Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 28
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Metnaður Íslenskt fiskeldi hefur tekið
stakkaskiptum á skömmum tíma.
F
iskeldi á Íslandi virðist núna
vera að komast á mikið flug.
Að baki eru nokkur mis-
heppnuð ævintýri en í dag
er greinin búin að koma
undir sig fótunum og hefur alla burði
til að spyrna sér upp í hæstu hæðir.
Höskuldur Steinarsson er fram-
kvæmdastjóri Landssambands fisk-
eldisstöðva og segir hann að skipta
megi sögu sjókvíaeldis á Íslandi í
þrjá kafla. „Fyrsta bylgjan kom á
milli 1980 og 1990 og varði fram á tí-
unda áratuginn. Helstu ástæðurnar
fyrir því að sú bylgja fjaraði út voru
að þá var verið að ala íslenska laxa-
stofninn óbreyttan – en hann reynd-
ist ekki mjög hæfur til eldis – og svo
að ekki hafði farið fram mikil
rannsóknarvinna við val á svæðum
fyrir kvíarnar, né ríkar kröfur verið
gerðar til búnaðarins,“ segir hann.
„Önnur bylgja kom upp úr 2000 þeg-
ar stóru útgerðarfyrirtækin, s.s.
Samherji og HB Grandi, fóru í mikla
uppbyggingu á Austfjörðum. Þar var
unnið með mun betri og kynbættan
eldisstofn en margt vann á móti eld-
inu þá, s.s. óhagstæð gengisþróun og
tjón af völdum sjúkdóma og mar-
glyttu. Drógu útgerðirnar sig út úr
eldinu, sem er miður því ég held að ef
þær hefðu haldið áfram ögn lengur
hefði mátt komast fyrir vind.“
80% aukning á milli ára
Núverandi bylgja fór af stað í kring-
um 2010. „Þar markar upphafið upp-
bygging Fjarðalax og Arnarlax, sem
svo sameinast. Síðan kemur Dýr-
fiskur, Arctic Fish og Fiskeldi Aust-
fjarða auk þess að norskir aðilar fara
að kaupa sig inn í greinina.“
Þriðja bylgjan verður vonandi
varanleg, en mikill vöxtur er í ís-
lensku fiskeldi á milli ára, og þá aðal-
lega í laxeldinu. „Aukningin nemur
núna nærri 80% á milli ára. Íslensk-
ar fiskeldisstöðvar framleiða á þessu
ári 15.000 tonn af slátruðum fiski og
er bleikja þar af um 4.000 tonn, lax
um 8.000 tonn og afgangurinn teg-
undir á borð við regnbogasilung og
senegalflúru,“ segir Höskuldur. „Til
samanburðar er þetta meira tonn-
amagn en öll kindakjötsframleiðsla á
Íslandi, og meira en svína- og kjúk-
lingakjötsframleiðsla til samans.
Miðað við þann lífmassa af eldisfiski
sem nú er verið að rækta í seiðastöð-
um og uppbygginguna í eldinu má
vænta þess að á næstu tveimur árum
fari fiskeldi fram úr samanlagðri
hefðbundinni kjötframleiðslu mælt í
tonnafjölda.“
Landssamband fiskeldisstöðva er
tæplega 30 ára gömul samtök og eiga
22 fyrirtæki aðild að landssamband-
inu. Saman framleiða þau yfir 98% af
öllum íslenskum eldisfiski. Hösk-
uldur segir áhuga Norðmanna á ís-
lensku fiskeldisfyrirtækjunum til
marks um það að greinin sé búin að
slíta barnsskónum og eldinu á Ís-
landi sé nú sinnt af fagmennsku og
metnaði. „Við erum ekki lengur í
neinum kotbúskap. Greinin bar gæfu
til að loka þeim svæðum þar sem
hagsmunir villta laxins eru mestir,
og á síðasta ári var norski
búnaðarstaðallinn innleiddur fyrir
allt sjókvíaeldi á Íslandi.“
Heilbrigður fiskur
Möguleikarnir fyrir íslenska eldið
eru góðir, segir Höskuldur. Þannig
hjálpar það fiskeldisstöðvunum mjög
að heilsa fisksins er almennt afar góð
og sjúkdómar ekki að valda vand-
ræðum. Er Ísland núna sjúkdóma-
frítt land hvað eldisfisk varðar.
„Fylgt er mjög ströngum sótt-
varnarkröfum og þarf ekki að beita
neinum fúkkalyfjum í eldinu né nota
lyf gegn lúsum, ólíkt því sem gert er í
sjókvíaeldi víðast hvar annars stað-
ar.“
Þau leyfi sem þegar hafa verið
gefin út myndu duga fyrir samtals
48.000 tonna framleiðslu. Eins og
fyrr var getið var heildarframleiðsla
fiskeldisstöðvanna 15.000 tonn á síð-
asta ári og stefnir, að sögn Hösk-
uldar, yfir 20.000 tonn á því næsta.
