Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 1
M Á N U D A G U R 3 1. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 255. tölublað 104. árgangur
VILJA MAGNA
UPP TILFINN-
INGASEIÐ
GLÆPASAGAN
ALLTAF JAFN
HEILLANDI
ENGIN ÍSLENSK
KONA SNARAÐ
JAFN ÞUNGU
ÁRNI ÞÓRARINSSON 34 ÍÞRÓTTIR SILKIKETTIRNIR 12
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formleg vinna við undirbúning
myndunar nýrrar ríkisstjórnar hefst
í dag með fundum forseta Íslands
með formönnum stjórnmálaflokk-
anna. Fara þeir á hans fund, hver á
fætur öðrum, til undirbúnings
ákvörðun um hverjum þeirra verði
falið umboð til stjórnarmyndunar.
Ríkisstjórnin hélt ekki meirihluta
sínum í alþingiskosningunum og
stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir
sem hugðust vinna saman náðu held-
ur ekki meirihluta. Sjálfstæðisflokk-
urinn er langstærsti flokkurinn og
styrkti stöðu sína. Ekki er hægt að
mynda minna en fjögurra flokka
stjórn án hans aðkomu. „Mér finnst
að hin lýðræðislega niðurstaða sé að
áherslur þess flokks sem vinnur sig-
ur í öllum kjördæmum verði að kom-
ast að. Við vitum það um leið að gera
þarf málamiðlanir þegar um sam-
steypustjórnir er að ræða,“ segir
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann á
Akureyri, telur að forsetinn feli
Bjarna stjórnarmyndunarumboðið
nema hinir flokkarnir geti sannfært
hann um að þeir séu með ríkisstjórn-
armynstur í kortunum. Lítið hafi
heyrst um það.
Gefum þessu tíma
Ekki er að heyra að lausn á stjórn-
armyndun hafi fundist í þreifingum
síðustu daga. „Það er enginn aug-
ljóst kostur. Við þurfum að gefa
þessu tíma. Ég held að þjóðfélagið
fari ekkert á hliðina þótt þetta taki
einhvern tíma,“ sagði Katrín Jakobs-
dóttir, formaður VG, í gærkvöldi.
Engin augljós stjórn-
armynstur í spilunum
Formenn á fund forseta í dag Líklegt að Bjarni fái stjórnarmyndunarumboð
Morgunblaðið/Eggert
MKosningar »2, 4, 6, 10, 14-17, 20
Kaflaskil urðu í stjórnmálabaráttunni í gær. Kosningakaflanum lauk og stjórnarmyndunarkaflinn tók við. For-
ingjum flokkanna virtist létt þegar þeir þurrkuðu af sér farðann eftir umræðuþátt í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Þar
ræddu nokkrir formannanna um að þörf væri á auknu samstarfi í þinginu, þvert á flokka, og túlkuðu niðurstöð-
urnar þannig að fleiri raddir fengju að heyrast. Vegna yfirlýsinga forystumanna virðast engir borðleggjandi kost-
ir vera til myndunar öflugrar meirihlutastjórnar. Hægt er að mynda fjögurra til fimm flokka stjórn vinstri- og
miðflokka en Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vera þátttakandi í öllum mynstrum um þriggja flokka stjórnir.
Nýr kafli tekur við hjá forystumönnum stjórnmálaflokkanna
Á Alþingi Íslendinga munu 28 nýir
þingmenn taka sæti í kjölfar alþing-
iskosninganna á laugardaginn var eða
sem nemur um 44,4 prósentum þeirra
sem taka sæti á Alþingi. Endurnýjun
er því töluverð en auk þeirra 28 nýju
þingmanna koma reynsluboltar á
borð við Þorgerði Katrínu Gunnars-
dóttur aftur inn á þing en hún var
fyrst kjörin á Alþingi árið 1999 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, gegndi m.a. vara-
formennsku í flokknum og var
menntamálaráðherra 2003-2009 en
hvarf af þingi árið 2013. Hún kemur
nú inn sem þingmaður Suðvestur-
kjördæmis fyrir Viðreisn.
