannið, sem hefur vakið umræðu um veraldarhyggjuna í frönskum lögum, réttindi kvenna og samlögun múslíma. Þeir sem gagnrýna bannið segja að yfirvöld eigi ekki að skipta sér af klæða- burði kvenna, hvorki að banna þeim að klæðast ákveðnum fatnaði né að skylda þær til þess eins og talibanar í Afganistan og fleiri öfgasamtök íslamista hafa gert. Mikið líf færðist í umræðuna á samfélagsmiðlum þegar birtar voru myndir af konu sem var umkringd fjórum vopnuðum lögreglumönnum á baðströnd í Nice og sást afklæð- ast blússu fyrir framan þá. Tals- maður borgarstjórans í Nice neit- aði því að konan hefði verið neydd til að fara úr blússunni og sagði hana hafa afklæðst flíkinni til að sýna lögreglumönnunum sundföt sem hún var í utan yfir leggings- buxum. Ástralski fatahönnuðurinn Aheda Zanetti, sem hannaði búrkíní, segir frönsk yfirvöld hafa misskilið hvaða tilgangi baðfötin þjóni. „Búrkíní er aðeins orð sem lýsir sundalfatnaði og hefur ekki neina táknræna þýðingu sem tengist múslímum.“ Deilt um klæðaburð múslímakvenna í Frakklandi Er algengust meðal pashtúnakvenna í Afganistan Langt, svart sjal sem múslímakonur, einkum í Íran og á Indlandi, vefja um höfuðið og efri hluta líkamans Hylur allan líkamann nema augun Níkab Búrkíní Hylur ekki andlitið Búrka Sundfatnaður sem hylur allan líkamann nema andlitið Yfirvöld í tugum bæja í Frakklandi hafa bannað fatnaðinn Hylur allan líkamann, andlit og augu meðtalin, með þéttriðnu neti fyrir augunum Talibanar í Afganistan skylda konur til að klæðast búrku Er algengur klæðnaður meðal múslímakvenna vegna áhrifa wahabíta í Sádi-Arabíu Aðallega notaður á þéttbýlum svæðum Hylur hár, eyru, háls og stundum axlir en ekki andlitið og hluti af hárinu er oft óhulinn Chador Híjab Algengur klæðnaður múslímakvenna á Vesturlöndum Deilt um bann við baðföt- um sem hylja líkamann  Búrkíní bannað á baðströndum í 30 bæjum í Frakklandi Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þúsundir björgunarmanna grófu í kappi við tímann í húsarústum á Mið-Ítalíu í gær í von um að finna þar fólk á lífi eftir jarðskjálfta sem kostaði minnst 250 manns lífið að- faranótt miðvikudags. Óttast var að tala látinna myndi hækka þar sem margra er enn saknað og líkurnar á því að fleiri finnist á lífi minnka með hverri klukkustundinni sem líður. Hundruð eftirskjálfta hafa riðið yfir hamfarasvæðið og sá stærsti þeirra mældist 4,3 stig í gær. Óttast var að eftirskjálftar gætu valdið hruni húsa, sem skemmdust í stóra skjálftanum, og tafið björgunar- starfið. Hundruð manna, sem misstu heimili sitt, hafa sofið í bílum eða tjöldum eftir skjálftann sem mældist um 6,0 stig. Rauði krossinn hefur hafið flutninga á hjálpargögnum á hamfarasvæðið. Rúmlega 240 manns voru fluttir á sjúkrahús vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir í hamförunum og nokkrir þeirra eru í lífshættu. Yfir 4.300 björgunarmenn grófu í húsarústunum í gær með vinnuvél- um eða berum höndum. Þeir höfðu fundið alls 215 manns á lífi í rúst- unum, m.a. unga stúlku sem var bjargað í þorpinu Pescara del Tronto í fyrrakvöld, um sautján klukkstund- um eftir jarðskjálftann. Á meðal þeirra sem slösuðust í hamförunum var ung kona sem lifði af