Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 34
Morgunblaðið/Golli
Dansinn Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins, segir nýtt sýningarár verða öðruvísi þetta árið.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þetta ár verður svolítið öðruvísi en
síðustu ár. Okkur langaði að opna að-
eins meira fyrir almenning og gefa
áhorfendum innsýn í ferlið en ekki
bara mæta á frumsýninguna – fá fólk
með okkur í samræður um það sem
verið er að fjalla um,“ segir Erna Óm-
arsdóttir, listdansstjóri Íslenska
dansflokksins (Íd), en nýtt og öðruvísi
sýningarár Íd hefst í dag á hátíðinni
Everybody’s Spectacular á Kjarvals-
stöðum kl. 16 þar sem viðburðurinn
Falin augnablik í náttúrunni, Fórnar
viðburður verður sýndur. Viðburð-
urinn er í umsjón Ernu Ómarsdóttur
og Valdimars Jóhannssonar í sam-
vinnu við dansara dansflokksins en
það er jafnframt hluti af viðburðaröð
Listasafns Reykjavíkur sem nefnist
Eilíf endurkoma: Kinkað kolli til Kjar-
vals.
„Við fórum á sýningu Kjarvals og
textabrot og nokkur málverkanna
urðu okkur innblástur – hvað listin
hafði gert fyrir hann og hvernig hún
er út á við og hvernig fólk horfir á
listamanninn og listina,“ segir Erna
en sýning Kjarvals stendur nú yfir á
Kjarvalsstöðum. „Við ætlum að reyna
að dansa málverkin,“ bætir hún við
létt í bragði.
Í næstu viku býður Íd einnig upp á
vinnustofur þar sem alls kyns lista-
menn og fræðimenn koma saman og
deila hugmyndum og reynslu með
gestum. Hægt er að skrá sig á Fa-
cebook-síðu dansflokksins.
Verðlaunasýningar á svið
Sýningin What a feeling verður
endursýnd í Tjarnarbíói sunnudaginn
28. ágúst og er úr smiðju Höllu Ólafs-
dóttur, Lovísu Óskar Gunnarsdóttur
og dansara Íd. Aðalheiður Halldórs-
dóttir, dansari í sýningunni, hlaut
Grímuverðlaun sem dansari ársins á
síðasta ári.
Verkið verður annað tveggja verka
á kvöldinu Sunday Double Bill á hátíð-
inni Everybody’s Spectacular. „Þetta
verður mjög persónulegt og skemmti-
legt danskvöld þar sem dansararnir
fá að njóta sín og persónuleiki þeirra
fær að skína í gegn,“ segir Erna en
sýningin er unnin í miklu samstarfi
við dansarana. Hvetur hún fólk til að
mæta því þetta er í síðasta sinn sem
hægt verður að berja hana augum.
Hin sýning kvöldsins er svo The Vall-
ey eftir Ingu Huld Hákonardóttur og
Rós Ómarsdóttur en þær hlutu
Grímuverðlaun fyrir verkið í fyrra.
Í vetur verður barnasýningin Óður
og Flexa halda afmæli einnig til sýn-
ingar á ný eftir mikla velgengni á síð-
asta ári. „Það voru ótrúlegar viðtökur
og gaman að sjá hvernig börnin elsk-
uðu þetta og fullorðnir líka, þannig að
þetta er skemmtileg sýning fyrir
alla,“ segir Erna en þau Hannes Þór
Egilsson og Þyri Huld Árnadóttur í
leikstjórn Péturs Ármannssonar leika
sér með ofurhetjur og ímyndunaraflið
og kanna þolmörk þess.
Verðlaunasýningin Njála snýr
einnig aftur þetta árið en hún hefur
notið mikilla vinsælda. Sýningin er
samstarfsverkefni Íd og Borgarleik-
hússins og birtist á Stóra sviði Borg-
arleikhússins þann 29. september en
hún sópaði að sér 10 Grímuverðlaun-
unum í fyrra.
Hermigervill semur tónlistina
„Svo er frábært verkefni að byrja í
næsta mánuði þar sem Inga Huld Há-
konardóttir og Rós Ómarsdóttir
halda Dadadans-veislu fyrir áhorf-
andann,“ segir Erna en Íslenski dans-
flokkurinn kynnir til leiks nýja sýn-
ingu í ár, Dadadans, þar sem
höfundar verksins skoða mismunandi
leiðir dadaismans og velta fyrir sér
hvort þær eigi enn við í dag en dada-
isminn á 100 ára afmæli í ár.
Hermigervill frumsemur tónlist við
verkið en að sögn Ernu vinna höfund-
ar verksins mikið með samband
hreyfingar og hljóðs og tónlistar.
Inga og Rós hafi komið eins og fersk-
ur andblær inn í íslenska dansheim-
inn eftir að hafa dvalið lengi erlendis
við danslistina.
