Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Brunnar 10, Vesturbyggð, fnr. 212-3858 , þingl. eig. Brynja Rafnsdóttir, gerðarbeiðendur Vesturbyggð og Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, fimmtudaginn 1. september nk. kl. 14:00. Strandgata 16, Vesturbyggð, fnr. 212-4978 , þingl. eig. Hrafnskagi ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 1. september nk. kl. 15:30. Við Eyrargötu 140082, Vesturbyggð, fnr. 212-3887 , þingl. eig. Gunnhildur Agnes Þórisdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf, Vestfirðir Suðu, fimmtudaginn 1. september nk. kl. 14:30. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 24. ágúst 2016 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Tröllateigur 41, 228-6708, Mosfellsbæ , þingl. eig. Axel Axelsson og Kristín D. Kessler Pétursdóttir, gerðarbeiðendur Mosfellsbær og Tollstjóri, þriðjudaginn 30. ágúst nk. kl. 14:00. Urðarbrunnur 14, 231-2241, Reykjavík , þingl. eig. Ingimundur Stefánsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 30. ágúst nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 25. ágúst 2016 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: ELLI, BA, Barðastrandasýsla, (FISKISKIP), fnr. 7233, þingl. eig. Skipadalur ehf., gerðarbeiðandi Vesturbyggð, fimmtudaginn 1. september nk. kl. 13:15. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 24. ágúst 2016 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar/útskurður m/ leiðb. kl. 8.30-16.30. Innipútt opið kl. 9.30-12. Opið hús kl. 13-16. Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, pílukast í parketsal kl. 10.30, slökun í minningarstofu kl.14. Félagsheimili Gullsmára Tiffanýgler kl. 9, ganga kl. 10. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, Allir velkomnir! Garðabær Heitt er á könnunni í Jónshúsi frá 9.30 -15.45. Félagsvist FEBG kl 13 í Jónshúsi. Bíll frá Litlakoti ef óskað er, frá Hleinum kl 12.30, frá Garðatorgi 7 kl 12.40 og til baka að loknum spilum. Gjábakki Handavinna kl 9, félagsvist kl 20. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Skráning er hafin í vetrarstarfið. Nánari upplýsingar á staðnum eða í síma 535 2720. Allir hjartanlega velkomnir óháð búsetu eða aldri. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50. Listasmiðjan er opin. Boccia kl. 10.15, bingó kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14.30. Ferð á Reykja- nesið 31. ágúst allir velkomnir með, óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411 2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja m. leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, föstudagsbingó kl.14, ganga m. starfsmanni kl. 14. Uppl í s.411 2760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30 - 12.30. Nánari upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl.20.00- 23.00 - Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir Vesturgata 7 Sungið við flygilinn kl. 13-14. Gylfi Gunnarsson. Kaffi- veitingar kl.14-14.30. Vesturgata 7 Kl. 13 - 14 hefst söngstund v/flygilnn v/undirleik Gylfa Gunnars, allir velkomnir. Kaffisala kl 13-14. Glerskurður (Tiffanys) hefst þriðjud. 6. sept. kl 13-16, leiðb. Vigdís Hansen. Enska/framhald hefst föstud. 16. sept. kl. 10-12, leiðb Peter Vosicky.Tréútskurður byrjar í okt. leiðb. Lúðvík Einars. Nánari upplýs. og skráning á námskeiðin í síma 535 2740. Allir velkomnir óháð aldri. Vitatorg Spilum Bingó í dag, allir velkomnir. Erum farin að skrá í vetrarnámskeiðin okkar. Uppl. í símum 411 9450 og 822 3028. Þórðarsveigur 3 Bingó kl. 13.30, flottir matarvinningar og glæsilegar kaffiveitingar eftir bingóið. Allir velkomnir að vera með. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Iðnaðarmenn Ýmislegt atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Jón Egill Krist- jánsson var að- sópsmikill og mikilvirkur vís- indamaður. Hann vann lengst af við rannsóknir og kennslu í Noregi en starfaði með vísinda- mönnum um allan heim. Þótt Jón Egill hefði að eðlilegu átt mörg frjó ár eftir liggja nú þegar eftir hann ritverk sem sómi væri að sem ævistarfi. Hann lagði sérlega mikið af mörkum á sviði skýjafræði, ekki síst í rannsóknum á sam- spili ryks og örsmárra agna við vatn og ís í skýjum. Á þeim stoðum hvíla reikningar á úr- komu og geislun í lofthjúpi jarðarinnar, en þar hefur Jón Egill lagt gjörva hönd á plóg svo að eftir hefur verið tekið. Sá þáttur veðurfræði sem hér um ræðir hefur á undanförnum árum öðlast mikið vægi í rann- sóknum vegna þess að þar leynast helstu uppsprettur óvissu við reikninga á veður- farsbreytingum að gefnum auknum koltvísýringi í lofthjúpi jarðar. Villur í veðurspám í hitabeltinu eiga einnig rætur á