Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 21
Almenna bókafélagið gaf út Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum 1955 og Eistland. Smáþjóð undir oki erlends valds 1973. Þær eru nú endurútgefnar í tilefni aldarfjórðungsafmælis viðurkenningar Íslands á Eystrasaltsríkjum. verurétt en að henni steðjaði hætta af tilraunum stjórnvalda í Moskvu til „rússneskjunar“ eins og þýðandinn kallaði það. Vegna stórfelldra flutninga Rússa til landsins, sem stjórnvöld ýttu und- ir, væru Eistlendingar að lenda í minni hluta sums staðar í eigin landi. Sjálfur var Küng þó bjartsýnn. Hann rakti hversu sterk og lífseig sjálfstæðisþrá Eistlendinga væri, þótt þeir hefðu ekki verið fullvalda þjóð nema í tuttugu og tvö ár. Þeir veittu hernámsyfirvöldunum þögla en sívirka mótspyrnu og þótt þeir hefðu orðið að beygja sig fyrir of- ureflinu hefðu þeir aldrei gefist upp fyrir því. Landið hefði verið hertekið, ekki þjóðin. Küng benti á að Bandaríkin hefðu aldrei við- urkennt hernám Eistlands sem hefði einnig verið brot á alþjóða- samningum og alþjóðalögum. Þótt mörg önnur ríki hefðu viðurkennt innlimun Eistlands í Ráðstjórnar- ríkin í verki, de facto, hefðu þau fæst gert það að lögum, de jure. Bjartsýni Küngs smitaði út frá sér. Eistnesk útgáfa bókarinnar gekk um í ljósritum í Eistlandi. Í formála að æviminningum Küngs segir Mart Laar, fyrsti forsætis- ráðherra hins frjálsa Eistlands, að sagnfræðingurinn Tunne Kelam hefði lánað sér unglingi eitt slíkt ljósrit. „Ég veit, að ég var ekki einn um að verða fyrir áhrifum af bókinni. Hið sama var að segja um marga aðra Eistlendinga heima fyrir og í útlegð. Davíð Oddsson, sem þá var stúdentaleiðtogi á Ís- landi og síðan forsætisráðherra í mörg ár, þýddi bók Küngs á ís- lensku og hefur síðan verið stað- fastur vinur Eistlands.“ Sjálfur lifði Küng það ólíkt Oras, að Eist- land yrði aftur frjálst. Davíð og Kelam Eystrasaltsþjóðirnar urðu þó ekki frjálsar af þeirri ástæðu einni að þær hefðu viljað það því að þær þráðu frelsið allan hernámstím- ann. Aðstæður breyttust þeim hins vegar í hag á níunda áratug, þegar Ráðstjórnarríkjunum reyndist um megn að halda í við Vesturlönd undir traustri forystu Ronalds Reagans og Margrétar Thatcher. Smám saman veiktist vilji og mátt- ur Kremlverja og það skynjuðu hinar mörgu smáþjóðir undir oki þeirra. Þegar Litháen lýsti yfir sjálfstæði um miðjan mars 1990, reyndu Kremlverjar þó að hindra að hinni nýju stjórn yrði vært. Ís- lendingar fylgdust gaumgæfilega með og Þorsteinn Pálsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, lagði fram þingsályktunartillögu í lok mars um að Ísland viðurkenndi sjálf- stæði landsins. Hann fór einnig til Litáens og Eistlands haustið 1990. Þótt Jón Baldvin Hannibalsson, sem þá var utanríkisráðherra, væri eindreginn stuðningsmaður Eystrasaltsríkjanna taldi hann ekki nauðsynlegt að samþykkja til- lögu Þorsteins því að fyrri viður- kenning Íslands hefði aldrei verið afturkölluð. Í stuðningi sínum við Eystrasaltslöndin hafði Jón Bald- vin eflaust orðið fyrir áhrifum frá bróður sínum, Arnóri, sem eignast hafði marga vini frá Eystrasalts- löndum á námsárum sínum í Moskvu og var ötull að tala máli þeirra. Næstu misseri gekk hvorki né rak því að Kremlverjar, sem enn réðu voldugu ríki, gátu ekki sætt sig við sjálfstæði Eystrasaltslanda. Margir kunnu þó að meta það að Jón Baldvin heimsótti löndin þrjú í janúar 1991 og ítrekaði stuðning Íslands við sjálfstæði þeirra. En tækifærið kom skyndilega í ágúst, þegar harðlínukommúnistar gerðu misheppnaða valdaránstilraun í Rússlandi og Borís Jeltsín, sem var tiltölulega frjálslyndur, náði undirtökum. Nú var Davíð Odds- son, sem þýtt hafði bókina um Eistland átján árum áður, orðinn forsætisráðherra og voru þeir Jón Baldvin samstiga um að endurnýja eftirminnilega fyrri viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Eystrasalts- landa og nú á þann veg að tekið væri upp stjórnmálasamband við