Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR
Keðjurnar eru til á allar gerðir vinnuvéla, vöru-
og flutningabifreiða, dráttarvéla og lyftara
FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR
Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar
Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur
Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur
Keðjurnar eru til í
mörgum gerðum og
í öllum mögulegum
stærðum
15%
AFS
LÁT
TUR
AF
ÖLL
UM
KEÐ
JUM
Á L
AGE
R
VER
ÐLÆ
KKU
N V
EGN
A L
ÆK
KAÐ
S
GEN
GIS
EUR
.
Þær eru margar klisjurnar í ís-lenskum stjórnmálum sem lít-
ið er að marka.
Ein lífseig er sú,að það fari all-
ir flokkar illa í
kosningum eftir
samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn.
Þrír fráfarandiþingmenn sátu í spjalli á
„RÚV“ á kosninganótt. Þar sat
þingmaðurinn Ólína Þorvarðar-
dóttir og varaði félagshyggju-
flokka við því að fara í samstarf
við Sjálfstæðisflokkinn því þá
myndi þeim farnast illa í næstu
kosningum.
Þannig hafi Samfylkingin fariðmjög illa út úr fyrstu kosn-
ingum eftir að Samfylkingin fór í
Þingvallabæjarstjórnina 2007.
Staðreyndin er hins vegar sú, aðSamfylkingin fór óverðskuldað
vel út úr kosningunum 2009, en
Sjálfstæðisflokkurinn fór illa.
Vorið 2013, eftir heilt kjör-tímabil undir forsæti Jóhönnu,
formanns Samfylkingar, í „fyrstu
hreinu vinstristjórninni“ beið Sam-
fylkingin afhroð.
Og nú, eftir á fjórða ár í stjórn-arandstöðu, sem flestir flokk-
ar græða á, varð Samfylkingin,
sem stofnuð var úr sameiningu 4
flokka, að næstum því ekki neinu.
Fékk 3 þingmenn á þessa fjóra
stofnflokka. Náði ekki einum þing-
manni á flokk.
Kannski tapaði hún mest, þarsem hún er ólæknandi klisju-
flokkur, sem engin bönd héldu, því
hún vildi ólm inn í brennandi hús
ESB.
Ólína
Þorvarðardóttir
Þreyttar klisjur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 alskýjað
Akureyri 6 skýjað
Nuuk 0 alskýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Ósló 5 léttskýjað
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 5 léttskýjað
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 14 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 14 léttskýjað
París 15 heiðskírt
Amsterdam 13 heiðskírt
Hamborg 11 léttskýjað
Berlín 9 heiðskírt
Vín 8 skýjað
Moskva 0 alskýjað
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 19 heiðskírt
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 1 léttskýjað
Montreal 5 léttskýjað
New York 19 léttskýjað
Chicago 11 skýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:10 17:14
ÍSAFJÖRÐUR 9:27 17:06
SIGLUFJÖRÐUR 9:11 16:49
DJÚPIVOGUR 8:43 16:40
Nú þegar októbermánuður er að
renna sitt skeið er ljóst að bæði hita-
og úrkomumet verða slegin.
Úrkoman er þegar komin upp fyr-
ir hæstu eldri heildartölur mánaðar-
ins í Reykjavík eða í rúmlega 200
millimetra, samkvæmt upplýsingum
frá Trausta Jónssyni veðurfræðingi.
Úrkoma hefur í fáein skipti farið
yfir 200 mm í einum mánuði í
Reykjavík, en ekki í október. Októ-
berúrkomumet falla líka á nokkrum
öðrum stöðvum, segir Trausti.
Meðalhitamet októbermánaðar í
Reykjavík er 7,9 stig – frá 1915,
næsthæsta talan er 7,7 stig (1959 og
1946). „Október nú endar einhvers
staðar á þessu róli – væntanlega
ekki met – því talan nú er 7,94 og
varla að hún haldist til loka – eitt-
hvert fimm efstu sætanna virðist
tryggt,“ segir Trausti á bloggi sínu.
Í Stykkishólmi er keppt við 1946
og 7,8 stig – meðalhiti nú er 8,07 og
enn möguleiki á meti. Á Akureyri er-
um við nú í 7,64 stigum – þar stefnir
í 2. sætið – 1946 er á toppnum – en
nokkuð langt niður í 1915.
Mælt hefur verið í Grímsey frá
1874. Þar stendur meðalhitinn nú í
7,71 stigi, langt ofan við það hæsta
hingað til, 7,0 (1946).
Sólskinsstundir eru með allra
fæsta móti í Reykjavík. sisi@mbl.is
Úrkomumetið í Reykjavík fallið
Ljóst að bæði hita- og úrkomumet
októbermánaðar verða slegin
Morgunblaðið/Golli
Október Linnulítið úrhelli.
„Við ætlum að
vera með hliðar-
tónleika í Vest-
mannaeyjum í
kvöld, klukkan 17
í Alþýðuhúsinu
og það kostar
ekkert inn,“ segir
Grímur Atlason,
einn stjórnenda
Iceland Airwav-
es-tónlistarhátíðarinnar. Iceland
Airwaves hefst á miðvikudaginn en
það verður byrjað að afhenda arm-
bönd í dag sem tryggja mönnum að-
gang á hátíðina. Hátíðin mun standa
yfir frá 2. nóvember til 6. nóvember.
En af hverju að vera með tónleika
í Vestmannaeyjum núna fyrir
Airwaves-hátíðina?
„Eyjamenn elska menningu og við
elskum Vestmannaeyjar,“ segir
Grímur. „Ástin er óbrigðul og frá-
bær. Við treystum því að Elliði Vign-
isson bæjarstjóri mæti í hlýrabol
með sjálflýsandi varasalva. Það er
planið.“
Á tónleikunum í Alþýðuhúsinu
munu Hildur og Emmsjé Gauti
spila. „Alþýðuhúsið er gamall og
sögufrægur staður eins og öll al-
þýðuhús eru.“ borkur@mbl.is
Grímur Atlason
Rokk og
Heimaey
Iceland Airwaves
fer til Vestmannaeyja