Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 ✝ Áslaug Guð-rún Harð- ardóttir fæddist Reykjavík 1. nóv- ember 1941. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 18. ágúst 2016. Foreldrar henn- ar voru Katla Pálsdóttir, f. 17.12. 1914, d. 18.11. 2000, og Hörður Bjarnason, f. 3.11. 1910, d. 2.9. 1990. Bróðir Ás- laugar er Hörður H. Bjarna- son, f. 20.2. 1944. Eiginkona hans var Áróra Sigurgeirs- Kristjánsson, f. 13.7. 1904, d. 2.11. 1993. Börn Áslaugar og Jóns Há- konar eru Áslaug Svava, f. 20.7. 1975, maki Haukur Mar- inósson, f. 29.9. 1967, og Hörð- ur Hákon, f. 22.5. 1976. Áslaug lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands 1959. Fljótlega eftir það flutti hún til Bandaríkjanna þar sem Jón Hákon var í háskólanámi og þau giftu sig þar úti. Þau fluttu aftur heim til Íslands 1965 og vann Áslaug sem einkaritari Alfreðs Elíassonar, forstjóra Loftleiða, til 1975. 1986 stofnuðu þau hjón fyr- irtækið Kynning og markaður og þar starfaði hún þar til fyr- ir um 10 árum. Útför Áslaugar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 26. ágúst 2016, og hefst klukkan 15. dóttir, f. 15.5. 1943, d. 13.11. 2003. Börn þeirra eru Sigríður Ása Harðardóttir, f. 12.2. 1963, Bjarni Einar Harðarson, f. 12.4. 1972, og Katla Guðrún Harðardóttir, f. 29.12. 1976. Áslaug giftist 30. september 1961 Jóni Hákoni Magnússyni, f. 12.9. 1941, d. 18.7. 2014. Foreldrar hans voru Svava Sveinsdóttir, f. 12.9. 1909, d. 9.12. 1990, og Magnús Guðjón Það bar brátt að, andlátið hennar Áslaugar. Þrátt fyrir ýmsa kvilla og líkamlega veik- leika voru engin sérstök teikn á lofti um að dagar hennar væru taldir nú á síðsumri. Eitt var þó okkur vinunum öllum ljóst, að eftir að hún missti Jón Hákon fyrir liðlega tveimur árum dró úr lífskrafti hennar. Það kom ekki á óvart því þau höfðu verið einstaklega samrýnd hjón í tæplega 60 ára samvist- um. Þau voru hvort öðru allt í leik og starfi á lífshlaupinu. Frá- fall Jóns Hákonar varð henni því þungbært þrátt fyrir nokkurn aðdraganda þar að. Það olli henni ef til vill meiri og þungbærari sorg en hún leyfði okkur vinum sínum að sjá. Að leiðarlokum er mér efst í huga hversu ánægjulegt það var að eiga þau bæði að vinum og gaman að umgangast þau í leik og starfi um áratugaskeið. Áslaug var einstök kona, hvort tveggja í senn gullfalleg og greind. Hún var ávallt sannur vinur. Með nærveru sinni stækkaði hún allt sitt umhverfi með hlýju og bjartsýni. Það geislaði af henni. Ég orðaði það einu sinni svo í ávarpi til hennar á 60 ára afmæli hennar að hún hefði kennt mér að skilja betur orðatiltækið „að rækja vinaböndin“. Hún gætti vinasambandanna við alla vini sína með einstökum og hlýjum hætti.Við vinirnir þeirra fundum ávallt þessa ein- lægu gleði og hlýju sem hún bar með sér á vinafundi. Þeirrar einstöku nærveru munum við sakna en vonum um leið að hún hafi fengið sína trú uppfyllta að hitta „Nonna sinn“ á ný. Þrátt fyrir söknuð og trega yfir ótímabæru fráfalli Áslaugar er okkur efst í huga nú að leið- arlokum gleði yfir því að hafa átt hana að góðum vini. Áslaugu Svövu, Herði Hákoni og Hauki tengdasyni sendum við okkar samúðarkveðjur og ósk- um þeim velfarnaðar. Minningu um einstaka konu geymum við með okkur. Víglundur Þorsteinsson. Það var reyndar ekki óvænt, þegar fregnin barst um andlát góðrar vinkonu, Áslaugar Guð- rúnar Harðardóttur, að morgni fimmtudagsins 18. ágúst. