Morgunblaðið - 13.09.2016, Side 11

Morgunblaðið - 13.09.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ VILJUM GETA TREYST. ÞAÐ TRAUST ROFNAR AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ VERSTA GERIST. HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR TRAUSTIÐ ROFNAR? AULIKA TOP Frábær kaffivél fyrir meðalstór fyrirtæki 4.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. GRAN CREMA Frábær kaffivél fyrir lítil fyrirtæki 3.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. COSMETAL Kolsýruvatnskælir fyrir kröfuharða 5.500,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@ke rfi.is | kerfi.is Dæmi: Fagleg & persónuleg þjónusta Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Vesti Str. M-XXXL Kr. 6.900 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Ég þurfti að fletta upp í Stóru fiskabókinni til að átta mig á því hvaða framandi skepna væri þarna á ferðinni,“ sagði Þorvaldur Garðars- son, skipstjóri á Sæunni Sæmunds- dóttur ÁR 60 frá Þorlákshöfn, í gær, en á síðustu rúmlega tveimur vikum hefur áhöfnin landað sex bláháfum. Til viðbótar hafa 3-4 bláháfar komið um borð í Jón Ásbjörnsson RE, sem einnig rær með línu frá Þorlákshöfn. Bláháfur er hákarlstegund sem er útbreidd í heimshöfum og flækist víða. Klara Björg Jakobsdóttir, fiskilíffræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, segir þekkt að bláháfur gangi upp að sunnanverðu landinu en óalgengt að hann gangi svona ná- lægt landi og bíti á króka línubáta á grunnsævi. Hins vegar sé þekkt að bláháfar fáist á túnfiskveiðum djúpt suður af landinu og hugsanlega hafi þá bæði túnfiskurinn og bláháfurinn verið að elta smokkfisk. Klara Björg segir að forvitnilegt verði að sjá hvort bláháfar skili sér í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar, t.d. haust- ralli. Sumir lifandi en dasaðir Bláháfur getur verið hættulegur fólki og segir Þorvaldur að þetta sé síður en svo afli sem sóst séeftir. „Hann virðist taka tauminn, en í baráttunni við að losa sig af krókn- um geta þeir vöðlað línunni utan um sig. Þeir sem við höfum fengið hafa bæði verið fastir á króknum og með línuna utan um sig. Sumir bláháfanna hafa verið lif- andi en dasaðir þegar þeir komu upp og einn þeirra læsti skoltunum í handlegginn á mér, en náði ekki að bíta mig til blóðs í gegnum gallann. Það var þó ekkert grín að losa hann, tennurnar hárbeittar og skolturinn var eins og skrúfstykki. Bláháfur getur verið hættulegur og kannski er umhugsunarefni að stunda sjó- sund,“ segir Þorvaldur. Á bæjar- og bryggjuhátíðir Hann segist ekki hafa fréttir af því að bláháfur hafi áður veiðst á línu svo skammt frá landi, en bátarn- ir fengu aflann 15-20 mílur frá Þor- lákshöfn. Beitan var hefðbundin, ýmist síld eða makríll. Þorvaldur segist ekki vita hvort hægt sé að verka hákarlinn, en hann hefur gefið nokkra af fiskunum á bæjar- og bryggjuhátíðir. „Tennurnar hárbeittar og skolt- urinn var eins og skrúfstykki“  Bátar frá Þor- lákshöfn hafa fengið 10 bláháfa Bláháfar Þorvaldur Garðarsson t.v. með einn bláháfanna, t.h. eru Guðni Þòr Þorvaldsson og Kristján Þorvaldsson með afla sunnudagsins. Þessi tegund hákarla flækist víða, en sjaldgæft er að hann bíti á króka línubáta á grunnslóð. mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.