Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 ✝ Svanhvít Reyn-isdóttir fædd- ist í Reykjavík 13. apríl 1930. Hún lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 26. ágúst 2016. Foreldrar Svan- hvítar voru Reynir Guðmundsson, f. á Geirseyri við Pat- reksfjörð 24. apríl 1906, d. 1988, og Margrét Skúladóttir, f. að Ytra-Vatni í Lýtingsstaðahreppi í Skaga- firði 18. nóvember 1900, d. í Hafnarfirði 1950. Systkini Svanhvítar voru Sverrir Reyn- isson, f. 1932, d. 1955, og Guð- rún Reynisdóttir, f. 1934. Eiginmaður Svanhvítar var Andrés Pétursson, f. 1 júlí 1924, d. 22. nóvember 1992, ésdóttir, f. 1969, d. 2004, maki Björn Björnsson. Börn: Bryn- dís, Stefán Björn og Svanhvít Ósk. Svanhvít bjó fyrstu ævidag- ana að Grettisgötu í Reykjavík en lengst af bjó hún að Suð- urgötu í Hafnarfirði. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Flens- borgarskóla í Hafnarfirði og starfaði um tíma á Fræðslumálaskrifstofu Reykja- víkur. Svanhvít og Andrés giftu sig 5. nóvember 1953 og hófu búskap að Hólavöllum við Suðurgötu í Reykjavík en fluttu 1958 til Akureyrar þar sem þau bjuggu lengst af að Helgamagrastræti 28. Vorið 1965 flutti fjölskyldan suður aftur og eignaðist heimili að Smáraflöt 41 í Garðahreppi. Þar bjuggu þau allt þar til Andrés lést 1992. Síðustu 24 árin bjó Svanhvít að Hrísmóum 1 í Garðabæ. Svanhvít var húsmóðir alla sína tíð. Útför Svanhvítar fer fram frá Garðakirkju í dag, 13. sept- ember 2016, klukkan 15. útgerðarmaður og framkvæmdastjóri frá Hólavöllum í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1. Magnús Andr- ésson, f. 1954, maki Ingunn Guð- mundsdóttir. Börn: Auður og Andrés (móðir Þórdís Ei- ríksdóttir). 2. Sverrir Andrésson, f. 1955, maki Kolbrún Emma Gunnlaugsdóttir. Börn: Gunn- laugur Reynir, Sigrún og Elvar Smári. 3. Margrét Andr- ésdóttir, f. 1957, maki Sigurjón Leifsson. Börn: Atli, Kristín og Svanhvít. 4. Pétur Andrésson, f. 1958, maki Jóna Sæmunds- dóttir. Börn: Andrés og Agnes (móðir Bergþóra Hákonar- dóttir). 5. Ingibjörg Andr- Ástkær móðir okkar lést á Landspítalanum 26. ágúst síð- astliðinn. Við fráfall hennar verða vatnaskil í lífi okkar, hún var miðpunktur fjölskyldunnar og heimili hennar samastaður okkar allra. Mamma ólst upp í Hafnarfirði lengst af við Suðurgötu ásamt tveimur yngri systkinum, Sverri og Guðrúnu (Rúnu). Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um mömmu, þegar hún var tvítug missti hún móður sína og bróður sinn sviplega fimm árum síðar. Mamma axlaði því snemma ábyrgð á systkinum sínum og samband mömmu og Rúnu var alltaf mjög náið. Mamma útskrifaðist frá Flensborgarskóla og starfaði eftir það um tíma á Fræðslu- málaskrifstofu Reykjavíkur. Hún kynntist ung föður okkar, Andrési Péturssyni, og gengu þau í hjónaband árið 1953. Það má segja það að þar hafi ham- ingjan brosað við henni og var hjónaband þeirra farsælt og þau samrýnd. Þau hófu búskap sinn á æskuheimili pabba að Hóla- völlum og eignuðust þar fjögur börn á fimm árum. Það var fjöl- mennt á Hólavöllum og gest- kvæmt enda dæmigert heimili stórfjölskyldu að hætti þeirra tíma. Haustið 1958 var faðir okkar ráðinn til Útgerðarfélags Akur- eyringa og var það stór breyting á högum ungu fjölskyldunnar að flytja norður. Á Akureyri eign- uðust pabbi og mamma fallegt heimili að Helgamagrastræti 28, þau voru fljót að skjóta