Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Árni Páll Árnason, Helgi Hjörvar,
Valgerður Bjarnadóttir, Össur
Skarphéðinsson og Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir sem var í 1. sæti á
lista Samfylkingar í Reykjavík norð-
ur. Lengst af kosninganæturinnar
virtist hún virtist mundu þingsæti
sínu, en lokatölur úr Norðvestur-
kjördæmi gerðu útslagið.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samfylkingin galt afhroð í alþingis-
kosningum á laugardag og féll aðeins
5,7% greiddra atkvæða og þrjá þing-
menn kjörna. Þeir eru allir úr lands-
byggðarkjördæmum; þar af tveir
sem náðu á þing í jöfnunarsætum. Í
kjördæmunum þremur á höfuðborg-
arsvæðinu, sem áður voru traust vígi
flokksins, fékk flokkurinn engan
mann kjörinn.
„Þessi úrslit kallar á endurskoðun
og umræðu um stefnu og forystu, en
leyfum við rykinu aðeins að setjast.
Hvort ég held áfram sem formaður
er seinni tíma mál og ákvörðun sem
ég tek ekki ein,“ segir Oddný G.
Harðardóttir, formaður Samfylking-
arinnar, í samtali við Morgunblaðið.
Stjórn Samfylkingarinnar fundaði í
gær þar sem rædd voru „ýmis prakt-
ískt mál„ eins og formaðurinn komst
að orði. Þá á hún við að úrslitunum
fylgir að opinber stuðningur við
flokkinn verður mun minni og munar
þar milljónum króna.
„Ég á ekki von á því að reyna muni
á Samfylkinguna í stjórnarmyndun-
arviðræðum. Hins vegar myndum
við að sjálfsögðu leggja okkar lóð á
vogarskálar þess að hér yrði mynduð
umbótastjórn,“ segir Oddný
Þeir sex þingmenn Samfylkingar-
innar sem féllu út af þingi nú eru
„Fyrir Samfylkinguna eru úrslitin
vonbrigði, en að ég hafi ekki náð
kjöri er aukaatriði,“ segir Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir, sem var í 1.
sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík
norður. Hún telur að í núverandi
stöðu sé Samfylkingin ekki í færum
til þátttöku í ríkisstjórn en gæti var-
ið minnihlutastjórn.
Kallar á umræðu um forystumál
Samfylkingin tapaði miklu fylgi í alþingiskosningunum Verða tæplega í stjórnarmyndunarvið-
ræðum Tilbúin að styðja við umbótastjórn Stjórnin kölluð til fundar að ræða fjármál flokksins
Ljósmynd/Pressphotos
Mætt Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingar, og Logi Már Ein-
arsson, varaformaður og nýkjörinn þingmaður, á leið til stjórnarfundar.
„Vissulega eru vonbrigði að falla út
af þingi, þó svo að úrslitin hafi legið í
loftinu,“ segir Karl Garðarsson.
Hann náði ekki kjöri á þing, en hann
skipaði efsta sætið á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi norður. „Í umræðu fyrir
kosningar náði flokkurinn aldrei í
gegn sem skýrir útkomuna að
nokkru. Svo er líka mjög sorglegt að
flokkurinn skuli í fylgi ekki njóta
góðra verka sinna á liðnu kjör-
tímabili, til dæmis uppgjörs við
bankana og skuldaleiðréttingar-
innar.“
En þrátt fyrir útkomuna í kosn-
ingunum nú segist Karl Garðarsson
mjög bjartsýnn fyrir hönd síns
flokks, sem muni án nokkurs vafa
fljótt aftur ná styrk sínum. „Stjórn-
armyndunarviðræðurnar sem nú
fara af stað gætu tekið nokkurn
tíma, en ég hef trú á því að Fram-
sóknarflokkurinn, sem getur unnið
bæði til hægri og vinstri, verði í
næstu ríkisstjórn.“
Kom ekki á óvart
„Úrslitin komu ekki á óvart. Við
náðum aldrei siglingu í þessari kosn-
ingabaráttu,“ segir Willum Þór
Þórsson sem skipaði 2. sætið hjá
Framsóknarflokknum í SV-
kjördæmi og náði ekki kjöri. Hann
segist þó áfram tilbúinn til starfa
fyrir flokkinn, nú sem varaþingmað-
ur. Nú taki hins vegar ný verkefni
við og samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verður nú í vikubyrjun
gengið frá því að Villum verði áfram
þjálfari meistaradeildarliðs KR í
knattspyrnu sbs@mbl.is
Framsókn náði aldrei
siglingu í baráttunni
Karl
Garðarson
Willum Þór
Þórsson
Vonbrigði en úrslitin lágu í loftinu Fyrri styrkur næst aftur
„Það er langt seilst að tala um varn-
arsigur þegar flokkurinn tapar jafn
miklu fylgi og nú,“ segir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, þingmaður
Framsóknarflokksins. Vísar þar til
orða varaformannsins, Lilju Daggar
Alfreðsdóttur, sem sagði varnarsig-
ur hafa unnist í erfiðri baráttu.
