Morgunblaðið - 31.08.2016, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.08.2016, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum R ætur tryggingafélagsins Varðar liggja í sjávar- útveginum. „Það var árið 1926 að Vélbátasam- trygging Eyjafjarðar var stofnuð og byggjum við starfsemina í dag að hluta á þeim grunni. Höf- um við ekki hvað síst reynt að sinna smábátaútgerðum en í vax- andi mæli einnig þjónustað stærri útgerðir og þá einkum fjölskyldu- útgerðirnar. Þar höfum við átt marga góða viðskiptavini sem hafa fylgt okkur í áraraðir,“ segir Sig- urður Óli Kolbeinsson, fram- kvæmdastjóri vátryggingasviðs Varðar. Bætt tryggingaréttindi Yfir lengri tíma litið er þróunin blessunarlega í þá átt að slysum fer fækkandi bæði um borð í skipunum og eins við vinnslu í landi. Á móti kemur að breytingar sem gerðar voru á tryggingamálum sjómanna upp úr aldamótunum urðu til þess að auka réttindi stéttarinnar og þar með urðu tryggingarnar dýrari. „Í dag fá sjómenn bætur vegna slysa á grundvelli skaðabótalaga, óháð því hver orsök slyssins var. Er það framför frá fyrra kerfi þegar vinnu- slys voru fyrst bætt úr lögbundinni slysatryggingu sjómanna en síðan tók oft við langt og strembið ferli til að meta að hvaða marki vinnu- veitandinn ætti sök á slysinu og væri skaðabótaskyldur.“ Þróunin um borð í skipunum er í dag á þá leið að reka má skipin með minni áhöfn, sem ætti að þýða að slysum fækkaði í samræmi. „En á móti kemur að með fámennari áhöfn getur slysahættan aukist ef meira álag er á hverjum starfs- manni,“ segir Sigurður og bendir jafnframt á að tíðni slysa haldist í hendur við starfsaldur sjómanna. Þegar meiri samkeppni er um hvert pláss og starfsaldurinn lengri fækkar slysunum en ef starfs- mannaveltan eykst fjölgar slysum. Ítarlegt mat „Allir vilja samt fækka slysum og varð sannkölluð bylting með til- komu Slysavarnaskóla sjómanna á 9. áratugnum. Viðhorf sjómannanna sjálfra og stjórnenda útgerðanna hefur tekið miklum breytingum og hugað er vel að þjálfun og for- vörnum.“ Ekki þarf aðeins að kaupa skyldutryggingar vegna sjómann- anna um borð heldur verður líka að tryggja sjálf skipin. Í tilviki stærri skipanna byggir upphæð trygginga- gjaldsins á ítarlegri úttekt sem gerð er á hverju skipi. „Farið er yf- ir tjónasögu og skoðað hvernig við- haldi er sinnt. Við reynum að fá til- finningu fyrir útgerðinni og því verklagi sem þar er beitt. Þegar upp er staðið getur verið mikill munur á hvaða iðgjald er hægt að bjóða eftir því hvernig viðhaldi er sinnt og hvernig er umhorfs í skip- unum.“ Ekki má heldur gleyma trygg- ingaþörfinni í landi. Þar verður sjálfvirknin meiri með hverju árinu og forvitnilegt að skoða hvernig slysaþróunin verður. „Flest störfin sem ég vann sem táningur hjá Út- gerðarfélagi Akureyringa fyrir um 30 árum eru ekki lengur til,“ segir Sigurður um þær breytingar sem hafa átt sér stað í landvinnslu. Duga upphæðirnar? Þó að íslenskir sjómenn verði að teljast almennt mjög vel tryggðir í dag segir Sigurður rétt að minna á að staða sumra smábátasjómanna sé önnur en þeirra sem vinna á stóru skipunum. „Það hafðist í gegn fyrir nokkrum árum að áhafnir smábáta njóta sambærilegra trygg- inga og aðrir sjómenn, en það gildir þá aðeins um þá sem eru starfs- menn um borð. Þeir sem sigla á eigin vegum, einyrkjar og útgerðar- aðilar, hafa ekki sömu skyldu til að kaupa góðu tryggingarnar fyrir sjálfa sig og taka með því ákveðna áhættu.“ Jafnvel þótt skyldutryggingin sé góð segir Sigurður að sjómenn ættu að skoða tryggingastöðu sína vel, enda ekki sjálfgefið að trygg- ingabæturnar sem þeir ættu rétt á yrðu eins háar og þeir þurfa. „Fyr- ir það fyrsta ættu sjómenn að skoða það vel að kaupa viðbótarlíf- tryggingu. Sjómennskan er, þrátt fyrir framfarir undanfarinna ára og áratuga, enn eitt hættulegasta starfið sem hægt er að vinna á Ís- landi og alls ekki víst að dánarbæt- urnar dugi til að standa undir fjár- hagsskuldbindingum eftirlifenda.“ Þegar þörfin fyrir aukalíftrygg- ingu er metin þarf að skoða að- stæður hvers og eins. Segir Sig- urður að tekjur þess sem á að líftryggja, tekjur maka, fjöldi barna og skuldastaða ráði þar mestu. „Ein þumalputtaregla er að líf- tryggingafjárhæðin samsvari laun- um tveggja ára eftir skatt. Gildi þeirrar reglu hefur þó kannski minnkað hin síðari ár og fleiri þættir hafa áhrif á þessa ákvörð- un.“ Áhrif slysa utan vinnu Síðan þarf að skoða þörfina fyrir almenna slysatryggingu. Sjómenn er tryggðir við vinnu sína en trygg- ingar vinnuveitandans ná almennt ekki yfir slys sem verða utan vinnu. „Ég man eftir að hafa lesið það á einhverjum stað að sjómenn eru al- mennt líklegri en aðrir til að slasast í frítíma sínum. Fyrir sjómanninn er líka meira í húfi því að ekki þarf mikið til svo að starfsgeta hans skerðist það mikið að hann geti ekki lengur sótt sjóinn. Starfið er líkamlega krefjandi og slysin kostn- aðarsamari að þessu leyti en t.d. fyrir einstakling sem vinnur skrif- stofustörf,“ útskýrir Sigurður. „Í tilviki sjómanna duga þær fjár- hæðir sem fást með venjulegum fjölskyldutryggingum vegna slysa í frítíma ekki endilega einar og sér.“ ai@mbl.is „Ennþá eitt hættulegasta starfið sem hægt er að vinna á Íslandi Þó að sjómenn njóti í dag betri skyldutrygg- inga en áður ættu þeir að skoða stöðu sína vandlega og athuga hvort þörf er á viðbótar- tryggingu s.s. vegna andláts eða slysa í frí- stundum Morgunblaðið/RAX Viðbúnir Frá björgunaræfingu Landhelgisgæslunnar. Öryggismenningin í sjávarútvegi er stöðugt að batna. Morgunblaðið/Golli Öryggi Sigurður Óli Kolbeinsson segir meira í húfi fyrir sjómenn en margar aðrar stéttir ef slys hendir í frítíma enda kalli starfið á nær óskerta vinnugetu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.