rótum og eignuðust þar marga trausta vini sem mamma ræktaði vin- áttu við fram á síðasta dag. Árið 1965 flytjum við suður og setj- umst að að Smáraflöt 41 í Garða- hreppi. Þar bjó fjölskyldan þar til faðir okkar lést 1992. Á Smáraflötinni var gott að búa, fólkið samhent og barn- mörg heimili. Það var alltaf gestkvæmt á heimili foreldra okkar og því oft erilsamt hjá mömmu en hún sinnti þessu öllu með bros á vör ásamt barnaupp- eldinu. Haustið 1969 fæðist Ingibjörg systir okkar sem við tókum fagnandi og elskuðum af- ar heitt. Það fóru góð ár í hönd, við áttum fallegt heimili og frá- bæra nágranna. Við börnin und- um okkur vel og alltaf var mamma til staðar, bar okkur á höndum sér og hvatti til dáða. Eftir að barnabörnin komu í heiminn voru þau alltaf velkom- in til afa og ömmu á Smáraflöt- ina og fundu þar fyrir stöðug- leika og öryggi. Það var okkur öllum mikill harmur þegar faðir okkar lést langt um aldur fram árið 1992. Ári seinna flutti mamma að Hrísmóum 1 þar sem hún bjó til æviloka. Mamma var félagslynd og eignaðist stóran vinahóp er tengdist daglegum sundiðkun- um. Þetta er samhentur og glað- lyndur hópur sem veitti henni mikla gleði. Það var móður okk- ar og okkur öllum óbærileg sorg þegar Ingibjörg systir veiktist og lést úr krabbameini aðeins 34 ára. Mamma var trúuð og kirkjurækin og það hjálpaði henni að sefa sorgina á erfiðum tímum. Það gladdi hana að sjá mannvænleg börn Ingibjargar vaxa úr grasi og þau hafa verið afar náin ömmu sinni. Mamma eignaðist frábæra nágranna í Hrísmóunum, þau Öldu og Ragnar, sem reyndust henni ótrúlega góðir vinir og við systkinin þökkum þeim einstaka umhyggju við hana. Við kveðjum mömmu með ást og þakklæti fyrir allt sem hún var okkur. Magnús, Sverrir, Margrét og Pétur. Fallin er frá kjarnakonan Svanhvít Reynisdóttir. Fyrir rúmum 40 árum dró eldri dóttir Svanhvítar og Andrésar mig á Smáraflötina og var mér tekið strax eins og einum úr fjölskyld- unni. Þá voru öll fimm börnin heima og mikið um að vera en Svanhvít hélt öllu saman á átakalausan hátt. Fjölskyldan og heimilið var það sem skipti þau sómahjón öllu máli. Fyrstu barnabörnin fæddust árið 1979 og þá varð aldeilis kátt á Smára- flötinni. Börnin sóttust eftir að koma þangað og vildu helst ekk- ert fara heim. Amma átti alltaf eitthvað gott að borða og því var hægt að treysta svo lengi sem Svanhvít hafði heilsu til. Jákvæðni og æðruleysi var einkennandi í fari tengdamóður minnar. Fyrsta stóra áfallið sem ég sá hana takast á við var þegar hún missti Andrés snögglega, en hann varð bráðkvaddur í nóvem- ber 1992. Mikið var tekið frá Svanhvíti en hún stóð þessa raun af sér, beygð um stund, en ekki brotin. Fljótlega eftir að Andrés lést fluttist Svanhvít af Smáraflöt- inni í Hrísmóa 1. Það var ekki til umræðu að flytja úr Garða- bænum. Ég fékk nokkuð oft að heyra það að hvergi væri betra að búa, nema þá kannski í Hafnarfirði. Það væri svo gott fólk í Garða- bæ. Aldrei þreyttist hún á að hvetja okkur til að flytja nær sér í Garðabæinn og tókst það að lokum. Sagt er að enginn eigi að upplifa það að lifa börn sín, en Svanhvít þurfti að takast á við þá raun þegar Ingibjörg dó úr krabbameini frá þremur börn- um, tæplega 35 ára gömul. Meðan á baráttu Ingibjargar stóð og eftir lát hennar umvafði hún börnin þrjú með umhyggju sinni og ást. Á síðustu misser- um voru