Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
„Mér þykir þetta mikill heiður hvað
Íslendingar sýna tónleikum mínum
mikinn áhuga. Það er orðið nokkuð
síðan ég var hér síðast og það er
yndislegt að fá svona hlýjar mót-
tökur,“ segir norska söngkonan Sis-
sel Kyrkjebø sem heldur þrenna
tónleika í Eldborg í Hörpu í desem-
ber.
Upphaflega stóð til að Kyrkjebø
syngi á aðeins einum tónleikum, 11.
desember, en þar sem þeir miðar
seldust upp á örskotsstundu var
ákveðið að bæta við aukatónleikum
þann sama dag. Þeir miðar fóru
einnig fljótt svo nú hafa þriðju tón-
leikarnir verið settir á dagskrá; 12.
desember. Miðasala á þá tónleika
hefst fimmtudaginn 15. september.
Kyrkjebø segir það forréttindi að
fá loksins að sjá Ísland í grænum lit-
um, með laufguð tré en hún er stödd
hérlendis til að sinna kynningar-
starfsemi og hitta fjölmiðla fyrir tón-
leikana í desember.
„Í Noregi er afar heitt núna, 24
stiga hiti og yfir, sem er mjög
óvenjulegt fyrir þennan árstíma en
það er búið að vera mjög heitt í Nor-
egi í allt sumar. Það er því gott að
komast hingað í aðeins „eðlilegra“
og kaldara loftslag og ekki síst að fá
að sjá Ísland á öðrum árstíma. Í
þessi þrjú skipti sem ég hef komið
hingað hefur það alltaf verið í des-
ember, þótt ég reyndar kunni ekki
síður að meta Ísland í þeim skrúða,“
segir söngkonan og bætir við að hún
sé alltaf á leiðinni hingað til lands
með dætur sínar í ferðalag.
„Ísland hefur svo ótrúlega mörg
sérkenni sem hafa alltaf sterk áhrif
á mig þegar ég kem hingað og veita
mér mikinn innblástur. Fyrst og
fremst er það þessi ótrúlega náttúra
en það er líka fólkið sjálft og um-
hverfið; tískan, hönnunin, allt þetta
sem er að gerast hjá ykkur í menn-
ingunni.“
Hvað geturðu sagt komandi tón-
leikagestum um hvernig tónleikum
þeir mega eiga von á í Eldborg?
„Þessir tónleikar eru nokkuð ólík-
ir þeim sem ég var með síðast árið
2012. Ég byrjaði með þessa dagskrá
í Noregi fyrir um fjórum árum og í
stað þess að blanda saman jóla-
tónlist og klassískri tónlist er þetta
blanda af jólatónlist og sálartónlist
og gospel.
Þetta eru samt fyrst og fremst
jólatónleikar og fyrir mér snúast jól-
in um hefðir, gleði og hamingju. En
einnig það að líta til baka; hugleiða
hvað hafi gerst á árinu. Sjálf fer ég
yfir það í huganum á aðventunni
hvernig árið var, hugsa til þeirra
sem mér þykir vænt um, fólks sem
er kannski ekki lengur meðal okkar.
En svo hefur maður orkuna og
spennuna og allt það sem fylgir jól-
unum þegar maður er barn.
Ég reyni að blanda öllum þessum
tilfinningum inn í tónleikana og
klassísku jólalögin kalla þetta allt
fram en líka sálartónlistin sem er
svo hjartnæm.“
Þrír sálarsöngvarar frá London
munu koma fram með Kyrkjebø en
það eru þeir Wayne Hernandez,
Sam White og Phebe Edwards en
þeir hafa allir sungið með stjörnum
á borð við Tinu Turner, Duran Dur-
an, Annie Lennox og Adele.
„Þeir eru frábærir söngvarar en
ekki síðri félagar. Þessi blanda af
norrænum óm jólalaga og ensk-
amerískri sálartónlist er virkilega
góð og hefur mælst vel fyrir hjá tón-
leikagestum síðustu árin. En það eru
engir jólatónleikar í mínum huga án
„Heims um ból“ og klassísku perl-
anna.“
Þá mun hinn 18 ára gamli tenór
Ari Ólafsson syngja dúett með
Kyrkjebø en síðast þegar hann söng
með stórsöngkonunni var hann 14
ára gamall drengjasópran. Íslend-
ingar þekkja Ara að góðu – til að
mynda úr söngleiknum Oliver þar
sem hann söng titilhlutverkið árið
2009.
„Ég hlakka mikið til að hitta Ara,
af myndum að dæma er hann orðinn
talsvert hávaxnari og ég er nýlega
búin að heyra hann syngja og röddin
hans er ótrúleg! Það er gaman að fá
að fylgjast með svona hæfileikafólki
þroskast og þróast og fá tækifæri til
að syngja með honum núna full-
orðnum.“
Kyrkjebø segir að það að koma
fram fyrir hóp fólks sem er komið til
að hlusta á hana syngja sé eitt það
besta sem hún geri. Síðast þegar
hún var á Íslandi segist hún hafa
skynjað vel að tónleikagestir kunnu
þá list að gleyma öllu amstri og njóta
stundarinnar.
