Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016
Smáauglýsingar
Geymslur
Ferðavagnageymsla
Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499-3070.
Sólbakki.
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Tilbúin
karton og
rammar
kl. 10-17
Uppí 70% afmælisafsláttur
í nokkra daga. Vönduð armbandsúr á
ótrúlegu verði eða frá 5.000 kr. Pierre
Lannier Paris, frönsk hönnun og
smíði. 2ja ára alþ. ábyrgð.
ERNA Skipholti 3,
s. 552 0775,
www.erna.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
„Kolbeins? Nei,
þetta er Ragnheið-
ur … kennitala …“
Mín fyrstu kynni af Magnúsi
Hilmarssyni voru í gegnum sím-
tal – hann frá fasteignasölu en ég
á auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins. Símtölin urðu æði mörg og
sum hver löng. Svo snarfækkaði
símtölum Magnúsar því hann
hafði fundið sér nýjan tengil sem
síðar átti eftir að tengjast honum
mjög sterkum böndum, hana
Hafdísi.
Samskiptum okkar Magnúsar
var þó hvergi nærri lokið, því
með kynnum þeirra Hafdísar
tókst með okkur hjónum traust
vinátta sem leiddi til skemmti-
legra ferðalaga innanlands. Má
einnig segja að við höfum ferðast,
heimsálfa á milli, í gegnum
bragðlaukana í matarklúbbnum
okkar sem aldrei fékk annað nafn
en Matarklúbburinn. Sá fé-
lagsskapur sem þróaðist í gegn-
um þær samverustundir, ásamt
Finni og Gunnhildi, var okkur af-
ar dýrmætur. Miklar bollalegg-
Magnús Þormar
Hilmarsson
✝ Magnús Þor-mar Hilm-
arsson fæddist 17.
apríl 1951. Hann
lést 4. september
2016.
Útför Magnúsar
fór fram 12. sept-
ember 2016.
ingar hjá gestgjöf-
um um hvaða land
skyldi valið og ekki
var látið staðar
numið við matinn,
heldur var heimilið
jafnan skreytt í
anda þess lands sem
valið var, svo og
búningar gestgjafa
sem jafnan var
nostrað mikið við.
Magnús var ötull við
að senda vísbendingar um lönd
sem urðu fyrir valinu í bundnu
máli og við hin hnoðuðum saman
getgátum á víxl eftir mikla rann-
sóknarvinnu sem gjarna enduðu í
löngum ljóðabálkum.
Magnús var mikill tónlistar-
unnandi og hafsjór af fróðleik um
allt er sneri að tónlist. Það kom
því í hans hlut að sjá um tónlist-
ina á gleðistundum. Þó við vær-
um komin af léttasta skeiði voru
Rolling Stones oft í geislanum
svo og Sunrise – lagið sem okkur
fannst alltaf jafn magnað með
Uriah Heep.
Við kveðjum Magnús með
þakklæti fyrir allar frábæru
stundirnar sem aldrei bar skugga
á og trúum því að nú rísi sól hjá
honum í nýjum heimkynnum.
Elsku Hafdís mín og fjölskyld-
an öll. Hugur okkar er hjá ykkur.
Guð blessi minningu Magnús-
ar Hilmarssonar.
Ragnheiður og Einar.
✝ Halldór GrétarGunnarsson
fæddist í Hafn-
arfirði 3. apríl
1959. Hann lést á
Reina Sofia-
spítalanum á Cor-
doba, Spáni, 15
ágúst 2016.
Foreldrar hans
voru Friðdóra Jó-
hannesdóttir frá
Hellisandi, f. 1.des-
ember 1923, d. 24. janúar 2009,
og Gunnar Halldórsson, f. 10.
apríl 1926. Þau skildu.
Börn Halldórs eru: 1) Sam-
úel, f, 15. október 1984, móðir
hans er Pernille Schröder, 2)
Halldór gekk í Öldutúnsskóla
og Flensborg. Hann fór ungur
til sjós með mágum sínum, frá
Rifi og Höfn. Hann var fjölhæf-
ur og hugmyndaríkur maður og
kom víða við á starfsævi sinni.
Meðal annars stofnaði hann
ásamt öðrum Norðurál, fyr-
irtæki sem sérhæfði sig í að
veiða og reykja ál. Hann lærði
húsasmíði og vann við það í
mörg ár. Síðustu ár starfaði
hann sem húsvörður í Kletta-
skóla og þar kom sér vel að
hafa fjölhæfan mann, meðal
annars smíðaði hann rólu fyrir
börn í hjólastólum og stóð fyrir
söfnun í þeirra þágu. Halldór
naut sín vel við áhugamál sitt
sem var að þeysast um á mót-
orhjóli og voru margar ferðir
farnar um landið í góðra vina
hópi.
Útför Halldórs verður gerð
frá Víðistaðakirkju í dag, 13.
september 2016, klukkan 13.
