Morgunblaðið - 31.08.2016, Síða 26

Morgunblaðið - 31.08.2016, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 J ón Tryggvi Árnason getur verið stoltur af afrakstri sumarsins. Hann gerir út Þorbjörgu ÞH og var smá- báturinn sá aflahæsti í sum- ar, með samtals 34.751 kg af afla í 46 róðrum. Þorbjörg ÞH er 9 metra langur Sómabátur og landaði öllum aflanum í Raufarhöfn. Aðspurður segist Jón Tryggvi ekki hafa þurft að hafa svo mikið fyrir veiðunum en það hafi hjálpað honum að í maí var óvenjumikið var af fiski á grunnslóðinni norður af Melrakkasléttu. Synir hans hjálp- uðu við veiðarnar hluta úr sumrinu en annars var Jón Tryggvi einn að veiðum. „Þetta eru nú ekki nema 770 kíló sem má koma með að landi, og aðeins fjórir dagar í viku sem má vera að veiðum,“ segir hann, að- spurður hvort ekki hafi verið heil- mikil vinna að koma öllu þessu magni af fiski í land. Er heldur ekki að heyra á Jóni að hann hafi malað gull í sumar. „Veið- arnar kosta sitt og fiskverðið hefur frekar gefið eftir í takt við styrk- ingu krónunnar og veikingu punds- ins. Ég gæti vel trúað því að frá síð- asta sumri hafi t.d. verð á þorski lækkað um 15-20%.“ Vildi aftur á æskuslóðir Jón Tryggvi er í dag 45 ára gamall, og fæddist á Húsavík en ólst upp á bænum Blikalóni og á Raufarhöfn. Þegar Jón Tryggvi var 14 ára gam- all flutti hann ásamt fjölskyldu sinni í Skagafjörð og 17 ára gamall byrjaði hann að stunda sjó- mennsku. Skolaði Jóni Tryggva síðan til Reykjavíkur þar sem hann fann vinnu hjá HB Granda og var lengi stýrimaður þar. „En árið 2009 tók ég mér frí þaðan til að láta gamlan draum rætast um að stunda grá- sleppuveiðar á æskuslóðunum,“ segir Jón Tryggvi en hann greip tækifærið þegar breytingar voru gerðar á reglum um strandveiðar. Fyrst keypti Jón Tryggvi bátinn Blika, síðan Kötluvík og loks Þor- björgu, en með Kötluvíkinni fylgdi ögn af þorskkvóta. „Ekkert skemmtilegra en að vera á leið í land með fullan bátinn á spegilsléttum sjó“ Veiðarnar gengu vel hjá Þorbjörgu ÞH í sumar. Það sem átti bara að verða stutt frí til að stunda grá- sleppuveiðar er núna orðið að sjö ára æv- intýri Kátur „Veiðarnar kosta sitt og fiskverðið hefur frekar gefið eftir í takt við styrkingu krónunnar og veikingu pundsins,“ segir Jón Tryggvi um rekstrarhliðina. Marás ehf. Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230 www.maras.is Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað Allt fyrir nýsmíðina Stærð allt að 6200hö Stjórntæki og GírarRafstöðvar Hliðarskrúfur Kraftur Ending Sparneytni Áreiðanleiki Vökvakranar fyrir skip og báta asdropLS H A F T - S E A L S AUTOMATION TECHNOLOGY Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir á sjómannadaginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.