Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 35

Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Bergþóra Jónsdóttir bj@mbl.is Sýningin Helgi magri mun gefa tón- inn á mjög svo viðburðaríkri dagskrá Menningarfélags Akureyrar í vetur. Um er að ræða nýja íslenska spuna- sýningu sem frumflutt verður í sept- ember. Hún er byggð á verki Matt- híasar Jochumssonar sem fjallar um landnámsmanninn Helga magra og var verkið frumsýnt árið 1890 en var einungis sýnt einu sinni. ,,Þótti verk- ið mikið sjónar- spil og umgjörðin stórfengleg en verkið sjálft þótti mjög slakt. Við ætlum að hressa upp á hann Helga magra í vetur og fengum til liðs við okkur fjóra trúða sem eru að svið- setja sýninguna upp á nýtt,“ segir Jón Páll Eyjólfs- son, leikhússtjóri og einn höfunda sýningarinnar. Einn af stærstu viðburðum vetr- arins er þegar ballettinn Hnotubrjót- urinn verður frumsýndur í Hofi, Hamraborg, um jólin. Þar leikur Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands aðal- hlutverkið ásamt St. Petersburg Festival Ballet en viðburðurinn er unninn í samstarfi við Hörpu. Leiksýningin Borgarasviðið held- ur áfram en það er sýning frá síðasta vetri. Tvær sýningar verða á leiklist- arsviði fyrir utan Helga magra fyrir áramót. Það er verk í samstarfi við Borgaleikhúsið sem heitir Hannes og Smári. Þar eru leikkonurnar Hall- dóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir sem eru höfundar og leika aðalhlutverkin. Verkið verð- ur frumsýnt í Borgarleikhúsinu en kemur svo til Akureyrar í nóvember. „Þetta er hárbeitt spaug með brell- um, leiknum senum og tónlist sem mun fylla samkomuhúsið hlátri,“ seg- ir Jón Páll. „Svo verður leiksýningin Stúfur á sínum stað en hann hefur verið að kynna sér leikhúsið að undanförnu svo hann verði tilbúinn fyrir jólin,“ segir Jón Páll. Sterkari sameinuð Menningarfélag Akureyrar sam- anstendur af þremur menningar- stofnunum, Leikfélagi Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarhúsinu Hofi. Þessum fé- lögum var steypt saman í eitt vorið 2014. „Hamraborg tekur 500 hundruð manns og svo höfum við samkomu- húsið í 110 ára gömlu húsi. Við erum með nútímalegan skandinavískan arkítektúr og svo á hinum endanum erum við með fallegasta leikhús á Norðurlöndum með alla þá ríku hefð sem fylgir og sögu löðrandi af hverri einustu fjöl. Með þessu fyrirkomulagi sameinast kraftarnir og allt sett sam- an í eina dagskrá sem gerir okkur sterkari,“ segir Jón Páll Fjölskyldan í brennidepli „Stærsta verkið á vetrardag- skránni á sviði leiklistar er alltaf fjöl- skyldu- og barnasýning. Að þessu sinni verður það nýtt íslenskt barna- verk sem heitir Núnó og Júnía sem frumflutt verður í febrúar. Það er skrifað af sama teymi og vann Pílu Pínu sem var svo vinsælt hjá okkur á síðasta leikári.“ Að sögn Jóns Páls verður þetta mikið sjónarspil hlaðið leikhústöfrum og sjónhverfingum. Fjöldinn allur af viðburðum verður í Menningarhúsinu Hofi. Má þar nefna tónleikana Freddy Mercury sjötugur og jólatónleikar á vegum RIGG-viðburða, öll bestu lög The Rolling Stones, uppistand frá Mið- Íslandi, ráðstefnur og fundir. Í október mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt stórhljómsveit Reykjavíkur bjóða upp á Rhapsody in Blue og glænýjan konsert ásamt Frank Sinatra-lögum. Einnig verða hinar ýmsu uppákomur eins og gesta- sýningar af ýmsu tagi. Fjórar gesta- sýningar verða í samkomuhúsinu, heimildaverkið Elska sem er nýtt norðlenskt verk, Engi sem er brúðu- leikhús fyrir börn þar sem brúðuleik- húsið Handbendi frá Hvammstanga mun sýna og Listin að lifa sem er verk eftir unga listamenn sem skipa leiklistarhópinn Næsta leikrit. Fjölbreytileikinn að leiðarljósi „Þetta nýja samstarf okkar hefur opnað fyrir möguleikana á enn betra efnisvali og fjölbreytileika fyrir börn og fjölskyldur. Ein af frumskyldum okkar er að fóstra sviðslistahópa að