Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 39

Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 39
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 39 höfn hér og eins sú í Reykjavík munu óhjákvæmilega færast út fyrir borgina og byggðirnar, eftir 40 til 50 ár. Það er eins og við þekkjum það í okkar nálægustu löndum; þetta þarf bara meira pláss því skipin eru að stækka, eru með meiri djúpristu og við verðum einfaldlega að horfa til þeirrar þróunar. Hún er óhjá- kvæmileg, þetta er það sem er og gerist.“ Þáttur Íshússins við höfnina Eins og Lúðvík nefndi að framan þá er Hafnfirðingum mannlífið við höfnina í blóð borið og því fer at- vinnulífið og mannlífið einstaklega vel saman á hafnarsvæðinu. Bæj- arbúar fagna auðsjáanlega þessari nánd og þetta má sumpart segja að kristallist í allri þeirri skapandi handverksstarfsemi sem býr í Ís- húsi Hafnarfjarðar, þar sem nánd- inni við höfnina er hampað í stað þess að gera minna úr henni. Til marks um þetta er veitingastaður sem er þar á jarðhæðinni en þar er hægt að draga frá stóran hurðafleka til að opna út á verönd sem snýr að smábátahöfninni. Lúðvík samsinnir þessu. „Við erum með tvenns konar höfn hér í Hafnarfirði, annars vegar þessa stóru hafskipahöfn þar sem við erum með stóru skipin, vöru- flutningana og öll þessi miklu um- svif. Síðan erum við með opnu höfn- ina sem er fiskibáta-, skemmtibáta- og smábátahöfnin. Þetta er það sem við hér í Hafnarfirði köllum Flens- borgarhöfnina, hér inni í gamla Flensborgarkróknum, og þar er að þróast þetta skemmtilega mannlíf með tilheyrandi menningu, ferða- þjónustu og öðru. Þetta er allt að styrkjast og eflast og Íshúsið hefur haft þar mikið að segja.“ Fólk laðast að hafnarsvæðinu Lúðvík bendir ennfremur á að vinna hafi verið í gangi hjá hafnaryf- irvöldum síðustu eitt til tvö ár um að fá aðila á hafnarsvæðinu til að taka höndum saman um horfa til frekari þróunar og uppbyggingar á þessu svæði. „Sú skipulagsvinna er núna í fullum gangi. Þetta er í takt við það sem við sjáum víðast hvar annars staðar, bæði í Miðbæjarkvosinni í Reykjavík og á fleiri stöðum. Fólk laðast að hafnarsvæðinu og vill hafa tækifæri til að njóta þess að ganga um bryggjurnar og opin svæði í kring sem allir geta farið um. Þetta er bara alveg eins og þegar fólk vill ganga prómenaðinn þegar það er í útlöndum, þetta er alveg það sama. Þess vegna snýst þetta um að opna gönguleiðir, bæta aðgengi og koma upp þjónustu hvort sem það er menning, kaffihús eða önnur starf- semi sem laðar fólk að. Þetta er auð- vitað breyting frá því sem áður var þegar fólk horfði bara á höfnina sem einhvern slorstað. Í dag er orðinn almennur mannlífsbragur á þessu og hér í Hafnarfirði erum við ein- faldlega að stækka miðbæjarsvæðið út í hafnarsvæðið.“ jonagnar@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Hafnarsvæðið heillar Hafnfirðingar fagna nándinni sem er til staðar við höfnina og þar er að finna skemmtilegt mannlíf, ferðaþjónustu, veitingarekstur og hvaðeina. Morgunblaðið/Golli Fjörðurinn „Athafnalífið og hafnarlífið er bæjarbúum í blóð borið, þetta er ein- faldlega partur af mannlífinu og miðbænum. Við erum með höfn í miðbænum.“ Athafnalífið og hafnarlífið er bæj- arbúum í blóð borið, þetta er einfaldlega partur af mannlíf- inu og miðbænum. Morgunblaðið/Golli Aðdráttarafl „Þetta er í takt við það sem við sjáum víðast hvar annars staðar, í Miðbæjarkvosinni í Reykjavík og á fleiri stöðum. Fólk laðast að hafnarsvæðinu.“ Miðpunkturinn í brúnni Maxsea Ítarlegt leiðbeiningarit á íslensku Með Maxsea Time Zero sameinast mikið magn upplýsinga á einn stað. Hægt er að tengja hin ýmsu jaðartæki við Time Zero, s.s. ratsjárloftnet, dýptarmæliseiningu, myndavél, vindmæli o.fl. Allar þessar upplýsingar er hægt að kalla fram á annanhvorn skjáinn sem hægt er að skipta í tvo hluta. Þannig verður Maxsea gríðarmikil upplýsingaveita til hagræðis og þæginda fyrir skipstjórnarmanninn. MaxSea Time Zero Hörður Vilberg Harðarson og Björn Árnason BRIMRÚN EHF Önnur útgáfa 2013

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.