„Ég trúi því að það sé ekki óraun-
hæft að framleiðslan muni nema
30.000 tonnum árið 2020,“ segir hann
og bætir við að landið allt gæti
mögulega borið 50 til 100.000 tonna
fiskeldi, verði rétt að málum staðið.
Til samanburðar framleiða norsk-
ar fiskeldisstöðvar um 1,2 milljónir
tonna árlega og Færeyingar í kring-
um 90.000 tonn. Segir Höskuldur að
ræktunarsvæði Noregs séu komin að
þolmörkum og aukningin í Fær-
eyjum sé einkum drifin áfram af
samþjöppun og hagræðingu, ekki
síst í seiðabúskapnum. Verður for-
vitnilegt að sjá hvað gerist þegar
norska eldið nær hámarki, en eins og
Höskuldur bendir á er eftirspurn
eftir fiski á stöðugri uppleið og
neysla á laxi eykst mikið. „Í dag er
svo komið að um 50% af öllum fiski
sem seldur er í heiminum koma úr
fiskeldi. Sameinuðu þjóðirnar hafa
reiknað það út að á heimsvísu verði
fiskeldi að aukast um 20-30% á
skömmum tíma bara til að halda í við
vænta fólksfjölgun.“
Með pískinn á kerfinu
Íslenska fiskeldið ætti að geta svar-
að kallinu, svo fremi að stjórnkerfið
haldi í við þróunina. „Það er helst að
kerfið sé ekki tilbúið fyrir þennan
vöxt og það þarf að vera með pískinn
á stjórnvöldum svo að eðlilegur hraði
verði á rannsóknum á væntanlegum
eldissvæðum og burðarþolsreikn-
ingum. Þá sárvantar heildræna
stefnu fyrir allt landið sem myndi
skapa þá umgjörð sem þarf til að hér
megi byggja upp öfluga atvinnugrein
til frambúðar,“ segir Höskuldur.
„Verulegir hagsmunir eru í húfi, og
þá ekki síst fyrir íbúa landsbyggðar-
innar. Sem dæmi hefur fiskeldi á Ís-
landi nú þegar skapað atvinnu fyrir
um 400 til 500 manns og er þetta fólk
að framleiða sem jafngildir 50 millj-
ón máltíðum á þessu ári. Spennandi
störf í fiskeldinu og tengdum grein-
um eru að laða unga fólkið aftur
heim í hérað, öfugt við það sem ein-
staka úrtölumenn fiskeldis hafa látið
hafa eftir sér í fjölmiðlum undan-
farið. Meira að segja menntakerfið
er að taka við sér og laga ýmsar
brautir að fiskeldinu og er það
spennandi fyrir okkur í greininni.“
ai@mbl.is
Þriðja bylgjan komin til að vera
Skipta má sögu sjókvía-
eldis á Íslandi í nokkra
kafla. Núna virðist
greinin hafa slitið barns-
skónum og gífurlegur
vöxtur er á milli ára.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Áhrif Að sögn Höskuldar hefur fiskeldi á Íslandi nú þegar skapað atvinnu fyrir um 400 til 500 manns.
Morgunblaðið/Þórður
Margföldun „Aukningin nemur núna nærri 80% á milli ára. Íslenskar fiskeldisstöðvar framleiða á þessu ári 15.000 tonn af slátruðum fiski og er bleikja þar af um 4.000
tonn, lax um 8.000 tonn og afgangurinn tegundir á borð við regnbogasilung og senegalflúru,“ segir Höskuldur. Framleiðslan gæti verið orðin tvöfalt meiri árið 2020.
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016
Heyrst hafa gagnrýnisraddir um
aðkomu norskra aðila að fiskeldi á
Íslandi. Má greina á tóninum að
sumum þyki miður að ávinning-
urinn af uppganginum sem á sér
stað um þessar mundir haldist
ekki allur inni í landinu. Höskuldur
segir gagnrýni af þessum toga
byggja á misskilningi og komi
Norðmennirnir bæði með verð-
mæta þekkingu og fjármagn inn í
íslenskt fiskeldi. „Norðmennirnir
eru mjög framarlega á þessu sviði
og hafa fjárhagslegt bolmagn til
að gera ýmiss konar tilraunir til
að útvíkka sína starfsemi. Við
njótum bara góðs af því ef sú
þekking sem verður til hjá þeim
skilar sér til okkar,“ segir hann.
„Að hafa þá sem meðeigendur að
fyrirtækjunum á Íslandi og sem
samstarfsaðila er eins og ef við
fengjum Messi í íslenska fótbolt-
ann, það getur ekki verið nei-
kvætt! Aðkoma þeirra staðfestir
að við séum á réttri leið hér á
landi með eldið og höfum nú von-
andi öðlast styrkinn til að vaxa
áfram, fyrirtækjunum og atvinnu-
lífinu á landsbyggðinni til heilla.“
Eins og að fá
Messi í ís-
lenska boltann