sömu slóðum, en frá hitabeltinu berast villurnar á nokkrum Jón Egill Kristjánsson ✝ Jón Egill Krist-jánsson fæddist 18. september 1960. Hann lést 14. ágúst 2016. Útför Jóns Egils var gerð frá heimabæ hans í As- ker í Noregi 24. ágúst 2016. dögum í vestan- vindabeltið og valda ósjaldan því að veðurspár 1-2 vikur fram í tím- ann á okkar slóð- um reynast rangar. Jón Egill hefur þannig um árabil unnið að því að bæta reikninga á breytingum í and- rúmsloftinu, bæði til skamms og langs tíma, allt frá örfáum klukkustundum upp í aldir, og hefur hann m.a. verið hvatamaður norræns samstarfs á því sviði. Eins og títt er um röska og glögga vísindamenn hefur Jón Egill komið víðar við og eftir hann liggja merk verk á öðrum sviðum veðurfræðinn- ar, meðal annars í straumfræði og aflfræði í lagskiptum loft- hjúpi. Hann hefur í ýmsum rit- um lýst aðstæðum sem ráða myndun og þróun krappra og hraðfara lægða. Jón Egill ræktaði jafnan tengsl við íslenska veðurfræð- inga, ekki síst þá sem búa og starfa á Íslandi, og var hann til mikils stuðnings fyrir rann- sóknir á Íslandi og kennslu ís- lenskra veðurfræðinga, bæði á Íslandi og í Noregi. Hann var örlátur á tíma sinn, ráðagóður, vinsæll og traustur leiðbeinandi. Hann tók þátt í fjölmörgum rannsóknum með íslenskum vísindamönnum, meðal annars á illviðrum á Ís- landi, veðurfari við N-Atlants- haf og orkuskiptum við yfir- borð jarðar yfir ís, snjó og sífrera og var hann ævinlega aufúsugestur þegar hann kom við á Veðurstofunni eða dvaldi þar um lengri eða skemmri tíma við rannsóknir. Jón Egill var ljúfur viðmóts og einkar viðkunnanlegur í hvers kyns samstarfi. Hann var kappsamur en jafnframt vand- virkur og glöggur. Hann var höfðingi heim að sækja og lét sér annt um jafnt nemendur sem samstarfsmenn. Ef hann taldi þörf á hikaði hann þannig ekki við að taka menn með sér til óundirbúinnar íþróttaiðkun- ar milli vinnutarna við rann- sóknir og stóð flestum framar í því sem öðru. Jón Egill lét ýmis samfélags- mál sig varða og hann var góð- ur og skýr talsmaður náttúru- verndar. Hélt Jón Egill m.a. erindi fyrir almenning hér á landi um loftslagsbreytingar af mannavöldum sem vöktu at- hygli. Missir veðurfræði er mikill en missir nánustu aðstandenda þó enn meiri. Vottum við eig- inkonu hans, Ritu, syni þeirra, Kristian, bræðrum hans Sig- urði og Ingólfi og öðrum ætt- ingjum okkar dýpstu samúð. Haraldur Ólafsson, Guðrún Nína Petersen, Halldór Björnsson, Sigurður Þor- steinsson, Tómas Jóhann- esson, Sigurður Jónsson, Sigrún Karlsdóttir, Elín Björk Jónasdóttir, Ingi- björg Jónsdóttir, Óli Þór Árnason, Ólafur Rögn- valdsson, Hálfdán Ágústs- son, Pavla Dagsson Wald- hauserova, Einar Magnús Einarsson, Þór Jakobsson, Magnús Tumi Guðmunds- son, Guðrún Gísladóttir, Flosi Hrafn Sigurðsson. ✝ SigurðurHannesson byggingameistari fæddist 8. desem- ber 1923 í Hvammkoti, Skefilsstaðar- hreppi, Skaga- firði. Hann lést á heimili sínu 14. ágúst 2016. Foreldrar hans voru Hannes Guð- vin Benediktsson, f. 19.1. 1896, d. 27.9. 1977, og Sig- ríður Björnsdóttir, f. 24.2. 1895, d. 26.10. 1975. Þau áttu átta börn og eftirlifandi bróðir er Hafsteinn Hannes- son. Eiginkona Sigurðar er Soffía Georgsdóttir, f. 6.10. 1930, dætur þeirra eru: 1) Svanhildur, f. 14.1. 1950, maki hennar Július Kristjánsson, f. 6.5. 1948, eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn, 2) Helga Sigríður, f. 3.9. 1952, maki hennar Hafþór Sigurgeirsson, f. 28.6. 1949, d. 27.5. 2006, eiga þau fjögur börn og fjögur barna- börn, 3) Val- gerður, f. 25.12. 1953, maki hennar Hans Gerald Häsler, f. 7.1. 1951, eiga þau tvær dæt- ur og fjögur barnabörn, 4) Guðrún Inga, f. 4.4. 1958, maki hennar Steingrímur Bogason, f. 8.2. 1955, eiga þau tvö börn og þrjú barna- börn. Útför Sigurðar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 26. ágúst 2016, klukkan 13.30. Elsku pabbi. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Megi ljósið umvefja þig, elsku pabbi. Líkt þú umvafðir mig með kærleika þínum og hlýju, þar til við hittumst að nýju. Þín dóttir, Helga. Að ferðalokum komið er, og sorg í hjarta sækir. Þar sem söknuður ærinn er, af alefli okkur mætir. En svefninn langa þú sefur vært, hvíldina sem þér var færð. Þó liðinn sé þinn lífsins kraftur, þá munum við öll hittast aftur. Því stöndum við saman þér við hlið, með sorg og tár í hjarta. Koss við leggjum að vanga þér, og biðjum gott að heilsa. Góða nótt, elsku afi, og sofðu rótt. (Helgi Freyr Hafþórsson) Þín barnabörn og fjölskyldur þeirra. Soffía Margrét Hafþórsdóttir, Sigurður Bjarni Hafþórsson, Hafdís Sif Hafþórsdóttir, Helgi Freyr Hafþórsson. Sigurður Hannesson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.