Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 44
Ljósmynd/FMA
Fiskmarkaður Austurlands var stofnaður árið 1998 og er þar í sama húsnæði og í upphafi. Starfsmenn eru fjórir allt árið en fjölgar í sex á sumrin.
Þ
etta er alveg heljarinnar sprettur hjá
okkur á sumrin og haustin þegar
strandveiðin er í gangi og svo þegar
línubátarnir koma á þessar slóðir á
haustin,“ segir Jóhann Hafþór Arn-
arson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Aust-
urlands (FMA). Sýnist honum stefna í að
meiri fiskur fari í ár um markaðinn en áður.
Má því segja að sjávarafli hafi eigi verið svo
svipull eystra.
Hátt í 7.000 tonn fara í gegnum Fiskmarkað
Austurlands á ári og segir Jóhann Hafþór, að
nánast ekkert verði eftir á Austurlandi. „Þetta
fer yfirleitt allt í bíla suður og norður. Ég
mundi segja að 20% færu norður og afgang-
urinn suður. Það verður mjög lítið eftir á
Austfjörðum, kannski hundrað tonn eða svo.
Ólíkt flestum öðrum mörkuðum er FMA
með fimm starfsstöðvar í landshlutanum. Á
Eskifirði, Norðfirði, Stöðvarfirði, á Fáskrúðs-
firði og Seyðisfirði, segir Jóhann Hafþór. „Við
erum með fjóra starfsmenn árið um kring en
fjölgar í fimm til sex yfir sumarið.
Flökkubátar, þessir línubátar
Á veturna erum við mest í því að þjónusta
línubáta og togara. Þetta eru flökkubátar,
þessir línubátar, þeir koma flestir að sunnan
þegar mest og best veiði er út af Austfjörð-
unum. Þetta eru svona sex til sjö bátar yf-
irleitt sem við erum að þjónusta. Þá löndum
við aflanum fyrir fyrirtækin, merkjum þeim
hann og hann fer suður. Síðan seljum við fyrir
þá allar aukasortir, þeir hirða yfirleitt þorsk-
inn sjálfir.“
FMA var stofnaður 1998 og hefur verið
tengiliður milli útgerðar og fiskvinnslu. Hann
tekur við öllum tegundum og miðlar fiski frá
seljendum til kaupenda og annast alla um-
sýslu við þá yfirfærslu. Fiskmarkaðurinn
vinnur bæði fyrir kaupendur og seljendur og
veitir þeim margvíslega þjónustu í tengslum
við meðhöndlun fisksins.
Jóhann segir að rekja megi aukningu í lönd-
uðum afla til strandveiðanna annars vegar og
tíðra landana Fáskrúðsfjarðartogarans Ljósa-
fell hins vegar. „Ljósafellið hefur landað tals-
vert hjá okkur en skipið er í eigu Loðnuvinnsl-
unnar á Fáskrúðsfirði sem er að laga hjá sér
fiskvinnsluhúsið en heldur skipinu samt úti. Af
þeim sökum hefur komið aðeins meiri afli á
markaðinn.“
Líflegt á sumrin
Hafnarsvæðin á athafnasvæði Fiskmarkaðar
Austurlands eru mun lífmeiri yfir sumarmán-
uðina, að sögn Jóhanns. „Á sumrin eru þetta
60 til 70 báta að landa hjá okkur. Þá er rosa-
lega mikið fjör hjá okkur og líka á haustin
þegar línubátarnir eru aftur komnir hingað.
Við höfum verið að selja rúm fjögur þúsund
tonn af fiski á ári undanfarin ár og til viðbótar
þjónusta svona 2.500 til 3.000 tonn þar sem við
sjáum um að landa aflanum, merkja hann og
koma í flutningabíla.
– Er landburðurinn stöðugur milli ára?
„Já, það hefur verið það, mjög stöðugt. Við
höfum verið að selja um 3.900 til 4.400 tonn ár
eftir ár. Og ég held jafnvel að þetta ár verði
jafnvel stærra. Já, það hefur gengið mjög vel
fiskiríið á þessu ári. Aflinn er seldur víða,
hann dreifist um allar jarðir.“
– Er lítið um komur togara á markaðinn?
„Þeir koma bara annað slagið, að Ljósafell-
inu frátöldu sem hefur verið hér nokkuð mik-
ið. Það er algengt að togarar að norðan og
sunnan komi hingað og landi þegar veiðin er
út af Austfjörðunum. Þá landa þeir hérna á
Eskifirði og Norðfirði og öllum afla er keyrt í
flutningabílum norður. Þeir hirða yfirleitt
þorsk, ýsu og karfann sjálfir en aukasortir
fara á markað. Það eru þó oftast ekki nema
örfá kör.“
Einkennist af harki
Uppboð hjá Fiskmarkaði Austurlands fer
fram í sölukerfi Reiknistofu fiskmarkaða
klukkan 13 alla virka daga. Kaupendur geta
því tengst uppboðskerfinu frá tölvum sínum
hvar sem er í heiminum.
Þegar komið er með fisk til sölu sjá starfs-
menn FMA um að skrá fiskinn í sölukerfi
Reiknistofunnar. Skráðar eru upplýsingar um
veiðisvæði, þyngd, aldur, stærð, hitastig og
veiðarfæri ásamt rekjanlegu auðkenni karsins
sem fiskurinn er í. FMA tekur einnig við til-
kynningum frá áhöfnum skipa um afla sem er
á leið í land þegar uppboðið fer fram og þarf
þá áhöfnin að gera grein fyrir áðurnefndum
atriðum.
Jóhann Hafþór segir starfsemina einkenn-
ast nokkuð af harki. „Þetta er svo sem svipað
hjá öllum þessum mörkuðum. Hjá okkur er
þetta nokkuð erfitt af því að við erum með svo
margar starfsstöðvar. Við þurfum alltaf að
vera með menn og tvo lyftara á hverjum stað.
Það er dýrt að reka þetta en það er sama, það
kemur innkoma á móti.“
agas@mbl.is
Eigi svo svipull afli
Fiskmarkaður Austurlands tekur við öllum tegundum og miðlar fiski frá seljendum til kaupenda og annast alla umsýslu við þá yf-
irfærslu. Fiskmarkaðurinn vinnur bæði fyrir kaupendur og seljendur og veitir þeim margvíslega þjónustu í tengslum við meðhöndlun
fisksins, segir framkvæmdastjórinn Jóhann Hafþór Arnarson.
Athafnasvæði Fiskmarkaðar Austurlands á Eskifirði er við Strandgötuna þaðan sem fallegt útsýni er yfir fjörðinn eins og hér má sjá.
Uppboð hjá Fiskmarkaði Austur-
lands fer fram í sölukerfi Reikni-
stofu fiskmarkaða klukkan 13 alla
virka daga. Kaupendur geta því
tengst uppboðskerfinu frá tölvum
sínum hvar sem er í heiminum.
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016