Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Jóhanna L. Vil-hjálmsdóttirHeiðdal á 80 ára
afmæli í dag, en hún
fæddist í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru
Vilhjálmur Heiðdal,
sem vann hjá Póst- og
símamálastofnun og
stofnaði Víðines sem
var heimili fyrir alkó-
hólista, og k.h. María
Hjálmtýsdóttir Heiðdal
húsmóðir.
Jóhanna ólst upp
fyrstu 10 árin í Aust-
urbænum og gekk í
Austurbæjarskóla. Síð-
an fluttist hún í Skjólin
og gekk þá í Melaskóla
og útskrifaðist úr
Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar. Hún hóf
vinnuferil sinn í Út-
vegsbankanum 17 ára
gömul.
Börn Jóhönnu með fyrri eiginmanni sínum, Walter Gunnlaugssyni,
eru María Guðrún, Erla, Vilhjálmur Heiðdal og Hildur. Jóhanna á 11
barnabörn og bráðum 12 langömmubörn.
Jóhanna og Walter skildu og fór hún þá aftur út á vinnumarkaðinn.
Hún rak m.a. verslun. „Þetta var lítil úthverfaverslun í Skjólunum
sem var með allt til heimilisins svo konurnar þurftu ekki að fara í bæ-
inn.“ Síðan vann Jóhanna hjá Ragnari Tómassyni lögmanni sem ritari
og síðan á Tollpóststofunni í Reykjavík í nokkur ár áður en hún keypti
og rak heildverslun í bænum. „Hún hét Jóhanna Heiðdal heildverslun,
og ég flutti inn og seldi kvensnyrtivörur frá Mary Quant.“
Jóhanna giftist Jóhannesi Jenssyni og fluttust þau seinna meir til
Kenýa á vegum Danita, þróunarhjálpar Dana, hjá Sameinuðu þjóð-
unum og bjuggu þar í nokkur ár. „Við bjuggum ásamt sex öðrum
skandinavískum fjölskyldum í sama þorpinu og pössuðum upp á að
börnin á barnaheimilinu fengju nóg að borða. Eitt kvöldið saumaði ég
100 ermalausa kjóla og síðar 100 buxur og við sáum um að gefa þeim
lyfin. Mér finnst því ég hafa gert eitthvert gagn.“
Jóhanna bjó einnig nokkur ár í Flórída, þar sem hún vann m.a. við
umönnun sem sjúkraliði.
Jóhanna ætlar að halda veislu í kvöld og bjóða til sín fjölskyldu og
vinum. „Nú erum við að undirbúa veisluna en í henni verða um 100
manns. Ég hef alltaf haldið upp á tugaafmælið mitt og hef alltaf verið
glaðvær og smitað aðra af hlátrinum mínum.“
80 ára Jóhanna L. Vilhjálmsdóttir.
Alltaf verið glaðvær
Jóhanna L. Vilhjálmsdóttir er áttræð í dag
B
ragi Valdimar Skúlason
fæddist í Reykjavík 26.
ágúst 1976. Hann bjó
til fjögurra ára aldurs á
Ísafirði, þá í Hnífsdal
og flutti til Reykjavíkur 1991 og
hefur búið þar síðan.
Bragi var í barnaskólanum í
Hnífsdal til 12 ára aldurs, þá í
Grunnskólanum á Ísafirði, var í
Menntaskólann í Hamrahlíð 1991-
1995 og fór síðan í Háskóla Íslands
og er með BA-gráðu í íslensku frá
1998.
Hefur samið fjölmörg
lög og texta
Bragi hefur samið lög og texta á
fjölmargar hljómplötur, einkum fyr-
ir Baggalút og Memfismafíuna, auk
þess að semja texta og lög fyrir fjöl-
marga tónlistarmenn. Hann hefur
samið efni á barnaplöturnar Gilligill,
Diskóeyjuna og Karnivalíu, ásamt
því að vinna tónlist fyrir leiksýning-
arnar Ballið á Bessastöðum og
Jeppa á Fjalli. Bragi hefur auk þess
þýtt söngleikinn Spamalot og komið
að útgáfu fjölmargra bóka með ein-
um eða öðrum þætti. Þá hefur hann
unnið efni fyrir útvarp, m.a. út-
varpsþættina Tungubrjót (2012).
Bragi hefur starfað við auglýs-
ingagerð frá árinu 2006, síðast á eig-
in stofu, Brandenburg, frá 2012.
Hann hefur unnið við sjónvarps-
þáttagerð frá 2011, m.a. Hljómskál-
ann, Orðbragð, Áramótaskaup 2013
og Drekasvæðið. Þess má einnig
geta að Bragi hefur frá 2014 verið
varaformaður Félags tónskálda og
textahöfunda.
Bragi Valdimar Skúlason athafnaskáld – 40 ára
Brúðkaupveislan Bragi og Þórdís gengu í hjónaband í Las Vegas en héldu brúðkaupsveisluna ári síðar, 2014.
Baggalútur og brúkar
ekki ljótt orðbragð
Dæturnar Inga, Þórdís og Brynja.
Hekla Óðinsdóttir, Tinna Lovísa Lárusdóttir, Ingibjörg Lilja Ingadóttir og Eldey
Hrefna Helgadóttir héldu tombólu fyrir utan Apótekið á Sogavegi og Hagkaup í
Skeifunni og seldu dótið sitt. Þær söfnuðu 3.580 kr. og gáfu Rauða krossinum til
góðra verkefna.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is
Reyktur og grafinn
Eðallax
fyrir ljúfar stundir