Morgunblaðið - 13.09.2016, Side 8

Morgunblaðið - 13.09.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500 • Frí heimsending lyfja • Góð kjör fyrir eldri borgara og öryrkja • Gerðu verðsamanburð • Lyfjaskömmtun á góðu verði góð þjónusta ogPersónuleg Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00 Heilbrigð skynsemi Heilsugæsla efra Breiðholts Gerðuberg Lyf á lægra verði Rafmagnshjól.is • Fiskislóð 45 • Sími 534 6600 Hollensk rafmagnshjól vönduð og margverðlaunuð Fáir menn íslenskir hafa unniðmeira en Steingrímur J. Sig- fússon gerði á síðasta kjörtímabili, ef marka má lýsingar hans sjálfs, sem varla er ástæða til að efast um.    Samkvæmt nýrriskýrslu meiri- hluta fjárlaganefnd- ar Alþingis um seinni einkavæð- ingu bankanna er þó ljóst að mörg stærri Grettistökin sem Steingrímur hóf á loft hefðu bet- ur legið óhreyfð.    Vitað var að vinstri stjórn Sam-fylkingar og VG, sem tók við snemma árs 2009, olli miklum skaða. Engu að síður er sláandi að sjá þann hluta tjónsins sem snýr að síðari einkavæðingu bankanna svart á hvítu.    Efnahagslífið hefði getað risiðhratt misserin eftir fall bank- anna eins og um hnútana hafði ver- ið búið með neyðarlögunum, en eins og fram kemur í skýrslunni hafði Steingrímur J. neyðarlögin að engu þegar hann tók við í fjármálaráðu- neytinu snemma árs 2009.    Hann tók fram fyrir hendurnará FME og hóf sjálfur samn- ingagerð við erlendu kröfuhafana með friðþægingu og undirlægju- hátt að leiðarljósi.    Niðurstaðan varð sú að hann af-henti þeim bankana og gríð- arlegan ávinning af rekstri þeirra, en hélt áhættunni hjá skattgreið- endum.    Skýrslan verður væntanlega ekkisíðasta orðið um þessi afglöp vinstri stjórnarinnar. Þau voru al- menningi dýr og hann á kröfu til þess að málið fái eðlilega meðferð. Steingrímur J. Sigfússon Alvarleg afglöp STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 7 rigning Akureyri 9 alskýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 12 rigning Ósló 18 léttskýjað Kaupmannahöfn 21 heiðskírt Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 28 skýjað Brussel 28 heiðskírt Dublin 21 skýjað Glasgow 20 rigning London 24 léttskýjað París 30 heiðskírt Amsterdam 28 léttskýjað Hamborg 29 heiðskírt Berlín 31 heiðskírt Vín 28 heiðskírt Moskva 20 léttskýjað Algarve 25 léttskýjað Madríd 33 heiðskírt Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 12 alskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 22 léttskýjað Chicago 22 heiðskírt Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:47 20:01 ÍSAFJÖRÐUR 6:49 20:09 SIGLUFJÖRÐUR 6:32 19:52 DJÚPIVOGUR 6:16 19:31 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Það var enginn köttur aflífaður, það er tómur misskilningur,“ segir Ragnar Guðlaugsson mein- dýraeyðir. Uppi hafa verið ásakanir á hendur Ragnari um að hann hafi aflífað ketti í Hafnarfirði án þess að hafa nokkurt leyfi til þess. Rataði málið á borð umhverfis- og fram- kvæmdaráðs Hafnarfjarðarbæjar þar sem það er til skoðunar. Félagið Villikettir hefur kært meint framferði Ragnars til Mat- vælastofnunar. Villikettir hafa það að markmiði að fækka villiköttum með mannúðlegum hætti; fanga þá, gelda og sleppa þeim. Þegar Ragnar er spurður um hvað hann hafi gert við villikettina full- yrðir hann að hann hafi aðeins flutt þá til. Farið með þá frá einum stað til annars. Hver bað þig um að gera það? „Það kemur engum við. Þú færð aldrei að vita það. Ég vil ekkert meira um þetta mál segja, vertu blessaður,“ sagði Ragnar. Þegar rætt er við Arndísi Björgu Sigurgeirsdóttur sem er í stjórn fé- lagsins Villikatta segir hún að fé- lagsmenn hafi heyrt af því að mein- dýraeyðirinn hafi gortað sig af því að vera að drepa villiketti í Hafnarfirði. Þarf að skila skýrslu „Þetta spurðist til okkar og við létum Hafnarfjarðarbæ vita. Við teljum að hann hafi meira að segja aflífað ketti sem voru merktir frá okkur,“ segir Arndís Björg. „Okkur finnst slæmt í fyrsta lagi að hann skuli vera með leyfi sem mein- dýraeyðir þrátt fyrir að brjóta lög. Í öðru lagi skilar hann engri skýrslu um þessi dráp á villiköttum. Ef meindýraeyðir er fenginn á staðinn þarf að skila skýrslu. Villikettir eru nauðsynlegir í okkar vistkerfi, þeir halda rottum frá. Halda frá mávum, minkum og músum. Þeir gera eng- um mein. Okkar hugur stendur til að fækka þeim á mannúðlegan hátt. Það er svakalegt að horfa uppá læður vera að eiga oft á ári. Litlir kettlingar sem eru að fara inní harðan vetur. Á sumrin er þetta í fínu lagi en á vet- urna er þetta mjög erfitt.“ Morgunblaðið/Golli Villikettir á Íslandi Félagasamtökin vinna að því að bæta líf villi- og úti- gangskatta á Íslandi á sama tíma og spornað er við fjölgun þeirra. Villikettir hugsanlega felldir í leyfisleysi  Kæra á borði Matvælastofnunar  Misskilningur, segir meindýraeyðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.