Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8:30 - 17:00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn SNÚNINGSLÖK FYRIR BETRI NÆTURSVEFN Sérhæft fagfólk ráðleggur við val á hjálpartækjum, hjúkrunar- og endurhæfingarvörum Kíktu á úrvalið hjá okkur eða í nýrri vefverslun okkar fastus.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Norska þjóðleikhúsið frumsýndi nýja uppfærslu Þorleifs Arnar Arn- arssonar á fimmtudagskvöld en þetta var opnunarsýningin á Ibsen- hátíðinni á stóra sviði leikhússins. Um er að ræða sambræðslu á Villiöndinni og Fjandmanni fólksins og er undirtitillinn Enemy of the duck. Þegar blaðamaður náði tali af Þorleifi um helgina var hann kominn heim til sín í Berlín og ný- kominn af kraft- lyftingaæfingu. „Ég stunda kraftlyftingar. Þegar maður er að vinna eins og ég er að vinna, á stöðugu flakki og svo situr maður mikið og er í flugvélum, þá verður maður að vera í toppformi,“ segir Þorleifur sem byrjaði að lyfta fyrir þremur árum. „Þetta var auðveldara þegar mað- ur var 25 ára og gat sofið þrjá tíma á nóttu. Þegar maður keyrði yfir sig, svaf maður vel eina nótt og allt komst í lag. Ég er að setja að með- altali upp um fjórar til fimm stórar sýningar á ári. Ég er búinn að gera þetta í átta ár meðfram því að ala upp tvö börn og búa í einu landi og vinna oft í öðru,“ segir Þorleifur sem hefur hugsað sér að minnka vinnu- álagið en þangað til þarf hann að haga sér eins og afreksíþróttamað- ur. „Passa svefninn, passa líkamann og passa hugann,“ segir Þorleifur sem fékk innblástur frá bandaríska leikstjóranum David Lynch. „Hann talaði um það að hann hefði ekki náð í dýptina fyrr en hann fór að hug- leiða, ég tengi við það,“ segir Þor- leifur sem hugleiðir á hverjum degi. „Ég hef verið að leita fyrir mér þar í 15 ár. Því meira sem maður stillir rútínuna og líf sitt af til að veita djúpinu í sjálfum sér farveg þeim mun sterkari verður listin manns.“ Aðdragandinn að Ibsen-hátíðinni hefur verið nokkur. „Ég hitti leik- hússtjóra norska þjóðleikhússins [Hanne Tömte] í fyrsta skipti þrem- ur árum upp á dag fyrir frumsýn- inguna. Við komumst mjög fljótt að því að okkur langaði að gera eitt- hvað saman. Hún flaug heim og sá Engla alheimsins. Mér finnst alltaf mjög flott þegar leikhússtjórar skoða verkin manns og eiga í kjöl- farið innihaldsríkari umræðu um hvaða nálgun eigi að taka á verkið. Við áttum síðan fund og ég sagði henni að mig hefði lengi langað að gera Ibsen og þá lá beinast við að fara inn á Ibsen-festivalið. Hún upp- lifir að ég sé leikstjóri sem er sterk- astur á stórum sviðum og það hefur sannað sig enda hef ég nánast bara unnið á stórum sviðum síðustu sjö ár. Þá kom ekkert annað til greina en að ég myndi gera opnunarsýn- inguna á stóra sviðinu hjá þeim,“ segir hann. Út fyrir þægindarammann Handrit leikritsins vann Þorleifur í samvinnu við Mikael Torfason. Leikmynd hannaði Vytautas Narbu- tas og búninga Sunneva Ása Weiss- happel en tónlist samdi Bjarni Fri- mann. Þorleifur og Mikael slá saman Tómasi Stokkmann úr Fjandmanni fóksins og Gregers Werle úr Villiöndinni, sem báðir gera ófrávíkjanlega kröfu um að leyndarmál verði afhjúpuð og upp- lýst þó að það kosti miklar fórnir og sársauka annarra. „Það er undirliggjandi í dómunum að svona Ibsen hafi gagnrýnendur aldrei séð áður. Við erum að fara mjög langt út fyrir þæginda- rammann. Auðvitað er verið að taka gríðarlega áhættu. En það er bara oft þannig, rétt eins og þegar Borg- arleikhúsið tók þessa stóru áhættu með Njálu, að þegar opnað er fyrir leið inn í nýtt og ókannað land geta stórkostlegir hlutir gerst,“ segir hann en Borgarleikhúsið uppskar ríflega fyrir áhættuna en Njála sló met og hreppti tíu Grímuverðlaun. „Væri ekki meiri fölsun hvort sem væri í Njálu á Íslandi eða Ibsen í Ósló að setja hann upp eins og upp- runalega var til ætlast? Þú værir þá að setja upp sýningu þar sem allir í nútímanum gætu bara horft til baka í einhvers konar nostalgíu. Ég upp- lifi að mörgu leyti að það sé miklu meiri óheiðarleiki fóginn í því að gera eitthvað eins og fólk hafi ætlast til að það hafi átt að gera það fyrir hundrað árum. Hvernig í ósköp- unum eigum við að vita hvernig áhorfendur upplifðu lífið fyrir hundrað árum? Eigum við að setja upp sýningar