norðan. Við viljum næra og fóstra verkefni og unga leiklistahópa héðan frá Norð- urlandi. Við viljum vera eins og gróð- urhús, fá til okkar græðlinga og fóstra þá og það sem þeir eru að gera. Með því gefum við ungu listafólki tækifæri á því að vaxa og eiga stefnu- mót við áhorfendur. Það græða allir á þessari hugsjón okkar. Bæði lista- mennirnir sjálfir og áhorfendur sem fá breiðari grunn og fjölbreyttari að- gang að menningu. Það er ekki mark- miðið að vera alltaf með stórstjörnur hér heldur að blanda menningarlífinu saman og hafa fjölbreytileikann að leiðarljósi,“ segir Jón Páll. Akureyrarvakan er um helgina Menningarfélagið á Akureyri tek- ur virkan þátt í Akureyrarvöku sem haldin er til að fagna 154. afmælis- degi Akureyrarkaupstaðar. Akureyr- arvaka hefst í dag og hápunktur hennar er á laugardaginn. Menning- arfélagið stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá á Akureyrarvöku í menning- arhúsinu Hofi og húsið mun iða af lífi frá föstudegi fram á sunnudag. Í dag kl 17 opnar Samúel Jóhanns- son myndlistarmaður sýningu á verk- um sínum í Hamragili og í kvöld kl 20 flytja Steinar, ungur og upprennandi popptónlistarmaður, og hljómsveit hans glænýtt frumsamið efni í bland við eldri slagara í Hamraborg. Á laugardaginn gefst gestum tækifæri á að sjá stiklur úr Helga magra sem er kærleiksríkt og kómískt spuna- verk sem frumsýnt verður þann 2. september í Samkomuhúsinu. Áhugasamir gestir geta einnig tekið þátt í spurningaleik í Nausti, dregið verður úr réttum lausnum og veg- legir vinningar í boði. Um miðjan daginn mun húsið óma af kröftugri blásaratónlist þegar The Upper Rhine Youth Wind Band sem er 60 manna blásarasveit skipuð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára frá Þýska- landi, hefur leik í Hömrum. Um kvöldið mun svo hljóm-sveitin TUSK með þeim Pálma Gunnars- syni, Birgi Baldurssyni, Eðvarði Lárussyni og Kjartani Valdemars- syni flytja göróttan djass.Á sunnu- daginn býður Menningarfélagið ásamt 1862 Nordic Bistro uppá há- degsdjass við veitingarstaðinn. Þar mun hinn heimskunni trommuleik- ari Jeff Herr leika ljúfan djass ásamt þeim Sigurði Flosasyni, Kjartani Valdemarssyni og Þor- grími Jónssyni. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á Akureyrar- vöku í menningarhúsinu Hofi. Það er skemmtilegt að geta prjónað sunnu- daginn við Akureyravökuna og boðið fólki í húsið á ný til að hlusta á djass og njóta dögurðar á 1862 Nordic Bistro. Þá er líka tilvalið að gefa sér góðan tíma og skoða betur verk Samúels sem prýða veggi hússins segir Kristín Sóley Björnsdóttir, kynningar- og viðburðastjóri Menn- ingarfélags Akureyrar. Þeir sem vilja kynna sér dagskrá Akureyrarvöku í heild sinni er bent á visitakureyri.is og þeir sem vilja skoða þá viðburði sem Menningar- félagið býður uppá er bent á mak.is Enginn aðgangseyrir er á tónleikana og aðra viðburði í Hofi á Akureyr- arvöku og eru allir hjartanlega vel- komnir, að sögn Kristínar Sóleyjar. Ljósmynd/Menningarsetur Akureyrar Spunaverk Helgi magri er ný kómísk spunasýning sem hefur sögulega tengingu við Eyjafjörð. „Viljum vera eins og gróðurhús“  Dagskrá Menningarfélags Akureyrar einkennist af fjölbreytileika og metnaði Jón Páll Eyjólfsson Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 9/9 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fim 6/10 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Fös 7/10 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Lau 8/10 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00 Fös 30/9 kl. 20:00 Sun 9/10 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00 Lau 1/10 kl. 20:00 Fim 13/10 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00 Sun 2/10 kl. 20:00 Fös 14/10 kl. 20:00 Gleðisprengjan heldur áfram! Sending (Nýja sviðið) Lau 10/9 kl. 20:00 Frums Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.