heimsóknir barna- barnanna og samvera með fjöl- skyldunni hennar mestu gleðistundir. Svanhvít var ákaflega fé- lagslynd. Hún átti fjöldann allan af vinum og kunningjum. Ferðir til Flórída með vinafólki voru henni ógleymanlegar. Í mörg ár stundaði hún sundlaugina í Garðabæ af miklum móð og átti ánægjulega samveru með Vatnaliljunum, hvort sem var í sundlauginni, í kaffiboðum, ferðalögum eða sumar- bústaðaferðum. Síðustu árin voru Svanhvíti erfið. Þegar hún var komin hátt á áttræðisaldur mátti henni miklu yngra fólk hafa sig allt við að ganga jafn hratt og hún. Henni var því mikið áfall að finna að líkaminn var ekki leng- ur eins viljugur og hugurinn. Nú er þessari lokabaráttu lokið. Svanhvítar verður sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Sigurjón Leifsson. Elskuleg amma mín, Svanhvít Reynisdóttir, hefur nú kvatt okkur. Á þeirri stundu er þakk- læti mér efst í huga, þakklæti fyrir ómetanlegar stundir og þá væntumþykju sem hún sýndi mér og mínum. Betri ömmu og vinkonu hefði ég ekki getað hugsað mér. Til ömmu var maður alltaf velkominn, hvort sem það var eftir skóla til að læra eða í gist- ingu um helgar. Það var ynd- islegt að heimsækja hana í Hrís- móana. Þar leiddist manni aldrei, það var spjallað, prjónað, málað og allt þar á milli. Að tvennu mátti ganga vísu þegar amma var heimsótt, að hún myndi segja í það minnsta eina eða tvær góðar sögur og að eng- inn færi svangur heim. Elsku amma, þú átt svo mikið í mér. Takk fyrir að vera ávallt til staðar. Vinátta okkar er og verður alltaf svo stór hluti af mér, samband sem mótaði mig og gaf mér svo mikið. Fyrir það verð ég þér ævinlega þakklát. Þín, Bryndís. „Nafna mín“ er titill sem ég hef alltaf borið með stolti en svona heilsaði hún amma mér í hvert skipti sem ég hitti hana og mér þótti alltaf jafn vænt um það. Afi Andrés dó þegar ég var einungis tveggja ára gömul og þar af leiðandi voru það alltaf bara við tvær nöfnurnar saman þegar ég fór í pössun til ömmu. Mínar kærustu minningar um ömmu eru einmitt þau skipti þegar ég gisti hjá ömmu sem barn. Í því fólst nefnilega sund- ferð á morgnana, en amma synti alla morgna meðan hún hafði heilsu til, góðar stundir í leik- herberginu við eldhúsið og svo beið manns yfirleitt súkku- laðikaka í eftirmiðdaginn (ég þurfti sko ekki að hugsa mig um tvisvar þegar ég var spurð hvar maður fengi bestu súkku- laðikökuna í bænum). Amma átti fleiri barnabörn og barnabarnabörn en margir geta látið sig dreyma um en átti samt alltaf næga væntum- þykju fyrir alla. Ég er svo heppin að hafa verið ein af þessum hópi. Takk fyrir nafnið elsku amma, þín verður sárt saknað en að eilífu minnst með hlýju. Svanhvít Sigurjónsdóttir. Elsku amma, þó að það sé sárt að kveðja veit ég að þér líð- ur betur núna og ert umvafin englum sem hugsa vel um þig. Á sorgarstundu getur maður yljað sér við góðu minningarnar. Það var alltaf ljúft að koma á Smáraflötina til ykkar afa, fá kók úr Sodastream-vélinni, bragða á ljúffengu súkku- laðikökunni þinni og hitta öll frændsystkinin í spilum og leik. Við vorum stór hópur en þú lést það nú ekki á þig fá enda vön stóru heimili og miklum gesta- gangi. Þegar ég fór að stálpast fór ég oft ásamt vinkonum mínum í hjólatúr yfir til Garðabæjar. Þú varst alltaf svo glöð og ánægð með heimsóknina og bauðst okk- ur að sjálfsögðu inn í hressingu. Eftir