Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Árin segja sitt1979-2016 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is )553 1620 Verið velkominn Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Sýndu fyrirhyggju og athugaðu vel þinn gang. Mundu að greiðvikni fær fyrst gildi þegar hennar er þörf. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú kannt að glæða gamla hluti nýju lífi og gætir gert þér mat úr því. Segðu nákvæm- lega hvað þú ert til í og ekki til í að gera. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Finnist þér þú vera eitthvað slappur þessa dagana ættirðu að taka heilsu þína til endurskoðunar. Ekki ofgera þér á félagslega sviðinu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú er tímabært að setja sér ný mark- mið og svo er bara að láta hvergi deigan síga fyrr en þessi markmið eru öll í höfn. Vinir þín- ir geta einnig komið þér skemmtilega á óvart. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkama þinn. Gefðu þér til þess góðan tíma. Þú ert gæddur talsverðri skynsemi, svo mikið er víst. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þeir eru margir sem eru á verði gagn- vart þér svo þér hefur ekki tekist að koma málstað þínum á framfæri skýrt og skorinort. Gættu þess að blandast ekki persónulega í málið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekkert skemmir meira fyrir innsæinu en að vilja vissa niðurstöðu. Sæktu þér aðstoð, hvort sem um er að ræða andlega ráðgjöf eða píanóflutning. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú færð hugmyndir um það hvernig þú getur aukið tekjur þínar. Best er að skipuleggja með öðrum. Fólk gefur þér ekki stórkostleg tækifæri bara af því að þeim líkar við þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert í miðjum umbrotatíma og þarft að hafa þig allan við til þess að koma heilskinnaður út úr breytingunum. Leyfðu öðrum að njóta sín líka og þá munu hlutirnir ganga vel fyrir sig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hálfnað er verk þá hafið er segir máltækið. Tafir og misskilningur hafa gert þér gramt í geði. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Daður, skemmtun og græskulaust gaman mun einkenna þennan dag. Lítið ekki á þetta sem kvöð heldur sem tækifæri til að sýna ást ykkar og stuðning. 19. feb. - 20. mars Fiskar Rómantík er alls staðar í umhverfi þínu, þó hún feli ekki í sér að verða ástfang- inn. Ef þú brennir upp orkunni lyppastu niður. Auðvitað þykir mér vænt umþegar ég fæ óvæntar kveðjur á afmælisdaginn – sérstaklega þessa sem Sigrún Haraldsdóttir sendi mér í tölvupósti: Morgunsólin ljúfa létt, lunta burtu ýti, ellikella ill og grett aldrei við þér líti. Það er alltaf nýtt að frétta af pólitíkinni. Þetta barst í tal þegar ég hitti karlinn á Laugaveginum og ég spurði hann hvernig honum litist á nýja frambjóðandann hjá Við- reisn. Hann hallaði höfðinu eilítið afturábak til vinstri, saug upp í nef- ið og sagði: Eitt sinn studdi ánn íhaldið – en allt í plati. Hann var alltaf hægri krati! Helgi R. Einarsson sendi tölvu- póst: „Datt í hug smá reynslusaga.