Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 52

Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N HáþrýstidælurGufudælur Öflugir vinnuþjarkar Háþrýstistöðvar og dælur HDC Classic Háþrýstistöð fyrir 1-3 notendur ■ Vatnsflæði: 700-2000 l/klst ■ Þrýstingur: 80 eða 160 bör ■ Hámarks hitastig: 85 / 60°c HDC Standard Háþrýstistöð fyrir 1-8 notendur ■ Vatnsflæði: 700-8000 l/klst ■ Þrýstingur: 80 eða 160 bör ■ Hámarks hitastig: 85 / 60°c HD 9/18-4 ST Háþrýstistöð fyrir 1 notanda ■ Vatnsflæði: 460-900 l/klst ■ Þrýstingur: 40-180 bör ■ Hámarks hitastig: 70°c C urio er í hópi yngri há- tæknifyrirtækja á Íslandi og framleiðir vinnslutæki fyrir sjávarútveginn. El- liði Hreinsson er fram- kvæmdastjóri og eigandi Curio en hann stofnaði reksturinn árið 2008. „Ég byrjaði með einn starfsmann og svo vatt þetta bara upp á sig,“ segir hann en í dag eru starfsmenn- irnir um 25 talsins og Curio með lager og söluskrifstofu í Aberdeen auk starfsstöðvar á Húsavík. „Ég er núna að stækka reksturinn á Húsa- vík og bæta við mönnum í rólegheit- um. Margir viðskiptavinir okkar eru á Norður- og Austurlandi og fannst mér sjálfsögð þjónusta við þá að hafa varahlutalager og þjónustustöð á svæðinu. Á milli viðhaldsferða fást strákarnir þar við ýmsa grunnfram- leiðslu,“ segir Elliði. „Þegar ég byrjaði á þessu árið 2008 lofaði ég konunni að þetta yrði bara lítið og sætt fjölskyldufyrir- tæki og eitthvað sem ég myndi sinna í bakgarðinum, en það loforð er löngu fokið út í veður og vind,“ bætir hann glettin við. Núna býður Curio upp á fjórar vélar fyrir fiskvinnslur: hausara, roðflettivél, flökunarvél og brýn- ingavél. Þá segir Elliði tvær vélar til viðbótar í þróun og fékk fyr- irtækið nýlega styrk úr norskum nýsköpunarsjóði til að gera vél sem ætlað er að mæta þörfum Noregs- markaðar. Fundu gat á markaðinum Elliði lærði á sínum tíma stálsmíði, vélvirkjun og rennismíði og rak áð- ur fyrirtækið Fiskvélar. Hann segir tækin sem Curio hannar og smíðar mæta kröfum markaðarins um enn betri nýtingu og betra útlit á afurð- inni. „Við komum auga á gat á markaðinum til að gera betur við þá sem vinna hvítan bolfisk, en sam- keppnisaðilar okkar hafa einkum beint sjónum sínum að eldislaxi og uppsjávarfiski,“ segir Elliði. „Vél- arnar okkar ráða bæði vel við mis- munandi hráefni og að ég best veit erum við eina fyrirtækið sem getur skaffað flökunarvél sem ræður við 20 kílóa þorsk.“ Að útskýra nákvæmlega í hverju sérstaða tækjanna frá Curio er fólg- inn er hægara sagt en gert. Gantast Elliði með það að hann geti sett sig í spor fisksins á leið sinni í gegnum vélina. „Í raun er árangurinn af- rakstur endalausrar yfirlegu og prófana þar sem reynt er að ná æ betri tengingu á milli vélarinnar og hráefnisins.“ Reksturinn virðist hafa farið mjög vel af stað og það þrátt fyrir að fyrirtækið hafi verið stofnað á sjálfu kreppuárinu. „Ég verð að játa að við urðum aldrei vör við krepp- una, og nánast frá fyrsta degi að við höfum þurft að glíma við það lúx- usvandamál að vanta meiri fram- leiðslugetu og meiri afköst til að sinna öllum pöntunum.“ Megnið selt til útlanda Í dag er Curio búið að koma nokkuð vel undir sig fótunum. Áætlar Elliði að um 10-15% framleiðslunnar séu seld innanlands en afgangurinn fer til kaupenda erlendis. „Við erum að selja mikið til Skotlands, Bretlands og Noregs, einnig til Bandaríkjanna s.s. til Alaska og Seattle, og að auki til Póllands, Lettlands, Litháens og Hollands.“ Skrifar Elliði þessa góðu byrjun meðal annars á það að þegar Curio var stofnað hafði hann þegar nærri 20 ára reynslu á þessu sviði. „Suma viðskiptavinina okkar hef ég þekkt frá miðjum 9. áratugnum og á ég þeim mikið að þakka að hafa prófað tækin frá Curio og leyft fyrirtækinu að sanna sig. Sem dæmi eigum við í mjög góðu sambandi við sjávar- útvegsfyrirtækin í Grindavík en þar eru í dag yfir 20 vélar frá Curio í notkun. Einhamar, Ísfiskur og Toppfiskur hafa verði okkur verð- mætir samstarfsaðilar og tekið þátt í þróuninni með okkur.“ Allt það besta í einu landi Þá hjálpar það líka nýju fyrirtæki eins og Curio að þegar skuli vera til staðar í landinu mörg öflug fyr- irtæki sem framleiða búnað fyrir sjávarútveg. Segir hann erlenda kaupendur sem ferðast til Íslands til að heimsækja einn framleiðanda gjarnan taka líka hús á hinum. „Þeir hafa margir á orði hversu ótrúleg upplifun það er að finna hér á tiltölulega litlu svæði allt það nýj- asta og besta í reksturinn hjá sér. Þá eiga framleiðendurnir oft í góðu samstarfi sín á milli, öllum til hags- bóta.“ ai@mbl.is „Afrakstur endalausrar yfirlegu og prófana“ Rekstur Curio hefur stækkað hratt á skömmum tíma. Vél- arnar eiga að nýta hrá- efnið betur og skila fal- legri vöru. Fjölhæfni Að sögn Elliða hafa vélarnar meðal annars þann eiginleika að ráða vel við mismunandi hráefni. Ólíkar tegundir fiska í ólíkum stærðum renna í gegn. Morgunblaðið/Eggert Metnaður Elliði Hreinsson segir tvær vélar til viðbótar í þróun. Nýlega fékk fyrirtækið eftirsóttan norskan styrk. Tækni Fyrirtækið hefur vaxið hratt á skömmum tíma og stækkar enn. Á sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin verður í Hörpu 24.- 25. nóvember verður fram- úrstefnulegum nýsköpunar- hugmyndum veitt viðurkenn- ing. Auglýst hefur verið eftir slíkum hugmyndum og er markmiðið að þær séu fram- sæknar og frumlegar og skapi umræðugrundvöll eða nýja hugsun. Frestur til að skila inn um- sóknum er 25. október og er eingöngu gert ráð fyrir að framúrstefnuhugmyndin verði send inn rafrænt. Árið 2015 voru fjórar slíkar hugmyndir kynntar og gert er ráð fyrir svipuðum fjölda á þessu ári. Nánari upplýsingar á www.sjavarutvegsradstefn- an.is. Viðurkenn- ingar fyrir frumlegar- hugmyndir mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.