Þá er nokkur aldursmunur á elstu
og yngstu þingmönnum Alþingis en
Ari Trausti Guðmundsson jarðfræð-
ingur verður 68 ára á þessu ári og er
því elsti alþingismaðurinn. Þær Ásta
Guðrún Helgadóttir, Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir og Eva Pandora
Baldursdóttir eru hins vegar allar
fæddar árið 1990 og því orðnar eða að
verða 26 ára gamlar á þessu ári.
Um miðja næstu viku er stefnt að
því að halda námskeið fyrir nýja þing-
menn að sögn Helga Bernódussonar,
skrifstofustjóra Alþingis. Það setjast
því tæplega 30 manns á skólabekk í
„þingmannaskólanum“ en hann var
einnig fjölmennur árið 2013 þegar 27
nýliðar voru á þingi. »2 og 20
Fjöldi nýrra þingmanna
Píratar
28 taka sæti
á Alþingi í
fyrsta sinn 6
2 7
6
4
2
1
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri græn
SamfylkinginFramsóknarflokkurinn
Björt framtíð
Viðreisn
Tæpur
helming-
ur nýr
28 nýir þingmenn
taka sæti á Alþingi
Samfylkingin galt afhroð í al-
þingiskosningum á laugardag og
hlaut 5,7 prósent greiddra at-
kvæða. Flokkurinn fékk eingöngu
þrjá þingmenn kjörna; þar af voru
tveir jöfnunarþingmenn. Í kjör-
dæmunum þremur á höfuðborgar-
svæðinu fékk Samfylkingin engan
þingmann, kjördæmum sem áður
voru sterkasta vígi flokksins.
Oddný G. Harðardóttir segir úr-
slitin kalla á endurskoðun og um-
ræðu um stefnu og forystu flokks-
ins.
„Hvort ég held áfram sem for-
maður er seinni tíma ákvörðun
sem ég tek ekki ein,“ segir
Oddný. »6
Samfylkingin horfin á höfuðborgarsvæð-
inu eftir afhroð í alþingiskosningum
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Erfið kosninganótt hjá Oddnýju
G. Harðardóttur, formanni Samfylkingar.
Kosningaþátttakan í alþingis-
kosningunum á laugardaginn
náði sögulegu lágmarki í 79,2% í
samanburði við 81,4% í kosning-
unum 2013. Minnst var hún í
Reykjavíkurkjördæmi norður en
mest í Norðvesturkjördæmi. Í
báðum kjördæmum minnkaði hún
milli kosningaára. Frá árinu 1978
hefur kosningaþátttaka leitað
niður á við með tveimur undan-
tekningum, 2003 og 1987. Slíkt
hefur tíðkast víðast hvar í heim-
inum þar sem kosningaþátttaka
hefur minnkað á undanförnum
áratugum. Í samanburði við
OECD-löndin stendur Ísland þó
ágætlega. » 10
Kosningaþátttaka
aldrei verið minni
Fylking vinstriflokkanna, sem
fundaði í seinustu viku á Lækjar-
brekku um mögulegt samstarf að
loknum alþingiskosningum, náði
ekki meirihluta þingmanna. Sam-
tals hlaut fylkingin 27 þingmenn.
Sitjandi ríkisstjórn féll og fengu
stjórnarflokkarnir samtals kjörna
29 þingmenn.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, segir að tíminn
hafi verið of skammur til að skýra
málefnalínur milli flokkanna.
Vinstri græn séu þó hlynnt þeirri
hugmyndafræði að það liggi fyrir
áður en gengið er til kosninga
hverjir samstarfskostir flokkanna
eru. »10
Lækjarbrekkustjórn Pírata náði ekki meiri-
hluta kjörinna þingmanna í kosningunum
Morgunblaðið/Eggert
Úrslit Fulltrúar flokkanna fjögurra bíða
viðtals í sjónvarpssal á kosninganótt.