Framsóknarflokkurinn fékk nú
11,5% greiddra atkvæða, borið sam-
an við 24,4% síðast. „Þetta þurfti
ekki að fara svona, ef við hefðum
staðið saman,“ segir Sigmundur.
Vísar þar til flokksþingsins þar sem
hann beið ósigur fyrir Sigurði Inga
Jóhannssyni.
„Sjálfstæðismenn stóðu saman í
þessari kosningabaráttu og það skil-
ar þeim miklu. Skýrir m.a. fylgis-
aukningu hér í Norðausturkjördæmi
og ég hef hitt fjölda fólks hér sem
segist ekki hafa getað kosið okkur
vegna átaka á flokksþinginu. Við
hefðum átt að halda upp á 100 ára af-
mæli Framsóknar í desember við
skemmtilegri aðstæður,“ segir Sig-
mundur. sbs@mbl.is
Átökin á flokks-
þingi ástæða taps
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Norðaustur Sigmundur Davíð og
Anna Sigurlaug, eiginkona hans.
Þeir tveir flokkar sem verst urðu
úti í kosningunum að þessu sinni
eru Samfylking og Framsóknar-
flokkur.
Er nú staðan sú að Samfylking er
með tæpan fimmtung þess fylgis
sem flokkurinn bar úr býtum í
kosningunum 2009 eða 5,7%.
Píratar buðu nú fram í annað
sinn, en flokkurinn þreytti frum-
raun sína í kosningunum 2013 og
fékk þá 5,1%. Að þessu sinni bætti
flokkurinn við sig verulegu fylgi og
þegar atkvæði höfðu verið talin
reyndist það vera 14,5%. Það er á
hinn bóginn nokkru minna fylgi en
flokknum hafði verið spáð í ýmsum
kosningakönnunum í aðdraganda
kosninganna.
Sé hins vegar litið til úrslita
kosninganna 2003, 2007 og 2009
var Framsóknarflokkur með fylgi á
bilinu 11,7-17,7%, en flokkurinn
fékk 11,5% fylgi nú. Árið 2013 fékk
flokkurinn 24,4% sem var besta út-
koma flokksins í 34 ár. jonth@mbl.is
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Niðurstaða kosninga þeirra flokka sem boðið hafa fram 1995-2016 og náð manni inn
1995 1999 2003 2007 2009 2013 2016
Framsóknarflokkurinn Björt framtíð SamfylkinginSjálfstæðisflokkurinn Vinstri græn Píratar Viðreisn
40,7%
37,1%
23,3%
9,1%
33,7%
18,4%
8,8%
31%
23,7%
17,7%
14,3%
26,8%26,8%
36,6%
14,8%
11,7%
21,7%
29,8%
26,7%
24,4%
10,9%
12,9%
8,2%
29%
14,5%
11,5%
15,9%
10,5%
5,7%
7,2%
Heimild: Byggt á tölum frá Hagstofu Íslands.
5,1%
Fylgi Samfylkingar
ekki svipur hjá sjón
ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Samfylkingin, sem varð til með
sameiningu Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalistans,
bauð fyrst fram í alþingiskosn-
ingunum 1999. Þá fékk flokkurinn
26,8% fylgi og 17 menn kjörna á
þing. Það var í takt við vænting-
arnar sem greina mátti í umræðu
á þessum árum, það er að flokk-
urinn hefði á góðum degi 30%
fylgi og gæti orðið mótvægi við
Sjálfstæðisflokkinn. Samfylkingin
hélt fylgi á því róli í kosningum
2003, 2007 og 2009. Eftir fjög-
urra ára setu í ríkisstjórn frá
2009 til 2013 fékk flokkurinn að-
eins 12,9% greiddra atkvæða og
9 þingmenn. Óhætt er því að
segja að miðað við væntingarnar
sem sem voru þegar flokkurinn
var stofnaður séu úrslitin nú,
5,7% fylgi, skipbrot.
Birgir Guðmundsson, dósent í
stjórnmálafræði við Háskólann á
Akureyri, segir útkomu Samfylk-
ingar í kosningunum nú um
margt hafa
ráðist af meiri
samkeppni og
ytri aðstæðum.
Fleiri flokkar
nú en áður séu
að fiska í
sama sjó, það
er sem kratísk-
ir miðjuflokkar.
Áður hafi Sam-
fylkingin, einn
íslenskra stjórnmálaflokka, verið
á þeim miðum.
„Nei, jafnaðarstefnan er ekki
búin þrátt fyrir þessi úrslit. Það
væri ekki heldur sanngjarnt að
skrifa þetta mikla fylgistap allt á
reikning Oddnýjar G. Harð-
ardóttur. Stundum liggur landið í
pólitíkinni bara þannig að einn
ákveðinn stjórnmálamaður getur
ekki miklu breytt, heldur ráða þar
ýmsir þættir úti í samfélaginu
sem ekki verður stjórnað,“ segir
Birgir.
Ytri aðstæður og meiri sam-
keppni ráðandi um útkomuna
FLOKKUR MEÐ 30% FYLGI Í UPPHAFI NÚ KOMINN Í 5,7%
Birgir
Guðmundsson