jarðskjálfta í ítölsku borginni L’Aquila árið 2009 þegar 309 manns fórust. Eftir þær hamfarir ákvað hún að flytja til þorpsins Arquata del Tronto sem jafnaðist við jörðu í skjálftanum á miðvikudag. Hún er nú á sjúkrahúsi eftir að björgunar- menn náðu henni úr rústunum. Átján mánaða dóttir hennar fannst hins vegar látin. Þeim, sem fannst síðast á lífi í rústunum eftir jarðskjálftann í L’Aquila árið 2009, var bjargað þremur sólarhringum eftir að ham- farirnar urðu. Björgunarmennirnir halda því enn í vonina um að geta bjargað fleira fólki en telja nú litlar líkur á að margir finnist á lífi. Á meðal þeirra sem komust lífs af á miðvikudag er 63 ára kona, Rita Rosine, sem segir að 75 ára systir sín sé enn undir rústum húss sem hrundi í skjálftanum. „Ástandið er verra en í stríði. Þetta er hræðilegt,“ hefur fréttaveitan AFP eftir konunni sem dvelur í tjaldbúðum fyrir fólk sem missti heimili sitt. Rannsókn vegna manntjónsins Fjölmiðlar á Ítalíu segja að vakn- að hafi spurningar um hvort yfirvöld hafi gert nóg til að fyrirbyggja mikið manntjón í jarðskjálftum sem eru al- gengir á þessum slóðum. Ítalskur saksóknari sagði í gær að hafin yrði rannsókn á því hvort einhver bæri ábyrgð á manntjóninu. Eftir skjálftann í L’Aquila fyrir sex árum var ákveðið að almanna- varnayfirvöld á Ítalíu veittu styrki að andvirði milljarðs evra, jafnvirði rúmra 130 milljarða króna, til að endurbæta húsnæði á svæðum þar sem jarðskjálftar eru algengir með það fyrir augum að minnka hættuna á miklu manntjóni. Mikil skrif- finnska hefur hins vegar orðið til þess að tiltölulega fáir hafa sótt um þessa styrki, að sögn þeirra sem gagnrýna stjórnvöld fyrir að hafa ekki gert nóg til að fyrirbyggja manntjón af völdum náttúruham- fara. Fréttaritari BBC á hamfarasvæð- inu segir að ólíklegt sé að hægt verði að endurreisa þorpið Pescara del Pronto sem jafnaðist við jörðu í skjálftanum eftir að hafa staðið í hundruð ára. „Margra alda sögu lauk á augabragði.“ AFP Rústabjörgun Slökkviliðsmaður við húsarústir í bænum Amatrice. Telja litlar lík- ur á að margir finnist á lífi  A.m.k. 250 fórust í skjálftanum á Ítalíu  Margra alda sögu lauk á augabragði Þrítug kona í Víetnam er grunuð um að hafa látið vin sinn höggva af henni aðra höndina og annan fótinn í því skyni að svíkja fé út úr tryggingafélagi. Konan fór á sjúkrahús í Hanoí í maí eftir að hafa misst þriðjung af vinstri hönd og vinstri fæti og hélt því fram að hún hefði orðið fyrir lest. Læknar sögðu henni að þeir gætu ekki grætt limina á hana. Konan krafðist þess að trygg- ingafélag greiddi henni að jafn- virði 18 milljónir króna sem telst mikið fé í Víetnam í ljósi þess að meðalárstekjur landsmanna nema tæpum 250.000 krónum. Fjölmiðlar í Víetnam segja að talið sé að konan hafi boðið vini sínum sem svarar 230.000 krón- um fyrir að höggva limina af. Haft er eftir lögreglustjóra að þótt konan hafi skaðast mest sjálf á þessari tilraun til trygginga- svika íhugi lögreglan að ákæra hana, aðallega öðrum til viðvör- unar. „Mál hennar sýnir að fólk ætti ekki að reyna tryggingasvik á kostnað heilsu sinnar.“ VÍETNAM Fórnaði limum til að reyna tryggingasvik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.