Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 10
Alþingiskosningar 1946-2016
Kosningaþátttaka
Heimild: Hagstofa Íslands
95
90
85
80
75
87
,4
%
89
%
89
,9
%
92
,1
%
90
,6
%
90
,4
%
91
,1
%
91
,4
%
90
,4
%
91
,4
%
90
,3
%
89
,3
%
88
,3
%
90
,1
%
87
,6
%
87
,4
%
84
,1
%
87
,7
%
83
,6
%
85
,1
%
81
,4
%
79
,2
%
19
46
19
49
19
53
19
56
19
59
19
59
19
63
19
67
19
71
19
74
19
78
19
79
19
83
19
87
19
91
19
95
19
99
20
03
20
07
20
09
20
13
20
16
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Kosningaþátttaka í alþingiskosning-
unum á laugardaginn nam 79,2% en
alls greiddu 195.200 manns atkvæði
af þeim 246.515 manns sem eru á
kjörskrá. Kjörsókn hefur ekki verið
lægri frá stofnun lýðveldisins.
Í Norðvesturkjördæmi var kosn-
ingaþátttakan mest þar sem 81,2%
greiddu atkvæði en minnst var hún í
Reykjavíkurkjördæmi norður eða
um 77,9% en í báðum kjördæmum
minnkaði hún frá alþingiskosningun-
um árið 2013.
Í fyrstu alþingiskosningunum eftir
lýðveldisstofnun var kjörsókn 87,2%.
Hún reis til ársins 1956 þegar hún
náði hámarki í 92,1% og staðnaði í
kringum 91% fram til kosninganna
1978.
Kjörsókn betri en víða í Evrópu
Alla jafna hefur kjörsókn farið
minnkandi milli kosninga frá árinu
1978 með tveimur undantekningum.
Árið 1987 hækkaði hún um tæp tvö
prósent upp í 90,1% og árið 2003 kom
brött aukning um rúm þrjú prósent
upp í 87,7%.
Kjörsókn á Ísland stendur vel í
samanburði við hinn vestræna heim.
Á lista yfir kjörsókn í OECD-lönd-
unum sem eru 35 talsins var Ísland í
sjötta sæti sé miðað við alþingiskosn-
ingarnar 2013 þegar kjörsókn var
81,4%. Í efsta sæti er Belgía með
89,4%. Í norrænum samanburði er
Ísland ofar Noregi og Finnlandi í
kosningaþátttöku en Danmörk og
Svíþjóð skora hærra. Líkt og á Ís-
landi hefur kosningaþátttaka minnk-
að víðast hvar í heiminum á síðustu
áratugum.
„Þetta er í takti við það sem hefur
verið að gerast annars staðar í heim-
inum,“ sagði Eiríkur Bergmann Ein-
arsson, prófessor í stjórnmálafræði
hjá Háskólanum á Bifröst, í samtali
við Morgunblaðið.
„Ég held að þetta sé hluti af því að
samfélög og fjölmiðlun eru að verða
fjölbreyttari sem gerir það að verk-
um að það er ekki lengur þannig að
allir lifi í sama upplifunarheiminum
eins og einu sinni var. Það eru fleiri
og fleiri í samfélaginu sem eru ekki á
sama hátt og áður þátttakendur í
þjóðfélaginu eða þjóðfélagsumræð-
unni.“
Hann sagði jafnframt að önnur
skýring fælist í því að vantrú á
stjórnmálum gæti búið til kaldhæðna
afstöðu um að atkvæði manns skipti
engu máli.
Pólitísk þátttaka aukist
Þrátt fyrir að kjörsókn sé í sögu-
legu lágmarki og hafi leitað niður á
við í nokkra áratugi sagði Eiríkur að
pólitísk þátttaka hefði aldrei verið
meiri.
„Þó að fólk veigri sér við að taka
þátt og bjóða sig fram til alþingis eða
finnist alþingi vera óheillandi þá er
myljandi áhugi á pólitík á Íslandi.
Við sjáum að það er aukin þátttaka í
pólitískum aðgerðum, mótmælum,
skrifum á netinu og svo framvegis. Á
sama tíma og kosningaþátttaka er að
minnka hefur pólitísk þátttaka í
landinu aldrei verið meiri,“ sagði Ei-
ríkur.