Elías Þór, f. 2. júní
1991, 3) Hekla, f.
20. febrúar 1997,
móðir þeirra er
Anna Margrét Elí-
asdóttir. Sambýlis-
kona Elíasar er
Rósa Dögg Ómars-
dóttir. Barn þeirra
er Ólavía Rós og
fyrir á Rósa Sigríði
Rós. Börn Samúels
eru Villads og
Emma. Systur Halldórs eru
Jóna, d. 1987, Ólöf, Jóhanna,
Kristín og Halldóra. Hálfsystir
hans er Gunnhildur, móðir
hennar var Álfhildur Friðriks-
dóttir, d. 2015.
Ég var ekki nema sex ára þeg-
ar ég flutti á Suðurgötuna í
Hafnarfirði og tók strax eftir
þessum rauðhærða strákhnokka.
Hann var ekki hár í loftinu, þessi
nágranni minn, sem stóð þarna
uppi í hárinu á eldri krökkunum.
Aðeins fjögurra ára og strax far-
inn að rífa kjaft ef honum fannst
sér misboðið. Á þessum árum var
mikið líf og fjör á Suðurgötunni.
Þetta var eins og ein stór fjöl-
skylda þar sem allir voru vel-
komnir inn á heimilin, ekkert
snobb og engin sýndarmennska.
Þjóðfélagsstaða eða efnahagur
foreldranna skipti engu máli.
Við Dóri urðum fljótt góðir fé-
lagar og brölluðum ýmislegt
saman næstu árin, alveg fram að
unglingsárum, en þá skildu leið-
ir, ég flutti burt og leiðir okkar
lágu í sitt hvora áttina. Dóri var
mikill grallari og uppátækjasam-
ur. Iðinn, duglegur og alltaf til í
eitthvað nýtt og spennandi. Einu
sinni reyndum við að rækta dúf-
ur. Byggðum dúfnakofa og
veiddum nokkrar dúfur á háa-
loftinu heima hjá Dóra. En það
fór eins með dúfnaræktina eins
og okkur Dóra. Þær vildu ekki
láta loka sig inn í ferköntuðum
kassa eða búri og flugu því
burtu. Það var þetta frelsi sem
við Dóri sóttumst alltaf eftir. Að
vera sjálfs síns herra og engum
háður.
Dóri gat verið stríðinn en um-
hyggjusamur og tilbúinn að taka
upp hanskann fyrir þá sem
minna máttu sín. Einu sinni dró
hann mig í að selja Rauðakross-
merki. Í þá daga fékk maður sér-
stakan búning og bát á höfuðið
eins og einhver skátadrengur.
Sakleysið uppmálað í hvítum ein-
kennisbúningi með rauðakross-
merkið í bak og fyrir gengum við
hús úr húsi til að selja merki til
styrktar góðs málefnis.
Dóri byrjaði snemma að taka
að sér verkefni. Við höfum senni-
lega verið á aldrinum 12 til 14
ára þegar hann tók að sér það
verkefni, eina páska, að mála ís-
bjarnarbúrið í Sædýrasafninu.
Hann fékk mig til að koma með
sér í þetta verkefni. Aldrei á æv-
inni hef ég verið jafn hræddur í
vinnunni, því birnirnir voru sí-
fellt að berja á dyrnar meðan við
vorum að mála. En Dóri kippti
sér ekkert upp við þetta. Dóri
var alltaf óhræddur við nýjar
áskoranir.
Dóri gat verið skapstór og það
kom fyrir að við slógumst eins og
hundar og kettir, en það slettist
samt aldrei upp á vinskapinn.
Þetta var bara hluti af leikara-
skapnum. Það væri hægt að
skrifa heila bók um öll þau æv-
intýri sem við Dóri lentum í sem
krakkar.
Eftir að við urðum fullorðnir
liðu oft ár á milli þess sem við
hittumst en alltaf var gott að
hitta Dóra og seinustu ár hitt-
umst við stundum yfir kaffibolla
eða mat og ræddum um þjóð-
málin. Nú er góður drengur
fallinn frá. Sumir koma inn í líf
manns og marka spor alla ævi.
Dóri var einn af þessum karakt-
erum sem maður gleymir aldr-
ei. Svipmikill, hrjúfur á yfir-
borðinu, en góðhjartaður, með
geislandi karisma. Takk Dóri
fyrir allar ævintýrastundirnar
sem við áttum saman. Við hitt-
umst seinna á öðrum stað, í öðr-
um tíma og vídd. Ættingjum og
vinum votta ég mína dýpstu
samúð, en andinn hans Dóra lif-
ir og minningin um góðan
dreng.
Sigurjón Haraldsson (Síi).