“ Fía litla hún fann að flest er gott sem er bannað. Því er Áki’ana kyssti og eitthvað hún missti brosti hún ögn útí annað. En fór hún Fía’yfir strikið? Freistaði lífið of mikið? Nei, reyndin er hér að hún ríkari er af reynslunni fyrir vikið. Ólafur Stefánsson fylgist vel með og skrifaði í Leirinn: „Þetta lullar svona áfram,“ sagði þingkona VG: Rólar þing í ráðaleysisdoða, rymur Össur líkt og mannýgt naut. Þjóðarheillum þykir stefnt í voða þingið daufa ætti’að senda’ á braut. Kynnumst eftir kjördag nýjum siðum, kapteinn Birgitt stýra mun þá rétt. Fyllist hús af færum stjórnarliðum, fargi’ er þá af almenningi létt. „Á leið til upphafsins,“ segir Ár- mann Þorgrímsson og yrkir: Umhverfisstefnan hjá okkur er skýr allri skal framþróun tafarlaust neita Næst friðum við sanda og fjarlægjum brýr fagnað þá getum við eyðingu sveita. Sigurlín Hermansdóttir hefur annað sjónarhorn á sömu hugsun: „Umhverfisstefna borgarinnar virðist ganga út á að þrengja að eða helst útiloka akandi umferð.“ Umhverfisstefna ku áætlun geyma að alls engir bílar um göturnar rynnu þótt kosti að þeir þurfi að halda sig heima sem hjólandi geta ekki komist til vinnu. Og enn orti Ármann um um- hverfismat: Skyldi ekki þar vera skipulagsgat skuggalegt margir það telja að aldrei er beðið um umhverfismat þó ætli menn landið að selja. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Fíu litlu, pólitík og friðun sanda Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að skipuleggja mikilvægasta dag lífsins saman. PLÖNTUSTJÓRI. „EINS OG ÞÚ SÉRÐ LAGAÐI SNILLINGURINN ÞVOTTAVÉLINA.“ JÓN HEFUR SÍNA GALLA. ÉG ER MEÐ FLÆR! OG EINN AF MÍNUM. HRÓLFUR HRÆÐILEGI ER VIÐ KASTALA- DYRNAR! HVAÐ VILL HANN? HANN VILL ÖLL VERÐMÆTI ÞÍN! HANN ER OF SEINN... ...SKILNAÐUR MINN VIÐ HERTOGAYNJUNA GEKK Í GEGN RÉTT Í ÞESSU! ÞÚ FERÐ EKKI FYRR EN ÉG SEGI ÞÉR AÐ FARA! Mörg og glæst afrek voru unnin ánýafstöðnum Ólympíuleikum í Ríó í Brasílíu og er viðbúið að þau auki enn á íþróttaáhuga víða um heim. Eins og á undanförnum leik- um var spretthlauparinn Usain Bolt frá Jamaíka maður leikanna og hann hefur svo sannarlega haldið hefðinni gangandi, eða frekar hlaupandi. x x x Á bak við glæsta sigra leynist oftranglæti, svik og prettir, rétt eins og í alþjóðasamfélaginu. Íþróttasagan er full af frásögnum í þá veru, bækur hafa verið skrifaðar um gang mála og kvikmyndir gerð- ar. Það er ekki alltaf allt sem sýnist. x x x Í vikunni sá Víkverji kvikmyndinaRace í Bíó Paradís. Hún segir sögu frjálsíþróttamannsins Jesse Owens, eins mesta afreksmanns í sögu Ólympíuleikanna, en þessi þel- dökki maður, sem var íþróttamaður af guðs náð, vann til fernra gull- verðlauna á leikunum í Berlín 1936, sigraði í langstökki og 100 og 200 m hlaupi og var í sigursveitinni í 4x100 m hlaupi. Hann varð heimsfrægur árið áður, þegar hann setti þrjú heimsmet og jafnaði það fjórða á 45 mínútum í keppni í Bandaríkjunum. Sagt hefur verið að þessar 45 mín- útur séu þær mögnuðustu í íþrótta- sögunni. x x x James Cleveland Owens var gjarn-an kallaður J.C. Spurður að nafni í skóla svaraði hann J.C. en kennarinn hélt að hann hefði sagt Jesse og nafnið festist við hann. Metið hans frá leikunum í Berlín stóð þar til Carl Lewis endurtók leikinn á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984. x x x Jesse Owens upplifði mikla for-dóma og þurfti að berjast við margar hindranir, jafnt fyrir afrekin í Berlín sem eftir þau, en hann féll frá árið 1980. Saga þessa frábæra íþróttamanns er rakin í Race og að mati Víkverja eiga allir íþróttamenn og reyndar allir sem láta sig sam- félag þjóðanna varða að sjá þessa mögnuðu mynd. víkverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors, Jesú Krists, faðir miskunnsemdana og Guð allrar huggunar (S. Kor. 1:3)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.