þau. Hröðuðu utanríkisráðherrar land- anna þriggja sér til Íslands og var yfirlýsing um málið undirrituð í Höfða 26. ágúst 1991. Um kvöldið hélt Davíð ráðherr- unum veislu í Ráðherrabústaðnum og vitnaði þar í fræg orð Shake- speares: Í mannlífinu gætir flóðs og fjöru: sé flóðsins neytt, er opin leið til gæfu. Víkverji Morgunblaðsins, sem ef- laust var Styrmir Gunnarsson, skrifaði: „Davíð Oddsson forsætis- ráðherra flutti frábæra ræðu í kvöldverði, sem hann efndi til fyrir utanríkisráðherra Eystrasaltsríkj- anna og fylgdarlið þeirra sl. sunnu- dagskvöld. Yfirleitt eru slíkar borð- ræður efnislitlar og raunar innan- tómar, en sú lýsing á síst af öllu við þessa ræðu forsætisráðherra, enda vakti hún mikla athygli gesta, og hafði utanríkisráðherra Litháens sérstaklega orð á því, hve áhrifa- mikil ræða Davíðs hefði verið.“ Á samkomunni nú í dag mun Davíð segja nokkur orð um aðdraganda málsins og eftirleik og væntanlega líka frá sögulegum samtölum sínum um það við ráðamenn austan hafs og vestan. Tunne Kelam, sem flytur einnig ávarp á samkomunni, fæddist 1936. Eftir að hann lauk sagnfræðiprófi gerðist hann skjalavörður. En þegar stjórnvöld uppgötvuðu að hann samdi á laun andófsrit var hann rek- inn úr starfi og sendur í erfiðis- vinnu. Hann varð einn af forystu- mönnum sjálfstæðishreyfingar Eistlendinga í lok níunda áratugar og forseti eistneskrar fulltrúasam- komu sem kosið var til fram hjá op- inberum stjórnvöldum 1990. Sam- komulag náðist þó milli þessarar samkomu og Æðsta ráðs Eistlands, sem Moskvustjórnin hafði skipað, um friðsamlega leið til sjálfstæðis. Kelam var kjörinn á stjórnlagaþing 1991 og sat síðan á ríkisþinginu frá 1992 til 2004. Þá var hann kjörinn á Evrópuþingið og hefur setið þar síð- an. Kona hans, Mari-Ann, var upp- lýsingafulltrúi eistneska utanríkis- ráðuneytisins og hefur setið á ríkisþinginu. Blikur á lofti Nú hafa Eystrasaltsþjóðirnar not- ið frelsis í 25 ár. Hafa þær svo sann- arlega reynst vandanum vaxnar. Sérstaka athygli vekur hversu vel þeim tókst að leysa úr erfiðleikunum vegna hinnar alþjóðlegu fjármála- kreppu 2007-2009, en hún kom enn harðar niður á þeim en Íslendingum. En blikur eru á lofti. Hinn voldugi granni í austri skekur vopnin og hef- ur til dæmis ekki enn staðfest sam- komulag um landamæri Eistlands og Rússlands. Undir forystu Davíðs Oddssonar beitti Ísland sér fyrir að- ild Eystrasaltsríkjanna að Atlants- hafsbandalaginu sem varð að veru- leika 2004. En góðum óskum Íslands fylgir ekki mikið afl. Úrslitum ræð- ur hvort þjóðirnar beggja vegna Norður-Atlantshafs bera gæfu til að standa saman og með Eystrasalts- þjóðunum. Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Almenna bókafélagið og ræðismenn Eystrasaltsríkjanna ásamt samstarfsaðilum efna til samkomu í tilefni þess, að AB hefur endurútgefið tvær bækur um Eystrasaltslöndin, nú þegar rétt 25 ár eru liðin frá því, að Ísland varð fyrst ríkja til að viður- kenna á ný sjálfstæði þeirra. Ávörp: Davíð Oddsson, sem þýddi aðra bókina 1973 og var forsætisráðherra, þegar Eystrasaltsríkin voru viðurkennd á ný 1991, og Tunne Kelam, einn af leiðtogum sjálfstæðisbaráttu Eistlands og þingmaður á Evrópuþinginu. Litlatorgi Háskóla Íslands kl. 17–19 föstudaginn 26. ágúst. Aðgangur ókeypis Allir velkomnir Frelsi í aldarfjórðung Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra 1988- 1995, var öflugur stuðn- ingsmaður Eystrasalts- landanna. Þorsteinn Pálsson lagði fram þingsályktun- artillögu 1990 um við- urkenningu á Litáen, sem hafði þá lýst yfir sjálfstæði. Tunne Kelam, einn af leiðtogum sjálfstæðisbar- áttu Eistlands og hefur setið á Evrópuþinginu frá 2004. Arnór Hannibalsson hafði eignast marga vini frá Eystrasaltslöndunum á námsárum í Moskvu og talaði máli þeirra. »Hinn voldugi granni í austri skekur vopnin og hefur til dæmis ekki enn staðfest samkomu- lag um landamæri Eist- lands og Rússlands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.