Morgunblaðið - 31.08.2016, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 31.08.2016, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 33 starfsfólksins. Í framhaldinu leitaði Endurmenntunarsjóður sjómanna til okkar með samstarf í huga.“ Að fá starfsreynslu sína metna „Þau ræddu það að þau vildu virkja sjómenn frekar í því að leita í þenn- an fræðslusjóð og afla sér símennt- unar, því þeim fannst skortur þar á,“ bætir Valgeir við. „Við fórum því í svolitlar vangaveltur með þeim varðandi hvað maður gerir fyrir sjó- menn. Þeir eru eðli máls samkvæmt mikið í burtu og erfitt að setja upp námskeið fyrir þá nema um fjarnám sé að ræða að einhverju leyti. Úr varð að við seldum þeim þá hug- mynd að nýta sér raunfærnimat.“ Valgeir útskýrir að raunfærni- matið – sem hafi verið að virka gríð- arlega vel í fullorðinsfræðslunni – gangi út á það að fá starfsreynslu þína metna á móti einhverju ákveðnu námi. Fyrir bragðið megi stytta sér leið í viðkomandi námi. „Það er komin löng og góð reynsla á þetta fyrirkomulag í iðn- greinum ýmiskonar og við ákváðum því að fara þá leið, í samstarfi við fleiri símenntunarmiðstöðvar á Ís- landi, að ráðast í átak á landsvísu í þessum efnum.“ Verkefnið gekk mjög vel, bæði í Eyjafirðinum, á Suðurnesjum og víðar og í dag hafa hátt í 200 manns farið gegnum umrætt raunfærni- mat. Löngun eftir námi kviknar Að sögn Valgeirs hefur matið hvatt viðkomandi starfsmenn til að fara í frekara nám. „Sumir hafa farið í nám við Fiskvinnsluskóla Íslands, þar er raunfærnimatið metið á móti fiskveiðum og fiskvinnslu. Það sem gerist í raunfærnimatinu er að þú ferð og þú finnur að þú hefur ákveðna þekkingu og reynslu á móti einhverju ákveðnu námi. Þá kviknar þessi löngunarhugsun á þá leið að maður geti kannski bara bætt ein- hverju við sig. „Ég get alveg lært!“ er eitthvað sem fólk áttar sig allt í einu á. Það má segja að það verði ákveðin vakning hjá fólki við þetta,“ segir Valgeir. „Það tengir einfaldlega við þetta, finnur að það hefur til að bera þekk- ingu og reynslu og langar að byggja enn frekar á því, og bæta við.“ Raunfærnimatið nýttist mjög vel jafn ólíkum greinum og skipstjórn og netagerð, að sögn Valgeirs „Það var til dæmis alveg frábært að sjá netagerðarmenn fá þarna tækifæri til þess að ljúka við neta- gerð, því margir áttu kannski aðeins lítið eftir til að klára. Það voru ein- staklingar sem voru matartæknar, eða í einhverri iðngrein á borð við vélstjórn eða vélvirkjun, og þessu fólki bauðst einfaldlega að fara í raunfærnimat byggt á því í hvaða grein þeir störfuðu og hvaða reynslu og þekkingu þeir höfðu til að bera. Ýmsar námsleiðir í boði Valgeir nefnir í framhaldinu að Sí- mey hafi ennfremur á boðstólum námsleið sem nefnist Menntastoðir og er bóklegt nám sem nemur 600 kennslustundum. „Þá tekurðu þessar helstu al- mennu greinar úr framhaldsskóla, grunngreinarnar, og þetta er nám sem við þróuðum og útfærðum þannig að það er allt vef- lægt. Það þýðir að nemandinn, í þessu tilfelli sjómaður, getur fengið allt námsefnið á USB- tölvukubbi og hlaðið því svo niður í tölv- una sína. Viðkom- andi hefur um 15 til 17 vikur til að ljúka hverjum áfanga í samstarfi við kenn- arana. Með þessu móti er hægt að taka þessar almennu greinar með mun sveigjanlegra móti en var hægt áður. Í fjarnámi ertu oft með fjórar til sex vikur til að ljúka náminu en þarna er hægt að nýta frítúrana til að vinna í áföngunum og klára verkefnin, og þar sem þegar er búið er að afhenda námsgögnin á tölvukubbi, þá er ekki nauðsynlegt að vera net- tengdur með unnið er.“ Í þessu flest augljós kostur fyrir sjómenn og Valgeir tjáir mér að um þessar mundir séu á bilinu 20 til 25 sjómenn að stunda þessa tilteknu námsleið. Margir komist í framhaldinu á bragðið, vilji læra meira og dæmi séu meira að segja um það að fólk leggi leið sína í háskóla. jonagnar@mbl.is sjómanna Morgunblaðið/Styrmir Kári Valgeir Magnússon, verkefnastjóri hjá Símey. Hafnargata 2, 735 Eskifjörður – Grandagarður 16, 101 Reykjavík egersund@egersund.is egersund.is REYNSLA GÆÐI SAMVINNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.