Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Runólfur Gunnlaugsson Löggiltur fasteignasali 892 7798 runolfur@hofdi.is Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali 824 9093 kjartan@eignamidlun.is Magnús Leópoldsson Löggiltur fasteignasali 550 3000 | 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is Ólafur Finnbogason Löggiltur fasteignasali 822 2307 olafur@miklaborg.is FRÁBÆRT TÆKIFÆRI Í FERÐAÞJÓNUSTU 99 íbúðir til sölu á Bifröst Til sölu eru 99 íbúðir að Hamragörðum 1 og við Sjónarhól á Bifröst sem seldar verða í einu lagi til sama aðila, auk möguleika á að kaupa rekstrarfélag Hótels Bifrastar. Bifrastarsvæðið er vel staðsett og umkringt friðsælli og fallegri náttúru í vaxandi ferðaþjónustuhéraði. Hótel- reksturinn er í góðri sátt við Háskólann á Bifröst og er m.a. í samstarfi við skólann um ráðstefnuhald. Nánari upplýsingar um eignirnar veita neðangreindar fasteignasölur. 51 íbúð Hamragarðar 1 48 íbúðir Sjónarhóll í allar áttir Stutt við háskólann Samvinna Hótels Bifrastar Rekstur náttúra Friðsæl Morgunblaðið/Styrmir Kári Kýr Auðhumla kaupir mjólkina og selur áfram til vinnslunnar. Samvinnufyrirtæki bænda, Auð- humla, hefur tekið við allri sölu á ógerilsneyddri mjólk. Hún mun selja mjólkina áfram til Mjólk- ursamsölunnar og sjálfstæðra framleiðenda, eins og til dæmis KS, Örnu og Kú. „Meginmarkmiðið er að bregð- ast við tilmælum og umræðu í samfélaginu um að skilja betur á milli söfnunar á mjólk og vinnslu hennar,“ segir Jóhannes Torfa- son, bóndi á Torfalæk og varafor- maður Auðhumlu. Hann telur að ekki verði miklar breytingar í raun, við þessa skipulagsbreytingu. MS kaupi eft- ir sem áður meginhluta þeirrar mjólkur sem Auðhumla kaupir af bændum. Sjálfstæðir vinnsluað- ilar, eins og Kú og Arna og einn- ig Kaupfélag Skagfirðinga muni þó kaupa þá mjólk sem þeir þurfi af Auðhumlu en ekki MS eins og verið hefur. Jóhannes tekur fram að ekki hafi verið ákveðið að fella niður þá afslætti sem sjálfstæð mjólkurvinnslufyrirtæki hafa not- ið hjá MS frá því á síðasta ári. Auðhumla er samvinnufélag bænda og á rúmlega 90% Mjólk- ursamsölunnar á móti Kaupfélagi Skagfirðinga. Auðhumla og MS safna mjólk frá öllum kúabænd- um í landinu, utan samlagssvæðis KS. Forstjóri MS var jafnframt for- stjóri Auðhumlu, þangað til nú- verandi forstjóri MS tók til starfa. Við ráðningu hans var ákveðið að skilja betur á milli fyr- irtækjanna með því að ráða sér- stakan framkvæmdastjóra fyrir Auðhumlu. Garðar Eiríksson tók til starfa um síðustu áramót. Sami stjórnarformaður er í báðum fé- lögunum og aðrir stjórnarmenn að miklu leyti. helgi@mbl.is Skilja á milli söfnunar og vinnslu  Auðhumla tekur yfir sölu hrámjólkur til sjálfstæðra mjólkurvinnslufyrirtækja Þorsteinn Bergs- son bóndi leiðir lista Alþýðufylk- ingarinnar í Norðaustur- kjördæmi í al- þingiskosning- unum sem fyrirhugaðar eru í haust. Þorsteinn er bóndi á Unaósi í Hjaltastaðaþinghá á Fljótsdalshéraði og sjálfstætt starfandi þýðandi. Kona hans er Soffía Ingvarsdóttir framhalds- skólakennari. Fram kemur í tilkynningu frá Al- þýðufylkingunni að Þorsteinn hafi um árabil talað sem málsvari ein- dreginnar vinstristefnu, umhverf- isstefnu í anda sjálfbærrar þróunar og þess að stjórnvöld búi þegnum þjóðfélagsins, hver sem efnahagur þeirra eða búseta er, frá sinni hendi sem jafnasta aðstöðu. Þorsteinn fer fram fyrir Alþýðufylk- inguna Þorsteinn Bergsson Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, tekur oddvitasætið á framboðslista flokksins í Reykja- víkurkjördæmi norður vegna kom- andi alþingiskosninga. Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, verður í oddvitasæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Voru framboðslistarnir í báðum Reykja- víkurkjördæmum samþykktir sam- hljóða á félagsfundi flokksins í gær. Meðal annarra frambjóðenda á lista í Reykjavíkurkjördæmi suður má nefna Kolbein Óttarsson Proppé ráðgjafa í 2. sæti listans og Uglu Stefaníu Jónsdóttur, fræðslustýru Samtakanna ’78, í 5. sæti. Í Reykjavíkurkjördæmi norður má m.a. nefna Steinunni Þóru Árna- dóttur alþingismann í 2. sæti og Andrés Inga Jónsson alþjóðastjórn- málafræðing í 3.sæti. Katrín og Svandís oddvitar í Reykjavík Katrín Jakobsdóttir Svandís Svavarsdóttir Ellefu ökumenn hafa á síðustu dög- um verið kærðir fyrir of hraðan akst- ur í umdæmi lögreglunnar á Suð- urnesjum. Þar af voru átta sem óku of hratt í nágrenni við skóla, þar sem hámarkshraði er alla jafna 30 km á klukkustund. Á Reykjanesbraut mældist sá sem hraðast ók á 136 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þá voru tveir ökumenn til viðbótar færðir á lögreglustöð þar sem sýna- tökur staðfestu neyslu þeirra á fíkni- efnum, segir í frétt frá lögreglunni. Hraðakstur kærður á Suðurnesjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.