Morgunblaðið - 31.08.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016
Ó
lafur er sjálfur fæddur og uppal-
inn innan greinarinnar en faðir
hans var Jóhannes Stefánsson
frá Neskaupstað, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar og SÚN
[Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaup-
stað] í áratugi og til að lýsa umhverfi þeirra
sem störfuðu í sjávarútvegi í þá daga rifjar
Ólafur upp litla sögu.
„Það var alltaf allt á hausnum í þessum
tíma í greininni, ástand sem af og til var
leyst með gengisfellingum og þess háttar.
Þegar ég var lítill strákur ólst ég upp á
Norðfirði og fórum við feðgarnir á föstu-
dögum yfir skarðið í Landsbankann til hans
Kristins, að reyna að herja út laun fyrir
fólkið. Pabbi sat þar inni oftast í klukku-
tíma meðan ég beið út í bíl, litli guttinn, því
það voru ekki alltaf til peningar fyrir út-
borguninni. Fólk gerir sér ekki grein fyrir
þessu í dag,“ segir Ólafur og er hugsi við
upprifjunina. Hann heldur áfram.
Taskan með laununum
sem týndist – um stund
„Ástæðan var sú að það var einfaldlega erf-
itt að reka sjávarútveginn. Einu sinni vor-
um við að keyra yfir fjallið og pabbi stoppar
stuttlega á leiðinni. Við vorum með laun alls
starfsfólksins í fiskiðjuverinu, venju sam-
kvæmt, í gamalli, brúnni tösku. Ég hélt á
töskunni og gætti hennar vel. Nema hvað
pabbi stoppar þarna og stingur upp á því að
við kíkjum aðeins út fyrir og skoðum stóran
foss sem þar var. Við förum því út og ég
með töskuna því hana skildi ég ekki við
mig.“
Ábyrgðin sagði semsé til sín en margt fer
öðruvísi en ætlað er því Ólafur týndi tösk-
unni í skoðunarferðinni að fossinum. „Ein-
hvern veginn fór ég að því að gleyma tösk-
unni einhvers staðar, og hálftíminn sem það
tók okkur að finna hana aftur er sá lengsti
sem ég hef lifað. Þá finn ég töskuna loks
þar sem hún lá í berjalyngi þar sem ég
hafði skilið hana eftir. Hefði brúna taskan
ekki fundist aftur hefðum við komið heim
peningalausir og enginn þeirra Norðfirð-
inga, sem unnu hjá fyrirtækinu, hefði fengið
útborgað. Þannig gekk það í þá daga, en nú
til dags er öldin önnur og allt líka orðið raf-
rænt,“ bætir Ólafur við og brosir að þessu
endurliti í veröld sem var.
Ein stærsta sýningin hér á landi
Ólafur hefur því frá blautu barnsbeini lifað
og hrærst í sjávarútveginum með beinum
eða óbeinum hætti og fyrir rúmu ári var
hann kallaður á fund með aðilum 24 fyr-
irtækja í sjávarútvegi og beðinn um að
skoða möguleikann á því að Íslendingar
héldu hér sjávarútvegssýningu. „Við fund-
um fljótlega mikinn meðbyr, verkefnið vatt
upp á sig og sýningin stækkaði bara og
stækkaði. Í dag eru komin vel yfir eitt
hundrað fyrirtæki, innlend og erlend, og
það sem meira er, þetta er fyrsta alþjóðlega
sjávarútvegssýningin sem alfarið er á ís-
lenskum höndum,“ bætir Ólafur við.
„Umfangið er slíkt að búið er að selja út
allt gólfrýmið á báðum byggingum Laug-
ardalshallar. Sýningin er því ein sú stærsta
sem haldin hefur verið hér á landi.“
Hátækni og nýsköpun
í íslenskum sjávarútvegi
Það er ekki svo ýkja langt síðan hugtakið
„fyrirtæki í sjávarútvegi“ þýddi fátt annað í
huga fólks en útgerðir. Nú til dags er að
finna sífellt fleiri hátæknifyrirtæki, knúin
íslensku hugviti og nýsköpun. Þetta endur-
speglast glögglega á Sjávarútvegssýning-
unni, að sögn Ólafs.