Mig langar að setja hér nokk-
ur orð á blað til að minnast vinar
míns og bróður Dóra, eins og
hann var kallaður af vinum sín-
um. Það er ekki auðvelt að rifja
upp minningar okkar saman, það
er sárt og eins er það ósann-
gjarnt að þurfa að horfa á eftir
þessum mæta vini mínum hverfa
á braut í blóma lífsins. Ekki
komst sú hugsun að þegar ég
keyrði hann út á flugvöll að þetta
yrði okkar síðasta stund saman.
Glaður og spenntur yfir því að
fara í sólina og lifa lífinu kvaddi
hann mig með faðmlagi eins og
hann var vanur.
Dóra kynntist ég fyrst fyrir
um 10 árum og ekki mörgum ár-
um síðar lágu leiðir okkar aftur
saman þegar ég gerðist meðlim-
ur í Sturlungum MC þar sem
hann var forseti. Það má segja að
þar hafi myndast vinátta okkar á
milli sem stóð fram á hans síð-
asta dag. Það verður seint sagt
að við Dóri höfum verið líkir en
tókst okkur samt að bindast
sterkum vináttuböndum. Dóra
hef ég alltaf litið á sem bróður
sem ég fann án þess að vita að ég
ætti.
Sálirnar ótrúlega samstíga og
sýnin á lífið lík.
Við Dóri brölluðum margt
saman, bæði í klúbbnum og eins
tveir einir, við flökkuðum um
landið á hjólunum okkar, fórum á
tónleika og það var nánast fastur
liður í tilveru okkar að hittast á
Súfistanum í kaffi á nánast
hverjum degi. Ég á góðar minn-
ingar frá þessum kaffistundum
okkar, mikið talað og mikið hleg-
ið. Mér þótti ákaflega vænt um
þessar stundir og hafði af þeim
mikið gagn.
Dóri hafði nefnilega einstakt
lag á að setja hlutina í samhengi
þegar lífið var að þvælast fyrir
mér og ég týndur í tilverunni.
Ráðin voru góð og á bak við þau
bjó reynsla sem vert var að taka
mark á. Það þurfti ekki að spyrja
að því að alltaf leið mér betur eft-
ir að hafa talað við hann og lífið
ekki eins flókið og það hafði verið
augnabliki áður. Slík vinátta er
dýrmæt og ekki öllum gefin.
Þegar ég hugsa til baka eru
nokkrir hlutir sem Dóri kenndi
mér sem ég tek með mér áfram á
mínu ferðalagi inn í lífið: „Láttu
þig náungann varða.“ Dóri var
óþreytandi í að hjálpa þeim sem
minna máttu sín, það eru til ótrú-
lega margar sögur af honum við
að rétta jafnvel ókunnugu fólki
hjálparhönd óumbeðinn. Eins
„láttu í þér heyra ef þú hefur
eitthvað að segja“. Það vita það
allir sem Dóra þekktu að eftir því
lifði hann og var ófeiminn við að
viðra skoðun sína.
En það sem kannski er mér
dýrmætast er það sem hann var
vanur að tuða í mér.„Ásgeir, lifðu
lífinu í dag, ekki á morgun, það
er ekki víst að morguninn komi.“
Hversu rétt er hægt að hafa fyrir
sér, vinur minn.
Elsku Samúel, Elli og Hekla,
ykkur sendi ég mínar dýpstu og
innilegustu samúðarkveðjur,
missir ykkar er mikill og sökn-
uðurinn djúpur.
Elsku Dóri minn, við þig vil ég
segja, takk. Takk fyrir vináttuna,
takk fyrir að vera til staðar alltaf
þegar mig vantaði góðan vin,
takk fyrir að vera einstakur og
samkvæmur sjálfum þér, takk
fyrir samfylgdina hvort sem var
á fæti eða á hjóli. Takk fyrir allt,
bróðir minn og vinur, skarðið
verður ekki fyllt.
Ég kveð þig í bili, bróðir minn,
og geymi það sem mig vantar að
segja þér þar til þá ég hitti þig
aftur.
Ásgeir Ásgeirsson (Shiny) .
Halldór Grétar
Gunnarsson
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og mágur
HRAFNKELL HILMAR KRISTJÁNSSON
Egilsstöðum
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi 1.september síðastliðinn. Útförin
hefur farið fram frá Egilsstaðakirkju.
Þökkum innilega auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir fá læknar
og hjúkrunarfólk á gjörgæsludeild 6-E fyrir einstaka alúð í okkar
garð og umönnun Hrafnkels.
.
Bryndís Sigurgeirsdóttir
Sigurgeir Hrafnkelsson Sigríður Sigurðardóttir
Kristján Hrafnkelsson Guðbjörg Helga Jónsdóttir
Íris Hrafnkelsdóttir Alexander Örn Arnarson
Helena Rós Hrafnkelsdóttir Sigmar Ingi Kristmundsson
Rut Sigurgeirsdóttir og barnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar