Morgunblaðið - 13.09.2016, Side 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET..
DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR..
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR..
Ú Í
Þúsundir fermetra af flísum
með 20 -70% afslætti
ÚTSALA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR
Verðdæmi:
Harðparket eikarplanki 8mm kr. 1.790.- m2
Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3.790.- m2
Teppi og dúkar 25-70% afsláttur
Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd leik-
stjórans og handritshöfundarins
Guðmundar Arnars Guðmunds-
sonar í fullri lengd, vann til Queer
Lion-verðlauna Feneyja kvik-
myndahátíðarinnar um liðna helgi.
Samkvæmt upplýsingum frá að-
standendum Hjartasteins eru
Queer Lion-verðlaunin veitt þvert
yfir alla flokka hátíðarinnar. Verð-
launin eru veitt framúrskarandi
mynd sem tekur fyrir þemu sem
tengjast lesbíum, hommum, tvíkyn-
hneigðum, transfólki og/eða hin-
segin fólki (LGBTQ). Um ástæðu
valsins sagði dómnefndin að hún
hefði veitt Hjartasteini verðlaunin
„vegna einstakrar næmni þegar
kemur að því að sýna þroskasögu
tveggja ungra vina og greiningu á
því að gangast við samkynhneigð
sinni. Einnig vegna sterkrar og
sannfærandi framsetningar á þeirri
innri baráttu sem sundrar og sam-
einar svo aðalpersónurnar tvær,
þar sem náttúran í bakgrunni er
jafn mikilfengleg og hún getur ver-
ið grimmileg.“
Queer Lion-verðlaunin eru veitt í
10. sinn í ár. Meðal fyrri handhafa
Queer Lion-verðlaunanna eru
Philomena í leikstjórn Stephen
Frears og The Danish Girl í leik-
stjórn Tom Hooper.
Þess má geta að Hjartasteinn
hlaut næstflest atkvæði í fjölskip-
aðri dómnefnd Venice Days-hluta
hátíðarinnar, en Hjartasteinn var
ein ellefu mynda sem var boðin
þátttaka í Venice Days af hátt í þús-
und myndum hvaðanæva úr heim-
inum sem sóttu um.
Hjartasteinn vann Queer
Lion-verðlaunin í Feneyjum
Kampakátir Guðmundur Arnar Guðmundsson og Anton Máni Svansson.
Nýjasta kvikmynd Oliver Stone um
Edward Snowden hefur fengið afar
misjafna dóma hjá kvikmynda-
gagnrýnendum síðustu daga en
myndin var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto um
helgina. Myndin, sem heitir einfald-
lega Snowden, fjallar um líf og
störf uppljóstrarans og Joseph
Gordon-Levitt fer með hlutverk
Snowden og Shailene Woodley leik-
ur kærustu hans. Nokkrir gagnrýn-
endur segja að búið sé að segja
sögu Snowden í mun betri mynd;
heimildamyndinni Citizenfour eftir
Laura Poitras og í Guardian fær
myndin aðeins 2 stjörnur af 5.
Gagnrýnandi Variety er ekki á
sama máli og segir Snowden bestu
kvikmynd Oliver Stone frá því hann
gerði Nixon og segir hana jafn-
framt eina mikilvægustu pólitísku
dramamynd frá amerískum leik-
stjóra í áraraðir.
AFP
Umdeild Nýjasta kvikmynd Oliver Stone
fellur misvel í kramið hjá gagnrýnendum.
Sögð best og verst
Leikkonan og aðgerðasinninn Alex-
is Arquette er látin, 47 ára að aldri.
Hún var transkona og tilheyrði
frægri leikarafjölskyldu en systkini
hennar eru David, Rosanna og Pat-
ricia. Richmond Arquette, bróðir
hennar, staðfesti fréttir af láti
hennar á Facebook og birti þar
fréttatilkynningu sem Patricia Ar-
quette skrifaði. Hann sagði að Ar-
quette hefði látist á meðan hún
hlustaði á tónlist David Bowie. Hún
lék í myndum á borð við Pulp Fict-
ion og The Wedding Singer.
„Þrátt fyrir að það séu fá hlut-
verk í boði fyrir trans-leikara þá
neitaði hún að leika niðurlægjandi
hlutverk eða hlutverk sem eru föst í
staðalmyndum,“ stendur í frétta-
tilkynningunni þar sem lögð er
áhersla á að hún hafi barist ötul-
lega fyrir réttindum transfólks.
Dánarorsök var ekki gefin upp.
Alexis Arquette lát-
in 47 ára að aldri
Leikkona Alexis Arquette.