Kosningaþátttaka hjá aldurshóp-
um getur haft töluverð áhrif á úrslit
kosninga. Það er þekkt fyrirbæri að
yngri aldurshópar skila sér í minni
mæli á kjörstað og oft getur verið
kynslóðamunur á fylgi flokka.
„Píratar hefðu líklega verið stærri
ef þátttakan hefði verið jöfn hjá öll-
um aldurshópum. Kannanir sýndu að
stuðningur var mestur hjá yngri ald-
urshópum og það er yfirleitt þannig
að þeir skila sér minna á kjörstað.“
Kjörsókn í sögulegu lágmarki
Minnsta kjörsókn í alþingiskosn-
ingum á Íslandi frá stofnun lýðveldisins
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Á síðustu áratugum hefur kosningaþátttaka haft tilhneigingu til að minnka víðast hvar í heiminum.
10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500
• Frí heimsending lyfja
• Góð kjör fyrir eldri
borgara og öryrkja
• Gerðu verðsamanburð
• Lyfjaskömmtun á góðu verði
góð þjónusta
ogPersónuleg
Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00
Heilbrigð skynsemi
Heilsugæsla
efra Breiðholts
Gerðuberg
Lyf á lægra verði
Síðumúla 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 11
-15
Námskeið í
prjóni og hekli
sjá nánar á storkurinn.is
ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Jón Birgir Eiríksson
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, segir það vonbrigði
að kosningabandalag vinstri manna
nái ekki meirihluta samkvæmt
niðurstöðu kosninganna, en Píratar,
Vinstri græn, Björt framtíð og Sam-
fylking fá samanlagt 27 þingmenn
kjörna.
Starfandi ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar féll einnig og
fékk aðeins 29 þingmenn kjörna
samtals.
Of skammur tími
Katrín segir Vinstri græn fylgj-
andi því að flokkarnir tali með skýr-
um hætti í aðdraganda kosninga um
það með hverjum þeir vilji vinna.
„Auðvitað var tíminn mjög
skammur og það er í raun og veru
mjög óraunhæft að ætla sér að fara í
slíkt samtal þegar minna en tvær
vikur eru til kosninga og allir eru í
kosningabaráttu. Ég held að þetta sé
ágætis innlegg í þessa umræðu,
hvort þetta sé einhver þróun sem
eigi eftir að verða í íslenskri pólitík. Í
þessu tilfelli var bara of stuttur tími
til að skýra þessar málefnalínur,“
segir hún.
Ekki hrædd að taka áhættu
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pí-
rata, segir Pírata reyna að setja nýja
staðla og óttist ekki að taka áhættu.
„Ef maður er ekki tilbúinn til að
taka áhættu þá gerist ekki neitt. Ég
held að þetta muni hafa áhrif fyrir
framtíðina því nú hefur þetta verið
gert. Ég held að þetta hafi verið far-
sælt fyrir framtíðina, ekki fyrir okk-
ur endilega heldur fyrir skýrleika og
heiðarleika stjórnmálanna,“ segir
hún.
Spurð hvort öll von sé nú úti fyrir
kosningabandalag vinstri manna,
veltir hún upp stöðu Samfylkingar-
innar, sem fékk þrjá þingmenn
kjörna.
„Maður hlýtur að spyrja sig, núna
er staðan til dæmis þannig hjá Sam-
fylkingunni að ef ég væri í þessum
flokki þá myndi ég ekki vilja vera í
ríkisstjórn því flokkurinn þarf
greinilega að gera eitthvað til að lifa
af. Hann hefur misst alla sína þing-
menn á höfuðborgarsvæðinu sem er
rosalegt fyrir flokk sem var með sitt
bakland þar,“ segir Birgitta Jóns-
dóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Pírati Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, bíður úrslitanna í húsakynnum Ríkisútvarpsins á kosninganótt.
Náðu ekki meirihluta
Of skammur tími var til viðræðna, að mati Katrínar
Birgitta telur Samfylkingu ekki stjórntæka með 5,7% fylgi