Fréttablaðið - 03.11.2016, Síða 66
Nordic Playlist er fyrsta tónlistarvefsíðan sem fókuserar á að segja frá norrænum tón
listarmönnum og útgáfum þeirra. Á
Iceland Airwaves í ár munu nokkrir
frábærir listamenn halda einkatón
leika fyrir fimmtán manns sem geta
boðið einum vini svo að hámarks
fjöldi á tónleikum er um þrjátíu
manns. Það verða nokkrir heppnir
dregnir út og fá að sjá sitt uppáhald
á lokuðum einkatónleikum,“ segir
Ósk Gunnarsdóttir fjölmiðlakona,
sem sér um kynningarmál fyrir tón
leikana.
Tónleikarnir verða haldnir bæði í
dag og á morgun, í dag kemur söng
konan Glowie fram á milli eitt og
tvö og við henni tekur svo Mugison
og spilar til þrjú. Rapparinn Emmsjé
Gauti tekur síðan lagið á milli tvö
og þrjú á föstudeginum. Það er
ekki nauðsynlegt að eiga armband
á hátíðina til að komast á tónleik
ana en hver sem skráir sig til leiks á
möguleika.
Nordic Playlist hefur það að
markmiði að kynna fólki um allan
heim tónlist frá Norðurlöndunum.
Hvað er betra en að kynnast nokkr
um af bestu tónlistarmönnum
landsins á litlum persónulegum
tónleikum? Glowie, Gauti og Mugi
son eru öll þekkt fyrir frábæra sviðs
framkomu og ættu því leikandi að
geta heillað fólk með sér á þessum
tónleikum í The Nordic Playlist
Lounge í Hörpunni.
Til að eiga möguleika þarf að skrá
sig á vefsíðu Nordic Playlist.
stefanthor@frettabladid.is
Örtónleikar fyrir heppna í Hörpunni
Vefsíðan Nordic Playlist býður upp á stutt-tónleika fyrir nokkra útvalda gesti í dag og á morgun. Fram koma
Glowie, Emmsjé Gauti og Mugison og fara tónleikarnir fram í sérstöku Nordic Playlist rými í Hörpunni.
Rapparinn Lord Pusswhip heldur í
kvöld tónleika samhliða Airwaves
hátíðinni, mætti kalla þá offvenue
tónleika, þar sem hann spilar ásamt
bandarísku hljómsveitinni Show
me the body og dauðapönksveitinni
Dauðyflin. Tónleikarnir fara fram í
Norðurkjallara Menntaskólans við
Hamrahlíð og hefjast klukkan
„Show me the body er ungt tríó
af reiðum pönkurum frá Brooklyn
hverfi í New York en þeir lifa og
hrærast í neðanjarðarkreðsu þar
ásamt hiphopböndum eins og
Ratking og Jaguar Pyramids.
Þeir spila rappskotið hardcore
pönk og hafa komið fram í skít
ugum kjöllurum í NY og í MoMA
listasafninu. Dauðyflin eru síðan
íslenskt dauðapönk, einhvers konar
hliðarverkefni hljómsveitarinnar
Börn,“ segir Lord Pusswhip, sem
heitir réttu nafni Þórður Ingi Jóns
son. Hann óskar á Facebook eftir
gistingu fyrir þessa reiðu pönkara
– kjörið tækifæri fyrir lesendur sem
hafa áhuga á að hýsa bandarískar
hljómsveitir.
Lord Pusswhip gaf í fyrra út sína
fyrstu plötu, Lord Pusswhip is
wack, og hefur hún fengið glimr
andi dóma. Hann hefur starfað í
neðanjarðarsenunni hér heima og
erlendis þar sem hann hefur verið
duglegur við að ljá röppurum takta
og hefur til að mynda gert það fyrir
nöfn eins og Antwon, Metro Zu og
Bones. Hann spilar annars á föstu
daginn á Húrra. – sþh
Býður reiðum pönkurum sófapláss
SHow me tHe Body
er ungt tríó af
reiðum pÖnkurum frá
Brooklyn-Hverfi í new york.
Glowie, Emmsjé Gauti og Mugison koma fram á örtónleikum fyrir nokkra útvalda tónlistaraðdáendur í sérstöku horni í Hörpu í dag og á morgun. Fréttablaðið/anton brink
Zayn Malik er búinn að vera dug
legur við að deila sínum dýpstu
leyndarmálum með aðdáendum
sínum. Söngvarinn og fyrrverandi
One Direction meðlimurinn sagði
fyrst frá því að hann hafi þjáðst af
átröskun í langan tíma en deilir því
einnig í ævisögu sinni, Zayn, sem
kom út á þriðjudaginn að hann hafi
verið greindur með ADHD.
Söngvarinn segist hafa verið
óstýrilátt barn, hann hafi ekki náð
að einbeita sér að nokkrum sköp
uðum hlut og honum hafi ávallt
liðið eins hann hefði enga stjórn á
því hvert hugur hans reikaði.
Hann viðurkennir að hafa alltaf
verið að koma sér í vandræði og
átt mjög erfitt með sig. Það var þó
ekki fyrr en löngu síðar sem í ljós
kom að hann þjáist af ADHD. Hann
hefur fengið sjúkdómsgreiningu frá
læknum og gerðist það í framhaldi
af því að hann mætti eitt sinn með
loftbyssu í skólann.
Fyrir utan þetta hefur söngvarinn
sagt frá kvíðavandamálum sínum
sem hafi svo leitt til átröskunar sem
hann þróaði með sér á meðan hann
var enn í One Direction. Hann bætir
því þó við að hann hafi aldrei fengið
neina greiningu þess eðlis og segist
einungis vera að tala um útlit sitt á
myndum frá árinu 2014. – sþh
meðlimur one direction
greindur með adHd
Söngvarinn og hjartaknúsarinn Zayn
Malik hefur lent í ýmsu á sinni stuttu
ævi. nordicPHotoS/GEtty
Það verða nokkrir
Heppnir dregnir út
og fá að Sjá Sitt uppáHald á
lokuðum einkatónleikum.
rapparinn lord Pusswhip heldur tónleika í norðurkjallara í kvöld. Fréttablaðið/Eyþór
Zayn Malik
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r52 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
Lífið
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
B
-B
D
E
0
1
B
2
B
-B
C
A
4
1
B
2
B
-B
B
6
8
1
B
2
B
-B
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K