Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 21
Almenna bókafélagið gaf út Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum 1955 og Eistland. Smáþjóð undir oki erlends valds
1973. Þær eru nú endurútgefnar í tilefni aldarfjórðungsafmælis viðurkenningar Íslands á Eystrasaltsríkjum.
verurétt en að henni steðjaði
hætta af tilraunum stjórnvalda í
Moskvu til „rússneskjunar“ eins
og þýðandinn kallaði það. Vegna
stórfelldra flutninga Rússa til
landsins, sem stjórnvöld ýttu und-
ir, væru Eistlendingar að lenda í
minni hluta sums staðar í eigin
landi.
Sjálfur var Küng þó bjartsýnn.
Hann rakti hversu sterk og lífseig
sjálfstæðisþrá Eistlendinga væri,
þótt þeir hefðu ekki verið fullvalda
þjóð nema í tuttugu og tvö ár. Þeir
veittu hernámsyfirvöldunum þögla
en sívirka mótspyrnu og þótt þeir
hefðu orðið að beygja sig fyrir of-
ureflinu hefðu þeir aldrei gefist
upp fyrir því. Landið hefði verið
hertekið, ekki þjóðin. Küng benti á
að Bandaríkin hefðu aldrei við-
urkennt hernám Eistlands sem
hefði einnig verið brot á alþjóða-
samningum og alþjóðalögum. Þótt
mörg önnur ríki hefðu viðurkennt
innlimun Eistlands í Ráðstjórnar-
ríkin í verki, de facto, hefðu þau
fæst gert það að lögum, de jure.
Bjartsýni Küngs smitaði út frá
sér. Eistnesk útgáfa bókarinnar
gekk um í ljósritum í Eistlandi. Í
formála að æviminningum Küngs
segir Mart Laar, fyrsti forsætis-
ráðherra hins frjálsa Eistlands, að
sagnfræðingurinn Tunne Kelam
hefði lánað sér unglingi eitt slíkt
ljósrit. „Ég veit, að ég var ekki
einn um að verða fyrir áhrifum af
bókinni. Hið sama var að segja um
marga aðra Eistlendinga heima
fyrir og í útlegð. Davíð Oddsson,
sem þá var stúdentaleiðtogi á Ís-
landi og síðan forsætisráðherra í
mörg ár, þýddi bók Küngs á ís-
lensku og hefur síðan verið stað-
fastur vinur Eistlands.“ Sjálfur
lifði Küng það ólíkt Oras, að Eist-
land yrði aftur frjálst.
Davíð og Kelam
Eystrasaltsþjóðirnar urðu þó
ekki frjálsar af þeirri ástæðu einni
að þær hefðu viljað það því að þær
þráðu frelsið allan hernámstím-
ann. Aðstæður breyttust þeim hins
vegar í hag á níunda áratug, þegar
Ráðstjórnarríkjunum reyndist um
megn að halda í við Vesturlönd
undir traustri forystu Ronalds
Reagans og Margrétar Thatcher.
Smám saman veiktist vilji og mátt-
ur Kremlverja og það skynjuðu
hinar mörgu smáþjóðir undir oki
þeirra. Þegar Litháen lýsti yfir
sjálfstæði um miðjan mars 1990,
reyndu Kremlverjar þó að hindra
að hinni nýju stjórn yrði vært. Ís-
lendingar fylgdust gaumgæfilega
með og Þorsteinn Pálsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, lagði fram
þingsályktunartillögu í lok mars
um að Ísland viðurkenndi sjálf-
stæði landsins. Hann fór einnig til
Litáens og Eistlands haustið 1990.
Þótt Jón Baldvin Hannibalsson,
sem þá var utanríkisráðherra,
væri eindreginn stuðningsmaður
Eystrasaltsríkjanna taldi hann
ekki nauðsynlegt að samþykkja til-
lögu Þorsteins því að fyrri viður-
kenning Íslands hefði aldrei verið
afturkölluð. Í stuðningi sínum við
Eystrasaltslöndin hafði Jón Bald-
vin eflaust orðið fyrir áhrifum frá
bróður sínum, Arnóri, sem eignast
hafði marga vini frá Eystrasalts-
löndum á námsárum sínum í
Moskvu og var ötull að tala máli
þeirra.
Næstu misseri gekk hvorki né
rak því að Kremlverjar, sem enn
réðu voldugu ríki, gátu ekki sætt
sig við sjálfstæði Eystrasaltslanda.
Margir kunnu þó að meta það að
Jón Baldvin heimsótti löndin þrjú í
janúar 1991 og ítrekaði stuðning
Íslands við sjálfstæði þeirra. En
tækifærið kom skyndilega í ágúst,
þegar harðlínukommúnistar gerðu
misheppnaða valdaránstilraun í
Rússlandi og Borís Jeltsín, sem
var tiltölulega frjálslyndur, náði
undirtökum. Nú var Davíð Odds-
son, sem þýtt hafði bókina um
Eistland átján árum áður, orðinn
forsætisráðherra og voru þeir Jón
Baldvin samstiga um að endurnýja
eftirminnilega fyrri viðurkenningu
Íslands á sjálfstæði Eystrasalts-
landa og nú á þann veg að tekið væri
upp stjórnmálasamband við þau.