því sem árin liðu og ég fullorðnaðist kynnist ég þér bet- ur og betur. Það var alltaf svo ljúft að kíkja til þín í kaffibolla og spjall. Þú sagðir mér svo margar sögur af þér sjálfri sem barni, búsetunni á Akureyri, prakkarastrikum af pabba og fleiri skemmtilegar sögur af fjölskyldu og vinum. Þessar sög- ur og allar aðrar góðar minn- ingar um þig geymi ég í hjart- anu. Takk fyrir allt, elsku amma. Sigrún. Það var um veturnætur 1961 að foreldrar mínir óku mér norður á Akureyri til skólavistar og vetrardvalar hjá Andrési móðurbróður mínum og konu hans, Svanhvíti Reynisdóttur, sem nú hefur kvatt okkur. Það er skemmst frá því að segja að þau hjónin og börn þeirra, sem eru nokkru yngri en ég, tóku mér sem sjálfsögðum heimilis- manni, einum úr fjölskyldunni, og létu mig finna í öllum grein- um að þarna ætti ég heima. Fyr- ir það viðmót verður aldrei full- þakkað. Andrés var í krefjandi starfi sem framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa en Svanna stóð fyrir heimilishald- inu og barnauppeldi af mikilli kostgæfni svo hvergi skeikaði. Heimilishaldið var í föstum skorðum, hádegismatur klukkan tólf og kvöldmatur klukkan sjö og steik í hádeginu á sunnudög- um. Og svona leið veturinn með norðlensku veðurfari, kafsnjó og byljum, ófærð á götum og veg- um og óstöðugu áætlunarflugi til Reykjavíkur. Ég minnist þess einu sinni að Andrésar var von með flugi að sunnan en ólendandi var á Ak- ureyri og Svanna gat ekki á sér heilli tekið af áhyggjum. Þá gerði ég mér grein fyrir hvers vegna það var aldrei talað um þau öðru vísi en bæði í einu, Andrés og Svanna, Andrés og Svanna. Svo lá leið þeirra suður aftur, Andrés stóð fyrir umfangsmikl- um atvinnurekstri á sjó og landi og saman bjuggu þau sér fallegt heimili í Garðabæ. Andrés féll frá 1992, langt fyrir aldur fram, öllum mikill harmdauði. Svanna hélt sinni reisn þótt vissulega hafi verið mótdrægt á marga lund. Veikindi og andlát Ingi- bjargar yngstu dóttur þeirra gekk vissulega mjög nærri henni, en hún stóð af sér alla storma og síðustu árin voru hennar eigin veikindi mjög erfið. En alltaf hélt hún góða skap- inu og var jafnan góð heim að sækja sem endranær. Svanna fylgdist vandlega með fjölskyldu sinni og lét sig varða, bæði þeim sem næst henni stóðu og eins tengdafjölskyldunni, sem er óvenju mannmörg, og miðlaði fréttum, sem móðir mín var henni afar þakklát fyrir, enda voru þær í góðu sambandi alla tíð. Góð kona er nú kvödd, beztu þakkir fyrir mig, fyrr og síðar. Pétur Kjartansson. Elsku Svanhvít, nú þegar komið er að kveðjustund langar okkur í fáum orðum að þakka þér fyrir góða vináttu, kærleika og umhyggju. Umhyggja þín og áhugi á velferð og velgengni þinna nánustu var eitt af þínum sterku einkennum. Þau voru mörg samtölin sem við áttum þar sem þú vildir fá að heyra hvernig gengi hjá mannskapn- um, hvort allir væru hraustir og ef eitthvað bjátaði á var stuðn- ingur þinn ávallt til staðar. Þú varst góð amma og okkur fannst gott að koma til þín, heyra skemmtilegar sögur og alltaf var séð til þess að allir fengju nóg að borða. Við þökkum fyrir ástúð alla, indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín við sendum kveðju upp til þín. (H.J.) Minning þín lifir í hjörtum okkar. Björn, Alexander Ívar, Stefán Björn, Svanhvít Ósk, Trausti Hrafn og Hrönn. Ástkær tengdamóðir mín, Svanhvít