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða um nokkurt skeið. Síðustu árin, einkanlega síðustu tvö árin, eftir ótímabært fráfall eiginmanns hennar, Jóns Hákonar Magnús- sonar, voru henni þungbær á marga lund. Undanfarin misseri naut hún góðs atlætis í Sóltúni, þar sem hún hafði gert sér fal- legt heimili. Eftir andlát Jóns kom einnig við sögu gamall vina- hópur þeirra hjóna, sem studdi við, þegar stuðnings var þörf og þegar á móti blés. Við söknum nú vinar í stað. Vinátta okkar Eyglóar og þeirra Áslaugar og Jóns átti sér langa sögu. Ekki bara frá sam- eiginlegum sjónvarpsárum í ár- daga íslensks sjónvarps heldur og löngu fyrir þann tíma. Úr skátahreyfingu og blaða- mennsku. Ung bundust þau Áslaug og Jón tryggðaböndum. Strax á gagnfræðaskólaárunum, voru þau par, sem eftir var tekið; glæsileg bæði tvö og Áslaug sannkallaður kvennablómi. Það var mikið í hana spunnið. Hún var forkur dugleg og fjöl- hæf, átti rætur í heimili þar sem menningin var í hávegum höfð. Á námsárum Jóns í Minnesota lagðist hún á árarnar með vinnu við MacAlester-háskólann, með- an Jón drýgði tekjurnar sem kokkur á skyndibitastað! Að námi loknu og eftir kom- una heim starfaði Áslaug um árabil sem einkaritari Alfreðs Elíassonar, forstjóra Loftleiða. Það var mikið trúnaðarstarf. Saman stofnuðu þau Jón Há- kon svo KOM, Kynningu og markað, almannatengslafyrir- tæki, sem var brautryðjandi á því sviði og laðaði til sín hæft starfsfólk og trausta viðskipta- vini. Þar sá Áslaug um bókhald og skrifstofuhald um árabil. Stálgreind og minnug var hún og betri en enginn við uppbygg- ingu fyrirtækisins þar sem fyrstu árin var á brattann að sækja, en eftir því sem árin liðu blómstraði fyrirtækið og Áslaug Guðrún átti vissulega sinn þátt í því. Að leiðarlokum minnist ég traustrar vináttu og gleðistunda í áratugi. Minnist símtala sein- ustu árin, sem gerðu okkur báð- um gott, held ég. Það var gott að eiga þau að vinum Áslaugu og Jón Hákon. Vinir og góðar minningar gefa lífinu gildi, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Áslaug Guðrún Harðardóttir var traustur vinur. Hennar er gott að minnast og hennar er saknað. Ástvinum hennar og ættingj- um votta ég einlæga samúð. Með okkur lifa góðar minn- ingar. Guð blessi minningu Áslaugar Guðrúnar Harðardóttur. Eiður Svanberg Guðnason. Við minnumst í dag okkar kæru vinkonu, Áslaugar Guð- rúnar Harðardóttur. Það er erf- itt að setjast niður og minnast vináttu sem spannar tæp 50 ár, en þegar rifjaðar eru upp minn- ingarnar um Áslaugu og sam- verustundirnar með henni, þá verða gleðistundirnar, hláturinn og kátínan sterkari en skugg- arnir sem fylgja fráfalli þessarar góðu vinkonu. Það voru forréttindi okkar Gunnhildar að fá að fylgjast með og taka þátt í gleðistundum Ás- laugar og Jóns Hákonar. Þegar þau eignuðust Áslaugu og Hörð Hákon, á ferðalögum og svo ekki sé talað um glæsilegu boðin sem þau héldu. Lengi buðu þau vin- um sínum og samstarfsfélögum heim á Þorláksmessu. Þar var gleðin við völd og jólin hófust með þessum hátíðarhöldum hjá Áslaugu og Jóni. Jón Hákon og Áslaug giftust í Minnesota þegar Jón var við nám þar og þegar þau komu heim réð Áslaug sig til Loftleiða og vann þar sem