Fréttablaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 16
Tækni
„Apple var að segja heimsbyggðinni
allri að þar hefðu menn ekki hug
mynd um tilgang MacBook.“
Svona hljómar fyrirsögnin á
einni mest lesnu grein vikunnar á
skoðanagreinamiðlinum Medium.
Þar skrifar Owen Williams, tækni
blaðamaður hjá Charged, um nýj
ustu útgáfu tæknirisans Apple af
fartölvunni MacBook Pro.
Fleiri tækniblaðamenn og
bloggarar hafa tekið í sama streng.
Greinar og fréttir sem draga fram
galla tölvunnar og kynningar Apple
á henni eru meðal þeirra mest lesnu
á öllum stærstu tæknifréttamiðlum
heims, til að mynda Cnet, Tech
crunch og Verge.
Snertislá, ekki snertiskjár
Helsta nýjungin sem Apple kynnti á
blaðamannafundi í síðustu viku var
breyting á lyklaborði MacBook Pro.
Í stað efstu raðar lyklaborðsins, þar
sem Esctakkinn er meðal annars,
kemur snertislá. Sláin er tiltölu
lega mjó og nær þvert yfir tölvuna.
Hún virkar eins og lítill, ílangur
snertiskjár og breytast notkunar
möguleikar hennar eftir því hvaða
forrit er opið hverju sinni. Til að
mynda munu fjölmargir broskallar
(e. emojis) birtast ef maður er að
senda einhverjum skilaboð.
Auk snertislárinnar er tölv
an búin betri örgjörva en
fyrirrennari hennar.
Hins vegar hefur
v i n n s l u m i n n i ð
ekki aukist að
sama skapi. Sex
tán gígabæt af
vinnsluminni má
finna í dýrustu
útgáfunni og segir
Apple það gert til
þess að hámarka
rafhlöðuendingu, allt
að tíu klukkutíma. Það
þýðir hins vegar að tölvan
er kraftminni fyrir vikið.
Þrátt fyrir það er hún öllu kraft
meiri en fyrri útgáfa MacBook Pro,
auk þess að vera þynnri og með
betri skjáupplausn.
Microsoft kynnti einnig nýja far
tölvu sína, Surface Book, í síðustu
viku. Útlit er fyrir að hún sé öllu
kraftmeiri en hin nýja MacBook
Pro. Í stað snertislárinnar er sú tölva
einfaldlega með snertiskjá.
„Á meðan Microsoft leyfir þér að
snerta allan skjáinn neyð
ir Apple þig til að líta
niður á lyklaborðið.
Undarlegt,“ skrif
ar einn tækni
blaðamaður.
„Að horfa
á plötusnúð
nota snertislá
á t ö l vu n n i
sinni á meðan hann spilar tónlist er
bara vandræðalegt,“ skrifar annar.
Viðbrögð við snertislánni eru þó
ekki öll neikvæð. Á meðan sumir
kalla hana einfalt sölubragð þá
segja aðrir að hún gæti verið mjög
heillandi fyrir almenna notendur.
Þá er hún einnig útbúin fingrafara
skanna sem eykur öryggi notenda.
Skjár tölvunnar hefur einnig hlotið
mikið lof fyrir skjá sinn sem og raf
hlöðuendinguna.
Markaðurinn ranghverfist
Apple hefur lengi verið það tækni
fyrirtæki sem höfðar umfram allt
til fólks sem starfar í skapandi
greinum. Á sama tíma hafa tölvur
útbúnar stýrikerfum Microsoft selst
betur á meðal hins almenna borg
ara. Nú virðist það vera að breytast.
Þetta sést einna best á auglýs
ingum fyrirtækjanna. Annars vegar
fyrir MacBook Pro og hins vegar
fyrir nýja borðtölvu Microsoft, Sur
face Studio. Sú er með 28 tommu
snertiskjá og er sérhönnuð fyrir
hönnuði og listamenn.
Kynningarmyndbandið fyrir Sur
face Studio sýnir listamenn nota
tölvuna til að hanna byggingar,
teikna myndir og svo framvegis. Á
meðan heyrist rödd tala yfir kynn
ingarmyndbandi MacBook Pro um
einfaldleika tölvunnar og hversu
kraftmikil hún sé.
Upphafsorð Satya Nadella, for
stjóra Microsoft, hljóma mun
minna eins og eitthvað sem Steve
Ballmer fyrirrennari hans myndi
segja og meira eins og Steve Jobs,
sem stýrði Apple áður en hann lést
árið 2011. „Við sem fyrirtæki stönd
um með þeim sem hanna, þeim sem
byggja og þeim sem skapa,“ sagði
Nadella.
