Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 18

Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 S jókonur – orðið eitt vekur upp tilfinningu sem tengist ævintýraþrá í bland við þor og þrek. Íslenskar konur hafa vissulega stundað sjó- mennsku en það hefur ekki farið mikið fyrir þeim opinberlega á þeim vettvangi. Frægust íslenskra sjókvenna er líklega enn í dag Þuríður formaður Einarsdóttir. Hún var þekktur kven- skörungur, stundaði sjómennsku frá ellefu ára aldri, fædd 1777, og allt til ársins 1843, lengst af var hún afla- sæll formaður á opnum bátum. Hún var einnig fræg fyrir að koma upp um Kambsránið sem var mikið þjófn- aðarmál á sínum tíma. Þuríður lést árið 1863. Verbúð Þuríðar var end- urbyggð á Stokkseyri og finnst mörgum áhugavert að skoða hana og þann aðbúnað sem sjófarendur bjuggu við á hennar tímum. Ýmsir hafa tekið saman fróðleik um íslenskar sjókonur. Einn af þeim fræðimönnum er Gunnhildur Hrólfs- dóttir rithöfundur. Í bók hennar: Þær þráðinn spunnu – afrek kvenna á aldanna rás eru meðal annars frá- sögur af íslenskum sjókonum. „Ég get nefnt hér til sögunnar tvær konur sem á margan hátt voru merkilegar sjókonur. Önnur þeirra starfaði sem slík í kringum aldamótin 1900 og hin um fimmtíu árum síðar,“ segir Gunnhildur Hrólfsdóttir, sagn- fræðingur og rithöfundur. Katrín sem fann sjóstakkinn „Sjókonur fyrri tíma sóttu sjóinn á við karla á opnum bátum. Sem dæmi um slíka konu nefni ég hér Katrínu Unadóttur sem fæddist undir Eyja- fjöllum 1878. Hún var ein af tíu systkinum. Um aldamótin 1900 bjó fjölskyldan á Moldnúpi. Þá freistaði Katrín þess að færa björg í bú og vildi ráða sig í skipsrúm sem full- gildur háseti. Hún fór niður á sand- inn undir Eyjafjöllum og kom að máli við formann sem tók málaleitan hennar vel en hún átti ekki viðeig- andi klæðnað. Hún átti bara sjóbux- urnar en ekki stakkinn. Formað- urinn sagði að þannig til fara gæti hún ekki farið til sjós á opnum báti. Hún rölti af stað í öngum sínum en kom þá auga á eitthvað sem veltist í fjöruborðinu. Það reyndist vera sjó- stakkur svo hún flýtti sér til baka með hann og var ráðin sem háseti á bátinn. Hún réri alla vertíðina þótt sjóveik væri. Ýmsir hafa velt fyrir sér hvaðan stakkurinn hennar Katrínar hafi komið. Það er álitið að hann hafi fok- ið af franskri skútu en fjöldi slíkra var þá við strendur landsins. Katrín flutti til Eyja árið 1903 ásamt systur sinni og mági og bjó þar til æviloka. Hún fór aldrei dult með þá sannfæringu sína að æðri máttarvöld hefðu heyrt andvarp hennar þegar hún reikaði í örvænt- ingu meðfram sjónum. Stakkur, eins og sá sem hún fann var furðulegur reki. Enginn skipreki hafði heldur átt sér stað á þessum slóðum svo menn vissu til. Reyndar var fjöldi franskra skúta við landið og skútu- karlar hengdu oft sjóstakka sína og sjóhatta til þerris á slár eða í stög. Féll aldrei verk úr hendi Árið 1917 giftist Katrín Páli Ein- arssyni frá Nýjabæ undir Eyjafjöll- um. Á vetrarvertíð 1918 reri Páll á vélbátnum Adólf frá Vestmanna- eyjum. Þessi bátur fórst með allri áhöfn á vertíðinni. Þannig missti Katrín eiginmann sinn þremur mán- uðum eftir brúðkaup þeirra. Þegar þetta hörmulega slys átti sér stað, gekk Katrín með barn þeirra hjóna, Pálínu. Katrín vann alla tíð erfiðisvinnu. Hún flatti fisk móti fremstu flatn- ingsmönnum. Handvagninn, sem hún keyrði fiskinn á frá bryggju í að- gerðarhús, lét hún hækka og tók í hann 35 vertíðar-þorska. Þá var fisk- ur oft það stór að 100 fóru í tonnið. Þannig vann hún dag eftir dag. Vor eftir vor stóð hún í fiskþvotti og var þá unnið í akkorði. Dagsskammtur Katrínar var þá 900-1.000 fiskar. Léku það ekki aðrir eftir en frískustu karlmenn. Katrín Unadóttir andaðist 8. ágúst 1950. Unnur sem aldrei var sjóveik „Aðra konu nefni ég hér sem er nær okkur í tíma og atvinnuháttum. Hún heitir Unnur Alexandra Jónsdóttir og fæddist í Vestmannaeyjum 1939. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Laugarvatni 1959 og ensku- og norskunám frá Háskóla Ís- lands 1967. Þegar Unni bauðst starf sem kokkur á síldarbát á námsár- unum þá hugsaði hún sig ekki tvisvar um. Hún keypti sér bókina: Lærið að matbúa eftir Helgu Sigurðardóttur og svo var haldið til veiða. Vistarvera áhafnar og eldunaraðstaða var í lúk- arnum fremst í bátnum. Unnur saumaði tjöld fyrir kojurnar þannig að hver og einn hafði svolítið prívat fyrir sig. Svo sauð hún ýsu og þorsk upp úr sjó, steikti síld og bjó til kál- böggla sem þóttu afbragðsgóðir. Síldveiði var léleg þetta sumar og í slæmum veðrum var oft leitað vars við Grímsey. Þar fór hún stundum í land. Þegar siglt var heim í lok ver- tíðar ákvað Unnur að baka köku fyrir áhöfnina sem ekki hafði lyst vegna sjóveiki. Sjálf var hún aldrei sjóveik. Um haustið var báturinn gerður út á reknet frá Sandgerði og Keflavík. Hún frétti að kokkar suð- ur með sjó væru ráðnir upp á einn og hálfan hlut. Hún bað um kaup- hækkun og fékk hana. Hún var kokkur á ýmsum bátum á náms- árum sínum en ævistarf hennar varð kennsla við Háskóla Íslands.“ Sögu kvenna lítt haldið á lofti Hver hefur að þínu mati verið hlut- ur íslenskra sjókvenna í sögulegu tilliti? „Konur við sjávarsíðuna hafa löngum verið kynntar til sögunnar sem draumsýn karla meðan þeir unnu sjávarafrekin. Íslenskum sjó- mönnum karlkyns hefur löngum verið sungið lof – þeir voru hetjur sem horfðu rauðum augum út í sort- ann og hræddust ekkert. Og ekki skaðaði þótt þeir fengju sér aðeins neðan í því. Öðru máli gegnir með sjókonur, þær hafa hvorki verið lof- aðar né prísaðar – og alls ekki drykkjuskapur þeim tengdur. Íslenskar konur hafa unnið mikið starf í sambandi við sjómennsku og aflavinnslu. Á tímum frumstæðari starfshátta stóðu þær á hafn- arsvæðinu í kulda og bleytu og drógu fiskinn upp að aðgerðar- staðnum, flestar fjóra í einu. Þær voru í síðum pilsum, þungum af bleytu og með strigasvuntur, klút um höfuð og sjal á herðum. Þannig unnu landkonurnar með slorvett- linga úr þæfðum lopa. Sögu hinna eiginlegu íslensku sjó- kvenna hafa vissulega verið gerð skil í bókum en henni hefur ekki verið haldið mikið á lofti. Þetta er þó að breytast. Ég hef heyrt að nú sækist útgerðarmenn eftir því að hafa konur um borð. Þær eru þá taldar hafa góð áhrif á vinnuand- ann.“ gudrunsg@gmail.com Sögur af sjókonum „Konur við sjávarsíðuna hafa löngum verið kynntar til sögunnar sem draumsýn karla meðan þeir unnu sjávar- afrekin. Íslenskum sjó- mönnum karlkyns hefur löngum verið sungið lof – þeir voru hetjur sem horfðu rauðum augum út í sortann og hrædd- ust ekkert. Og ekki skaðaði þótt þeir fengju sér aðeins neðan í því. Öðru máli gegnir með sjókonur, þær hafa hvorki verið lofaðar né prísaðar – og alls ekki drykkjuskapur þeim tengdur.“ Morgunblaðið/Þórður Sögur kvenna til sjós Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur er meðal þeirra sem hafa tekið saman fróðleik um íslenskar sjókonur. Katrín Unadóttir háseti (t.h.) og dóttir hennar Pálína Pálsdóttir. Morgunblaðið/Þórður Þuríðarbúð Verbúð Þuríðar formanns Einarsdóttur á Stokkseyri, var endurgerð til að halda merkri sögu hennar á lofti og má þar forvitnast um aðbúnað þann sem sjófarendur bjuggu við á sínum tíma. Þuríður er líkast til frægust íslenskra sjókvenna. Unnur Alexandra Jónsdóttir sigldi oft krappan sjó um miðja síðustu öld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.