aðstoðarmann- eskja Alfreðs Elíassonar, for- stjóra Loftleiða. Við komu Áslaugar Svövu hætti Áslaug að vinna, en hóf svo störf aftur þegar þau Jón Hákon stofnuðu Kynningu og markað (KOM). Þar starfaði Áslaug við hlið Jóns fyrstu áratugi fyrir- tækisins. Áslaug var glaðlynd og skemmtileg í samskiptum, en við vinir hennar vissum að hún gat verið bæði ákveðin og ráðagóð. Þrátt fyrir mikil veikindi og erf- iðleika glataði hún aldrei kær- leikanum, gleðinni og reisn sinni. Nú kveðjum við hana með þakklæti og minnumst hennar léttu lundar og þess mikla trygglyndis sem hún sýndi okk- ur vinunum sínum öllum alla tíð. Við Gunnhildur, Heiða og Gunnar vottum Áslaugu Svövu, Hauki og Herði Hákoni okkar innilegustu samúð á þessum erf- iðu tímum. Gunnhildur og Magnús Gunnarsson. Drottinn gaf og Drottinn tók. Nú er Laulau okkar farin til Sólarlandsins. Laulau var gift Jóni Hákoni Magnússyni og áttu þau tvö börn, þau Áslaugu Svövu og Hörð Hákon. Við vorum 14 saman í „sauma- klúbb“, sem var stofnaður er við vorum í þriðja bekk í Verslunar- skólanum árið 1959, og höfum við haldið hópinn í öll þessi ár, þótt sumar hafi flutt til útlanda, aðrar út á land og einnig þótt „saumaklúbbsdögum“ hafi farið fækkandi. Saumaklúbburinn fór nokkrar ferðir bæði innanlands og utan og eftirminnilegust var ferðin til Newcastle. Þar fór Laulau á kostum, dansaði og söng og lék við hvern sinn fing- ur. Jón Hákon og Laulau stofn- uðu fyrirtækið Kynning og markaður, KOM, og unnu þar bæði þar til þau seldu það árið 2013 en í desember það ár greindist Jón Hákon með krabbamein og lést 18. júlí 2014. Laulau starfaði um árabil hjá Loftleiðum sem einkaritari for- stjóra og að sögn var hún frábær einkaritari. Lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá elsku Laulau. Hún fór í mjaðmaaðgerð, aðgerð á hnjám og öxlum ásamt fleiri kvillum sem hrjáðu hana, en alltaf var stutt í hennar fallega og bjarta bros þótt á móti blési. Hún var vinur vina sinna, fé- lagslynd og hlý kona, vel gefin og listræn. Eftir lát Jóns seldi hún hús þeirra á Seltjarnarnesi og flutti á Hjúkrunarheimilið Sóltún, eft- ir stutta viðkomu á öðrum stöð- um. Jón og Laulau áttu lítið fal- legt hús á Eyrarbakka þar sem þau nutu að vera meðan heilsan leyfði. Laulau lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni hinn 18. ágúst síð- astliðinn. Blessuð sé minning okkar kæru vinkonu Laulau. Nú líður henni vel, laus við hjólastólinn og alla verki og gengur keik og öll í glimmeri með Jóni sínum í fallegum görðum Sólarlandsins. Blessuð sé minning hennar og kær kveðja. Þínar vinkonur, Anna, Halldóra, Jytta, Ingunn, Þórdís, Ellen, Guðlaug, Birna, Peta, Margrét (Dudda), Gerður og Soffía Kjaran Pétursdóttir. Þegar ég mætti fyrst til vinnu hjá Kynningu og markaði í Að- alstræti fyrir hartnær þrjátíu árum tók á móti mér glæsileg, brosandi kona, afskaplega vel til höfð. Fyrirtækið var á sínum fyrstu árum og tölvuvæðingin að byrja. Aðgangur var að telex- tæki hjá öðru fyrirtæki í Gróf- inni og þegar telefaxtæki var tekið í notkun hjá KOM skömmu síðar fengu mörg fyrirtæki að- gang að því til að byrja með. Ás- laug, sem skrifstofustjóri fyrir- tækisins, sá þá um að stýra þessum samskiptum við um- heiminn. Áslaug var afskaplega skemmtileg kona með mikinn dillandi hlátur, ávallt glaðlynd