„Það kom mér mjög á óvart, þegar ég
hófst handa við að vinna við undirbúning og
framkvæmd sýningarinnar, hvað það er
gríðarlega mikil nýsköpun í þessari grein.
Ég er búinn að heimsækja fjölmörg fyrir-
tæki sem eru kannski ekki áberandi í um-
ræðunni frá degi til dags en verða á sýning-
unni og hafa að bjóða vörur og hugvit sem
er á heimsmælikvarða; tæki sem byggjast á
íslensku hugviti og eru með því fullkomn-
asta sem völ er á í heiminum í dag. Það er
alveg hreint ótrúlega mikið af spennandi
hlutum í gangi. Sjávarútvegurinn er svo
miklu meira en bara fiskveiðar í dag. Hann
er háþróuð matvælaframleiðsla sem gerir
viðskiptavinum kleift að njóta ferskvöru
sem er eftirsótt um allan heim.“
Margvíslegar viðurkenningar
veittar á sýningunni
Við upphaf sýningarinnar verðum við með
sérstaka opnun í anddyri nýju hallarinnar
fyrir boðsgesti. Þar munu öll helstu samtök
innan sjávarútvegsins veita viðurkenningar
þeim er hafa skarað fram úr í greininni það
árið. „Við ætlum meðal annars að velja
„trillukarl ársins“ og grunar mig að valið á
honum muni vekja mikla athygli,“ segir
Ólafur kankvís.
Eitthvað fyrir alla að skoða
Ólafur tekur fram að fjölmargt áhugavert
muni bera fyrir augu gesta á sýningunni, og
það eigi líka við um þá sem ekki lifa og
hrærast innan sjávarútvegsins. „Við verðum
með svakalega lyftara, allt upp í átta tonn,
sem eru tilkomumiklir að sjá og skoða. Þá
verður stór og flottur bátur til sýnis á úti-
svæðinu, með öllum nýjustu siglingatækj-
um, sem gestir geta skoðað. Það verður
eitthvað fyrir alla og svo verðum við með
fjögur veitingasvæði svo allir geta fengið
sér í svanginn og slökkt þorstann á meðan á
sýningunni stendur, dagana 28.-30. sept-
ember næstkomandi í báðum byggingum
Laugardalshallar.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Sýningarstaðurinn „Við fundum fljótlega mikinn meðbyr, verkefnið vatt upp á sig og sýningin stækkaði bara og stækkaði. Í dag eru komin vel yfir eitt hundrað fyrirtæki, innlend og erlend, og það sem meira er,
þetta er fyrsta alþjóðlega sjávarútvegssýningin sem alfarið er á íslenskum höndum,“ bætir Ólafur við. „Umfangið er slíkt að búið er að selja út allt gólfrýmið á báðum byggingum Laugardalshallar.“
„Trillukarl ársins“ valinn
Sjávarútvegssýningin 2016 verður haldin í Laugardalshöll dagana 28. til 30. september og verður hér um að ræða fyrstu alþjóðlegu
sjávarútvegssýninguna sem er alfarið á íslenskum höndum, eins og framkvæmdastjórinn, Ólafur Jóhannesson, segir frá. Það gefur
ekki einasta að líta allt mögulegt sem snýr að þessari grundvallaratvinnugrein okkar Íslendinga heldur verða veittar viðurkenningar
helstu samtaka sjávarútvegsins.
Morgunblaðið/RAX
Sjónarspil „Við verðum með svakalega lyftara, allt upp í átta tonn, sem eru tilkomumiklir að sjá og
skoða. Þá verður stór og flottur bátur til sýnis á útisvæðinu, með öllum nýjustu siglingatækjum, sem
gestir geta skoðað,“ segir framkvæmdastjóri sýningarinnar, Ólafur Jóhannesson.
Sjávarútvegurinn er háþróuð
matvælaframleiðsla sem gerir
viðskiptavinum kleift að njóta
ferskvöru sem er eftirsótt um
allan heim.