Reynisdóttir, verður jarðsungin í dag. Í hjarta mínu finn ég til mikils þakklætis að hafa kynnst svo jákvæðri og gef- andi konu. Svanhvít, sem var 86 ára gömul þegar hún kvaddi, var vel lesin og ætíð með ógrynni af skemmtilegum sögum sem hún sagði okkur Magnúsi, syni henn- ar, þegar við heimsóttum hana á heimili hennar að Hrísmóum 1 í Garðabæ. Sögur frá liðinni tíð settar í skemmtilega kímna frásögn, og mikið hlegið. Minning þín og hjartagæska verður ætíð lifandi í mínum huga, en ég kveð þig, elsku Svanhvít, með þessum ljóðstúf eftir Jóhannes úr Kötl- um. Þú ert áfram líf af okkar lífi: líkt og morgunblær um hugann svífi ilmi og svölun andar minning hver athvarfið var stórt og bjart hjá þér. Allir sem þér unnu þakkir gjalda. Ástúð þinni handan blárra tjalda opið standi ódauðleikans svið. Andinn mikli gefi þér sinn frið. Ingunn Guðlaug Guðmundsdóttir. Svanhvít Reynisdóttir Það var haustið 1992 og við nýkomin til Kaliforníu til að leggja stund á framhaldsnám. Við vorum eftirvæntingarfull en líka svolítið umkomulaus við þessar nýju og framandi aðstæð- ur. Þórir Pálsson Roff ✝ Þórir PálssonRoff fæddist 15. mars 1940. Hann lést 3. sept- ember 2016. Útför Þóris fór fram 12. september 2016. Það var gæfa okkar að meðal þeirra fyrstu sem við kynntumst þar ytra voru Þórir og Ásthildur Roff. Þau tóku okkur opnum örmum, buðu okkur inn á fallega heim- ilið sitt í Cupertino, kynntu okkur fyrir góðu fólki og reynd- ust í alla staði hinir bestu vinir og velgjörðarmenn. Ef eitthvað bjátaði á var gott að leita til þeirra en yfirleitt urðu þau þó fyrri til að bjóða fram að- stoð, eins og að lána okkur ferða- bíl eitt sumarið þegar fjölskyldu- meðlimir komu í heimsókn. Ógleymanlegar eru ferðir með þeim um San Francisco-flóann, ökutúr um Los Gatos á rauða blæjubílnum hans Þóris og allar stuttu heimsóknirnar þegar þau litu inn til að kanna „hvernig við hefðum það“. Það var líka einstakt hve ljúf- lega þau tóku Hrafnhildi dóttur okkar enda var hún farin að kalla þau afa og ömmu þegar leið á dvölina. Þórir var í essinu sínu þarna ytra, starfsamur með af- brigðum og öllum hnútum kunn- ugur. Það var því ánægjulegt að fylgjast með því hve fljót þau voru að falla aftur inn í íslenskt samfélag við heimkomuna fyrir nokkrum árum eftir að hafa eytt stærstum hluta ævinnar í Banda- ríkjunum. Fyrr en varði voru þau bæði komin í vinnu og búin að endurnýja samband við gamla vini og ættingja. Þórir fékk að auki útrás fyrir óbilandi starfs- orku sína þegar þau réðust í að endurnýja íbúðina við Freyju- götu. Með verklagni og útsjónar- semi Þóris og léttri lund og hug- myndaauðgi Ásthildar tókust þau á við þetta stóra verkefni, sam- hent eins og endranær. Um leið og við kveðjum eftirminnilegan og góðan vin langt fyrir aldur fram vottum við Ásthildi, Addý, Maríu og fjölskyldum þeirra okk- ar dýpstu samúð. Snæfríður og Gunnar. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GÍSLÍNA JÓNASÍNA JÓNSDÓTTIR, Lína, Hjúkrunarheimilinu Grund, áður Gnoðarvogi 28, Reykjavík, lést laugardaginn 10. september. Jarðarförin auglýst síðar. . Jón Leósson, Regína Magnúsdóttir, Bjarni Júlíusson, María Magnúsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Fjóla Hilmarsdóttir, Ásta Hilmarsdóttir, Jóhann Sigurjónsson, Eva Ström, Egill Þorgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.