eins og þessar sem fjalla um ofbeldi gagnvart börnum og feðraveldið eins og menn litu á hlutina árið 1890? Þá var bara allt í lagi að berja konuna sína,“ segir hann og útskýrir nánar. Norska menningarelítan mætti „Að því sögðu förum við töluvert lengra en það. En ég hugsa aldrei um hvort það sem ég er að gera sé umdeilt eða ekki,“ segir hann en ein- hverjir hefðu ef til vill fundið fyrir pressu út af því að sýna Ibsen á heimavelli frammi fyrir allri norsku menningarelítunni. „Þarna var menntamálaráðherr- ann, formenn stóru stjórmálaflokk- anna, stjórnendur stóru festival- anna, óperustjórinn, þjóðleikhús- stjórinn og öll menningarelíta landsins var mætt. Og ég var eini gaurinn sem hafði ekki hugsað út í það að þetta væri stærsti list- viðburðurinn í Noregi. Ég var bara að gera leikverk. Maður verður að fókusera á listina, hitt er bara hjóm.“ Þetta fór nú þannig að Þorleifur fékk standandi uppklapp að sýningu lokinni þannig að viðtökurnar voru góðar. „Það var mikil stemning á forsýningunni en ég hafði haldið að fólk yrði aðeins hófstilltara á frum- sýningunni en það var alveg brjál- æðisleg stemning.“ Áleitnar spurningar „Ég byggi sýninguna upp þannig að frægustu tragedíu Norðmanna byrja ég eins og gróteska kómedíu. Síðan verður verkið þyngra og þyngra.“ Sviðsljósinu er beint að áhorf- endum og þeir fá að glíma við áleitn- ar spurningar. „Það er móment í verkinu þar sem verið er að klappa fyrir því hvað Noregur er frábært land. Þá stoppar sýningin og áhorf- endur eru spurðir að því hvað það eigi að þýða að klappa,“ segir hann en spurt er hvort það sé ekki tví- skinnungur að klappa því Noregur sé einn stærsti innflytjandi á raf- magnsbílum í heiminum um leið og landið sé einn stærsti olíu- framleiðandinn. „Þau vilja búa í græna landinu sínu og drekka grænmetisdjús á meðan börnin deyja annars staðar og mengunin á sér stað í Austur- Evrópu,“ segir hann. „Af því að skemmtanaiðnaðurinn sprettur úr listum búum við á tímum þar sem listin er sett undir gildismat skemmtanaiðnaðarins. Ég lít á það sem skyldu mína, ef ég er ráðinn til að gera eitthvað svona, að fara með það alla leið og verða þessi rann- sóknaraðili sem listin á að vera,“ segir hann og útskýrir nánar: „Það þarf að spyrja óþægilegu spurning- anna. Það er mitt hlutverk, til þess er ég ráðinn. Ég þarf líka að gera áhugavert verk og fólk þarf að geta tengt við hlutina. En fyrsta skylda mín er við listina sjálfa og rannsókn- ina á samfélaginu.“ Kominn tími á konurnar Næst á dagskrá hjá Þorleifi eru tvö Shakespeare-verk, Óþelló og Hamlet í Dresden og Hannover og er vinnan við Óþelló nú þegar hafin. „Síðan kem ég heim og geri skemmtikvöld með Adolf Hitler í Þjóðleikhúsinu,“ segir hann og á þar við Aftur á kreik, sem frumsýnt verður á Stóra sviðinu 22. apríl 2017. „Síðan kem ég hingað út og geri Siegfried, hluta af Niflunga- hringnum eftir Wagner og eftir það er ég farinn í langt frí,“ segir Þor- leifur. „Frá Njálu til Siegfried verð ég búinn að skoða karlmennsku frá öllum hliðum. Þá verður kominn tími til að skoða konurnar. Þá held ég að ég verði að fara að snúa mér að Nóru, Heddu Gabler og Antigónu.“ Rannsóknarskylda leikstjórans  Áleitinn bræð- ingur  Kraft- lyftingar og hugleiðsla til heilsubótar Ljósmynd/Øyvind Eide-Nationaltheatret Heimur Þorleifur nýtur sín á stóru sviði. Leikmynd hannaði Vytautas Narbutas og búninga Sunneva Weisshappel. Þorleifur Örn Arnarsson Sýningin hefur fengið góða dóma í norskum fjölmiðlum og fimm stjörnur í VG, Dagbla- det, Aftenposten og Dagsavisen. VG segir sýninguna hafa eitthvað draum- kennt við sig, sem minni á kvikmyndagerð- armanninn Baz Luhrmann og gefi áhorfand- anum virkilega eitthvað safaríkt til að japla á. Þar segir líka að sýningin sé skemmtileg. Ennfremur að í þessari nálgun á verkunum komi afstaða Ibsens skýrt fram í sýning- unni. Gagnrýnandi Aftenposten segist hafa orðið vitni að mikilli veislu. Í Dagsavisen stendur að fantasían eigi sér engin takmörk í þessum ís- lenska Ibsen-leik en alvaran sé hinsvegar aldrei langt undan. Í sama anda talar Dagbladet um töfrandi súrrealisma. Safarík og skemmtileg GÓÐIR DÓMAR Í NORSKUM FJÖLMIÐLUM Leikarar Kjersti Tveterås og Mads Ousdal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.