Þrátt fyrir það er því spáð að hin
nýja MacBook Pro muni seljast
einkar vel þar sem hún höfðar til
breiðari hóps. Því er hins vegar
velt upp í helstu tæknifréttaveitum
hvort Microsoft sé að sölsa undir sig
listamannamarkaðinn.
Fjarlægja fleiri innstungur
Fyrr í haust kynnti Apple nýjan
iPhone. Mikla athygli vakti að sím
inn er ekki búinn 3,5 mm heyrnar
tólainnstungu eins og flestallir
símar heldur munu notendur þurfa
að tengja heyrnartól sín við hleðslu
innstunguna eða nota þráðlaus
heyrnartól. Apple tilkynnti einnig
í vikunni að fyrirtækið myndi ekki
setja sín eigin þráðlausu heyrnatól
á markað eins fljótt og við var búist
þar sem enn er verið að fullkomna
þau.
Einnig gerir Apple breytingar
á innstungum MacBook Pro. Hin
sígilda segulinnstunga fyrir hleðslu
tæki er horfin og í stað hennar
kemur USBC hleðsluinnstunga. Þá
er HDMIinnstungan, sem flestir
nota til að tengja tölvu sína við
sjónvarp, einnig horfin sem og inn
stungan fyrir SDminniskort, Thun
derbolt 2 innstungurnar og venju
legar USBinnstungur. Í staðinn eru
nú fjórar USBC innstungur. Hins
vegar er heyrnartólainnstungan á
tölvunni enn til staðar, öfugt við
hinn nýja iPhone.
Misjöfn viðbrögð við MacBook Pro
Tækniblaðamenn hafa einkar misjafnar skoðanir á nýrri fartölvu Apple. Hún er sögð kraftlítil og ekki nógu innblásin. Aðrir segja
skjáinn flottan og snertislána áhugaverða. Á meðan fá nýjar tölvur Microsoft mikið lof og eru sagðar hafa stolið senunni.
Ný MacBook Pro í allri sinni dýrð. NordicPhotoS/AFP
Snertisláin á
MacBook Pro er
nýjung sem fær
misjafnar viðtökur.
NordicPhotoS/AFP
Viðbrögð við nýrri
MacBook Pro
nýja MacBook
Pro drepur flestar
þær innstungur sem þú
munt líklegast þurfa.
Techcrunch
Hvers konar
plötusnúður vill
nota snertislána, líkt og
Apple sagði til um, til þess
að blanda tónlist?
Charged
Ég býst við því að
ég kaupi ekki
Mac í ár.
Cnet
nýja tölvan er
þynnri og hrað-
virkari en sú fyrri og er
með snertislá sem auð-
veldar manni að senda
broskalla.
Wired
Innvols dýrustu útgáfu
l 2,9 GHz fjögurra kjarna Intel
Core i7 örgjörvi
l 16 GB vinnsluminni
l 2TB SSD geymsludrif
l Radeon Pro 460 4GB skjákort
Snjallsíminn notaður til að stýra húsinu
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Sífellt fleiri snjalltæki koma á
markað fyrir heimili. Slík tæki
eiga það flest sameiginlegt að
gera notendum kleift að stýra
hinum ýmsu þáttum
heimilis síns
með snjall-
símann
að
vopni.
Amazon Echo
Vefverslunarrisinn
Amazon býður upp
á snjallhátalarann
Echo sem er útbúinn
stafræna aðstoðar-
manninum Alexa.
Aðstoðarmaðurinn
virkar líkt og Siri sem
iPhone-notendur
þekkja til og kostar
hátalarinn um tutt-
ugu þúsund krónur.
Lifx
color
1000
Lifx
býður upp
á ljósaperur
sem þú getur
breytt um lit
á úr snjallsím-
anum.
August Smart Lock
Fyrir þá sem nýta hvert tæki-
færi til að týna húslyklunum
sínum, eða eiga sambýlis-
fólk sem er gjarnt á að læsa
sig úti, er hægt að kaupa
snjalllás frá August. Þá getur
maður opnað útidyrnar þótt
maður sé hvergi nærri heimili
sínu.
Nest
Learning
thermostat
Nest býður upp á stafrænan hita-
stilli fyrir heimili sem hægt er að
stýra úr snjallsíma.
Baby Monitor iBaby býður upp á myndavél sem tengist beint við snjall-
símann þinn svo þú getir fylgst með barninu.
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r14 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
2
B
-A
A
2
0
1
B
2
B
-A
8
E
4
1
B
2
B
-A
7
A
8
1
B
2
B
-A
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K