Morgunblaðið - 31.08.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.08.2016, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur og vökvamótora Sala - varahlutir - viðgerðir Þ að var einfaldlega þannig að þegar ég var kornung og þurfti að fara að vinna fyrir mér á sumrin áttaði ég mig á strák- arnir sem voru á sjó höfðu greini- lega mun meiri tekjur en við stelpurnar. Ég fór fyrst að gant- ast með það að maður þyrfti bara að komast á sjó til ná sér í pen- ing. En ég er sjóhrædd og þetta hentaði því kannski ekki sem best. Ég ákvað nú samt að ég ætl- aði að reyna að komast á almenni- legan togara og fara einn túr. Þá myndi kannski ekki verða til baka snúið. Ég fengi gott kaup og gæti haldið kannski haldið áfram sjó- mennsku og efnast.“ „Afi var besti sjómaður í heimi“ Hvenær var það sem þú áttaðir þig á að strákarnir fengu svona gott kaup á sjónum? „Ég er fædd 1986 og um sextán ára aldurinn fór ég að láta mig dreyma um sjómennskuna. Ég fór að spyrjast fyrir í kringum mig á Siglufirði en fékk þau viðbrögð að varla yrði svo ung og reynslulaus kona tekin í stétt sjómanna. Ef ég rakst á skipstjóra eða aðra sem ég hélt að gætu komið mér á sjó- inn þá tóku þeir þessari fyrir- spurn minni bara sem gríni – sögðu að það myndi enginn vilja taka við mér til slíkra starfa. Þá fékk ég þá frábæru hugmynd að skrá mig á já.is sem sjómaður í þeirri von að einhver skipstjóri sem ég hafði hringt í til að leita að vinnu myndi fletta upp núm- erinu mínu og sjá að ég væri skráð sem sjómaður og hringja til baka. Það hefur því miður ekki gerst. Svo smádró úr hringingum mínum til skipstjóranna, þeir hringdu aldrei til baka og ég fór að leggja önnur plön.“ Hvað tókstu þér þá fyrir hend- ur? „Ég fór í háskóla og lærði lög- fræði. Nú starfa ég í banka hér á Siglufirði. En planið hjá mér er ennþá að reyna að komast á sjó- inn – allavega til þess að borga upp lögfræðinámið. Annar afi minn, Sigurður Jónsson, var að mínu mati besti sjómaður í heimi og hann er nýhættur á sjónum. Mamma fór með föður sínum, Ingimundi Árnasyni, sem líka var sjómaður, í Ameríkuferð með Hofsjökli. Hún sagði mér langar sögur af því ævintýri – mér fannst þær mjög áhugaverðar – einkum eftir að ég eltist og skildi að hún var að tala um skip en ekki jökul. Þessar sögur urðu meðfram til þess að mig langaði til þess að komast á sjóinn. Ég hef komist næst sjóvinnu í rækjuvinnslunni Þormóði ramma á Siglufirði. Lengra hef ég ekki komist enn.“ Ekki búin að afskrifa drauminn Hvernig myndir þú taka því ef einhver af skipstjórunum hringdi í þig núna? „Ef mér væri boðinn góður túr þá myndi mig langa rosalega mik- ið til að fara. En nú er ég hins vegar komin með barn og á ekki eins auðveldlega heimangengt og áður. Ég get látið þess getið að þegar ég gifti mig langaði mig af- skaplega til að láta Þorvald Hall- dórsson syngja hið margfræga lag: Á sjó. En af því varð ekki, ég fór hefðbundnari leið í lagavali – en hann kom við athöfnina.“ Ætlar þú að halda í starfsheitið sjómaður? „Já eitthvað áfram – ég er ekki enn búin að afskrifa sjómanns- drauminn alveg.“ gudrunsg@gmail.com Ein kona skráð sjómaður á já.is Ég fór í háskóla og lærði lögfræði. Nú starfa ég í banka hér á Siglufirði. En planið hjá mér er enn þá að reyna að komast á sjóinn – allavega til þess að borga upp lögfræðinámið,“ segir Katrín. „Ég er ekki enn bú- in að afskrifa sjómanns- drauminn alveg.“ Ekki er auðvelt að finna konur sem stundað hafa sjómennsku eftir upp- lýsingavefnum já.is. Þar er engin kona skráð sem sjókona. Eina konu fann undirrituð á löngum lista þeirra sem skrá sig undir starfsheitinu sjó- maður. Sú kona heitir Katrín Sigmundsdóttir og býr á Siglufirði. Hún segir sínar farir ekki sléttar hvað varðar til- raunir hennar til að komast í sjómannastétt. Siglingadraumar Katrín Sigmundsdóttir á þann draum að komast einhverntíma á sjóinn og hefur svo verið síðan hún var sextán ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.