Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. S E P T E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  214. tölublað  104. árgangur  NÝ UPPFÆRSLA ÞORLEIFS Á IBSENHÁTÍÐINNI REYNSLU- AKSTUR OG KYNNINGAR HÆTTULEGUR MEÐ HÁRBEITTAR TENNURNAR BÍLAR 32 SÍÐUR BLÁHÁFAR BÍTA Á KRÓKA 11NORSKA ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 30  Kynnisferðir ehf. keypti 70 nýjar rútur á árinu. Samkvæmt upplýs- ingum frá Samgöngustofu hafa alls 340 hópbifreiðar verið nýskráðar það sem af er árinu. Hópbifreiðar á skrá hjá Samgöngustofu eru orðnar 2.775 talsins. Til viðmiðunar voru skráðar hópbifreiðar á Íslandi árið 2001 aðeins 1.711. Rútubransinn hefur gengið mjög vel síðan sprengja varð í komu ferðamanna til landsins árið 2009. Eins og landsmenn þekkja þá hefur þeim fjölgað mjög á hverju ári síð- an. Að sögn Kristjáns Daníelssonar, forstjóra Kynnisferða ehf., er sæta- nýtingin margfalt betri en hún var. Þannig hafi velta fyrirtækisins frá 2011 margfaldast en bílaflotinn ekki nema tvöfaldast. »4 Ljósmynd/Hrefna Magnúsdóttir Magn og gæði Rútur hérlendis eru mun fleiri og betri í dag en áður var. Hópbifreiðaflotinn hefur stækkað veru- lega síðustu ár  Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, for- maður Fram- sóknarflokksins, segist ekki eiga von á mótfram- boði frá Sigurði Inga Jóhanns- syni, varafor- manni flokksins, á fyrirhuguðu flokksþingi Framsóknarflokksins. „Við Sigurður Ingi höfum unnið lengi saman og ræðum bara málin okkar á milli. Hann hefur sagt all- oft, bæði opinberlega og á fundum með mér, að hann myndi aldrei bjóða sig fram gegn mér,“ segir Sigmundur Davíð. »2 „Myndi aldrei bjóða sig fram gegn mér“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Annar áfangi Íslenska djúpbor- unarverkefnisins hófst formlega í gær. Þá var byrjað á hinni eig- inlegu djúpborun á borholu HS Orku við Reykjanesvirkjun. Stefnt er að því að bora niður á 5 kíló- metra dýpi og sækja þangað orku í um 500 stiga hita. Ef það tekst er það í fyrsta skipti sem borað er svo djúpt á jarðhitasvæði á Íslandi. Til undirbúnings var hola nr. 15 dýpkuð úr 2,5 km í 3 kílómetra og öll holan fóðruð með stálröri sem steypt er í bergið. Þetta er tækni- lega erfitt verkefni en tókst vel. Nú tekur við stefnuborun undir vinnslusvæði Reykjanesvirkjunar. Hún tekur einhverja mánuði. „Markmiðið er að kanna djúplæg jarðhitakerfi. Sjá hvað er fyrir neð- an það kerfi sem við erum nú að vinna úr. Við vitum ekki hvað er undir, getum aðeins giskað á það. Við þekkjum þó af reynslunni að hitastig og þrýstingur vex með dýpi. Hærri þrýstingur og hiti hef- ur í för með sér hærra orkuinni- hald. En jafnframt er efnasamsetn- ing vökvans oft erfiðari,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, en fyrirtækið hefur forystu um verkefnið. »10 Djúpborun hafin á Reykjanesi Borun Jarðborinn Þór að störfum við borholu nr. 15 á Reykjanesi.  Áætlað að bora á allt að 5 km dýpi  Dýpsta jarðhitaholan Haustmánuð-irnir í ár og í fyrra hafa verið drjúgir við höfn- ina á Siglufirði. Línubátar alls staðar að af land- inu hafa landað þar undanfarið. Í gær var verið að landa úr tveimur stórum rækjuskipum. Fiskmarkaður Siglu- fjarðar sér um alla löndun þar og voru tvö gengi að landa. „Þessi umsvif hér á Siglufirði eru orðin meira og minna allt árið,“ sagði Steingrímur Óli Hákonarson hjá Fiskmarkaði Siglufjarðar. »14 Mikil umsvif við höfnina á Siglufirði Siglufjarðarhöfn Margir landa þar. Mikið hefur rignt á landinu undanfarið og enn er væta í veðurkortunum. Skemmtiferðaskipið Ca- ribbean Princess hafði viðkomu á Akureyri í gær. Ferðafólkið lét rigninguna ekki aftra sér heldur dró upp regnhlífarnar. Veðurstofan gerir ráð fyrir norðvestan 8-15 m/s vindi í byrjun dags og rigningu í flestum landshlutum, síst þó á Austfjörðum. Síðan dregur úr vindi og léttir til víðast hvar eftir hádegið. Farþegar skemmtiferðaskipsins Caribbean Princess létu rigninguna ekki á sig fá Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Rigningin buldi á regnhlífunum Íslensku bankarnir voru færðir kröfuhöfum með mikilli meðgjöf frá skattgreiðendum og með gríðarlegri áhættu fyrir ríkissjóð árið 2009. Þetta kemur fram í skýrslu meiri- hluta fjárlaganefndar Alþingis um einkavæðingu bankanna hina síðari sem kynnt var í gær. „Þessi ráðstöfun gekk þvert gegn neyðarlögunum sem sett voru í október 2008, en þar var gert ráð fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á föllnu bönkunum undir yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins [FME]. Án lagaheimildar tók Steingrímur J. Sigfússon þáverandi fjármálaráð- herra þetta verkefni af FME. Ráðu- neyti hans gekk til samninga við kröfuhafa föllnu bankanna með þeim hætti að ríkið tók á sig alla áhættu af rekstri bankanna,“ segir m.a. í skýrslunni. Þá er fullyrt að ríkissjóður hafi verið settur í áhættu fyrir 296 milljörðum króna við endurreisn bankanna. Einnig að með því að taka fram fyrir hend- urnar á Fjármálaeftirlitinu hafi fjár- málaráðherra gloprað niður gríðar- legum ávinningi. Steingrímur sagði í gærkvöldi að búið væri að hrekja öll þau ósann- indi sem fram kæmu í skýrslunni, m.a. af Seðlabanka Íslands, Fjár- málaeftirlitinu og fjármálaráðuneyt- inu. Hann sagði það hafa verið gríð- arlega veigamikla og afdrifaríka aðgerð að koma nýju fjármálakerfi af stað eftir efnahagshrunið. „Án fullfjármagnaðra banka hefði engin endurreisn getað hafist,“ sagði Steingrímur og bætti við að í seinni tíð hefði jafnframt komið í ljós að ríkissjóður hefði endurheimt allt það sem lagt var í endurreisn bankakerfisins á sínum tíma og gott betur. Mikil meðgjöf, gríðarleg áhætta  Segja Steingrím J. Sigfússon ekki hafa haft lagaheimild þegar Fjármálaeftirlitið var sniðgengið  Steingrímur segir búið að hrekja ósannindi sem fram komi í skýrslunni um einkavæðingu bankanna Mikill hagnaður » Samanlagður hagnaður við- skiptabankanna frá 2009 nem- ur tæpum 469 milljörðum króna. » Nú hafa bankarnir greitt eig- endum sínum tæpa 136 millj- arða fyrir sama tímabil. MTók á sig »6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.