„Það var eitthvað einstakt við það
að syngja í Hörpu. Maður nær
einkar góðu sambandi við áheyr-
endur í þessu rými, næstum eins og
maður sitji úti í sal hjá þeim.
Að syngja fyrir fólk á aðventunni
er eilítið öðruvísi en að syngja á öðr-
um árstíma. Fólk vill finna að jólin
séu nær eftir tónleika á þessum árs-
tíma, fá forsmekk af hátíðarkyrrð-
inni og jafnvel komast alveg í jóla-
skapið. Það er það sem er svo
frábært við tónlist. Maður getur ver-
ið í afar litlu jólaskapi en hlustað á
ákveðna tónlist og hugarástandið
verður allt annað.“
Margir hafa það fyrir venju að
fara á jólatónleika í desember en
hvað með Kyrkjebø sjálfa? Er eitt-
hvað á aðventunni sem hún heldur
alltaf í heiðri?
„Já. Ég hreinlega verð að baka.
Hins vegar er oft svo lítill tími því ég
er að syngja á svo mörgum tón-
leikum í desember að það gefst ekki
tími til þess svo ég enda oft á að
baka á jólakvöld. Að fara í messu
færir mér líka alltaf jólin. Dætur
mínar eru hins vegar vanar að
ferðast um allar trissur með mér í
desember á tónleikaferðalögum og
fyrir þeim eru það eiginlega jólin.
Þegar ég tók mér smá pásu og söng
ekkert í desember einu sinni fannst
þeim sárlega eitthvað vanta,“ segir
Kyrkjebø en dagskráin í ár er afar
þétt og ekki aðeins á Íslandi þar sem
fólk bíður í biðröðum eftir að fá miða
á tónleika hennar. Hún segir að þeg-
ar vertíðinni í desember ljúki upplifi
hún þó alltaf smá söknuð.
„Hópurinn er svo samrýndur, eins
og fjölskylda sem nýtur þess að vera
saman á aðventunni. Við erum glöð
að fara í frí en erum líka sorgmædd
yfir því að þurfa að kveðjast.“
Morgunblaðið/Eggert
„Ísland hefur svo ótrúlega mörg sérkenni sem hafa alltaf sterk áhrif á mig þegar ég kem hingað og veita mér mik-
inn innblástur,“ segir norska söngkonan Sissel Kyrkjebø sem syngur á þrennum tónleikum í Hörpu í desember.
Ísland veitir mik-
inn innblástur
Sissel Kyrkjebø segir einstakt að syngja í Hörpu
Kvikmyndin Eiðurinn skilaði mest-
um miðasölutekjum af þeim kvik-
myndum sem sýndar voru um
helgina í bíóhúsum landsins. Alls
sáu tæplega 9 þúsund áhorfendur
myndina um helgina sem skilaði
tæpum 13 milljónum íslenskra
króna í kassann. Myndin fjallar
um hjartaskurðlækninn Finn sem
grípur til örþrifaráða þegar hann
kemst að því að dóttir hans er
komin í neyslu eiturlyfja. Leik-
stjóri er Baltasar Kormákur sem
sjálfur fer með hlutverk Finns, en
í öðrum lykilhlutverkum eru Hera
Hilmarsdóttir og Gísli Örn Garð-
arsson.
Næstmestum tekjum helgarinnar
skilaði sannsögulega hasarmyndin
War Dogs, en rúmlega 10.600
áhorfendur hafa séð myndina frá
því hún var frumsýnd fyrir tveim-
ur vikum og hefur það skilað tæp-
um 14 milljónum í tekjur.
Bíóaðsókn helgarinnar
Dramatík Hera Hilmarsdóttir og Gísli Örn Garðarsson í hlutverkum sínum í
myndinni Eiðinum sem dóttirin og kærasti hennar sem er þekktur dópsali.
Eiðurinn beint á toppinn
Eiðurinn Ný Ný
War Dogs 1 2
Mechanic: Resurrection Ný Ný
Secret Life of Pets (Leynilíf gæludýra) 2 6
Robinson Crusoe 3 2
Kubo og strengirnir tveir Ný Ný
Suicide Squad 6 6
Níu Líf (Nine Lives) 7 3
Bad Moms 9 6
Pete´s Dragon 12 4
Bíólistinn 9.–11. september 2016
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 16/9 kl. 20:00 86. sýn Sun 2/10 kl. 20:00 94. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 102. s.
Lau 17/9 kl. 20:00 87. sýn Fim 6/10 kl. 20:00 95. sýn Fim 20/10 kl. 20:00 103. s.
Sun 18/9 kl. 20:00 88. sýn Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s.
Fös 23/9 kl. 20:00 89. sýn Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s.
Lau 24/9 kl. 20:00 90. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s.
Sun 25/9 kl. 20:00 91. sýn Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s.
Fös 30/9 kl. 20:00 92. sýn Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s.
Lau 1/10 kl. 20:00 93. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s.
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 24/9 kl. 13:00 Frums. Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn
Sun 25/9 kl. 13:00 2. sýn Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Sun 9/10 kl. 13:00
Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn Lau 24/9 kl. 20:00 6. sýn
Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn Sun 25/9 kl. 20:00 8. sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn
Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas.
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
NJÁLA – ★★★★ „Unaðslegt leikhús“ S.J. Fbl
Atvinnublað alla laugardaga
mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?