Hröðuðu utanríkisráðherrar land-
anna þriggja sér til Íslands og var
yfirlýsing um málið undirrituð í
Höfða 26. ágúst 1991.
Um kvöldið hélt Davíð ráðherr-
unum veislu í Ráðherrabústaðnum
og vitnaði þar í fræg orð Shake-
speares:
Í mannlífinu gætir flóðs og fjöru:
sé flóðsins neytt, er opin leið til
gæfu.
Víkverji Morgunblaðsins, sem ef-
laust var Styrmir Gunnarsson,
skrifaði: „Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra flutti frábæra ræðu í
kvöldverði, sem hann efndi til fyrir
utanríkisráðherra Eystrasaltsríkj-
anna og fylgdarlið þeirra sl. sunnu-
dagskvöld. Yfirleitt eru slíkar borð-
ræður efnislitlar og raunar innan-
tómar, en sú lýsing á síst af öllu við
þessa ræðu forsætisráðherra, enda
vakti hún mikla athygli gesta, og
hafði utanríkisráðherra Litháens
sérstaklega orð á því, hve áhrifa-
mikil ræða Davíðs hefði verið.“ Á
samkomunni nú í dag mun Davíð
segja nokkur orð um aðdraganda
málsins og eftirleik og væntanlega
líka frá sögulegum samtölum sínum
um það við ráðamenn austan hafs og
vestan.
Tunne Kelam, sem flytur einnig
ávarp á samkomunni, fæddist 1936.
Eftir að hann lauk sagnfræðiprófi
gerðist hann skjalavörður. En þegar
stjórnvöld uppgötvuðu að hann
samdi á laun andófsrit var hann rek-
inn úr starfi og sendur í erfiðis-
vinnu. Hann varð einn af forystu-
mönnum sjálfstæðishreyfingar
Eistlendinga í lok níunda áratugar
og forseti eistneskrar fulltrúasam-
komu sem kosið var til fram hjá op-
inberum stjórnvöldum 1990. Sam-
komulag náðist þó milli þessarar
samkomu og Æðsta ráðs Eistlands,
sem Moskvustjórnin hafði skipað,
um friðsamlega leið til sjálfstæðis.
Kelam var kjörinn á stjórnlagaþing
1991 og sat síðan á ríkisþinginu frá
1992 til 2004. Þá var hann kjörinn á
Evrópuþingið og hefur setið þar síð-
an. Kona hans, Mari-Ann, var upp-
lýsingafulltrúi eistneska utanríkis-
ráðuneytisins og hefur setið á
ríkisþinginu.
Blikur á lofti
Nú hafa Eystrasaltsþjóðirnar not-
ið frelsis í 25 ár. Hafa þær svo sann-
arlega reynst vandanum vaxnar.
Sérstaka athygli vekur hversu vel
þeim tókst að leysa úr erfiðleikunum
vegna hinnar alþjóðlegu fjármála-
kreppu 2007-2009, en hún kom enn
harðar niður á þeim en Íslendingum.
En blikur eru á lofti. Hinn voldugi
granni í austri skekur vopnin og hef-
ur til dæmis ekki enn staðfest sam-
komulag um landamæri Eistlands
og Rússlands. Undir forystu Davíðs
Oddssonar beitti Ísland sér fyrir að-
ild Eystrasaltsríkjanna að Atlants-
hafsbandalaginu sem varð að veru-
leika 2004. En góðum óskum Íslands
fylgir ekki mikið afl. Úrslitum ræð-
ur hvort þjóðirnar beggja vegna
Norður-Atlantshafs bera gæfu til að
standa saman og með Eystrasalts-
þjóðunum.
Höfundur er prófessor í
stjórnmálafræði í Háskóla Íslands.
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Almenna bókafélagið og ræðismenn Eystrasaltsríkjanna ásamt
samstarfsaðilum efna til samkomu í tilefni þess, að AB hefur
endurútgefið tvær bækur um Eystrasaltslöndin, nú þegar rétt
25 ár eru liðin frá því, að Ísland varð fyrst ríkja til að viður-
kenna á ný sjálfstæði þeirra.
Ávörp: Davíð Oddsson, sem þýddi aðra bókina 1973 og var
forsætisráðherra, þegar Eystrasaltsríkin voru viðurkennd á ný
1991, og Tunne Kelam, einn af leiðtogum sjálfstæðisbaráttu
Eistlands og þingmaður á Evrópuþinginu.
Litlatorgi Háskóla Íslands kl. 17–19 föstudaginn 26. ágúst.
Aðgangur ókeypis
Allir velkomnir
Frelsi í aldarfjórðung
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra 1988-
1995, var öflugur stuðn-
ingsmaður Eystrasalts-
landanna.
Þorsteinn Pálsson lagði
fram þingsályktun-
artillögu 1990 um við-
urkenningu á Litáen, sem
hafði þá lýst yfir sjálfstæði.
Tunne Kelam, einn af
leiðtogum sjálfstæðisbar-
áttu Eistlands og hefur
setið á Evrópuþinginu frá
2004.
Arnór Hannibalsson hafði
eignast marga vini frá
Eystrasaltslöndunum á
námsárum í Moskvu og
talaði máli þeirra.
»Hinn voldugi granni í
austri skekur vopnin
og hefur til dæmis ekki
enn staðfest samkomu-
lag um landamæri Eist-
lands og Rússlands.