Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 27

Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 27 Hugsaðu inn í boxið ... Flest nýsköpun felst í að koma auga á nýja möguleika í því sem fyrir er. Finna not fyrir það sem áður var hent. Sjá tengingar sem aðrir sjá ekki. Okkar hlutverk er að auðvelda þeim sem þetta geta að pakka hugmyndunum sínum inn og koma þeim í framkvæmd, okkur öllum til hagsbóta. Matís er öflugt þekkingarfyrirtæki sem sinnir fjölbreyttu rannsóknar-, þjónustu- og nýsköpunarstarfi. www.matis.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5 -2 0 7 6 Landað fyrir 13 Afli sumarsins hefur allur farið beint á markað og þarf Jón Tryggvi að keppa við klukkuna. „Það verður að landa fiskinum fyr- ir kl. 13 því þá halda flutningabíl- arnir af stað frá Raufarhöfn og til kaupenda víðsvegar um landið. Ef ekki tekst að ná aflanum í land í tíma er hann orðinn dagsgamall þegar hann kemst til kaupandans og fengist þá lægra verð fyrir.“ Til þess að ljúka veiðunum á réttum tíma þarf að helda af stað á miðin upp úr miðnætti. Um hálf- tíma sigling er á veiðisvæðin. „Svo er bara reynt að renna í hann, og stundum að fullt af fiski tekur og stundum ekki. Maður lærir það með tímanum hvar fiskurinn held- ur sig og hvar eru bestu veiði- svæðin,“ segir Jón Tryggvi en um leið og fiskurinn er dreginn um borð er hann blóðgaður og kældur í krapa. Skipstjórinn sendir grófa sundurliðun á aflanum á markað á leið í land, en nákvæm vigtun fer ekki fram fyrr en við löndun. Sinn eigin herra Greinilegt er að Jón Tryggvi unir sér vel við veiðarnar enda áttu smábátaveiðarnar upphaflega bara að vera stutt stopp sem núna hefur varað í sjö ár. „Ég hef mjög gaman af þessu og nýt þess að vera minn eigin herra. Það er eng- inn sem segir mér að ég þurfi að fara á sjó frekar en ég vil,“ út- skýrir hann. „Svo er náttúrlega ekkert skemmtilegra en að vera á leið í land með fullan bátinn á spegilsléttum sjó.“ Jón er á því að óhætt væri að liðka enn frekar fyrir strandveið- um og jafnvel auka það magn sem veiða má í hverjum túr. „Það hef- ur komið á daginn að það er ágæt- is eftirspurn eftir þessum fiski,“ segir hann en bætir við að það sé dýrt og krefjandi að byrja í þessu fagi eins og öðrum. „Sama hvort menn vilja kaupa sér smábát, gröfu eða annað vinnutæki þá er það alltaf dýrt í byrjun og tekur nokkur ár að koma þessu á kopp- inn. Það er ekki fyrirhafnarlaust að komast inn í þetta kerfi, frekar en í nokkurn annan rekstur.“ ai@mbl.is Verðmæti Þorbjörg ÞH á siglingu fyrir utan Raufarhöfn. Aðstæður til veiða hafa verið góðar í sumar og enginn skortur á fiski í sjónum. Með tímanum má læra hvar fiskurinn heldur sig. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kaldur Fiskurinn þarf að fara á markað með hraði og er keppt við klukkuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.