og lagði mikinn metnað í að allt sem færi frá fyrirtækinu væri fallega fram sett og vandað. Hún hafði listilega fallega rithönd og þau voru ófá umslögin sem hún skrifaði utan á því það þótti miklu persónulegra en vélritað. Fallega skriftin hennar naut sín líka vel við mörg önnur tilefni. Áslaug fór ekki alltaf vel með sjálfa sig. Hún fór sínar eigin leiðir. Undanfarið ár á Sóltúni reyndi hún að vera áfram virk og lifa lífinu. Hún elskaði að fá fólk í heim- sókn, bauð upp á veitingar eins og henni einni var lagið og leysti gesti út með gjöfum sem hún hafði sjálf útbúið á Sóltúni. Ég þakka Áslaugu áratuga vináttu og sendi Áslaugu Svövu, Hauki og Herði Hákoni innileg- ar samúðarkveðjur. Guðlaug Birna Guðjónsdóttir. Áslaug Guðrún Harðardóttir Elsku Mæja frænka hefur nú kvatt okkur eftir erf- iða baráttu við illvíg- an sjúkdóm. Ég minnist hennar með hlýju og söknuði – yndislegu fallegu frænku með sinn kitlandi húmor. Hlýja og blíða, gleði og kátína einkenndi Mæju. Hún var fróð- leiksbrunnur, skarpgreind, fylgdist vel með þjóðmálum, hugsaði vel um sína og svo var hún bara svo skemmtileg kona. Hún bar með sér hlýju hvar sem hún kom og hafði góða nærveru. Hún átti svo auðvelt með að sjá María Sigurbjörnsdóttir ✝ María Sig-urbjörnsdóttir fæddist 4. febrúar 1940. Hún lést 1. ágúst 2016. Útför hennar fór fram 9. ágúst 2016. spaugilegar hliðar á lífinu og tilverunni sem fylgdi henni allt til hins síðasta. Það er með söknuð í hjarta að ég kveð Mæju frænku en minningin um elsku frænku með fallega brosið og dillandi hláturinn lifir. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Elsku Guðmundur og fjöl- skylda, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Rósa. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA AÐALSTEINSDÓTTIR, Eirarholti, Grafarvogi, áður Blönduósi, andaðist í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 15. ágúst. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. ágúst klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Eirarholt, hjúkrunarheimilinu Eiri. . Sturla Snorrason, Guðrún Snorradóttir, Árni Þór Hilmarsson, Aðalsteinn Snorrason, Ingibjörg Kjartansdóttir, Bjarni Snorrason, Kristín Linda Steingrímsdóttir, Steinunn Snorradóttir, Sævar Sverrisson, ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, SVEINBJARGAR ELÍSABETAR HELGADÓTTUR, Hæðargarði 35, Reykjavík. . Þórunn Sigurðardóttir, Helgi Jónas Sigurðsson, Guðrún L. Sigurðardóttir, Sigurrós Sigurðardóttir og fjölskyldur. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elsku pabba okkar, tengdapabba, afa og langafa, FINNBOGA GÍSLASONAR, fyrrverandi skipstjóra. . Kristín Finnbogadóttir, Axel Friðriksson, Sigurður Finnbogason, Herdís Finnbogadóttir, Ólafur G. Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR húsfreyja, Skarfshóli í Miðfirði, lést 16. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Melstaðarkirkju laugardaginn 27. ágúst klukkan 14. . Kristín Dóra Margrét Jónsdóttir, Jón Ívar Jónsson, Magnús Ari Jónsson. Elskuleg móðir mín, ÁLFHILDUR ERNA HJÖRLEIFSDÓTTIR, til heimilis að Breiðvangi 7, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. ágúst. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, . Sigurður H. Álfhildarson. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.