Taka fyrir helgiathafnir
Fórn er þó umfangsmesta sýning
Íslanska dansflokksins í ár en hún er
unnin í samvinnu við Lókal og Borg-
arleikshúsið. Þar munu Erna Ómars-
dóttir og Valdimar Jóhannsson í sam-
vinnu við listamennina Gabríelu
Friðriksdóttur, Ragnar Kjartansson,
Matthew Barney, Margréti Bjarna-
dóttur og dansara Íd bjóða áhorfend-
um að upplifa nýjan heim þar sem
dans, myndlist, tónlist og margs kon-
ar sjónarspil er tvinnað saman. Þar
verða tengsl listarinnar við trúar-
athafnir mannkyns rannsökuð og
krufin.
„Við ákváðum að taka fyrir okkar
helstu ritúala og skoða þá út frá okk-
ur. Tímarnir eru að breytast og
mennirnir með og við skoðum hvort
hugsa megi hlutina upp á nýtt eða
gera þá á persónulegri máta,“ segir
Erna en boðið verður upp á brúðkaup
í Kringlunni, fermingarathöfn á Stóra
sviðinu, útfararstofu á Litla sviðinu
og lífleg skoðanaskipti á markaði í
forsalnum.
„Við erum að gera einhvers konar
sýningu eða ritúal eða mitt á milli –
það er gaman að skoða hvenær og
hvort listin geti verið andleg,“ segir
hún en Gabríela sér um útfararstof-
una, Ragnar um manndómsvígsluna
og Matthew um giftinguna. „Fjórði
og síðasti hlutinn sem er markaðs-
torgið tengir svo allt saman en þar
verða kynningarbásar þar sem sann-
færingakrafturinn ræður ríkjum,“
bætir hún við en markmiðið sé að
skoða hvort við getum lifað saman í
sátt og samlyndi þótt við séum með
ólíka drifkrafta í lífinu og ólíkar lífs-
skoðanir. „Það er alltaf verið að sann-
færa mann um það hvað er best og
hvernig maður eigi að lifa lífinu en
það er svo misjafnt hvað gerir mann
glaðan og heldur manni gangandi
þannig að við vildum kanna hug-
myndina um það hvað gerist þegar
margir ólíkir og ástríðufullir predik-
arar koma saman og reyna að fá fólk
á sitt band – sem verður einmitt hlut-
verk markaðstorgsins.“
Sýningin er óhefðbundin að því
leyti að hún skiptist í fjóra hluta sem
allir eru sýndir á mismunandi stöð-
um. Sýningargestir færa sig því á
milli staða en setjast svo niður og
njóta hvers hluta til enda. „Við kjós-
um að kalla þetta svona „mini-
festival“ því þetta eru þrjú ólík verk
sem eru sýnd en hafa þó sameigin-
legan upphafspunkt sem tengir þau.“
Áhorfendur fá innsýn
Nýju sýningarári Íslenska dansflokksins ýtt úr vör í dag
Fjórar stórar sýningar á svið ásamt minni viðburðum
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Listasumar 2016 á Akureyri stend-
ur nú yfir en þessi norðlenska
listahátíð verður styttri og snarp-
ari þetta árið en hefur verið síð-
ustu árin. Enn sem fyrr markar
Akureyrarvaka á morgun lok
Listasumars og því verður efnt til
mikillar veislu í kvöld og á morg-
un. Jónas Sig og Ritvélar framtíð-
arinnar verða með tónleika á
Græna hattinum í kvöld klukkan
22 en hljómsveitin er annáluð fyr-
ir lifandi flutning á lögum og text-
um Jónasar en oft hafa færri kom-
ist að en vilja eins og segir í
tilkynningu. Á morgun mun Sverr-
ir Karlsson efna til ljósmyndasýn-
ingar í Deiglunni auk þess sem
þar verður ljóðamessa.
Eins og fyrr segir var ákveðið
að þétta dagskrána í ár og láta
hana ná yfir einn og hálfan mánuð
í stað þriggja til þess að skerpa
fókusinn og ná fram samfelldari
dagskrá. Kenna mátti ýmissa
grasa á hátíðinni í sumar en að
sögn Guðrúnar Þórsdóttur, verk-
efnastjóra Listasumars, var lögð
áhersla á að virkja listafólk af
heimaslóð og fá bæjarbúa á öllum
aldri til að taka þátt í hátíðinni
með framlagi af einhverju tagi.
Listasumri lýkur um
helgina með Jónasi Sig
Morgunblaðið/Eggert
Listasumar Efnt verður til veglegra
tónleika á Græna hattinum í kvöld.
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér
Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað
samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega
mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að
gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn.
Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl
með Thealoz dropana.
Elín Björk Ragnarsdóttir
Þurrkur í augum?
Thealozaugndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.